Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 35
MISTRIÐ – The Mist, er byggð á
rúmlega 100 bls. sögu í smásagna-
safninu Skeleton Crew eftir Stephen
King, og er jafnframt sú fyrsta í
bókinni. Hugmyndin varð til í versl-
unarferð King-fjölskyldunnar eftir
illviðrisnótt sem gekk yfir Maine-
ríki, en atburðir úr hversdagslífinu
verða skáldinu gjarnan að yrkisefni.
Síðan eru liðin rösk 20 ár og sagan
mikið til gleymd, enda fjarri því að
vera frumleg, hvað þá að teljast með
eftirminnilegri verkum höfundar. Þá
koma þessar yndislegu fréttir, sjálf-
ur Darabont ætli að kvikmynda nó-
velluna, en hann á að baki tvær af
bestu kvikmyndagerðum King-
sagna, The Green Mile og klassíkina
The Shawshank Redemption – sem
einnig er nálgun á um 100 bls. verki.
Þar með er samanburðinum lokið,
The Mist er meðalmoð frá hrollvekj-
umeistaranum á meðan sagan af
myndinni af Ritu Hayworth er fim-
lega spunnin flétta frá fyrstu blað-
síðu til þeirrar síðustu, með frábær-
um persónum, vinklum og endi og
gerði Darabont að einu af stóru
nöfnunum í Hollywood.
Mistrinu er ekki alls varnað og
lofar góðu uns líf fer að kvikna í hinu
óhugnanlega mistri og rétt að fara
ekki fleiri orðum um það dýraríki því
margir hrollvekjuunnendur eiga
vafalaust eftir að sjá myndina þegar
slíkir stórhöfðingjar sem King og
Darabont eru koma við sögu.
Leikhópurinn er skipaður lítið
þekktum skapgerðarleikurum, það
skiptir ekki máli því það eru brell-
urnar sem fara með aðalhlutverkin.
Tónlist Marks Isham er tilþrifamikil
að venju, jafnvel fullmikilfengleg
miðað við rýrt umfjöllunarefnið. Nú
er að bíða og vona að Darabont
gangi betur með næsta verkefni eft-
ir King, að þessu sinni bætir hann
engu við eldri hrolli á borð við Nigt
of the Living Dead og The Fog.
Sæbjörn Valdimarsson
Margt býr í þokunni „Mistrinu er ekki alls varnað og lofar góðu uns líf fer að kvikna í hinu óhugnanlega mistri...“
Maðkar í mistrinu
KVIKMYND
Smárabíó, Laugarásbíó
Leikstjóri: Frank Darabont . Aðalleikarar:
Thomas Jane, Marcia Gay Harden, Andre
Braugher, Frances Sternhagen, William
Sadler. 127 mín. Bandaríkin 2007.
Mistrið – The Mist
bbmnn
ÞAÐ var gaman að fá tækifæri til að
heyra Cold Front-tríóið sem sextett
á NASA svona stuttu eftir að plata
þess, Full House, kom út. Þarna
voru að sjálfsögðu mættir ásamt
Birni Thoroddsen, meistarabassa-
leikarinn blakki Steve Kirby og
trompetleikarinn kanadíski af vest-
uríslensku ættunum, prófessor
Richard Gilles; máttarstoðir Cold
Front. Svo var hinn kanadíski Will
Bonness, stjörnusólistinn á Full
House, á rafpíanó því flygill fyr-
irfannst enginn á NASA, sem var
miður, og nýir menn á tenórsaxófón
og trommur, Eyjólfur Þorleifsson og
David Freedman. Eyjólfur fékk fá
tækifæri á tónleikunum en Freed-
man frá New York tók hvert
trommusólóið á fætur öðru og notaði
öll trikkin í bókinni. Full House er
dálítið í ætt við hinn svokallaða
„smoot jazz“ sem helst er spilaður af
djassættaðri tónlist á útvarps-
stöðvum vestra. Þeir félagar hófu
tónleikana á einu slíku lagi „O“ sem
var eftir Björn eins og öll lög tón-
leikanna utan „Over The Rainbow“
sem var einleikslag Björns með öll-
um stílbrögðum hans, gítartrommi
og leikrænum effektum, og „Night
In Tunisia“ sem var máttlítið
djamm. Í kjölfarið lék sextettinn
„Mr.G“ samvinnuverkefni Björns,
Kirby og Gilles af tríóskífunni Cold
Front, sem ég tel bestu skífu Björns
til þessa, og nú fengu menn að
spinna. Flott! Lögin urðu 11 og með-
al hápunktanna voru frábærir sólóar
Steves Kirbys m.a. í kántrískotnu
„Full House“ og sóló Will Bonness í
fönkuðu „Riot“ og þar var hann ekki
ólíkur Kjartani Valdimarssyni upp á
sitt besta. Svo má ekki gleyma frá-
bærri lagasmíð Björns „Ice West“
þar sem hann og Bonness fóru á
kostum. Það tók sextettinn smátíma
að ná grúfinu, en þegar allt var kom-
ið í gang og Kirby og Freedman
keyrðu á fullu var björninn unninn
og áheyrendur, sem troðfylltu
NASA, létu hrifningu sína óspart í
ljós.
Cold
Front
keyrir
á fullu
Árvakur/Ómar
Björn Thoroddsen Gítarleikari og
forsprakki Cold Front.
TÓNLIST
NASA
Cold Front – Föstudagskvöldið 18. janúar
2007bbbbn
Vernharður Linnet