Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BYGGING Búðarhálsvirkjunar er aftur komin á dagskrá Landsvirkjunar og miðast undir- búningur við að útboð geti farið fram á þessu ári ef samningar takast um raforkusölu frá virkjuninni. Öll leyfi fyrir Búðarhálsvirkjun liggja fyrir og umhverfismat. Endanleg ákvörðun verður þó ekki tekin fyrr en nið- urstöður liggja fyrir um raforkusölu. Útboðs- hönnun Búðarhálsvirkjunar var lokið á árinu 2002 en ýmsar breytingar hafa þó orðið á for- sendum þannig að hönnun virkjunarinnar hef- ur nú verið tekin upp að nýju. Langur undirbúningur „Við höfum lengi verið með í undirbúningi fjórar virkjanir í Þjórsá og Tungnaá. Þeirra efst er Búðarhálsvirkjun og við höfum öll leyfi fyrir henni,“ segir Björn Stefánsson, fram- kvæmdastjóri virkjunardeildar Landsvirkjun- ar. ,,Hins vegar eru ekki komin leyfi fyrir virkjununum þremur í neðri hluta Þjórsár og það er unnið að undirbúningi þeirra. Viðræður standa yfir við landeigendur og einnig er verið að reyna að þoka áfram skipulagsmálum á svæðinu sem er á valdi sveitarfélaganna.“ Búðarhálsvirkjun var tilbúin til útboðs fyrir nokkrum árum eins og fyrr segir og voru nokkrar framkvæmdir raunar hafnar árið 2002. Að sögn Björns var virkjunin upphaflega hönnuð fyrir útboð sem 100 MW virkjun mið- að við vatnsmiðlun úr Norðlingaöldu. „Það er ekki búið að ákveða þetta endanlega en hún verður á bilinu 80-90 MW ef hún verður byggð án Norðlingaölduveitu,“ segir Björn. Hann segir tiltölulega lítið mál að endur- skoða gögnin með tilliti til breyttra forsendna þannig að hægt verði að bjóða hana út en ljóst sé að án vatnsmiðlunar úr Norðlingaölduveitu eins og upphaflega var gert ráð fyrir er virkj- unin ekki eins hagkvæm og virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár. Að sögn Björns ræðst framhaldið af viðræðum um sölu raforkunnar. ,,Við byggjum hana ekki fyrr en búið verður að selja úr henni orkuna,“ segir Björn. „Við erum að vinna að undirbúningi þess að geta boðið hana út, jafnvel á þessu ári,“ bætir hann við. Landsvirkjun lýsti yfir í fyrra að hún mundi ekki ganga til samningaviðræðna að sinni við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi. Björn fjallaði um virkjanir sem eru í und- irbúningi á vegum Landsvirkjunar á Útboðs- þingi 2008 í seinustu viku og kom fram að unn- ið væri að undirbúningi og hönnun tveggja virkjana svo þær yrðu tilbúnar til útboðs á þessu ári en þær eru Búðarhálsvirkjun og Hvammsvirkjun. Leyfi fyrir Hvammsvirkjun liggur þó ekki enn fyrir og verður ekkert að- hafst við hana fyrir en það liggur fyrir. Skeiða- og Gnúpverjahreppur á eftir að staðfesta breytingu á aðalskipulagi, en að sögn Björns leggur það grundvöll að umsókn um virkjunar- og framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun og Holtavirkjun. Sveitar- stjórn Flóahrepps hefur ákveðið að auglýsa aðalskipulag þar sem gert er ráð fyrir Urriða- fossvirkjun og er búist við að það verði tekið til afgreiðslu síðar á þessu ári. Landsvirkjun vinnur að samningum við alls 39 landeigendur við Þjórsá sem hagsmuna eiga að gæta vegna fyrirhugaðra framkvæmda vegna áforma um virkjanir í neðri hluta Þjórs- ár. Er þar verið að skoða möguleika á að draga úr áhrifum af völdum virkjananna fyrir hverja jörð og er það tímafrekt ferli. „Við höf- um lækkað vatnsborð í tveimur lónum til að draga úr áhrifunum og það er verið að skoða gerð varnargarða til að draga úr því að ein- hverjar totur úr lónunum gangi inn á ein- stakar jarðir. Þetta er mikil og nauðsynleg vinna og er unnin samhliða samningum við einstaka landeigendur og þarf að vera tilbúin áður en frá samningum er gengið til að skil- greina hvaða tjóni þeir geta orðið fyrir,“ segir Björn. Skipulagsstofnun féllst á Búðarháls- virkjun með skilyrðum árið 2001 Árið 2001 féllst Skipulagsstofnun á fyrir- hugaða byggingu Búðarhálsvirkjunar með stíflun Köldukvíslar og Tungnaár við Búð- arháls, lagningu Búðarhálslínu 1 og lagningu vega á Búðarhálsi með því skilyrði að bætt verði fyrir umhverfisáhrif vegna gróðurlendis sem tapist af völdum Sporðöldulóns við Búð- arháls. Þær umbætur felist í endurreisn gróð- urlendis. Gert var ráð fyrir því í úrskurðinum að samráð verði haft við Landgræðslu ríkisins, Náttúruvernd ríkisins og hlutaðeigandi sveit- arstjórnir um útfærslu þessara aðgerða. Í úr- skurðinum var á því byggt á sínum tíma að hægt yrði að reisa allt að 120 MW vatnsafls- virkjun við Búðarháls og lagningu 17 km langrar 220 kV háspennulínu frá stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar við Sultartangalón að tengivirki við Sultartangastöð. Í matsskýrslu kemur fram að af heildarflat- armáli Sporðöldulóns, sem verði um 7 km², séu um 2 km² vel gróið svæði og 4 km² ber- svæði. „Helstu umhverfisáhrif af völdum Búð- arhálsvirkjunar verða vegna myndunar Sporð- öldulóns, en við það skerðist gróðurlendi, búsvæði fugla og menningarminjar og breyt- ing verður á landslagi,“ sagði í úrskurðinum. Búðarhálsvirkjun gæti farið í útboð á þessu ári  Leyfi til að reisa virkjunina og umhverfismat liggja fyrir  Gert ráð fyrir 80- 90 MW uppsettu afli  Ákvörðun ræðst af samningum um raforkusölu   !" #$%%$ & '"    #$ & !"        !  "  # (  ) !*+"  $ %   & ' & (   Í HNOTSKURN »Áætlaður heildarkostnaður við Búð-arhálsvirkjun, Hvammsvirkjun, Holta- virkjun og Urriðafossvirkjun er um 67 millj- arðar kr. án fjármagnskostnaðar á byggingartíma og án vsk. »Heildarorkuvinnsla virkjananna fjög-urra er áætluð um 2.600 GWh/a. »Seint á seinasta ári undirrituðu Lands-virkjun og Verne Holdings viljayfirlýs- ingu um samningaviðræður um sölu á 50-80 MW að afli til netþjónabús á Keflavíkurvelli. Þá er til skoðunar að selja rafmagn til fyr- irtækis við kísilhreinsun fyrir sólarhlöður. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is MIKILL meirihluti orkuvinnslunn- ar í Níkaragva er sóttur í olíu og er ætlunin að hlutur endurnýjanlegrar orku vaxi hratt, mjög hratt, á næstu árum og gegnir jarðvarminn þar lykilhlutverki. Stór hluti útflutnings- tekna landsins rennur til olíukaupa og gætu þessi umskipti því haft geysilega efnahagslega þýðingu og aukið þjóðartekjur verulega. Þetta segir Emilio Rapaccioli, orkumálaráðherra Níkaragva, sem kom til Íslands í vikunni og ræddi við fulltrúa orkufyrirtækjanna og orkurannsóknarstofnana um mögu- leika á framtíðarsamstarfi. Að sögn Rapacciolis, sem kom í boði Þróunarsamvinnustofnunar Ís- lands, ÞSSÍ, er á næstu sjö til átta árum stefnt að því að auka fram- leiðslu jarðvarmaorku í Níkaragva um 200 MW fyrir um 400 milljónir Bandaríkjadala, eða hátt í 26 millj- arða króna á nú- verandi gengi. Sú upphæð gæti hækkað verulega gangi bjartsýnustu spár eftir. Gróflega áætlað er þannig um að ræða sjötta hluta mögulegrar jarð- varmaorku í landinu, en Rappaccioli skrifaði undir samstarfssamning við ÞSSÍ um fimm ára þróunarverkefni á sviði jarðhitamála í Níkaragva. Verkefnið felur í sér uppbyggingu mannauðs til að nýta jarðvarma í Níkaragva og munu íslenskir vís- indamenn miðla stjórnvöldum þar af sérþekkingu sinni og þjálfun á þessu sviði. Verkefnið er eitt af stærstu verkefnum ÞSSÍ og kostnaður met- inn á rúmar fjórar milljónir Banda- ríkjadala, um 260 milljónir króna. Olían þjóðarbúinu dýr Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur stórhækkað orkureikning Níkaragva – skv. landsskýrslu Eco- nomist Intelligence Unit var hlutur olíu og skyldra vara um 24% af verð- mæti innfluttrar vöru á árinu 2006, en um 80% af orkunni koma úr olíu. Orkuframleiðslugetan árið 2005 var 627 MW, meðaleftirspurn 483 MW, og má sækja 1.200 MW í jarð- varmann, um 2.000 MW í vatnsaflið og 1.000 MW í vindorkuna. Minna er vitað um möguleika sól- arorku og vinnslu úr lífmassa, en taka skal fram að tölurnar eru gróf- lega áætlaðar. Svigrúmið er engu að síður mun meira en notkunin og að sögn Rappacciolis eru uppi hug- myndir um að Níkaragva selji orku til nágrannaríkja, eftir dreifikerfi sem liggi bæði til norðurs og suðurs. Rætt við Íslendinga um uppbyggingu jarðvarmavirkjana fyrir á þriðja tug milljarða íslenskra króna Miklir möguleikar í Níkaragva Í HNOTSKURN »Íbúafjöldi landsins árið 2005var 5,142 milljónir. »Tvær jarðvarmavirkjanir eruí landinu og framleiða 40 MW. »Vinstrimaðurinn DanielOrtega leiðir stjórnina. AP Jarðhitinn Slökkviliðsmaður slekkur elda nærri gíg eldfjallsins Masaya í apríl 2001. Þótt margt sé ólíkt með þjóðunum minnir landslagið á Ísland. Emilio Rapaccioli UNDANFARIN ár hefur starfsmönnum Ís- lenskra orkurannsókna farið stöðugt fjölgandi. Frá því ÍSOR var stofnað sum- arið 2003 við aðskilnað rannsóknarsviðs Orkustofnunar frá Orkustofnun hefur fjöldi starfsmanna nær tvöfaldast. Þeir eru nú liðlega 80. Ástæðan eru vaxandi umsvif í jarð- hitarannsóknum á Íslandi með byggingu nýrra jarðgufuvirkjana og undirbúnings- rannsóknir vegna þeirra. Hið sama gildir um verkefni erlendis, einkum í tengslum við útrás íslenskra fyrirtækja í orkuiðnað- inum, segir á heimasíðu ÍSOR. Á síðastliðnu ári komu 27 nýir starfs- menn til ÍSOR og eru þeir boðnir velkomn- ir til starfa. Fáeinir starfsmenn létu af störfum. Aukin umsvif hjá ÍSOR í fyrra Morgunblaðið/ÞÖK FRESTUR til að skila inn athugasemdum vegna svokallaðs Baldursgötureits er runninn út. Alls voru gerðar 14 athuga- semdir, þar af átta eftir að frestur var framlengdur hinn 11. janúar sl. 10 íbúar skrifa undir eina athugasemdanna. Bald- ursgötureiturinn afmarkast af Freyju- götu, Baldursgötu, Þórsgötu og Njarðar- götu. Í einni athugasemdinni segir m.a.: „Byggingarmáti okkar frá upphafi Reykjavíkurbyggðar endurspeglast í þess- um byggingum gamla bæjarins og er hluti af menningu þjóðarinnar – og þær verðum við að varðveita fyrir komandi kynslóðir – annað er villimennska.“ Í annarri segir m.a.: „Samkvæmt deili- skipulagi í kynningu á þessum litla reit mun framtíð 8 gamalla húsa fara í uppnám með því að heimilað verði að hækka þau og breikka það mikið að ekki er annað hægt en að rífa húsin til að ná fram því aukna byggingamagni sem boðað er. Munu húsin 8 bætast við listann yfir þau 100 hús sem þegar eru í niðurrifshættu í hverfinu 101 Reykjavík.“ Árvakur/Kristinn Fjórtán athuga- semdir bárust

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.