Morgunblaðið - 21.01.2008, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sæmundur Jó-hannsson fædd-
ist á Skriðulandi í
Arnarneshreppi 24.
nóvember 1924.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 12. janúar síð-
astliðinn. Hann var
sonur Ástríðar Sæ-
mundsdóttur frá
Kleif í Þorvaldsdal
og Jóhanns Sig-
valdasonar frá
Rauðalæk í Hörgár-
dal. Sæmundur var
næstelstur í stórum systkinahópi
en hin voru Bára, f. 1921, d. 1996,
Gunnar, f. 1926, d. 1987, Sigrún,
f. 1928, Baldvin Helgi, f. 1931, d.
1944, Þóroddur Ingvar, f. 1932, d.
1989, Aðalsteinn Björgvin, f.
1934, tvíburarnir Áslaug og Snjó-
laug, f. 1938 og Bryndís, f. 1942.
Sæmundur fór snemma í vega-
vinnu og gat þannig aðstoðað for-
eldra sína við framfærslu heim-
ilisins. Hann lauk múraranámi og
byggði m.a. stórt steinhús að Ytri
Ásta Kristín Sæmundsdóttir
Norrman, f. 3.2. 1959, hjúkrunar-
fræðingur í Svíþjóð, gift Lars
Tommie Norrman frá Svíþjóð og
eiga þau dæturnar Christinu,
Söndru og Ylvu.
Guðrún, húsmóðir í Hafn-
arfirði, f. 23.7.1962, gift Kjartani
Birgissyni frá Reykjavík, þau eiga
2 börn, Margréti og Kjartan
Helga.
Sæmundur var mikill athafna-
maður. Hann vann að mestu við
sína iðn, en fór á sjóinn bæði sem
háseti og kokkur þegar minna var
að gera í múrverki. Hann var
mikils metinn fagmaður og vann
við iðn sína fram á síðustu daga.
Hann hafði mikinn áhuga á lík-
amsrækt, stundaði sund daglega
og var fastur gestur á líkams-
ræktarstöðinni. Hann var líka
mikill göngugarpur og fór oft í
göngur með Útivist. Hann var
fróður maður og hætti aldrei að
læra. Fór meðal annars í tölvu-
skóla þegar hann var kominn yfir
áttrætt. Hann var góður bridsspil-
ari og keppnismaður í þeirri
íþrótt. Líkt og frændi hans Jónas
Hallgrímsson var Sæmundur ein-
stakur náttúruunnandi og mál-
leysingjar voru honum kærir.
Sæmundur verður jarðsunginn
frá Árbæjarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Reistará fyrir for-
eldra sína og systk-
ini. Húsið stendur
enn í dag. Sæmund-
ur flutti suður til
Reykjavíkur og lauk
múrarameist-
aranámi 1953.
Sæmundur kvænt-
ist Margréti Krist-
jánsdóttur frá Siglu-
firði í mars 1957 en
hún er dóttir hjón-
anna Kristjáns B.
Kjartanssonar út-
gerðarmanns og
Ólínu Kristjánsdóttur húsfreyju.
Sæmundur og Margrét slitu sam-
vistum 1985. Saman eignuðust
þau 3 börn. Þau eru:
Kjartan, húsasmíðameistari og
grunnskólakennari á Ólafsvík, f.
5.7.1957. Hann á frá fyrra hjóna-
bandi dótturina Lilju Björk, sam-
býlismaður Jón Aðalsteinn Krist-
jánsson, þau eiga 2 syni, Danival
Ísak og Dag Aron. Kjartan er
kvæntur Ekaterynu Siparenko og
á hún eina dóttur, Anastasiyu.
Mig langar til að kveðja þig með
nokkrum orðum, pabbi minn. Eins
og á unglingsárum mínum hef ég
núna síðustu dagana verið í vinnu
hjá þér og hugurinn reikar yfir
þessa leið sem við fórum saman þú
og ég. Slóðirnar okkar eru nokkuð
líkar. Auðvitað gekk á ýmsu á leið-
inni. Stundum fórumst við á mis en
náðum þó alltaf saman aftur. Við
áttum mörg frábær ár saman. Allir
þínir kostir sem ekki fengu notið sín
á uppvaxtarárum mínum blómstr-
uðu á elliárunum þínum. Þú varst
frábær afi hennar Lilju Bjarkar og
þú stóðst þig svo sannarlega í lang-
afahlutverkinu líka. Í fersku minni
er mér dagurinn sem við áttum sam-
an í vinnunni í sumar meistararnir
tveir og lærlingurinn Danival Ísak.
Svo fannst þér nú ósköp vænt um
litla Dag Aron líka. Í vor bættust
svo Katya og Anastasiya við í fjöl-
skylduna. Þrátt fyrir tungumála-
hindranir þá leyndi sér ekki að þér
þótti mjög vænt um þær. Það var
þér afar mikilvægt að þeim liði sem
allra best hér á Íslandi.
Ég var að skoða myndir heima
hjá þér. Fallegur drengur í ferming-
arfötunum sínum. Ungur myndar-
legur maður við sveinsstykkið sitt.
Tignarlegur fjölskyldumaður við
dráttarkarlinn að draga netin á
netabát. Aldraður maður á ættar-
móti með afkomendum sínum. Ég
hef setið langtímum saman og horft
á þessar myndir, pabbi. Einu sinni
varstu lítill drengur eins og ég. Þú
sagðir mér aldrei frá þeim tíma,
pabbi. Varstu svona pjakkur eins og
ég var? Hvernig voru æsku- og upp-
vaxtarárin þín? Þú vildir aldrei tala
um það.
Ég er þakklátur að ég fékk að
vera svona náið með þér síðustu
dagana sem þú lifðir, fyrir að hafa
fengið að vera hjá þér þegar þú
fórst. Þrátt fyrir að sjúkdómurinn
þinn hafi dregið úr þér máttinn til
að tjá þig með orðum, þá skildum
við hvor annan. Stundum ypptir þú
öxlum liggjandi í rúminu þínu og
það gerðir þú oftast þegar þér
fannst málefnin frekar lítilfjörleg og
nenntir ekki að ræða þau. Þú varst
svo þakklátur hinu minsta sem gert
var fyrir þig. Þú varst svo auðmjúk-
ur. Við vorum ekkert að kveinka
okkur, pabbi. Við bitum á jaxlinn og
héldum ótrauðir áfram þar til yfir
lauk. Ég hef það andskotans nógu
gott svaraðir þú mér, kvalinn af
sjúkdómnum þínum. Við vissum
báðir hvert stefndi og óhræddur
lagðir þú upp í þetta ferðalag. Þú
kenndir mér svo margt á þessum
síðustu dögum, pabbi minn. Svo
margt um sjálfan mig. Á þinn hátt
gerðir þú mér grein fyrir því að það
væri afar eðlilegt að þú þyrftir að
fara núna. En mikið ósköp hefði ég
nú viljað hafa þig lengur hjá okkur,
pabbi. Það er ekki okkar stíll að
gráta, pabbi. Við berum ekki tilfinn-
ingar okkar á borð. Lífið og brenni-
vínið setti mark sitt á okkur. Þrátt
fyrir að oft hafi það verið þér ósann-
gjarnt þá hallmæltir þú aldrei
nokkrum manni.
Mikill öðlingur er horfinn á vit
feðra sinna. Ég þakka þér samferð-
ina pabbi minn og ég veit þú hefur
það fínt þar sem þú ert. Það verður
mikill missir að þér. Ég á eftir að
sakna símtalanna frá þér. Hvaðan
fæ ég nú nýjustu fréttir úr heimi
vísindanna eða fyrirlestur um það
hvernig einhver dýrategund aflar
sér fæðu sinnar?
Kveðja,
Kjartan
Elsku pabbi. Það er skrýtin til-
finning að ganga hér um íbúðina
þína og þú ert ekki hér. Ég er senni-
lega eitthvað treg að þessu leyti, en
síðustu dagana sem við áttum sam-
an á sjúkrahúsinu, hugsaði ég ekki
um annað en að ég vildi að þú hefðir
það sem best og að þú fengir að
fara, þar sem þú varst orðinn of
veikur til að geta notið lífsins. Það
var svo ekki fyrr en rúmum sólar-
hring síðar sem ég gerði mér grein
fyrir að þú værir horfinn frá mér.
Þá komu fram allar minningarnar
og sú tilhugsun að ég ætti aldrei eft-
ir að hitta þig og tala við þig var
óbærileg.
Þú varst yndislegur pabbi. Ég
hugsa oft til þess tíma þegar við
krakkarnir, nýkomin með bílpróf
klessukeyrðum bílana þína hvert á
fætur öðru og það eina sem þú hafð-
ir áhuga á var hvort einhver hefði
slasast. Að bíllinn væri ónýtur var
algjört aukaatriði því eins og þú
sagðir: „Það er alltaf hægt að bæta
dauða hluti,“ og við vorum ekki einu
sinni skömmuð. Ég hugsa til þess
þegar við sátum uppi heilu næturn-
ar og töluðum saman um allt og ekk-
ert, lögðum þrautir fyrir hvort ann-
að og leystum gátur lífsins. Þú varst
mikill dýravinur og varst alltaf með
einhverja villiketti í fæði og hús-
næði. Þeir fengu að koma og fara
eins og þeir vildu. Þú þurftir aldrei
að eiga neitt dýr. Þau áttu þína ást
skilyrðislaust. Þau löðuðust að þér,
hvort sem það var læðan í næsta
húsi sem flutti inn í klæðaskápinn
þinn þegar kom að því að gjóta kett-
lingum, eða köngulóin sem bjó utan
á glugganum þínum síðastliðið sum-
ar. Þú fylgdist grannt með henni,
hvernig hún veiddi í net sitt og háði
sína lífsbaráttu. Þú náðir þér í bók
um skordýr og last af miklum
áhuga. Þú varst mjög heillaður af
þessum litlu dýrum. Tíkin okkar
elskaði þig meira en nokkra aðra
manneskju og þegar afi kom fékk
hún svo langa göngutúra að hún var
alveg uppgefin. Þú varst alltaf að
læra eitthvað nýtt.
Ég man þegar þú ákvaðst að fara
til Þýskalands á ráðstefnu, þá fórst
þú að læra þýsku, þegar þú fékkst
sænskan tengdason fórst þú í Há-
skólann að læra sænsku og þegar
tölvurnar komu fórst þú á tölvu-
námskeið. Þú varst gífurlega fróður
um margt, sérstaklega um náttúr-
una. Þú varst mikill umhverfis-
verndarmaður. Einn af fáum á Ís-
landi sem kom lífrænum úrgangi í
moldarform. Þú átt stórt og gott
bókasafn og bæri eitthvað á góma
sem þú vissir ekki gastu alltaf slegið
því upp.
Þú varst gífurlega sterkur maður,
bæði andlega og líkamlega. Síðustu
dagar þínir eru gott dæmi um það.
Þú varst alveg sáttur við að líf þitt
var að verða búið. Samt varst þú
skemmtilegur og notaðir þína síð-
ustu krafta í að hlæja og gera að
gamni þínu. Elsku pabbi. Ég vil
þakka þér þann tíma sem við áttum
saman. Minning þín mun lifa í huga
mínum alla tíð.
Ég vil einnig nota tækifærið til að
þakka læknum og öðru starfsfólki á
A-7 þá góðu umönnun sem pabbi
fékk hjá ykkur og skilning og styrk
sem þið veittuð okkur aðstandend-
um.
Ásta.
Sæmundur Jóhannsson, eða afi
Sæmi, eins og hann var kallaður í
minni fjölskyldu, er fallinn frá. Mig
langar að minnast hans með nokkr-
um orðum. Ég hitti Sæmund fyrst
stuttu eftir að ég kynntist Guðrúnu
dóttur hans. Það var um páska og
mér var boðið í mat hjá þeim hjón-
um og það sem kom mér mest á
óvart var að hann eldaði allan mat-
inn, ég hafði ekki vanist því að karl-
menn elduðu mat.
Matur var mjög mikilvægur þátt-
ur í lífi Sæmundar og var hann
tilbúinn að prófa nýjar matarupp-
skriftir og var áskrifandi að fjölda
matreiðslubókaklúbba. Hann hugs-
aði mikið um heilsuna, gekk á fjöll
með Útivist og fór í sund á hverjum
degi og synti langar vegalengdir, en
fyrir nokkrum vikum kvartaði hann
yfir því að hann gæti ekki synt nema
400 metra vegna slappleika, 83 ára
gamall! Sæmundur var mikill fag-
maður í sinni iðn og vann sín verk af
mikilli kunnáttu og dugnaði. Hann
átti það stundum til að fara á sjó ef
ekki voru næg verkefni fyrir hendi í
landi. Ég vann með honum fyrir
mörgum árum sem handlangari í tíu
daga og þar lærði ég vinnubrögð
sem reynst hafa mér vel. Sæmundur
var mikill skákáhugamaður og
bridgespilari og varð meðal annars
Vestfjarðameistari í þeirri íþrótt.
Hann hafði mikinn áhuga á íslensku
máli og málvernd og átti það jafnvel
til að hringja í frétta- og blaðamenn
til að leiðrétta þá. Hann hafði sterk-
ar skoðanir á mörgum málum svo
sem umhverfisvernd og fiskveiði-
stjórnun, einnig á Kárahnjúkavirkj-
un þar sem hann var búinn að
reikna það út að hún myndi aldrei
borga sig.
Sæmundur hafði einstakt lag á
dýrum og löðuðust þau að honum og
er hundurinn minn gott dæmi um
það, en hún fór gjörsamlega ham-
förum þegar hún hitti hann og róað-
ist ekki fyrr en hún var búin að kara
hann frá toppi til táar. Í ætt hans er
fræg frásögnin af mannýgu nauti á
bernskuheimili Sæmundar, en hann
var sá eini sem gat farið með það á
milli bæja þegar kýrnar þurftu á því
að halda. Í sumar áttum við góðar
stundir þegar við unnum við steypu-
viðgerðir á tröppunum heima hjá
mér og átti ég fullt í fangi með að
hræra steypu og handlanga í 83 ára
gamlan múrarameistarann, en að
loknu dagsverki eyddum við góðum
stundum yfir grilli og köldum bjór á
sólpallinum í faðmi fjölskyldunnar.
Ég kveð þig nú, kæri vinur, og
megi Drottinn blessa þig og vernda.
Kjartan Birgisson.
Elsku afi! Jólin í ár voru engin
venjuleg jól. Þetta voru fyrstu jólin í
13 ár sem þú varst ekki hjá okkur og
það var eins og það vantaði jólatréð.
Þú varst vanur að koma í byrjun
desember, oftast rétt áður en ís-
lensku jólasveinarnir fóru að koma
með gott í skóinn. Þú komst með
fullt af lakrís og öðru íslensku
nammi, hangikjöt og Macintosh. Þú
varst alltaf að gefa okkur eitthvað.
Twiggy tíkin okkar var yfir sig ham-
ingjusöm þegar þú komst, þú
þreyttist aldrei á að klóra henni.
Það var bara þegar afi var í heim-
sókn sem hún fékk að sitja uppi í
sófa. Þá sat hún í fangi þínu og
horfði ögrandi á mömmu. Ef Twiggy
sat ekki í fangi þínu var Ylva þar.
Við munum eftir áramótunum
rétt eftir að Ylva fæddist, þegar við
dönsuðum í kjallaranum langt fram
á nótt. Jólin í sumarbústaðnum voru
líka mjög skemmtileg. Þá var 20
stiga frost og snjór yfir öllu. Við
stelpurnar fórum í langan göngutúr
með þér yfir vatnið sem var frosið.
Svo sátum við og spiluðum á kvöld-
in. Það var gaman að spila við þig.
Þegar við komum að heimsækja þig
í Reykjavík fengum við að reikna á
reiknivélina þína. Þú áttir skemmti-
lega reiknivél með strimli sem kom
út. Mamma var alltaf hrædd um að
við mundum skemma hana, en þér
var alveg sama.
Elsku afi. Þú bjóst langt frá okk-
ur, en við áttum samt margar góðar
stundir saman þegar þú komst út til
okkar. Við söknum þín mikið og
munum alltaf minnast þín.
Christina, Sandra,
Ylva og Twiggy.
Sæll afi, hvað segirðu?
Afi: Segi það ekki!
Svona byrjuðu flest okkar samtöl
í gegnum árin. Það er skrýtið að
heyra þig ekki segja þetta aftur, en í
staðinn sitja og skrifa nokkur fá-
tækleg orð um þig, sem segja bara
brot af því sem ég vildi segja.
Það var mér svo fjarlægt að þú
værir að fara að kveðja okkur.
Ég hugsa um öll skiptin sem ég
ætlaði að koma í heimsókn en gerði
það ekki og öll skiptin sem ég ætlaði
að hringja en gaf mér ekki tíma. Allt
í einu er það of seint.
Þegar ég hugsa til baka um það
sem er mér minnisstæðast um þig
þá kemur alltaf upp í huga mér
páskaegg og jóladagatöl. Það var nú
ein af þessum föstu venjum að gefa
okkur barnabörnunum páskaegg á
páskum og dagatöl á jólum. Ég held
að ég hafi verið 18 eða 19 ára þegar
þú hættir að gefa mér. Þegar ég svo
eignaðist strákana mína, Danival
Ísak og Dag Aron, þá komstu alltaf
með handa þeim og það þótti mér
svo vænt um. Minningarnar um þig
eru ótal margar, ég man t.d. svo vel
þegar ég var 12 ára og við fórum í
Kringluna til að kaupa afmælisgjöf.
Svo þegar við vorum búin að kaupa
gjöfina þá hélstu á pokanum og
sveiflaðir honum svo til og frá að
mesta furða var að enginn yrði fyrir
honum. Jólakirkjan á sérstakan sess
í hjarta mínu,enda ófá jólin sem hún
hefur verið uppi og spilað Heims um
ból og ljósið í henni lýst í myrkrinu.
Flottu skautarnir sem þú gafst mér
ein jólin, eru mér líka minnisstæðir,
sérstaklega þar sem enginn átti eins
skauta og ég og voru þeir sko rosa-
lega flottir. Viku áður en þú lést var
ég að leita af skautunum en fann þá
því miður ekki. Við Danival fórum á
skauta og kíktum svo á þig á spít-
alann þegar við vorum búin. Þú
hafðir svo gaman af því að fá Dani-
val í heimsókn, hann spurði svo mik-
ið og svo hafði hann svo miklar
áhyggjur af þér, hvort þú myndir
sjá einhverjar þrettándabrennur
þar sem það var nú þrettándinn.
Honum fannst svo leiðinlegt að þú
sæir ekki brennuna sem hann ætlaði
á í Hafnarfirði. Þú hlóst bara að
honum og hafðir gaman af þessum
pælingum.
Danival er mikið búinn að spyrja
um þig síðustu daga og það er búið
að vera frekar erfitt að útskýra
gang lífsins fyrir 6 ára gömlu barni.
Þrátt fyrir að vera orðinn 83 ára
gamall þá varstu nýlega hættur að
vinna, þú fórst alltaf í sund og í
ræktina. Ef maður spurði þig svo
hvort þú værir hættur að vinna þá
sagðistu alltaf vera í fríi, fyrst í vetr-
arfríi, svo í jólafríi, ætli sumarfrí
hefði svo ekki tekið við.
Mér þótti svo vænt um þegar þú
komst og múraðir fyrir mig einn
vegg í bílskúrnum og ég veit að þér
þótti vænt um að ég bað þig um
hjálp. Við áttum góðar stundir þá
daga og spjölluðum yfir kaffi og
kleinum.Við töluðum um það á spít-
alanum að þú þyrftir að koma og
klára bílskúrinn, það væru jú þrír
veggir eftir, og þú ætlaðir að kenna
mér hvernig þetta væri gert. Það
verður víst að bíða betri tíma.
Ég er svo þakklát fyrir síðustu
dagana okkar saman, að hafa fengið
að vera hjá þér allt til enda er mér
svo mikils virði.
Elsku afi minn, ég kveð þig nú
með söknuði og von um að þér líði
betur.
Þín
Lilja Björk.
Afi Sæmi var frábær afi! Það var
alltaf gaman þegar hann kom í
heimsókn. Hann sprellaði mikið í
okkur með sínum einstaka húmor
sem var engum líkur. Símtölin okk-
ar gátu líka orðið skrautleg því hann
gat ruglað endalaust í okkur. Það
var bara gaman.
Frá því við vorum lítil börn hefur
afi gefið okkur súkkulaðidagatöl
þegar jólin nálgast. Það klikkaði
náttúrlega ekki þessi jól frekar en
önnur þó að maður sé að verða tví-
tugur. Páskaegg gaf hann okkur
líka á hverju ári. Eitt árið bjó hann
þau meira að segja til sjálfur og
voru þau svo stútfull af nammi að
það lá við að það væri ekki hægt að
koma fyrir málshætti. Oft kom hann
líka með nammi í heimsókn, dró það
kannski ekki upp úr vasanum fyrr
en hann var búinn að sitja dágóða
stund inni í stofu, með 2 spennta
krakka í kringum sig.
Það var líka gaman að hafa hann
hjá okkur um hátíðir. Borða saman
góðan mat og eiga góðar stundir
saman.
Öll dýr virtust elska afa. Okkar
hundur, Perla, var þar engin und-
antekning. Afi var uppáhaldið henn-
ar. Hún gjörsamlega tapaði sér þeg-
ar hann kom í heimsókn og sat í
kjöltu hans brosandi allan hringinn
þegar hann var hér. Það var því
mjög erfitt fyrir hana í sumar þegar
afi kom og múraði tröppurnar heima
hjá okkur og Perla þurfti að vera
inni. Það mátti auðvitað ekki trufla
múrarameistarann þegar hann var
að verki.
Afi Sæmi var mikill sundmaður.
Sæmundur
Jóhannsson
Á dauðastund og dómsins tíð,
drottinn, það skal mín huggun blíð,
orð þitt er sama: Eg er hann,
sem inn þig leiði í himnarann;
þjónn minn skal vera þar ég er. –
Því hefur þú, Jesú, lofað mér.
Glaður ég þá í friði fer.
(Úr 5. passíusálmi.)
Elísabet Kristjánsdóttir
(Beta).
HINSTA KVEÐJA