Morgunblaðið - 31.01.2008, Side 24

Morgunblaðið - 31.01.2008, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórir Örn Þór-isson fæddist í Reykjavík 5. októ- ber 1976. Hann varð bráðkvaddur hinn 15. janúar síð- astliðinn. Foreldrar Þóris eru Kolbrún Bjarnadóttir, f. 11.4. 1949, og Þórir Sæmundsson, f. 7.11. 1935, d. 5.4. 1993. Systkini Þóris samfeðra eru Sæ- mundur Rúnar, f. 12.1. 1955, Jóhann, f. 23.7. 1956, Steinar Þór, f. 4.11. 1958, Hugrún Hrönn, f. 31.5. 1967 og Guðrún Jónína Mjöll, f. 11.7.1970. Systkini Þóris sam- mæðra eru Kristján Hrafn, f. 15.8. 1979, og Helena Guðrún, f. 5.10. 1988. Stjúpfaðir Þóris er Guðmundur Símon Guðleifsson, f. 10.8. 1939. Þórir hóf sambúð árið 1996 með Rakel Birgisdóttur, f. 11.2. 1976. Dóttir þeirra er Hrefna Mjöll, f. 10.3. 1997. Þórir og Rak- el slitu samvistum. Þórir bjó hjá móður sinni í Ár- bænum til sjö ára aldurs þegar hann flutti til föður síns í Kópa- voginum. Þórir bjó hjá honum þar til faðir hans lést árið 1993 og flutti þá aftur til móður sinnar og stjúpföður. Fljótlega eftir að skyldunámi lauk hóf Þórir nám í matreiðslu en lauk ekki námi. Hann vann ýmis störf um ævina, til að mynda við járnabindingar, á dekkjaverkstæði, ýmis störf í tengslum við mat- reiðslu auk þess að prófa sjómennsk- una. Lengi vel vann Þórir á Kópavogs- hæli en síðustu misserin starfaði hann í einingaverk- smiðjunni Smellinn á Akranesi. Þórir hafði mik- inn áhuga á mat- reiðslu, enda lista- kokkur. Á sínum yngri árum æfði hann bæði knatt- spyrnu og golf og náði frábærum árangri í golfinu þar sem hann vann til fjölda verðlauna. Þórir náði einnig þeim fágæta árangri að fara holu í höggi í kringum tíu ára aldurinn og var á þeim tíma yngstur þeirra sem höfðu afrekað það hér á landi. Þórir háði langvinna baráttu við alkóhólisma og fíkn frá tán- ingsaldri. Hann náði sér oft vel á strik en tókst aldrei að losa sig úr viðjum fíknarinnar fyrir fullt og allt. Þórir leitaði mikið í trúna og sótti kirkjustarf í miklum mæli í seinni tíð. Sólargeisli Þóris í lífinu síðasta áratug var dóttir hans, Hrefna Mjöll. Samband þeirra var ávallt gott og einlægt svo eftir var tek- ið. Útför Þóris Arnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku pabbi, mér finnst svo erfitt að kveðja þig. Ég á svo margar góð- ar minningar um okkur saman og allt sem við gerðum og það sem þú kenndir mér. Ég veit að þú munt alltaf vaka yfir mér og passa mig. Þú varst ótrúlega góður og blíður við mig og alltaf gafstu þér tíma til að hringja til að vita hvernig mér gekk í prófunum og svo komstu svo oft að sækja mig og við fórum saman í sund og yfirleitt endaði sundferðin okkar með pylsu og kók, svo þegar ég var að koma til þín um helgar var alltaf fastur liður að ég fékk fiskibollur með heimsins bestu karrísósu og ef ég var heppin fékk ég bollurnar líka í hádeginu daginn eftir. Göngutúrarn- ir okkar voru líka svo skemmtilegir, þá spjölluðum við svo mikið saman og þú varst að segja mér frá afa Þóri og hvað hann var góður maður. Þú kallaðir mig alltaf litla húninn þinn og þú varst stóri bangsapabbi. Best fannst mér að liggja uppi í rúmi að kúra hjá þér, þú að klóra mér á bak- inu. Í mínum huga ertu stærsti og sterkasti pabbi í heimi og því finnst mér svo skrýtið að þú sért farinn og að ég sjái þig ekki meira. Ég sakna þín svo mikið en ég veit að núna ertu hjá Guði þar sem þér líður betur og ert að passa litlu börnin sem voru veik. Það er mér huggun að vita að nú ertu ekki lengur veikur og að þér líður ekki lengur illa. Elsku besti pabbi, ég elska þig al- veg upp í geim og til baka og til allra útlanda og til baka. Megi Guð og góðu englarnir geyma þig. Jesús, vertu hjá mér þegar allt er erfitt, þegar ég græt, þegar ég reiðist, þegar einhver fer frá mér, Jesús vertu hjá mér. (Björ Lykke.) Þín elskandi dóttir Hrefna Mjöll. „Lítill drengur ljós og fagur.“ Þannig viljum við muna yngsta bróður okkar sem nú er látinn langt fyrir aldur fram. Lífshlaup þessa bjarta og glaða drengs var á margan hátt þyrnum stráð þrátt fyrir sterk- an lífsvilja og mikið ástríki þeirra sem næst honum stóðu. Þegar Þórir Örn fæddist vorum við eldri bræðurnir orðnir fullorðnir og ólumst því ekki upp saman en böndin voru sterk þótt við heyrðum stundum ekki í honum um lengri eða skemmri tíma. Jólin voru þó sá tími sem við systkin sameinuðumst öll og okkur er minnisstætt þegar kom í hans hlut að halda jólaboð fjölskyld- unnar. Þá leyndi sér ekki að hann hafði mikla hæfileika á sviði mat- reiðslu og viss gassagangur yfir hangikjötinu minnti óneitanlega á tilburði föður okkar, Þóris Sæ- mundssonar. Bróðir okkar hafði mikinn áhuga á matreiðslu og um tíma nam hann þá grein enda stóð hugur hans ávallt til frekara náms. Frá unga aldri ólst Þórir Örn að mestu upp hjá föður okkar og voru þeir feðgar einkar samrýmdir og nutu elsku hvor annars. Það var því mikið áfall fyrir Þóri Örn aðeins sex- tán ára að missa pabba sinn árið 1993. Ekki bar hann sorg sína á torg og bar höfuðið ávallt hátt þó að lífið hafi ekki alltaf farið mildum höndum um hann. En í gegnum skýjað him- inhvolfið sá hann ætíð til sólar og átti sterka von um gleði og hamingju sem fólst ekki síst í ást og kærleika til dóttur sinnar, Hrefnu Mjallar, sem hann naut samvista við enda var hann afar barngóður og hændust börn að honum. Hann hafði mikla persónutöfra og útgeislun og vildi nýta hæfileika sína til góðra verka og tókst þegar best lét svo vel upp að eftir var tekið. Hann átti margar ómældar gleðistundir þar sem hans innri birta og yndislegur hlátur fékk lýst inn í líf okkar hinna. Sem barn var Þórir Örn heilbrigð- ur og fjörugur og var hann mikið eft- irlæti pabba síns. Hann byrjaði snemma að stunda golf með pabba sem hafði gífurlega trú á golfhæfi- leikum sonar síns. Á sínum tíma var Þórir Örn yngsti kylfingurinn til þess að fara holu í höggi. Ástríðan fyrir golfíþróttinni var slík að um tíma fluttu þeir feðgar til Spánar til að leggja áherslu á golfið. Þar fór Þórir Örn í golfskóla auk þess sem hann var sendur í skóla til þess að læra spænsku. Nú þegar ástkær bróðir okkar hefur kvatt þessa jarðvist og haldið á aðrar slóðir, þær sömu og faðir okk- ar, er víst að verða fagnaðarfundir. Þar og á meðal vor mun andi þeirra feðga lifa í ljósi kærleikans um ókomna tíð. Og þó skal engum dýrðardraumi glatað sem dreymdi þína önd. Í auðmýkt hjartans ennþá færðu ratað í óska þinna lönd. Því minningin um morgunlandið bjarta um myrka vegu lýsir þínu hjarta. (Tómas Guðmundsson.) Rúnar, Jóhann og Steinar. Litli bróðir minn, Þórir Örn, er dáinn. Það tekur tíma að venjast þeirri hugsun og tíma að læra að lifa með því. Ég man þá eftirvæntingu að eignast lítinn bróður, ég var níu ára gömul og átti fyrir 3 eldri bræð- ur og eina yngri systur. Pabbi og Kolla voru dugleg að leyfa okkur systrum að taka þátt í umönnun litla krúttsins. Ég man hversu stollt ég arkaði um Hraunbæ með fallegasta barnið í hverfinu, fallegt andlitið, spékopparnir og ljósa hárið, feg- ursta sýn að mínu mati, og þó svo ár- in hafi liðið lifir sú mynd sterkust í huga mér. Mikill og sár var söknuður okkar systkina þegar pabbi okkar dó langt fyrir aldur fram og sérstaklega fyrir Þóri, aðeins 16 ára ungling. Sá dagur markaði djúp spor í sál hans, þeirra tengsl voru sérstök. Þórir snerti alla í minni fjölskyldu jafnt börn sem fullorðna. Stundum þegar hann kom í heimsókn var hann allt í einu horf- inn. Þegar maður leitaði að honum sat hann gjarnan hjá krökkunum og talaði við þau á þeirra máli eða öll gæludýr heimilisins voru komin upp í fangið á honum. Lífið er brothætt og vegirnir snúnir og ekki gefst okk- ur öllum að rata sama veg, að villast er ekki flókið og það var hluti af hans lífi eins og svo margra. En minningin um fagra, hlýja og vonmikla sál lifir áfram og litli sólargeislinn hans, hún Hrefna Mjöll, er lifandi sönnun þess. Elsku Þórir Örn. Óvænt kallaði guð þig til sín langt fyrir aldur fram. Hjarta mitt brast og tárin flæddu, en þú fórst ekki einn. Hluti af mér fór með þér þá stund sem þú kvadd- ir, fagrar minningar og kærleikur þinn munu leiða mig í gegnum lífsins fegurð og ólgusjó. Þó svo ég geti ekki séð þig verður þú ætíð við hlið mér. Keðjan hefur rofnað og ekkert virðist eins. En eitt af öðru munum við hlýða kallinu og keðjan verður heil á ný. Ég elskaði þig meðan þú lifðir og látinn elska ég þig líka, í hjarta mér verður þú alltaf fallegi litli bróðir minn. Þín elskandi systir. Hrefna Mjöll, megi algóður guð leiða þína litlu hönd á þessari sorg- arstundu. Hugrún. Elsku yndislegi Þórir Örn minn, þú varst svo miklu meira en litli bróðir. Mér hefur alltaf fundist ég eiga svo mikið í þér og kallaði þig stundum fósturson okkar. Þegar þú varst lítill fluttir þú heim til pabba og þar var nú oft mikið fjör hjá okkur. Við gátum spjallað og hlegið og hlustað á Ego saman, þó það hafi nú verið meira fyrir þig en mig. Þegar pabbi fór eitt sinn til út- landa vorum við Gilli beðin um að passa þig. Það var yndislegt, mér fannst ég bera svo mikla ábyrgð á þér og var stolt stóra systir. Það gat þó stundum verið strögl á morgnana að vekja þig en það var sama hversu pirruð ég gat orðið, þú náðir alltaf að fá mig til að brosa aftur. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann á svona stundu, bæði góðar og aðrar ekki eins góðar. Þú áttir oft erfitt og lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá þér, elsku Þórir minn. En það sem stendur efst í huga mínum núna er hversu ynd- islegur þú varst. Þú heillaðir alla sem kynntust þér, eins og þú varst í raun og veru. Heillandi persóna, kraftmikill, barna- og dýravinur og fallegur utan sem innan. Alltaf náðir þú öllum börnum og dýrum á þitt band. Þú varst einstaklega næmur á börn, hvort sem það var að sýna þeim ást og hlýju eða ná þeim í ein- hvern leik. Börnin mín fengu að fara til þín og gista þegar þú bjóst á Akranesi. Þú lékst þér við þau alla helgina, horfðir á gelgjumyndir með stelpunum eða varst í tölvunni með stráknum og dældir í þau ís. Börnin mín grétu sáran þegar við þurftum að segja þeim að þú værir farinn. Þau töluðu sérstaklega um það hvað þú værir góður og skemmtilegur og þau sakna frænda síns sárt. Þegar pabbi dó misstir þú svo mikið meira en pabba, þú misstir besta vin þinn og það heimili sem þú ólst upp við. Þetta var erfiður tími fyrir alla og ekki síst þig. En sólin tók að skína skært nokkrum árum seinna þegar litla perlan þín, hún Hrefna Mjöll fæddist. Ég dáðist oft af ykkur feðginum, þegar þið komuð í heimsókn. Hún gat varla slitið sig frá þér og þú gafst þér alltaf tíma til að tala við hana, þó að við værum í miðju spjalli. Þú varst einstakur fað- ir og elskaðir stelpuna þína skilyrð- islaust. Ég veit að þú munt verða hjá henni og leiða hana í gegnum lífið. Elsku litli bróðir, ég veit að þú hefur loksins fengið frið og líkami þinn er hvíldinni feginn. En ég sakna þín svo sárt og það er svo erfitt að kveðja. Það eina sem færir mér huggun núna er að ég veit að þú ert hjá pabba og þar leið þér alltaf vel. Þín Gunný, Guðrún Jónína Mjöll. Flestir sem eiga stóran bróður vita hversu gott það er. Hversu mikla öryggistilfinningu það veitir. Hversu sterkt haldreipi það er, ekki síst ef abbast er upp á mann á ung- lingsárunum. Ég var einn af þessum heppnu. Minn bróðir hét Þórir Örn Þórisson. Og hvílíkur bróðir. Stuðningurinn sem Þórir veitti mér var ekki einungis þess kyns að geta sagt, án þess að þurfa að halla réttu máli, að sá sem hygðist gera mér eitthvað ætti að hugsa sig tvisv- ar um vegna tilvistar stóra bróður. Þórir var nefnilega ekki síður stoð og stytta feimins og óöruggs ung- lings á félagslega sviðinu. Einlægum samtölum okkar, sem stundum stóðu langt fram á morgun, gleymi ég aldr- ei. Og ófá skiptin, þegar mér hafa fallist hendur frammi fyrir einhverju verkefni, hef ég hugsað til þess þeg- ar hann sagði að ég gæti allt sem mig langaði til að gera. Þórir var ein af hjartahlýjustu, ein af fjölhæfustu, og síðast en ekki síst, ein af skemmtilegustu manneskjum sem ég hef kynnst. Og ekki þarf að fjölyrða um hversu bráðgreindur og hörkuduglegur hann var. Það sáu allir fljótt sem voru í kringum hann. Þórir kenndi mér margt. Eitt af því eftirminnilegasta er það hvernig á að faðma þá sem manni þykir vænt um. Allir sem urðu þeirrar gæfu að- njótandi að fá faðmlag frá Þóri í lif- anda lífi geta vottað um það hversu þétt og innileg þau voru. Þegar Þórir flutti til okkar mömmu, pabba og Helenu eftir andlát pabba hans hófst kennslan. Seinna sagði hann mér að það að faðma mig fyrst eftir að hann flutti hafi verið eins og að faðma standlampa. Ef faðmlög mín í dag komast þó ekki væri nema í hálf- kvisti við þau sem Þórir gaf get ég vel við unað. Ein er sú manneskja sem hefur fengið fleiri faðmlög frá Þóri en nokkur annar, dóttir hans og auga- steinn, Hrefna Mjöll. Hamingjusam- ari mann en þegar hún fæddist hef ég vart séð. Þórir var líka eins og fæddur í pabbahlutverkið. Hann hefði gengið veröldina á enda til að gleðja Hrefnu sína. Hann sagði mér líka oftar en einu sinni að á myrk- ustu augnablikum lífs síns hélt hann áfram baráttunni vegna hennar. Myrku augnablikin voru því miður allt of mörg í lífi Þóris bróður. Hann háði harða rimmu við fíkniefnadjöf- ulinn nánast hálfa ævina og varð að lokum undir. En hann barðist hetju- lega. Sama hversu oft hann lenti aft- ur á byrjunarreit þá hélt hann af stað að nýju í þrá sinni eftir „venju- legu“ lífi. Þvílík seigla. Þvílíkur nagli. En þvílíkur sjúkdómur. Lengi höfðum við bræðurnir talað um að fara saman einn daginn á leik á Anfield Road, heimavelli Liver- pool, okkar liðs í enska boltanum. Það varð aldrei. Elsku bróðir, þegar kemur að því að ég fer á Anfield þá mun ég fara fyrir okkur báða. Ég mun hvetja okkar menn tvöfalt meira en ég hefði annars gert. Með stóra mynd af þér í brjóstvasanum. Ég get varla beðið eftir að hitta þig aftur á himnum elsku Þórir. Þar munum við ekki bara spjalla og hlæja saman fram á morgun eins og forðum, heldur inn í eilífðina. Og horfa á alla þá Liverpool-leiki sem okkur langar til í bestu stúkusætum sem völ er á. Þinn Kiddi bróðir, Kristján Hrafn. Elskulegi fallegi, góði, stóri bróðir minn er látinn og nú sit ég hér og skrifa minningargrein um hann. Það er svo margt sem maður man eftir sem er ómögulegt að fara að velja úr og ómögulegt að þurfa að velja hverju á að sleppa. Ég verð samt að minnast á það þegar ég bjó hjá þér í Hafnafirði. Þrátt fyrir að þú værir í einhverju rugli þá, þá var alltaf sama heim- ilishaldið og rútínan og mér leið al- veg rosalega vel. Ég kom heim úr skólanum, lærði og ef Hrefna var hjá þér þá lærðum við saman. Svo fórum við yfirleitt í búðina og keyptum í matinn og þú eldaðir svo eitthvað frábærlega gott handa okkur. Eftir matinn skiptumst við á við uppvaskið áður en við lögðumst í sófann fyrir kósýkvöldin okkar. Þetta var yndis- legt. Þú hafðir einstaka hæfileika í eld- húsinu, matreiddir hvað sem er fram úr hægri erminni og það smakkaðist alltaf jafn frábærlega. Þú varst líka með algjört hjarta úr gulli, það er ég alveg viss um. Þú varst rosalega mikill dýravinur og barnavinur. Öll dýr og börn gjörsamlega soguðust að þér. Ljósið í lífi þínu var að sjálf- sögðu Hrefna Mjöll og þú ljómaðir allur þegar þú talaðir um þessa Guðsgjöf eins og þú sagðir. Seinustu vikur talaðirðu líka svo mikið um Frosta minn og þú hlakkaði svo til þess að hitta hann. Þú varst alltaf að segja okkur að þú ætlaðir að fara með hann í langa göngutúra en því miður náðir þú aldrei að hitta hann. Þú varst svo fallegur strákur, Þór- Þórir Örn Þórisson ✝ Ástkær eiginmaður minn, ELFAR H. RAGNARSSON, Hátúni 10A, lést á Skjóli sunnudaginn 6. janúar. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Sif Ólafsson. ✝ Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, ÓSK NORÐFJÖRÐ ÓSKARSDÓTTIR frá Hrísey, Dvergabakka 34, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. febrúar kl. 15.00. Pétur Geir Helgason og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.