Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 23
kringumstæðum. Þú varst alltaf
glaður strákur, skýr og skemmti-
legur. Þitt góða geð og glaðsinna
gerði það að verkum að mér fannst
ég vera aðalnúmerið og gat alltaf
treyst á þig. Þegar tímar voru erf-
iðir þá varst þú mitt besta skjól.
Þér vildi ég líkjast, vera góð og
glöð hetja og drengur góður.
Kannski þú hafir dekrað mig of
mikið, ef þú hefðir leyft mér að
berjast við drekana þér við hlið þá
hefðum við kannski haldið betur
velli. Skelfilegasta tilhugsunin var
að vera yfirgefinn. Þegar við deild-
um herbergi, ég í neðri koju, þú í
efri, var ósköp notalegt að vita af
þér á efri hæðinni, því hjartað var
ekki í yfirstærð, og ímyndunaraflið
öflugra en við var ráðið.
Unglingsárin tóku við, þá áttu
íþróttirnar hug þinn allan, hand-
bolti, fótbolti og körfubolti. Tíminn
hjá þér fór að mestu í íþróttaæfing-
ar, þegar ekki var skóli eða vinna.
Þú spilaðir með unglingalandslið-
inu í körfubolta, ég var nú ekki lítið
montin af þér. Þú tókst meira að
segja að þér að þjálfa okkur stelp-
urnar í körfu. Aldrei slógumst við
eða rifumst á unglingsaldri, alltaf
þetta góða jafnvægi okkar á milli.
Þú varst 19 ára þegar þú vaktir
mig og kvaddir mig með kossi á
morgni annars í jólum, varst að
fara að heimsækja kærustuna í
jólafríinu á Sigló, ekkert pláss fyrir
litla systur í þeim heimi enda þú
búinn að standa þig svo vel, elsku
strákur, takk fyrir það. Þú og Sig-
rún Ásta eignuðust Önnu Rós,
Ólafíu Björk og Ívar Örn, fallegu
börnin þín sem með sínu ljúfmann-
lega yfirbragði minna um svo
margt á þig. Þú fluttir suður og
leiðir ykkar Sigrúnar skildu þegar
þú kynntist Bjarney, þú varst
djarfur þegar þú sagðist „telja þig
eiga rétt á að vera hamingjusam-
ur.“
Þú og Bjarney áttuð vel saman,
kát og glöð í sinni. Það var gaman
að eiga ykkur að. Þið voruð alsæl
með athvarfið ykkar í sveitinni,
stolt af nýja húsinu ykkar við Sól-
eyjarrima og síðast en ekki síst
ánægð í samvistum hvort við ann-
að. Enginn var eins glaður og stolt-
ur af því að vera orðinn afi eins og
þú. Litli drengurinn hennar Ollu,
hann Aron Elí augasteinninn þinn,
hann líkt og ég forðum var tregur
til þess að deila þér með öðrum
þegar þú varst að útskýra fyrir
honum að þú værir líka afi hennar
Ástu, neeiiii þú ert afi minn. Lítill
gleðibolti sem minnir um svo margt
á þig. Það er svo gott þegar hjörtu
okkar slá í takt og ástin og gleðin
tekur völd. Lífið heldur áfram
elsku bróðir, við minnumst þín í
hjörtum okkar eins og þú varst,
vænn og góður drengur sem hugs-
aðir alltaf fyrst og fremst um aðra,
hetjan okkar allra.
Elsku Bjarney, Thelma, Anna
Rós, Olla Björk, Ívar Örn og
mamma, nú er góður drengur
genginn, okkar missir er sár.
Við geymum hann eins og hann
var í okkar hug og hjarta, elskuleg-
ur bróðir, faðir, sonur og maki.
Hvíl í friði. Þín systir,
Geirþrúður.
Elsku Ívar, hvers vegna ert þú
tekinn frá okkur í blóma lífs þíns,
þú sem varst svo lífsglaður og
þróttmikill. Þetta er svo óraun-
verulegt og óréttlátt. Þú sem varst
byrjaður að huga að undirbúningi
fyrir fimmtugsafmælið þitt í febr-
úar. Minningarnar frá uppvaxtar-
árunum í Hafnarfirði streyma
fram. Þú varst ekki ýkja hár í loft-
inu þegar þú vildir fara með okkur
Stebba bróður í 3 bíó á sunnudög-
um. Þótt þú þyrftir að sitja á stól-
arminum alla sýninguna, skyggði
það ekki á ánægju þína.
Margar minnisstæðar ferðir fór-
um við í sumarfríum með foreldr-
um okkar um landið. Þá var gjarn-
an tjaldað við fallegt vatn og veitt
langt fram á nótt. Ekki vildir þú
vera minni maður en eldri bræður
þínir þegar kom að veiðiskapnum.
Þú lærðir undraskjótt að kasta með
veiðistöng og naust þín vel við veið-
arnar. Íþróttir og boltaleikir voru
þínar ær og kýr, þar varst þú á
heimavelli, enda farnar ófáar
keppnisferðir innanlands og utan.
Þar var keppt í fótbolta og körfu-
bolta, þar náðir þú góðum árangri.
Þú varst meðal annars valinn í ung-
lingalandslið í körfubolta.
Um miðjan áttunda áratuginn
skiljast leiðir í bili, ég fer til út-
landa og þú til Siglufjarðar þar
sem þið Sigrún Ásta stofnið heimili.
Síðan vex fjölskyldan, þið eignist
ykkar yndislegu börn, Önnu Rós,
Ólafíu Björk og Ívar Örn. Oft hitt-
umst við þó á merkisdögum í fjöl-
skyldunni og voru það góðar stund-
ir. Þegar þið fluttuð til Reykjavíkur
var styttra á milli okkar og sam-
verustundir fleiri. Eftir að leiðir
ykkar Bjarneyjar lágu saman feng-
um við að kynnast henni og sjá hve
ánægð þið voruð saman. Fróðlegt
var að heyra frá ferðalögum ykkar.
Gaman var einnig að sjá hve glöð
og ánægð þið voruð með nýja húsið
ykkar í Sóleyjarrima. Þið áttuð líka
ykkar sælureit á Laugarvatni og
var ánægjulegt að sjá hve vel þið
unduð ykkur þar. Allur gróður
dafnaði vel hjá þér, ekki síst rós-
irnar.
Fyrir einu og hálfu ári flytjum
við Svana aftur til Íslands. Við
hlökkuðum mikið til að hitta ykkur
oftar eftir öll þessi ár. Við fréttum
af matarboðum hjá mömmu, þar
sem þið systkinin og makar hittust,
en nú þegar við erum loksins kom-
in heim ert þú tekinn frá okkur.
Okkur þótti mikils virði að fá alla
fjölskylduna til okkar um nýliðin
jól, þar sáum við hve barnabörnin
þín voru hænd að þér. Það er skilj-
anlegt því þú varst alltaf svo góður
og réttlátur. Kæri bróðir og mágur,
við óskum þér góðrar ferðar.
Sigurður og Svana.
Við hlýðum þó að komi hinsta kallið,
og kveðjan mikla sumardegi á.
Við hnígum, eins og blóm til foldar fallið,
er fær ei varist sláttumannsins ljá.
Nú bljúg við þökkum alla alúð þína,
og umhyggju er jafnan kom frá þér.
Nú sjálfur drottinn annist öndu þína
og inn þig leiði í dýrðarvist hjá sér.
(JÞM)
Með þessum orðum kveðjum við
kæran vin sem sárt verður saknað.
Elsku Bjarney, sendum þér og
þínum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur,
Björgvin og Sigríður.
Á stundu sem þessari fæ ég ekki
skilið hvers vegna þú ert tekinn
svona fljótt frá okkur. Söknuðurinn
er svo mikill og það er svo sárt að
þurfa að kveðja þig. En allt hlýtur
þetta að hafa sína ástæðu og ég
verð að trúa því og treysta að þú
sért kominn á betri stað, sem við
eigum öll eftir að hittast á. Örlög
manna eru mismunandi. Fólk fær
mislangan tíma til að elska, til að
gráta, til að brosa og til að lifa. Ég
er ótrúlega þakklát fyrir þann tíma
sem ég fékk með þér. Allar minn-
ingarnar flæða í gegnum hugann
og þær mun ég muna og geyma í
hjarta mér um ókomna tíð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem.)
Thelma Sif.
Margra góðra stunda á undan-
förnum árum er að minnast þegar
við með fáum orðum kveðjum vin
okkar Ívar sem kveður þessa jarð-
vist langt fyrir aldur fram. Við
kynntumst Ívari fljótlega eftir að
hann og Bjarney hófu samvist þ.e.
fyrir um það bil áratug. Við vinkon-
ur Bjarneyjar höfum hist reglulega
á sl. árum og oft voru makar okkar
einnig með. Það er því óhætt að
segja að saumaklúbbur okkar var
orðinn að hjónaklúbb. Við fórum í
ferðalög saman og gerðum okkur
upp tilefni í formi jólahlaðborða og
héldum sameiginleg þorrablót.
Þegar vinur okkar kvaddi höfðum
við nýverið ákveðið að fara saman
til Flórída næsta haust. Það ferða-
lag gaf tilefni til að hittast og
ákveða ferðatilhögun þ.e. leigja
hús, kaupa ferð með skemmtiferða-
skipi, o.fl. Mikil var tilhlökkun okk-
ar og skemmtilegir tímar framund-
an. Það er sárt að horfast nú í augu
við það að einn úr hópnum er fall-
inn frá. Missirinn er mikill og vilj-
um við votta Bjarneyju og fjöl-
skyldu okkar dýpstu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Með kærri þökk fyrir góð kynni.
Saumaklúbbur og makar.
✝
Hjartkær föðursystir okkar,
HERDÍS JÓNSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
lést föstudaginn 18. janúar.
Útför hennar hefur farið fram.
Jón Gunnlaugur Jónasson,
Inga Marta Jónasdóttir,
Magnús Guðlaugsson,
Jón B. Guðlaugsson.
✝
Móðursystir mín,
BÁRA GUÐBRANDSDÓTTIR,
Sléttahrauni 15,
Hafnarfirði
lést á Sólvangi laugardaginn 26. janúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 1. febrúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Pétursdóttir.
✝
Kær bróðir okkar,
EIRÍKUR JÓNSSON,
fyrrum bóndi á Svertingsstöðum,
Húnaþingi vestra,
til heimilis að Smáragrund 3,
Laugabakka,
sem lést laugardaginn 19. janúar, verður
jarðsunginn frá Melstaðarkirkju föstudaginn
1 . febrúar kl. 14.00.
Guðfinna Jónsdóttir,
Þorgerður Jónsdóttir,
Bjarni Jónsson,
Guðlaug Jónsdóttir,
Snorri Jónsson,
Stefán Jónsson,
Ólafur Jónsson,
Gunnlaugur Jónsson,
Ragnheiður Jónsdóttir.
✝
Móðir okkar,
SIGURVEIG MAGNÚSDÓTTIR,
Hlévangi,
Keflavík,
áður Tjarnargötu 14,
Vogum,
andaðist miðvikudaginn 30. janúar.
Útförin auglýst síðar.
Kristjana Leifsdóttir, Kristján Leifsson.
✝
Ástkær faðir minn, afi, bróðir og frændi okkar,
STEFÁN JÓHANN EGGERTSSON
frá Steðja,
til heimilis að
Álfhólsvegi 95,
Kópavogi,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 29. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Eggert Stefán Stefánsson,
Arnór Darri Eggertsson,
Guðrún Eggertsdóttir Kaaber, Edvin Kaaber,
Sigvaldi Eggertsson, Sigríður Einarsdóttir,
Ragna Valgerður Eggertsdóttir
og systkinabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUNNAR HANSSON STEPHENSEN
frá Hólabrekku,
Suðurtúni,
lést miðvikudaginn 23. janúar.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn
4. febrúar kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeir sem vilja minnast hans láti Hjartaheill njóta þess.
Hadda Benediktsdóttir,
Stefán Hans Stephensen, Kristín Jóhanna Kjartansdóttir,
Lára G. Stephensen, Jakob Bjarnason,
Eiríkur G. Stephensen, María Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HELGA LAUFEY JÚNÍUSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 29. janúar.
Jóhanna Þórisdóttir, Ingiberg Guðbjartsson,
Guðlaugur Þórisson, Aðalheiður Magnúsdóttir,
Jenný Þórisdóttir, Guðmundur Hjörleifsson,
Auður Þórisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, bróðir og frændi,
SIGURÐUR VALDAL JÓHANNESSON,
Framnesvegi 10,
Keflavík,
er látinn.
Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju laugar-
daginn 2. febrúar kl. 14.00.
Dætur hins látna,
systkini og frændsystkini.