Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
VERKALÝÐSHREYFINGIN og
samtök atvinnurekenda eru nú ná-
lægt því að ná samkomulagi um
forsendur næstu kjarasamninga.
Hugmyndin sem rædd hefur verið
er sú að í stað þess að hafa upp-
sagnarákvæði í samningum muni
samningsaðilar meta eftir rúmt ár
hvort ástæða sé til að framlengja
samningana um tvö ár til viðbótar í
ljósi efnahagsástandsins, verð-
bólgu og kaupmáttarþróunar.
Það setur hins vegar strik í
reikninginn að ef samningarnir
gilda næstu þrjú árin verða þeir
lausir í aðdraganda næstu þing-
kosninga. Skiptar skoðanir eru um
þetta og telja sumir ráðlegra að
heildarsamningstíminn verði tvö
og hálft eða þrjú og hálft ár vegna
kosninganna 2011.
Samninganefndir Starfsgreina-
sambandsins og Flóafélaganna
voru á sáttafundi með samn-
inganefnd Samtaka atvinnulífsins í
gær og boðað er til næsta fundar á
morgun, föstudag. Kristján Gunn-
arsson, formaður Starfsgreina-
sambandsins, segir um forsendur
samninga að menn vilji sjá að verð-
bólgan sé á niðurleið og kaupmátt-
urinn að aukast ef framlengja eigi
samninga eftir eitt ár.
„Við sjáum útlínur í þessu,“ seg-
ir Kristján. „Við höfum verið að
reyna að setja niður fyrir okkur
hvaða skilyrði þurfa að vera til
staðar ef við framlengjum samn-
inginn til tveggja ára í viðbót eftir
eitt ár. Við myndum þá gera
áfangaskiptan kjarasamning þar
sem eftir eitt ár myndum við stinga
niður fæti, skoða stöðuna og meta
hvort ástæða væri til að grípa inn í
og framlengja ekki samninginn.“
Verslunarmenn eiga samn-
ingafund með atvinnurekendum á
föstudaginn. „Menn eru alla vega
komnir yfir einn þröskuld,“ segir
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, um niðurstöðu sem virðist
vera í sjónmáli um forsendur
samninga.
Enn er þó langt til lands í kjara-
viðræðunum og er búist við að í
kjölfar samkomulags um forsendur
samninga verði hægt að hefja
raunverulegar viðræður um launa-
lið næstu samninga upp úr næstu
helgi.
Komast yfir erfiðan þröskuld
Meta eftir eitt ár
hvort framlengja
eigi samningana
Árvakur/Golli
Ræða málin Forystumenn í samninganefndum Starfsgreinasambands-
ins báru saman bækur sínar á milli funda hjá ríkissáttasemjara í gær.
„MEÐ þessu viljum við mótmæla því hversu léleg
þessi lög eru,“ segir Kormákur Geirharðsson, krá-
areigandi og stjórnarmaður í Félagi kráareigenda,
um þá ákvörðun 10-15 kráareigenda að leyfa reyk-
ingar inni á stöðum sínum í gær. Bendir Kormákur á
að í lögum frá 2006 sem banni reykingar inni á veit-
inga- og skemmtistöðum sé ekki að finna nein refsi-
ákvæði, auk þess sem skortur sé á úrræðum fyrir
kráareigendur til að koma upp reykingaaðstöðu í
formi reykherbergis fyrir gesti sína innanhúss.
Segir Kormákur aðgerðunum ætlað að veita þeim
spark í rassinn sem hafi þessi lög inni á borði hjá
sér og eftir eiga að semja reglugerð um málið. „Við
kráareigendur erum allir hlynntir banninu. Við er-
um hins vegar ekki hlynntir úrlausn málsins,“ segir
Kormákur og tekur fram að Félag kráareigenda
hyggist funda um málið í dag og ræða þar næstu
skref í þessum mótmælaaðgerðum sínum.
Árvakur/Ómar
Mótmæla því hversu léleg lögin eru
Kráareigendur leyfa reykingar í mótmælaskyni
Norpa ekki úti Víða gripu gestir á öldurhúsum borgarinnar tækifærið til reykinga innanhúss fegins hendi.
ÍTALSKA verktakafyrirtækið
Impregilo hefur höfðað mál gegn ís-
lenska ríkinu til að fá endurgreiðslu
opinberra gjalda sem fyrirtækið
greiddi fyrir starfsmenn tveggja
starfsmannaleigna vegna vinnu við
Kárahnjúka. Að sögn lögmanns
Impregilo, Garðars Valdimarsson-
ar, hefur fyrirtækið farið fram á það
við fjármálaráðuneytið að það greiði
gjöldin til baka en af því hafi ekki
orðið. Málið verður þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í dag.
Málið kemur til í framhaldi af
dómi Hæstaréttar í september sl.,
en rétturinn komst að þeirri niður-
stöðu að starfsmannaleigurnar teld-
ust launagreiðendur hinna útleigðu
starfsmanna og Impregilo hefði því
ekki borið skylda til að standa skil á
staðgreiðslu vegna launa þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Garðari nemur upphæðin um 1,5
milljörðum með vöxtum. Hann úti-
lokar ekki að fleiri mál verði höfðuð,
s.s. vegna eftirálagðra gjalda á
Impregilo vegna starfsmannanna.
Krefjast
endur-
greiðslu
Mál Impregilo gegn
ríkinu þingfest í dag
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
HÚSNÆÐISVERÐ á Flórída hefur
hríðlækkað undanfarin tvö ár eftir að
hafa stigið hratt árin þar á undan.
Líkt og víða annars staðar er lækk-
unin mjög mismunandi eftir svæðum
en dæmi eru um að verð hafi fallið um
allt 30% frá hámarksverði. Það er því
ekki að furða þótt fjölmiðlar á Flórída
og raunar víðar um Bandaríkin tali
um að fasteignabólan á Flórída hafi
sprungið.
Engar opinberar tölur eru til um
hversu margir Íslendingar eiga hús á
Flórída en að mati Þóris Gröndals,
ræðismanns Íslands í ríkinu, eru þeir
á bilinu 300-500 en gætu þess vegna
verið töluvert fleiri.
Að mati hans og Andreu Björg-
vinsdóttur, sem starfar fyrir Flórída
fasteignir í Orlando, má gera ráð fyr-
ir að um 100 Íslendingar hafi keypt
sér hús á Flórída frá ársbyrjun árið
2005 en það var á því ári sem blaðran
var þanin til hins ýtrasta – þangað til
hún sprakk, eins og blöðrum hættir
til að gera.
Minni lækkun í Ventura
Þéttasta Íslendingabyggðin á
Flórída er í hverfi sem heitir Ventura
en Þórir telur að um 100 íslenskar
fjölskyldur eigi þar hús.
Andrea segir að þar sem Ventura
sé ekki svokallað leiguhverfi, en í slík-
um hverfum er leyfilegt að leigja öll
hús í skammtímaleigu, hafi verðfallið
þar verið minna en víðast hvar ann-
ars staðar, líklega um 10-12%. Annað
sé upp á teningnum í leiguhverfum en
þar sé nú hægt að fá hús sem eru fal-
boðin á 400.000 dollara á 300.000 doll-
ara eða á 19,3 milljónir króna í stað
25,7 milljóna. „Það er hægt að gera
rosalega góð kaup núna, það er hægt
að bjóða svo langt niður. En það á við
um þau hverfi þar sem eru eingöngu
túristar,“ segir Andrea.
Þeir sem keyptu á meðan fast-
eignabólan var í hámarki og þurfa af
einhverjum ástæðum að selja eign-
irnar aftur hafa augljóslega tapað
verulegum fjárhæðum. Aðspurð seg-
ist Andrea ekki þekkja dæmi um að
Íslendingur hafi keypt á toppnum en
síðan þurft að selja með tapi. Í leigu-
hverfunum sé annað upp á teningn-
um, sérstaklega meðal þeirra sem
litu á fasteignir sem fjárfestingu og
keyptu e.t.v. fimm til átta hús og
íbúðir. Andrea telur að betri tímar
séu framundan á fasteignamarkaði,
a.m.k. séu bandarískir fasteignasalar
almennt á því að tíðin batni eftir því
sem nær dregur forsetakosningum.
„Þetta er mjög gott tækifæri til að
fjárfesta í góðum hverfum,“ segir
hún.
Hafi Íslendingar hug á að kaupa
eignir á Flórída er ljóst að þeir ættu
að kynna sér málið vel. Það gæti
t.a.m. verið óráð að kaupa hús í Cape
Coral á suðvesturhluta Flórída. Þar
eru nú 19.000 einbýlishús og íbúðir til
sölu. Tæplega 500 seldust í nóvem-
ber. Með þessu áframhaldi mun taka
þrjú ár að vinna á sölulistanum.
Líklega eiga 300-500 Íslendingar hús
á Flórída Mikil verðlækkun frá 2005
Verðfall á húsum í sólskinsríkinu
Í HNOTSKURN
»Líklegt er að um 300-500 Ís-lendingar eigi íbúðir og hús á
Flórída en þeir gætu verið fleiri.
»Um 100 Íslendingar hafakeypt sér hús á Flórída frá
árinu 2005 en þá náði fast-
eignaverð nýjum og áður
óþekktum hæðum.
»Síðan þá hefur verðið falliðmikið, mismikið þó.Reuters
Framboð Verð á húsum hefur fallið.
GEIR H. Haarde forsætis-
ráðherra hefur skipað Ólaf
Hjálmarsson skrif-
stofustjóra í embætti hag-
stofustjóra til næstu fimm
ára frá 1. mars nk. en níu
manns sóttu um stöðuna.
Ólafur fæddist árið 1957.
Hann lauk cand. oecon.-
prófi frá viðskiptadeild HÍ
árið 1984 og MA-gráðu í þjóðhagfræði frá
York University í Toronto 1986. Ólafur hef-
ur verið skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins frá 1999 og stað-
gengill skrifstofustjóra 1992-1999.
Nýr hagstofu-
stjóri skipaður
Ólafur
Hjálmarsson
LÖGREGLAN á Suðurnesjum handtók í gær
fjórða manninn í tengslum við tilraun til inn-
flutnings á rúmlega 4,5 kg af amfetamíni og
600 g af kókaíni til landsins með hraðsend-
ingu í nóvember sl. Tekin verður ákvörðun
um gæsluvarðhald yfir honum í dag. Mað-
urinn, sem hefur alloft komið við sögu lög-
reglu áður, var handtekinn fyrir utan Leifs-
stöð við annan mann. Hinum manninum var
fljótlega sleppt.
Fjórði maðurinn
handtekinn
SAMÞYKKT var á aðalfundi Lögreglufélags
Norðurlands vestra síðastliðinn þriðjudag
ályktun þess efnis að beina því til Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra að hann beiti
sér fyrir því að áfram verði unnið að samein-
ingu og stækkun lögregluembættanna.
„Á Norðurlandi eru fjögur lögreglulið og
eru þrjú þeirra fremur smá og sjá lög-
reglumenn ótalmarga kosti í sameiningu
þeirra og telja mikilvægt að fá eitt sjálfstætt
lögregluembætti á landshlutanum,“ að því er
segir í ályktun aðalfundarins.
Aðspurður um samþykkt lögreglufélagsins
segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra að
á vegum ráðuneytis síns sé nú unnið að úttekt
á reynslunni af nýskipan lögreglumála. Að
henni lokinni kveðst ráðherra munu fara yfir
niðurstöðuna og segja álit sitt.
Frekari sameiningu
BÓNUS hvetur þá sem lögðu leið sína í
verslun fyrirtækisins á Seltjarnarnesi á
þriðjudag til að skoða hvort 30% afsláttur
hafi skilað sér af vörunum. Vegna rangrar
forritunar virðist afsláttur ekki hafa skilað
sér af öllum vörum hluta dagsins.
Um er að ræða tilvik þar sem starfsmenn
skráðu inn tiltekinn fjölda vara og renndu
svo einni vöru í gegn. Þá virðist í ein-
hverjum tilvikum aðeins þessi eina vara
hafa komið inn með afslætti. Bónus hvetur
fólk sem kann að hafa orðið af afslætti til að
setja sig í samband við skrifstofu Bónuss.
Urðu af afslætti