Morgunblaðið - 31.01.2008, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Við ætlum að fá að fljóta með, Eggert minn, við getum ekki verið þekktir fyrir annað en að
fylgja vinum okkar til hundrað ára síðustu sporin.
VEÐUR
Garðabær var útnefndur drauma-sveitarfélagið í árlegri úttekt
Vísbendingar, eins og í fyrra. Að
þessu sinni var einkunn bæjarins 8,2
og lækkaði úr 8,3.
Í úttektinni er
horft til lágrar
skattheimtu, hóf-
legrar íbúafjölg-
unar, afkomu sem
hlutfalls af
tekjum, hlutfalls
skulda af tekjum
og veltufjárhlut-
falls. Auðvitað er þetta hugar-
leikfimi, en hún felur þó í sér góða
vísbendingu um stöðu sveitarfélag-
anna.
Í öðru og þriðja sæti eru Seltjarn-arnes með 7,3 í einkunn, sem lækk-
aði úr 7,9, og Mosfellsbær með 7, sem
hækkaði úr 6,3. Reykjavík er hins-
vegar í 26. sæti með 3,4 og Hafnar-
fjörður í næstneðsta sæti af 38 sveit-
arfélögum með 2 og hrapar úr 4,1.
Niðurstaða úttektar Vísbendingarer sú að á undanförnum árum
hafi fjárhag sveitarfélaganna hrak-
að. Heildarskuldbindingar sveitarfé-
laganna jukust úr 229 milljörðum
króna árið 2005 í um 280 milljarða
árið 2006. „Afkoma bæjarfélaganna
var miklu lakari en árið 2005. Skýr-
ingin er … að á kosningaári verða
stjórnmálamenn oft uppteknir við
annað en sparnað.“
Því er spáð að samdráttur í efna-hagslífinu komi hart niður á
sveitarfélögunum með ýmsum hætti,
meðal annars vegna uppsagna og
erfiðleika í rekstri fyrirtækja. Sveit-
arfélög eigi ekki jafnmikla mögu-
leika og fyrirtækin á því að draga
saman kostnað. „Engu að síður er
afar mikilvægt að stjórnmálamenn
sýni ráðdeild og keppist ekki við að
kaupa sér vinsældir með yfirboðum í
útgjöldum og skattbreytingum.“
Freistingar geta reynst stjórn-málamönnum erfiðar eins og
dæmin sanna.
STAKSTEINAR
Draumasveitarfélagið
og hin sveitarfélögin
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
!
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
"!!"
#
"!!"
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
!!!"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? %$ % $% %
%
% %
$%
%
%
%
%
%
*$BC &&&
! "#
$
" " %
*!
$$B *!
' ( ) ( *
<2
<! <2
<! <2
' )!" + !,- . "!/
D2
E
B
"2
& '( )
*" (
+ ) "((
/
"" !
! "#
+#(
<7
(
, -"
!(& ! "# ,.$ / 0
"
01""&&22 !"& &3 &+ !,
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Soffía Sigurðardóttir | 30. janúar 2008
Lögreglugrátkórinn
Óánægja lögreglu-
manna birtist í hverju
einstöku atriðinu á eftir
öðru. Jakkinn er of síð-
ur, vaktataflan vitlaus,
launin lág, borgararnir
óhlýðnir. Hvert og eitt af
framantöldu er samt ekki vanda-
málið, heldur aðeins birtingarmyndir
á undirliggjandi vanda.
Það er mikið ábyrgðarstarf að vera
lögreglumaður. Til þess þarf mann-
eskju í góðu andlegu jafnvægi og
frísku líkamlegu ástandi.
Meira: fia.blog.is
Jenný Anna Baldursdóttir | 30. janúar
Bara einn klefi?!
Ég er svolítið hissa á að
bara einn bar skuli
ganga í berhögg við hið
illræmda og ósveigj-
anlega reykingabann.
… Ég verð að játa að ég
dáist pínu að þeim á
Barnum við Laugaveg sem eru með
reykklefa og ætla að láta reyna á hver
útkoman verður. Ég stend með þeim.
Það sem gerir mig hissa er hversu
hlýðnir hinir skemmtistaðirnir eru, því
mér hefur alltaf þótt íslenska þjóðar-
sálin óþekk í eðli sínu.
Meira: jenfo.blog.is
Snorri Bergz | 30. janúar 2008
Snjór í Jerúsalem
Meðan ég bjó þarna
suðurfrá snjóaði bara
einu sinni, formlega, en
ekki kallaði ég það
snjó. …
En ég held að fáar
borgir séu jafn fallegar í
snjó eins og Jerúsalem. Fáar borgir
eru eins fallegar per se. En snjórinn
gerir allt fallegra, og um stundarsakir
gleyma menn vandamálum og erjum
og horfa á hvernig snjórinn hylur
óhreinindi á götunum og grjótið, sem
alls staðar má finna þarna.
Meira: hvala.blog.is
Kristinn Petursson | 30. janúar 2008
Bremsa bankarnir
offjárfestingu í
fasteignum?
Samkvæmt frétt á for-
síðu 24 stunda eru við-
skiptabankarnir nú þeg-
ar farnir að „bremsa af“
útlán til bygginga-
framkvæmda.
Þetta er mjög faglega
að verki staðið, og kemur þá í veg fyrir
að það verði offramboð á fast-
eignamarkaði – eins og gerst hefur er-
lendis. Mikilvægt er að viðskipta-
bankar sýni varfærni í slíkum útlánum.
Mér finnst íslenskir bankar hafa
staðið sig afburða vel í útrásinni og
hagnast vel á því erlendis. Að því leyti
– og á mörgum öðrum sviðum – er
rekstur viðskiptabankanna til fyr-
irmyndar.
Veika hlið viðskiptabankanna er að
þeir hafa sýnt óvarkárni í að lána fé til
að „sprengja upp“ verð aflaheimilda
(sem var orðið óeðlilega hátt þegar) –
úr um 1.200 kr/kg fyrir tveim árum í
um 3.500 kr/kg sl. sumar …
Engar raunhæfar forsendur finnast
um að verð á þorskvóta sé raunhæft
umfram 600 kr/kg, sbr. þetta skjal,
enda er 600 kr/kg svipað verð og
þorskkvóti selst á í Noregi (lægra í
Rússlandi) sem er ágætur faglegur
samanburður, þessu til staðfestingar.
Er þá ekki íslenskur sjávarútvegur
orðinn yfirveðsettur um mörg hundruð
milljarða … á sama tíma og mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur
nánast úrskurðað stjórnkerfi fiskveiða
til breytinga … þar sem áskildar
skaðabætur til tjónþola fylgja tilvitn-
uðum úrskurði mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna?
Varla áforma íslensk stjórnvöld að
marka stefnu í því að standa í svim-
andi háum skaðabótagreiðslum
vegna mannréttindabrota – vænt-
anlega fyrir tugi milljarða – til þúsunda
Íslendinga í náinni framtíð … í stað
þess að breyta fiskveiðistjórnarlög-
unum þannig að þau standist mann-
réttindasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna!
Er ekki nægur skaði þegar orðinn –
umrótið og raskið og skaði á sjáv-
arbyggðum sem mannlegum sam-
félögum – og nú þarf væntanlega að
borga bætur strax til þessara
tveggja … (sjá grein eftir Magnús
Thoroddsen á miðopnu Morg-
unblaðinu í dag).
Meira: kristinnp.blog.is
BLOG.IS
SVIFRYK mældist fimm sinnum yf-
ir sólarhrings heilsuverndarmörkum
á horni Miklubrautar og Stakkahlíð-
ar á tímabilinu 7. des. 2007 til 16. jan.
2008 sl. og köfnunarefnisdíoxíð einu
sinni. Færri bifreiðar reyndust vera
á nagladekkjum nú en á sama tíma í
fyrra, eða 42%.
Hlutfall negldra dekkja í Reykja-
vík var kannað 22. janúar síðastlið-
inn og reyndust 42% ökutækja vera
á nagladekkjum og 58% á ónegldum
dekkjum. 47% ökutækja voru á
negldum dekkjum á sama tíma í
fyrra. Árið 2005 voru um það bil 56%
bifreiða á negldum dekkjum, að því
er segir í tilkynningu.
Svifryk yfir mörkum
Svifryk (PM10) hefur mælst tvisv-
ar sinnum yfir sólarhrings heilsu-
verndarmörkum frá áramótum við
Grensásveg en mörkin eru 50 míkró-
grömm á rúmmetra.
Farstöð umhverfissviðs var stað-
sett á horni Miklubrautar og Stakka-
hlíðar á tímabilinu 7. desember 2007
til 16. janúar 2008 og mældist svif-
ryksmengun þar fimm sinnum yfir
sólarhrings heilsuverndarmörkum.
Styrkur svifryks fór á sama tíma
tvisvar sinnum yfir heilsuverndar-
mörkin við Grensásveginn.
Þetta bendir til þess að meiri
mengun sé við Miklubraut/Stakka-
hlíð en Miklubraut/Grensásveg. Aft-
ur á móti sé einnig ljóst að fram-
kvæma þurfi fleiri mælingar til að
sjá hvort þetta ástand gildir árið um
kring og mæla á fleiri stöðum í
Hlíðahverfi, er haft eftir Önnu Rósu
Böðvarsdóttur, starfsmanni hjá
mengunarvörnum umhverfissviðs, í
fréttatilkynningu.
Köfnunarefnisdíoxíð (NO2) er
annað efni sem mælt er á mælistöðv-
um umhverfissviðs og eru sólar-
hrings heilsuverndarmörk þess 75
míkrógrömm á rúmmetra. NO2 fór
ekki yfir mörkin við Grensásveg.
Þau fóru hins vegar yfir mörkin við
Miklubraut 8. janúar.
NO2 fór einu sinni yfir klukku-
stundarmörkin við Grensásveginn
en átta sinnum á Miklubraut.
Klukkustundarmörkin eru 110
míkrógrömm á rúmmetra. Sam-
kvæmt reglugerð má fara sjö sinnum
yfir sólarhrings heilsuverndarmörk-
in og 175 sinnum yfir klukkustund-
armörkin.
Aðaluppspretta köfnunarefnis-
díoxíðs (NO2) í Reykjavík er frá um-
ferð en stærsti hluti þess verður til
vegna oxunar á köfnarefnismónoxíði
með ósoni (O3). Hár styrkur þess er
talinn hafa neikvæð áhrif á heilsu
fólks, samkvæmt tilkynningu.
Dregur úr notkun
nagladekkja
FRÉTTIR