Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 18

Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 18
neytendur 18 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ  Ekki hafa reimar eða snúrur í háls- máli búninga: Best er að foreldrar taki slíkt í burtu og setji í staðinn tölu, smellu eða teygju, því dæmi eru um alvarleg slys þar sem reimar eða snúrur í hálsmáli eða hettum búninga hafa náð að festast í ein- hverju og þrengt mjög að hálsi barna.  Ekki hafa búninga eða buxnaskálmar of síðar: Foreldrar ættu að stytta skálmar og búninga sem ná niður fyrir fætur barnanna, annars er hætta á að þeir flækist fyrir fótum þeirra og þau detti og slasi sig.  Ekki of háa hæla eða of stóra skó: Forðist að láta börnin ganga heilan dag í háhæluðum skóm af mömmu eða allt of stórum skóm af pabba, sem þau ráða illa við að ganga á, það býður upp á snúning á ökkla eða önnur fótaslys.  Lesið innihaldslýsingar á andlitsmáln- ingu og hárlitunarefni: Forðist að nota á unga húð hefðbundnar snyrtivörur sem ætlaðar eru fullorðnum. En til eru snyrtivörur sem flokkaðar eru sem leikföng og sumar seldar með búningum. Mörg börn eru með viðkvæma húð og gjörn á að fá ofnæmi fyrir efnum í svona vörum og því er full ástæða til að foreldrar lesi vel innihaldslýsingu. Best er að fara varlega og helst að sleppa því að setja mikla andlits- málningu á mjög unga húð. Eins er gott að prófa fyrst að setja á lítinn flöt húðarinnar og athuga hvort einhver erting komi fram eftir svolítinn tíma. Þegar hárlitunarefni er sprautað í hárið þarf að passa að það fari ekki á húð barnsins.  Of stórir bitar af sælgæti og smá- hlutir: Hjá yngstu börnunum er full ástæða fyrir foreldra að grisja úr sælgætispokanum of stóra sælgætismola sem hætta er á að standi í þeim. Risastórar og grjótharðar tyggjókúlur ráða lítil börn til dæmis ekki við og ef slíkt hrekkur ofan í þau er köfn- unarhætta fyrir hendi. Eins er gott að fjar- lægja lítil lok af nammidósum eða aðra smáhluti sem geta staðið illa í börnum ef þau í óðagotinu stinga þeim upp í sig.  Hlý klæði í kuldanum: Það er ekkert gaman að vera ískalt að norpa á milli versl- ana á öskudaginn og því full ástæða á þess- um árstíma að klæða börnin í hlý föt undir búningana.  Fylgið börnunum: Ekki er ástæða til að leyfa of ungum börnum að vera einum á ferð. Foreldrar þurfa að meta þetta en þó að börn séu nokkur saman í hóp er vara- samt að þau yngstu séu eftirlitslaus. For- eldrar ættu frekar að keyra börnin á milli fyrirtækja eða fara með þeim í verslunar- miðstöðvar og skemmta sér með þeim, í það minnsta fylgjast vel með. Heimurinn er ekki eins öruggur í dag og hann var fyrir nokkrum árum.  Endurskinsmerki í myrkrinu: Börnin leggja mörg hver mjög snemma af stað í öskudagsröltið sitt og þá er ennþá myrkur og áríðandi að vera með endurskinsmerki og hafa þau neðarlega á flíkunum svo þau sjáist frá öllum hliðum. Brýna skal fyrir börnunum að fara varlega í umferðinni og horfa til beggja hliða áður en þau fara yfir göturnar. Fullorðna fólkið á bílunum þarf líka að hafa varann á þegar öskudagur rennur upp því þá skottast krakkar um allar götur.  Skaðleg leikfangavopn: Ýmsir auka- hlutir fylgja oft með öskudagsbúningum og foreldrar ættu að athuga vel að sverð og annað slíkt sé ekki það oddhvasst að það geti skaðað þann sem fyrir verður. Heima- tilbúin sverð þarf að athuga vel því lítið þarf til að skaða til dæmis augu. Hvell- hettur ætti líka að fjarlægja úr byssum því heyrnarskaði getur hæglega orðið ef skotið er úr slíkri byssu upp við eyra barns. Gott er að brýna fyrir börnun að beina aldrei há- vaðaleikföngum upp að eyra annarra. Auka- hlutir ættu að vera skraut en ekki skaðvald- ar.  Eldfimir búningar: Margir öskudagsbún- ingar eru úr mjög eldfimu efni. Því er for- eldrum ráðlagt að vera aldrei með eld eða sígarettur í nálægð við börn í öskudagsbún- ingum eða með grímur á andliti. Það þarf mjög lítið til að í þeim kvikni. Ýmislegt að varast á öskudaginn Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir Gaman Þessir krakkar á Egilsstöðum voru í svaka stuði á öskudaginn í fyrra. Á öskudaginn klæða börn á öllum aldri sig í búninga og þvælast um bæinn syngjandi og fá sitthvað fyrir sinn snúð. Mikil tilhlökk- un tengist þessum degi en gleðin fölnar fljótt ef einhver slasar sig. Það er ýmislegt sem foreldrar ættu að hafa í huga til að koma í veg fyrir óhöpp. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í Fjólu Guðjónsdóttur hjá Sjóvá Forvarnahúsinu sem minnti á nokkur atriði. Bónus Gildir 31. jan.-3. febr. verð nú verð áður mælie. verð Kók light, 2 ltr............................ 98 159 49 kr. ltr Toppur, 2 ltr............................... 98 149 49 kr. ltr Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 129 175 167 kr. kg Kjarna sultur, 400 g ................... 129 198 322 kr. kg Grillaður kjúklingur, ca 1.150 g ... 498 756 498 kr. stk. Ali beikon, 2 pk. ........................ 1.099 1.648 1.099 kr. kg Ali svínabógur ........................... 499 599 499 kr. kg KS lambasvið ............................ 299 399 299 kr. kg KS lambafillet ........................... 2.398 2.998 2.398 kr. kg KS lambasúpukjöt, 1 fl............... 474 499 474 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 31. jan.-2. febr. verð nú verð áður mælie. verð FK saltkjöt, blandað, pk.............. 748 998 748 kr. kg Ali beikon, sneitt........................ 1.373 1.831 1.373 kr. kg Fk bayonneskinka ...................... 998 1.422 998 kr. kg Nautafillet úr kjötborði ............... 2.298 2.998 2.298 kr. kg Nautapiparsteik úr kjötborði ....... 2.298 2.998 2.298 kr. kg Matfugl kjúklingaleggir ............... 454 699 454 kr. kg Matfugl kjúklingavængir ............. 191 319 191 kr. kg Krónan Gildir 31. jan.-3. febr. verð nú verð áður mælie. verð Móa kjúklingur, ferskur 1/1 ........ 479 799 479 kr. kg Gríms fiskibollur, 550 g .............. 349 415 635 kr. kg Gríms hvítl./hvítb.buff, 400 g ..... 399 539 998 kr. kg Naggalínan kjötbollur, 450 g ...... 498 534 1.107 kr. kg Krónu saltkjöt, 1. fl. ................... 759 899 759 kr. kg Krónu ódýrt saltkjöt.................... 197 299 197 kr. kg Freschetta Napoli pitsur, 300 g... 198 339 660 kr. kg Fries örbylgjufranskar, 3 stk. ....... 359 398 120 kr. stk. Super forsoðnar kartöflur, 680 g . 119 139 175 kr. kg Omo þvottaefni, 8,2 kg .............. 1.999 2.499 244 kr. kg Nóatún Gildir 31. jan.-3. febr. verð nú verð áður mælie. verð Nóatúns eini- & trönuberjalæri.... 1.598 1.798 1.598 kr. kg Nóatúns hakkbollur í súrsætri ..... 998 1.218 998 kr. kg Lax í heilu ................................. 598 749 598 kr. kg Laxasneiðar .............................. 698 1.129 698 kr. kg Abba hvítlaukssíld/lauksíld ........ 149 249 149 kr. stk. Nóatúns brauðsalöt, 200 g......... 182 280 905 kr. kg Nóatúns kús kús m/papr., 200 g 209 279 1.045 kr. kg Líf Appelsínusafi, 1 lt, 3 fyrir 2 .... 218 327 73 kr. ltr Egils pilsner dós, 0,5 ltr.............. 59 95 118 kr. ltr Pepsi, 2 ltr ................................ 119 173 60 kr. ltr Hagkaup Gildir 31. jan.-3. febr. verð nú verð áður mælie. verð Kjötb. svínasíða m/pöru............. 498 600 498 kr. kg Kjötb. svínabógur ...................... 549 741 549 kr. kg Kjötb. svínahryggur m/puru ........ 898 1.089 898 kr. kg Kjötb. svínalundir....................... 1.498 2.559 1.498 kr. kg Holta kjúklingastrimlar, eldaðir.... 1.259 1.798 1.259 kr. kg HM kjúklingavængir, partývængir. 377 539 377 kr. kg Samkaup/Úrval Gildir 31. jan.-3. febr. verð nú verð áður mælie. verð Goði saltkjöt, blandað................ 686 940 686 kr. kg Goði saltkjöt, valið ..................... 1.165 1.642 1.165 kr. kg Bautabúrið saltkjöt, hálsbitar...... 219 281 219 kr. kg Gourmet ungnautahakk .............. 859 1.425 859 kr. kg Borgarnes kindabjúgu ................ 429 619 429 kr. kg Matfugl kjúklingaleggir, magnp. .. 418 699 418 kr. kg Ísfugl kjúklingabr., skinnlausar .... 1.689 2.532 1.689 kr. kg Egils pilsner, 500 ml .................. 54 98 108 kr. ltr Maggi súpur, 2 pk...................... 198 339 198 kr. pk. GM Fitness, 625 g ..................... 299 469 299 kr. pk. Þín Verslun Gildir 31. jan.-1. febr. verð nú verð áður mælie. verð Viking léttöl, 0,5 ltr .................... 65 85 130 kr. ltr Egils kristall, 2 ltr hr./mex.lime.... 135 165 68 kr. ltr Hunt’s spaghettísósu, 4 teg. ....... 149 189 203 kr. kg Orville örbylgjupopp létt, 255 g... 125 145 490 kr. kg Pataks Tikka Masala sósa, 350 g 219 289 626 kr. kg Pataks hvítl./koria. naan, 280 g.. 259 349 925 kr. kg helgartilboð Saltkjöt og súpukjöt Morgunblaðið/Jón Svavarsson endaði næstum á því að keyra niður barn því kerran skyggði á það. Ef matvöruversl- anir vilja bara bjóða viðskiptavinum upp á kerrur mætti hafa þær í tveimur stærðum, kerrur í amerískri stærð, eins og eru núna í boði, fyrir stór- innkaup og aðra minni í gömlu stærðinni fyrir venjuleg innkaup. x x x Víkverji lenti í því áföstudagsmorg- uninn að festa litla bíl- inn sinn rækilega á bílastæði við fjölbýlishúsið sem hann býr í. Eftir að hafa mokað og juggað og blótað í nokkurn tíma bar að ungan mann úr næsta húsi. Hann sá hverslags vandræðum Víkverji var í og bauðst til að hjálpa. Vitaskuld þáði Víkverji það og með góðri samvinnu náðist bíllinn upp. Ungi maðurinn var allur hinn indælasti og sagði það ekki nokkurt mál þó að Víkverji tefði hann frá því að mæta í vinnuna á réttum tíma. Víkverji fékk nýja trú á unga fólkinu við þetta og sann- færðist um að heimurinn væri ekk- ert að fara til helvítis eins og margir halda fram. Víkverji getur ekkisæst við það að matvöruverslun Krón- unnar á Höfða bjóði ekki upp á handkörfur. Víkverji skýst stund- um þar inn á leið heim úr vinnu til að kaupa í matinn og alltaf þarf hann að taka kerru, hversu smávægilegt sem hann ætlar að kaupa. Kerrurnar þar eru ekkert venjulegar, svo risastórar að manneskja í meðalhæð á bágt með að stjórna þeim og nær varla til botns þegar tína þarf upp úr þeim við kassann. Að þurfa að keyra þennan hlunk um alla verslunina til þess eins að setja ofan í hana nokkra hluti er tímafrekt. Slíkum kerrum er líka vandasamt að aka um þrönga búðarganga. Að mæta annarri kerru getur skapað hin mestu vandræði, hvað þá ef komnar eru nokkrar saman. Vík- verji lenti einmitt í vandræðum með kerruna sína við mjólkurkælinn í Krónunni nýverið. Það var einhvern veginn sama hvar hann lagði henni, alltaf var hún fyrir öðrum. Víkverji gerði ekki annað en biðjast afsök- unar hægri og vinstri meðan hann tíndi mjólkurvörur ofan í ferlíkið og           víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Góðir grænmetisréttir Móðir Náttúra hefur sett á markað tvo góða einstaklingsrétti. Annars vegar Tikka masala með hýðishrís- grjónum og hins vegar Thai karrí með hýðishrísgrjónum. Sem fyrr er leitað fanga í heims- eldhúsinu og að þessu sinni til Ind- lands og Taílands, með það í huga að bjóða upp á spennandi, bragðgóðar og næringarríkar máltíðir. Réttirnir eru hannaðir fyrir þá sem vilja hugsa vel um heilsuna og elska að borða góðan mat og er því aðeins notað úr- vals hráefni. Þá er þess einnig gætt að elda ferska grænmetið þannig að það haldi vel næringarefnum sínum. Móðir náttúra notar hvorki sykur né aukefni í framleiðslu sína. Réttirnir fást í öllum helstu mat- vöruverslunum. nýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.