Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 23 ✝ Elín OddnýHalldórsdóttir fæddist í Brekku í Svarfaðardal 21. október 1917. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð á Ak- ureyri 15. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru þau Þórlaug Odds- dóttir, f. 22. júlí 1885, d. 17. ágúst 1964 og Halldór Kristinn Jónsson, bóndi og dýralækn- ir, f. 10. des. 1882, d. 9. júlí 1953. Systkini hennar voru Sigurlaug, f. 2. nóv. 1910, d. 4. des. 1988 og Þorsteinn Jakob, f. 31. ágúst 1921, d. 19. júlí 1943. Elín giftist 16. maí 1945 Jóni Pétri Hallgrímssyni, f. 16. maí 1916, d. 13. okt. 1968. Foreldrar hans voru Hallgrímur Pétursson bókbindari, f. 17. okt. 1875, d. 20. apríl 1937 og Þórunn Valdimars- dóttir, f. 14. júní 1885, d. 9. júlí 1960. Dóttir Elínar og Jóns er Svanhvít, f. 15. okt. 1946. Hennar maður er Herbert Herbertsson, f. 1. jan. 1946. Börn hennar eru 1) Elín Anna Guð- mundsdóttir, f. 13. ágúst 1965, hennar maður er Sigurður Gunnarsson, f. 22. mars 1960 og börn þeirra eru Unnur, f. 13. júlí 1986 og Bjarki, f. 6. júní 1992. 2) Brynja Guðmundsdóttir, f. 15. mars 1967, hennar börn eru Guðjón Pétur, f. 28. des. 1987, Kristján, f. 21. nóv. 1989, Svanhvít Anna, f. 4. júlí 2003 og Stefán Smári, f. 18. mars 2005. 3) Jóhann Pétur Herbertsson, f. 7. júlí 1971 og 4) Guðrún Elín Her- bertsdóttir, f. 23. apríl 1978. Jón átti einnig dótturina Ásdísi Elfu frá fyrra hjónabandi. Hennar maður er Smári Hermannsson og eiga þau fjögur börn. Elín starfaði auk húsmóður- starfa nær allan sinn starfsaldur fyrir Kaupfélag Eyfirðinga, bæði við verslunarstörf og símavörslu. Elín verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma, ég var svo heppin að fá að vera hjá þér bernskuárin mín um jól, páska og sumur og fékk m.a. að vera með þér í kjallaranum í Kjörbúðinni í Byggðavegi, vigta og verðmerkja, algjör ævintýraveröld þar. Allt sem tengist Byggðavegi var stórt og gott í þínum huga, allt til loka dags, því þar var heimili ykkar afa í 93, kjörbúðin í nr. 98 og Helga Maggý í 88. Já, þú áttir góða vini þar og stelp- urnar tvær úr kjörbúðinni í Byggðavegi, Helga Maggý og Anna Freyja, hugsuðu svo sannarlega vel um þig. Það var svo gaman fyrir mig að koma stundum í Sólarkaffið ykkar og heyra spjallið eða þegar þú hafðir farið í Tískuverslun Stein- unnar og fengið eitthvað að láni og þú gast ekki fengið betri ráðgjafa en þær tvær. Og tryggari vinkonur er vart hægt að hugsa sér og þakka ég þeim af alhug fyrir allt sem þær gerðu fyrir þig. Þér fannst svo gaman að ferðast og ég þakka fyrir að ég fór með þér um borð í Drangi eldsnemma morg- uns til Grímseyjar og seinna um haust með biluðu rútunni yfir Sprengisand. En þú naust þín svo í ferðalögum og þú vildir alltaf skoða sem mest. Ég upplifði Ísland með þér, því Sigmundur og Sigrún eða Guðmundur L.Þ. og Dúdda voru svo dugleg að kippa okkur með í bílferð- ir um Norðurland og ekki skemmdi að hafa kleinurnar þínar með í för. Talandi um bakstur (!): það hefur engum tekist að leika eftir litlu bragðgóðu kleinurnar eða einstöku pönnukökurnar þínar, sama hvað ég reyndi eftir uppskriftum þínum, það vantaði alltaf sálina þína í deigið. Og allar hefðirnar þínar, þær snerust ekki um stórar gjafir, held- ur frekar að muna eftir dögum og þá var farið og keypt ein rós eða boðið í kaffi á Súlnabergi, þú mund- ir svo vel alla afmælisdaga, öll síma- númer og alla hátíðisdaga. Brekka í Svarfaðardal, ættaróðal- ið okkar. Þú varst ekkert smá stolt af öllum þar, þú dáðist að systur- dætrum þínum Göggu og Gunnellu og börn þeirra voru eins og ömmu- börn, sem þau voru reyndar ekki, því þau voru Öbbu-börn. Þú elsk- aðir lömbin í sveitinni og hafðir áhyggjur af þeim fram á síðasta dag og það var því yndislegt að þegar við fórum í þína síðustu ferð í Brekku að þá gast þú ekki farið út í fjárhús en Gagga ákvað að bjarga því og sótti því lítið yndislegt lamb og bar það upp í stofu til þín svo þú gætir haldið á því, knúsað það og andað að þér bestu lykt í heimi eins og þú nefndir það. Elsku amma, nú færðu loks hvíld- ina sem þú óskaðir þér og ég veit að þú ert núna hjá afa og Ella í Langó tekur örugglega hlæjandi á móti þér, hún ákvað að fara aðeins á und- an þér til að geta tekið á móti þér. Eftir langan aðskilnað færðu loks að hitta Þorsteinn Jakob bróður þinn og Diddu systur þína. Unnur sendir þér hlýjar kveðjur og þakkir fyrir kakóið og kleinurnar þegar hún gat rölt frá Lundarskóla til þín og gat montað sig af því að eiga alvöru ömmu í hverfinu. Bjarki fyrirgefur að þú varst í vandræðum með að halda með lið- inu hans í fótbolta því alvöru Þórs- arar halda bara með sínu liði og alls ekki liðinu á brekkunni. Hvíl í friði amma. Þín Elín Anna. Elsku amma, ég á frábærar minningar frá heimili þínu, í Ein- ilundinum. Þar dvaldi ég oft hluta sumars þegar ég var yngri. Og það var ósjaldan sem maður var settur í það að liggja á hnjánum með þér með sporjárn eða skrúfjárn og reyna að ná blessuðum fíflunum upp, og það með rótunum. En alltaf spruttu þeir upp aftur og baráttan var vonlaus. En þú lagðir svo mikla rækt við garðinn þinn, og ræktaðir þar rósir sem þú varst mjög hrifin af. Þú lagðir alltaf mikið upp úr því að vera snyrtileg til fara og áttir mjög vönduð og flott föt. Það var stundum eins og þú værir að koma beint frá París, háborg tískunnar. Og ekki þorði maður að segja þér frá því ef maður keypti föt í Hag- kaupum, þá var hægt að réttlæta hvíta lygi. Þér fannst nú meira koma til ef fötin voru keypt í tísku- vöruverslun. En það hefði auðvitað verið í lagi ef fötin hefðu verið keypt hjá KEA. Þú varst mikil KEA-manneskja. Á sumrin þegar ég var lítil þá vannstu í verslun KEA á Byggða- veginum og þá fórum við krakkarn- ir til þín og fengum brauð sem var búið að taka úr sölu og fórum með það til að gefa öndunum á litlu tjörninni fyrir neðan sundlaugina. Og síðar meir þegar þú varst farin að vinna á skiptiborðinu á skrifstofu KEA þá var alltaf jafnspennandi að koma við þegar við krakkarnir fór- um niður í bæ að leika okkur. Pönnsurnar þínar amma og klein- urnar voru bestu pönnukökur og bestu kleinur í heimi. Það var nú annað en það sem maður kaupir út í búð í dag. Kleinurnar þínar voru svo nettar og bragðgóðar og alltaf gam- an að baka með þér. Enda fór þetta allt saman fram á gömlu góðu Rafha-eldavélinni þinni sem er nú inni í bílskúr hjá mér. Og þú lagðir alltaf mikið upp úr því að leggja snyrtilega á borð með litlu nettu kaffibollunum þínum. Amma, þú hafðir mjög gaman af því að spila brids og ég fékk stund- um að spila með ykkur vinkonunum þegar eina vantaði og mér fannst auðvitað mjög merkilegt að fá að taka þátt í að spila með fullorðna fólkinu. Þú varst líka hrifin af bók- um og þegar ég hafði gengið fram af öðrum fjölskyldumeðlimum í bóka- kaupum þá hringdi ég bara í þig og sagði þér frá því hvaða bækur ég hafði keypt og þá blessaðir þú kaup- in mín, því þú varst örugglega besti viðskiptavinur bóksala norðan heiða og ég sá besti sunnan heiða. Og dá- læti mitt á Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi hef ég frá þér. Þú elskaðir sætu lömbin í sveit- inni í Brekku í Svarfaðardal. Þú elskaðir að vera í fjárhúsunum í Brekku en ég elskaði að vera í fjós- inu, fór alltaf fyrst út í fjós að hitta kýrnar áður en ég heilsaði upp á heimilisfólkið í Brekku. En dýrin voru okkur báðum ofarlega í huga. Og fundum við báðar frið og ró með dýrunum, eitthvað sem erfitt er að útskýra með orðum. Ég er þakklát Elínu Önnu og Sigga fyrir að hafa verið þér til að- stoðar öll þessi ár og vinkonum þín- um sem voru svo duglegar að heim- sækja þig, og fyrir alla þá hlýju sem fjölskyldumeðlimir frá Brekku hafa sýnt þér í gegnum tíðina. Nú ertu komin á nýjan stað þar sem verður hugsað vel um þig, Hvíl í friði amma mín, þín Brynja. Elsku amma mín. Mínar helstu minningar um þig eru og verða alltaf sólskinsríkir sumardagar á Akureyri. Rósirnar þínar, fjólurnar og hádegisblómin, öll í fullum skrúða. Þær voru marg- ar stundirnar sem þú eyddir í garð- inum. Þyturinn í öspunum í bland við hljóðið í gömlu sláttuvélinni þinni, þessari mann-knúnu, hljóma enn í hausnum á mér sem þessi eini sanni sumarhljómur. Bragðið og lyktin af gómsætu pönnukökunum þínum gleymast heldur ekki, og ég mun aldrei gefast upp á því að reyna að ná mínum pönnukökum eins. Ég þykist þó vita að mér muni aldrei takast það. Mig grunar að þú fylgist svo framvegis með mis- heppnuðum tilraunum mínum og hlæir þínum skemmtilega hlátri. Kannski réttir þú mér hjálparhönd. Við vorum duglegar að skrifast á þegar ég var stelpa og mér þykir svo vænt um bréfin okkar. Þú send- ir mér oftast þurrkaða fjólu með í umslaginu. Ég sagði þér frá skól- anum, vinunum og jafnvel veikind- um. Ég hlæ mig enn máttlausa þeg- ar ég les bréf sem ég skrifaði þér 10 ára gömul. Ég hafði veikst eitthvað og fór til læknis. Í bréfinu til þín skrifa ég nákvæmlega hvað lækn- irinn sagði, hvaða lyf ég ætti að taka og hversu oft á dag. Þetta hefur því hljómað miklu meira eins og lyfseð- ill heldur en bréf. En afi var nú líka lyfjafræðingur, svo þetta er kannski ættgengt. Þetta bréf enda ég svo á orðunum: „Jæja, nú hef ég ekki meira að segja amma mín, ég þarf að fara að taka meðölin mín.“ Heim- sóknum mínum til þín fækkaði mik- ið síðustu árin. Ég held ég hafi ein- ungis hitt þig fjórum sinnum síðasta árið. En það var samt alltaf svo gott að koma til þín. Þú brostir, alltaf svo fín og vel til höfð. Ég vil senda starfsfólki öldrunarheimila Akur- eyrar sérstakar kveðjur með þökk fyrir góða umönnun. Eins vil ég taka það fram hversu þakklát ég er Ellu systur og Sigga. Þau sáu svo vel um þig og reyndust þér svo vel. Það var gott að hafa náð að kveðja þig amma mín. Fengið að kyssa þig og halda í höndina á þér undir það síðasta. Þú hefur loksins fengið friðinn og ert komin á góðan stað, þar sem afi tekur vel á móti þér. Þar getur þú svo dundað í garð- inum, tekið á móti lömbunum og sinnt öðrum sveitastörfum. Hugur þinn og hjarta var alltaf í sveitinni. Hugur minn og hjarta mun alltaf minnast þín, elsku amma. Guð geymi þig. Guðrún Elín. Abba var frænkan okkar í Brekku. Eins og til að staðfesta það enn frekar átti hún þar sitt eigið gælunafn, en annars var hún kölluð Ella. Sjaldan var farið í bæjarferð án þess að koma við hjá Öbbu og þar voru höfðinglegar móttökur. Abba átti alltaf eitthvað til að bera á borð. Það var auðvitað heimabakað og í öðrum stærðum en maður átti að venjast. Allt var smátt og fínlegt, kleinurnar litlar og nettar eins og þær höfðu verið hjá mömmu henn- ar, partar og kökur allt af penna taginu. Í Einilundinum voru hlut- irnir í óaðfinnanlegri röð og reglu á notalegan og hlýjan hátt. Abba var glæsileg kona, henni var annt um að koma vel fyrir, var með eyrnalokka, varalit og óaðfinnanlega greiðslu upp á hvern dag. Þegar við systkinin vorum í Menntaskólanum á Akureyri var Einilundurinn okkar annað heimili. Ávallt var okkur fagnað innilega og þegar Klemenz Bjarki kom í heim- sókn var hún sérstaklega kát, ekki síst ef vinkonur hennar voru þar fyrir, þá gantaðist hún með að það væri kominn ungur herra að finna hana, þær væru nú ekki svona heppnar. Í Einilundinum áttum við öll dýrðarstundir með kaffi í brúnu glasi og mauluðum örsmáar pipar- kökur meðan við flettum Morgun- blaðinu sem var framandi málgagn okkur sem ólumst flest upp með Tímanum og Degi. Þegar við frændsystkinin fimm brautskráðumst frá MA voru stúd- entsveislur okkar allar haldnar hjá Öbbu í Einilundinum. Þá var Abba einnig ómissandi hjálparhella í fermingarveislum okkar þar sem hún stóð gjarnan og hrærði heitt súkkulaði í stærðarpotti. Súkkulaði sem átti engan sinn líka. Abba ólst upp í Svarfaðardal ásamt eldri systur sinni og ömmu okkar Sigurlaugu og yngri bróður þeirra Þorsteini Jakobi. Hann varð bráðkvaddur um tvítugt og var öll- um harmdauði. Eflaust syrgðu þær systur hann alla tíð á sinn hljóðláta hátt og vorum við systkinin öll alin upp í mikilli virðingu við minningu hans. Kannski varð þetta áfall til að styrkja samband þeirra systra en það virtist alltaf fallegt og fullt af hlýju. Þegar minnistap tók að hrjá hana Öbbu okkar fyrir nokkrum árum var uppruni hennar og tenging við sveitina henni þó alltaf hugstæð. Hún spurði ævinlega eftir kindun- um, hvernig sauðburðurinn eða hey- skapurinn gengi og hringrásin í sveitinni var henni hugleikin. Í síð- asta sinn sem hún heimsótti dalinn komst hún ekki í fjárhúsin til þess að ná sér í lambalykt, eins og hún orðaði það svo gjarna, en fékk lamb heim í stofu því ekkert var henni jafnkært í sveitinni og nýfædd lömb. Það eru ljúfsárar tilfinningar sem fylgja því að kveðja Öbbu. Hennar tími var eflaust kominn og efst í huga er þakklæti fyrir allan þann kærleika sem hún sýndi fjölskyldu systur sinnar alla tíð og skipti þá ekki máli hvaða kynslóð átti í hlut. Á síðustu árum snerust hlutverkin við og endurguldu móðir okkar og systir hennar alla þá umhyggju með því að sinna henni ævinlega af áhuga og ræktarsemi. Við minn- umst Öbbu með virðingu og mikilli hlýju og erum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista við hana svo lengi sem raun bar vitni. Guðrún Þóra, Sigurlaug Anna, Steinunn Elva og Klemenz Bjarki. Kærleikur, glaðværð, tryggð, um- hyggja og æðruleysi eru orð sem koma upp í hugann þegar ég minn- ist Elínar Oddnýjar Halldórsdóttur, eða Ellu ömmu eins og hún var oft- ast kölluð á okkar heimili. Ég kynntist Ellu sumarið 1981, en það vor var ég svo lánsamur að nafna hennar og ömmubarn flutti frá Álftanesi til Akureyrar til að stofna heimili með mér. Ella tók mér strax einstaklega vel, kannski var ástæðan sú að hún var ákaflega ánægð að fá Elínu Önnu til Akureyrar, enda ekki aðrir ættingjar hennar hér í bænum. Heimsóknir okkar í Einilundinn voru líka mjög tíðar og alltaf jafn notalegt að njóta samverunnar þar. Garðurinn í Einilundi átti oft hug hennar allan og dugði ekkert annað en að fá lærða garðyrkjumenn í hin ýmsu verk, t.d að klippa runnana. Fyrstu árin fékk ég að slá grasið og stinga upp kartöflugarðinn, en það tók mig 10 ár að öðlast réttindi til að klippa runnana, öll garðverkin þurfti að vinna á sérstakan hátt, t.d mátti ekki vökva rósirnar með vatni beint úr krananum, heldur þurfti vatnið að hafa staðið í garðkönnu þannig að rósirnar fengju ekki áfall við að fá á sig ískalt vatnið. Allt þetta skilaði sér í blómstrandi og fallegum garði. Ekki vantaði veitingarnar hjá Ellu, alltaf nýuppáhellt eðalkaffi í fínlegu litlu kaffibollunum, litlu kleinurnar og pönnukökurn- ar, oftar en ekki voru fleiri mættir í kaffið því hún var vinmörg og átti góða og trygga vini sem héldu sam- bandi alla tíð. Get ekki sleppt því að minnast á Brekku í Svarfaðardal, en þangað fórum við fjölskyldan oft með Ellu meðan heilsa hennar leyfði. Það var eins og hún væri komin heim og þannig tók fólkið í Brekku á móti okkur öllum. Heimsóknin var svo fullkomin þegar hún var búin að fara í fjárhúsin og anda að sér ilm- inum og knúsa lömbin. Kvöldið áður en hún andaðist er mér dýrmætt. Ég fékk að sitja hjá henni með kertaljós og litla engilinn hennar upplýstan við hliðina og lítið lamb í hendinni, þarna kvaddi ég Ellu og verð ævinlega þakklátur að hafa fengið að kynnast henni. Sigurður. Elín Oddný Halldórsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ÞÓRLINDSDÓTTIR, Sigtúni, Fáskrúðsfirði, sem lést þriðjudaginn 15. janúar, verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 26. janúar kl. 14.00. Skafti Þóroddsson, Högni Skaftason, Ingeborg Eide, Arnþór Atli Skaftason, Jóna Bára Jakobsdóttir, Gunnþóra Arndís Skaftadóttir, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Erla Skaftadóttir, Sveinn Sigurjónsson, Magnús Hafsteinn Skaftason, Sigríður Jónína Garðarsdóttir, Kristján Birgir Skaftason, Hafrún Traustadóttir, ömmu- og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.