Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég man sérstaklega þegar ég flutti heim frá Bandaríkjunum og hitti þig aftur í fyrsta sinn, tárin láku niður kinnar okkar. Þá báðir orðnir tvítug- ir að aldri og algerlega í blóma lífs- ins eins og við ættum báðir að vera í dag. Barátta þín hefur þér verið mjög erfið í gegnum árin og lífið ekki ver- ið þér sanngjarnt. Að fá þig í heim- sókn rétt fyrir áramót var alveg frá- bært. Að fá að sjá þig aftur eftir svo langan tíma. Mér fannst þér hafa farið svo mikið fram á seinasta ári, lífið virtist hafa einhverja þýðingu aftur. Nú ertu kominn á betri stað og á fund föður þíns og ég veit að þið sitjið saman kátir. Hvíl þú í friði elsku vinur. Tómas Eric. Pabbi! Það er vont!…Vont!… Það er Þórir!… Sonur minn þurfti ekki að segja meira. Ég vissi strax hvað hann var að fara þar sem við sátum saman í bílnum en hann hafði hringt í mig í vinnuna þennan morgun og beðið mig að koma út í bíl þar sem hann var fyrir utan. Við grétum saman. Þannig barst okkur hjónunum frétt- in af andláti þessa kæra vinar okkar. Þórir Örn var gamall skólabróðir og vinur sona okkar og þó við í gegn- um tíðina þekktum hann lítið þá vissum við alltaf af honum í gegnum syni okkar. En fyrir tveimur árum kom hann með kröftugum hætti inn í líf okkar og meira en það, hann gekk beina leið inn í hjarta okkar og eign- aðist þar stórt pláss. Þórir var mikið inni á heimili okkar og við áttum margar góðar og dýrmætar stundir með honum. Hann hjálpaði okkur að taka garðskálann okkar í gegn, pússa og lakka og oft spurði hann hvort það væri ekki eitthvað sem hann gæti gert til að hjálpa. Honum fannst gaman að elda og þær eru ekki fáar stundirnar sem við áttum saman í eldhúsinu að bralla eitthvað og stundum eldaði hann fyrir okkur. Við gátum talað saman um allt mögulegt og við áttum líka með hon- um stundir þar sem við lásum saman í Biblíunni og báðum saman. Já, Þór- ir eignaðist lifandi trú á Jesú Krist og fór að sækja með okkur kirkju en við erum í ísl. Kristskirkjunni og þar fann hann sitt andlega heimili og þangað sótti hann eins mikið og hann gat. Hann fór líka oft í Sam- hjálp og Krossinn. Líf Þóris var ekki auðvelt. Hann átti líka sínar skuggahliðar þar sem hann háði stanslausa baráttu og hann var með óvæginn sjúkdóm sem hann að lokum lét í minni pokann fyrir. En við erum þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í lífi hans og baráttu þessa síðustu mánuði. Við fengum að gráta með honum þegar hann átti erfitt en við fengum líka að gleðjast með honum og þar kom ljós- ið í lífinu hans hún Hrefna Mjöll dóttir hans sterkast inn. Hann kom oft með hana heim til okkar og það var frábært að sjá hvernig hún átti hjarta hans. Hann snerist í kringum hana og lék við hana eins og við öll hin börnin sem í kringum okkur eru, enda voru þau alltaf svo glöð að sjá hann þegar fjölskyldan, sem hann var orðinn eins og einn af, kom sam- an. Svo var gaman að heyra hvernig hann gat endalaust eldað og borðað „fiskibollur í karrí“ uppáhaldið hennar Hrefnu Mjallar, sem við fengum líka einu sinni að borða með þeim. Elsku Þórir, það er tómlegt að hugsa til þess að þú eigir ekki eftir að koma inn um dyrnar, knúsa okk- ur, fá að setja í vél og eiga með okk- ur góða stund. Já, og svo eru það líka allir göngutúrarnir sem við fór- um saman, bæði í Fossvogsdalnum sem var þér svo kær og í Heiðmörk- inni þar sem þú sagðir að þú hefðir í fyrsta skiptið kropið niður fyrir Guði og gefist honum. Það er gott að hugsa til þess að þú ert barnið hans og nú, elsku vinur, í síðasta sinn: „Guð og góðu englarnir hans, geymi þig!…“ Um alla eilífð!… Jósef og Ingunn. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Nú er frost á Fróni Hlý, undurmjúk ullarnærföt fyrir kalda kroppa. Barna- og fullorðinsstærðir. Þumalína, efst á Skólavörðustígnum. Sími 551 2136. www.thumalina.is Heilsa Mikið úrval fæðubótarefna Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer Ármúla 32. Sími 544 8000 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. Húsnæði í boði Til sölu Veghús 31 íbúð 903, 92 m² Góð 3 herb. íbúð á 9. hæð í 10 hæða lyftublokk. Gott ÍLS-lán áhvílandi. Laus núna. Lækkað verð niður í 21,9 m.kr. Opið hús fimmtud kl. 16-16,30. Uppl. í 896 3867. Glæsileg 3ja herb íbúð í Hafnar- firði. Til leigu glæsileg 3ja herb. 98 fm íbúð á góðum stað í Hf. Nýlega standsett. Búnaður og húsgögn inni- falin ef vill. Langtímaleiga. Laus mjög fljótlega. Sjá nánar á Kassi.is Húsnæði óskast Íbúð óskast! Einstæð móðir óskar eftir 3ja herb. íbúð til leigu á höfuðborgarsvæðinu á allt að 90 þús á mán. sími: 892 9418. Reglusöm og skilvís, með meðmæli. Bráðvantar íbúð til leigu Erum ungt reglusamt par sem vantar íbúð til leigu. Um langtímaleigu er að ræða,helst í RVK, 2ja-3ja herb. Greiðslugeta 80-100 þús. pr.mán. Vinsaml.hafið samband í s.849 4924. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið PMC Silfursmíði. Grunnnámskeið helgina 2 og 3 febrúar.Uppl. www.listnam.is skráning sími 6950495 Microsoft kerfisstjóranám Bættu Microsoft í ferilskrána. Micro- soft MCSA kerfisstjóranámið, fyrri hluti, hefst 25. febr. Upplýsingar á www.raf.is og í síma 863 2186. Rafiðnaðarskólinn Tómstundir Fjarstýrðir bensín- og rafmagnsbílar í úrvali. Opið í dag sunnudag frá kl.13-18:00. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587-0600. www.tomstundahusid.is. Til sölu             Stórir skór.is hætta 30% afsláttur af öllum dömuskóm í stærðum 42-44 og herraskóm í stærðum 47-50. Opið þriðjudaga til föstudaga kl.16- 18,30, laugardaga 11-14. Ásta skósali, Súðarvogi 7, sími 553 60 60. Þjónusta Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Helgi pípari Viðgerðir - Nýlagnir - Breytingar - Lítil sem stór verk, hitamál o.fl. Hafið samband í síma 820 8604. Helgi pípari. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. HALOGEN LJÓSKASTARAR, mikið úrval. KASTARAR Á GRIND MEÐ SNÚRU OG PERU, 150W: 1,095 kr., 500W: 1,370 kr., 1000W: 2,299 kr. VERKFÆRALAGERINN ehf., Skeifunni 8. Sími 588 6090. vl@simnet.is Ýmislegt Vantar þig sal fyrir veislu? Alhliða veisluþjónusta, stórar sem smáar veislur. Upplýsingar í s. 567 8197. Netfang: eldhus@heittogkalt.is Kirkjustétt 2-6, Reykjavík. Úrval af herrakuldaskóm úr leðri með gæruskinnsfóðri. Verð frá 6.885.- til 12.500.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán.-föst. 10-18, og laugardaga 10-14 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Rafsuðutæki + hjálmur Frábærar pinnasuðuvélar á 45.000 kr. Rafsuðuhjálmur auto -dark (1/25.000 úr sek.) á 12.450 kr. Tilboð: Rafsuða og hjálmur kr. 50.000. S. 895 6662. www.holt1.net Bílar Audi Allroad 2003. Ek. 95 þús. mílur. 2,7 vél með 2 túrb- ínum, 250 hö. Beinskiptur. Hækkan- leg loftpúðafjöðrun, leður, topplúga, rafmagn í öllu, Bose-hljóðkerfi. Lúxusbíll með öllu hugsanlegu og sér ekki á honum. Verð: 2,6 millj. Upplýsingar í síma 899 2005. Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. www.bilaskoli.is Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Leitum að verkum Hjörleifs Sigurðssonar á yfir- litssýningu. Guðrún, sími: 8668608, gth19@hi.is. Málverk Fréttir á SMS Sjálfsbjörg, Reykjavík Spilaður var tvímenningur á 8 borðum sl. mánudag Úrslit urðu í N/S: Jón Jóhannss. - Steingrímur Þorgeirss. 228 Kristján Albertss. - Sigþór Haraldsson 201 A/V Brynjar Olgeirss. - Birgir Lúðvígsson 226 Birna Lárusd. - Sturlaugur Eyjólfsson 208 Meðalskor var 168. Enn er stefnt að sveitakeppni næsta mánudag, en til þess þarf að fjölga eitthvað. Ellefu sveitir í aðal-sveita- keppninni í Borgarfirðinum Mánudaginn 28. janúar hófst að- alsveitakeppnin með þátttöku 11 sveita. Formaður hafði þann hátt á að hann raðaði pörum í sveitir „eft- ir eigin geðþótta“ enda væri það fyrir okkur hinum haft af ráða- mönnum að nýta valdið, ef marka mátti orð hans. Kópakallinn var venju fremur kotroskinn þetta kvöld er hann kynnti til leiks nýjan liðsmann sveitar sinnar, Austfirð- inginn hógværa Bjarna H. Einars- son, sem nú stundar nám á Bifröst. „Ekki annað að gera en sækja eitt- hvað sem bit er í“ sagði kallinn sem fjórum tímum síðar hafði unnið tvo fyrstu leikina glæsilega. Það dugði honum þó ekki alveg á toppinn því Tungnamenn (sem í þetta sinn eru flestir frá Varmalandi) gerðu einum betur. Þá er ljóst að reyndari spil- arar verða að vara sig á sveit há- karlanna sem stýrt er af þeim títl- um Hrönn á Kópareykjum og Björk á Hvanneyri, en þær er báðar tólf ára. Staðan eftir fyrsta kvöld er ann- ars þessi: Tungnamenn (Flemming, Guðmundur, Þórhallur og Brynjólfur) 46 Kópakallinn (Eyjólfur, Jóhann, Egill og Bjarni) 45 Hákarlarnir (Hrönn, Björk, Sveinbjörn og Lárus) 37 Stórmót hjá eldri borgurum sl. þriðjudag Þriðjudaginn 29. janúar var spil- aður tvímenningur hjá eldri borg- urum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Til leiks voru mætt 44 pör. Úrslit urðu þessi. Erla Sigurjóns – Sigfús Þórðarson 179 Björn Árnason – Albert Þorsteinsson 162 Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 97 Magnús Oddsson – Ólafur Gíslason 92 Bjarnar Ingimarss. – Friðrik Hermannss. 89 Ragnar Björnss. – Jóhann Benediktsson 89 Spilað var í Hraunseli, Flata- hrauni 3, Hafnarfirði. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.