Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 17
Útivistar- og
sælkerapara-
dísin Bormio
Bormio stendur við ræturPasso del Stelvio, fjall-vegar sem tengir samanBormio og Trafoi í Ve-
nosta-dalnum. Leiðin er nú hluti af
Stelvio-þjóðgarðinum sem nær yfir
400.000 ferkílómetra svæði. Á sumr-
in er starfræktur skíðaskóli í Passo
di Stelvio, því þar er yfirleitt hægt
að skíða allt sumarið í 2.757 m hæð.
Í Bormio og nágrannaskíðasvæð-
unum, S. Caterina, Valdidentro,
Valdisotto, Valfurva og Livigno (toll-
frítt smáríki sem er eins konar
ítalskt Tíbet) er að finna brekkur við
allra hæfi, en hæsti tindurinn á Bor-
mio-svæðinu er Cima Bianca (3.012
m). Í Bormio eru reglulega haldin
mikilvæg skíðamót, nú síðast World
Cup í bruni karla í desember sl.
Snjóbretti njóta líka sífellt meiri vin-
sælda og í Bormio hefur verið útbúið
sérstakt svæði fyrir brettafólk. Stutt
er svo að skella sér til St. Moritz
(sem er í 58 km fjarlægð) vilji maður
prófa svissnesku brekkurnar.
Einstök náttúrufegurð er á Bor-
mio-svæðinu og útsýnið úr brekkum
og að ekki sé nú talað um af hæstu
tindum ólýsanlega fallegt á góðum
degi. Valtellinabúar eru einnig ein-
staklega viðmótsþýtt og greiðvikið
fólk.
Eftir að lyftum er lokað í eftirmið-
daginn er upplagt að skella sér í eina
af heilsulindunum á svæðinu og
slaka á. Sérstaklega skal þá mælt
með Bagni Vecchi eða gömlu böð-
unum sem eru örfáa kílómetra fyrir
ofan bæinn. Í Ölpunum fyrir ofan
Bormio eru heitavatnsuppsprettur
sem getið er í heimildum allt frá 1.
öld f. Kr. og vatnið hefur löngum
verið talið hafa lækningarmátt.
Heimildir eru til um böð á staðnum
frá tímum Rómverja og frá miðöld-
um og eru böðin þar enn í dag (vitan-
lega í endurbættri mynd). Þar sem
talið er að rómversku böðin hafi ver-
ið er nú miðaldakirkja og inni í hvelf-
ingum hennar eru tvö jarðböð. En í
miðaldaheimildum segir frá munk-
um sem bjuggu í litlum húsum í ná-
grenni við kirkjuna og ráku þar eins
konar heilsulind. Strax um 1300
höfðu böðin getið sér gott orð og
sjálfur Leonardo da Vinci sótti böðin
árið 1493. Fyrir ofan kirkjuböðin er
svo útilaug frá miðöldum. Gaman er
að fylgjast með baðgestum klæddum
hvítum hettusloppum ganga á milli
baðstaðanna og í fjarlægð mætti
halda að hér væru miðalda-
munkarnir á ferð. Heilmikil starf-
semi er nú í kringum böðin og alls
kyns gufuböð, leirböð, nudd-
meðferðir o.fl. í boði. Veitingastaðir
eru í böðunum (og einnig hótel) og á
öðrum þeirra (Caffé) er hægt að fá
vel útilátið hlaðborð (á 14 evrur eða
18 evrur, vilji maður geta gengið í
borðið ótakmarkað þann daginn) og
snætt á sloppnum á milli vatns- og
gufubaðaheimsókna.
Pizzoccheri og djúpsteiktar
eplaskífur milli ferða
Valtellina er ekki síður sælkera-
paradís en náttúru- og heilsupara-
dís. Þaðan kemur t.a.m. hið eina
sanna bresaola, sem er saltaður
nautavöðvi sem látinn er hanga í
marga mánuði og er svo borðaður í
örþunnum sneiðum.
Mikil eplarækt er í héraðinu og
meðfram þjóðveginum er víða stillt
út til sölu eplum, víni og fleiri land-
búnaðarafurðum. Hafi maður áhuga
á að kaupa slíkt góðgæti, stöðvar
maður bílinn og bóndinn kemur
hlaupandi niður á veg til aðstoðar og
gefur gjarnan vínsopa að smakka
eða eplasafa. Sá sem sækir héraðið
heim skyldi ekki láta eftirfarandi
sérrétti fram hjá sér fara: steiktu
ostakúlurnar malfatti, pastaréttinn
pizzoccheri, hjartarsteik (brasato di
cervo) með maísmjölkökunni po-
lenta, eða djúpsteiktu eplaskífurnar
frittelle di mele með vanillusósu.
Fullt er af veitingastöðum og
krám í brekkunum þar sem upplagt
er að fá sér hádegismat milli ferða.
Matseðill héraðsins er afar freist-
andi og kaloríuríkur, sem er vel við
hæfi þegar skíðað er og það er auð-
velt að falla fyrir freistingunum sem
þar bjóðast.
Í hádeginu skal þó hafa í huga að
ef skíða á líka í eftirmiðdaginn þá
getur það reynst erfitt ef einum bjór
eða eplaskífuskammti er ofaukið!
Einn eplaskífuskammtur nægir vel
sem eftirréttur fyrir tvo. Frábær
matseðill er t.d. á Le Chalet barnum
(er að finna á miðri leið úr brekku
sem liggur úr vinstri stólalyftunni í
Bormio, sú sem liggur upp á tindinn
Cimino 2.636 m ).
Ljósmynd/ Hanna Friðriksdóttir
Skíðaparadís Útsýnið úr brekkunum í nágrenni Bormio er einstaklega fallegt á góðum degi.
Bagni Vecchi Gott er að slaka á í Gömlu böðunum eftir skíðaferð dagsins.
Heimildir eru til um böð á staðnum frá tímum Rómverja og frá miðöldum.
Sannkallað hnossgæti Djúp-
steiktar eplaskífur með vanillusósu.
Slökun Í Ölpunum fyrir ofan Bor-
mio eru heitavatnsuppsprettur.
Í hjarta Valtellinahéraðs liggur bærinn Bormio í
1.225 metra hæð. Svæðið þar í kring, segir Hanna
Friðriksdóttir, er ein mesta náttúruparadís Ítalíu.
Skipulagðar rútuferðir eru frá
Orio al Serio-flugvellinum í Ber-
gamo (mánud., fimmtud. til laug-
ard.) og Milano Malpensa flugvell-
inum (laugard.) til Valtellina.
Einfalt er að keyra til Bormio frá
Mílanó: Akið hraðveginn (Super-
strada) Milano-Lecco til Colico og
beygið þar út á afrein S.S. 38 sem
heitir Sondrio-Bormio allt til Bor-
mio.
www.bormio.com
www.livigno.eu
www.santacaterina.it
www.bagnidibormio.it
www.parks.it/parco.nazio-
nale.stelvio
|fimmtudagur|31. 1. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Nánar er hægt að fræðast
um þá siði sem fylgja gerð
græna tesins á http://
www.urasenke.or.jp
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur
guna@mbl.is
Japanska sendiráðið bauð
hópi fólks til tedrykkju í vik-
unni þar sem Urasenke-
tesiðameistari frá Japan
útbjó grænt te fyrir hópinn.
Löng hefð er fyrir drykkju á
grænu tei í Japan og kynnti
Zabosai Soshisu Sen XVI,
stórmeistari Urasenke-
stofnunarinnar, Íslendingum
hvernig staðið er að gerð
drykkjarins, sem þykir allra
meina bót.
Sagan segir að teplantan
hafi fyrst fundist í fjallahér-
uðum í Asíu og verið flutt
þaðan til Kína. Fyrstu heim-
ildir um að grænt te hafi ver-
ið notað í lækningaskyni eru
frá sjöundu öld. Vinsældir
þess jukust jafnt og þétt og í
stað þess að vera lækninga-
jurt var það drukkið vegna
bragðsins meðal Kínverja.
Japanar kynntust teinu hjá
Kínverjum á tíundu öld en
allt fram á tólftu öld var það
einungis drukkið af aðlinum
og í sérstökum athöfnum
búddamunka. En eftir að jap-
anskur almenningur komst
upp á bragðið hefur vegur
græns tes vaxið og hefur út-
breiðslan náð víða um heim.
Græna teið sem Zabosai
Soshisu Sen XVI bauð upp á
var borið fram eftir kúnst-
arinnar reglum. Flestir gest-
anna voru að smakka teið í
fyrsta skipti og létu vel af
enda ekki slæmt að eiga von
á því að verða mun unglegri
að lokinni drykkju.
Árvakur/Frikki
Boðið til tedrykkju Zabosai Soshisu Sen XVI, stórmeistari Urasenke
stofnunarinnar lagar grænt te eftir öllum kúnstarinnar reglum.
Japanskt teboð
Gömul hefð Japanar kynntust teinu hjá Kínverjum á
10. öld en allt fram á 12. öld var það einungis drukkið
af aðlinum og í sérstökum athöfnum búddamunka.
Páskaferðir
til Madeira
Gestamóttakan og Ferða-
klúbbur Levada Joe bjóða
upp á tvær páskaferðir til
Madeira vorið 2008. Fyrri
ferðin er farin dagana 16.-30.
mars en sú seinni 20.-30.
mars
Mikilfenglegt landslag,
hitabeltisgróður og milt veð-
urfar gerir Madeira að eft-
irsóttum stað meðal nátt-
úruunnenda. Boðið er upp á
skipulagðar skoðunarferðir,
en einnig geta gestir kynnt
sér góða golfvelli og
skemmtilegar gönguleiðir í
fjöllunum allt um kring.
Fararstjóri er Jón Krist-
leifsson en hann hefur verið
fararstjóri á Madeira til
fjölda ára og er staðháttum
vel kunnur.
vítt og breitt
Gestamóttakan ehf.
Sími: 551 1730
Netfang: gestamottak-
an@gestamottakan.is