Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 30

Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ GETUR NOTAÐ VENJULEGT LÍMBAND TIL AÐ LOSA ÞIG VIÐ KATTAHÁRIN... ...AF HÚSGÖGNUNUM ÞÍNUM HVAÐA GLOTT ER ÞETTA? HUGSAÐU UM ÞETTA SVONA... HELDURÐU ÞAÐ Í ALVÖRUNNI? NEI!ÞETTA ERU ERFIÐUSTUDAGAR LÍFS ÞÍNS... FULLIR AF MÓTLÆTI EN EF ÞÚ BERÐ HÖFUÐIÐ HÁTT OG BERST GEGN ÞESSU MÓTLÆTI ÁTTU EFTIR AÐ VERÐA STERKARI! ÉG SÉ ENGA ÁSTÆÐU FYRIR ÞVÍ AÐ LÆRA NEITT EF FÓLKI FINNST EKKI MERKILEGT AÐ ÉG KUNNI ÞAÐ Í AUGNABLIKINU ER SLÖKKT Á FARSÍMANUM, HANN UTAN ÞJÓNUSTUSVÆÐIS EÐA... ÉG ER MEÐ ALLA ÞESSA KRAFTA... EN AF HVERJU TEKST MÉR ALDREI AÐ VINNA Í LOTTÓINU? HÖGNI ER EKKI ENN KOMINN HEIM. ÉG TRÚI EKKI AÐ ÞÚ HAFIR HLEYPT HONUM ÚT ÉG KLÚÐRAÐI ÞESSU... ÉG SKAL FARA ÚT AÐ LEITA AÐ HONUM... ÉG ER VISS UM AÐ ÞAÐ ER ALLT Í LAGI MEÐ HANN Æ, NEI... ÞETTA ER HRÆÐILEGT VIÐ ERUM KOMIN HVAÐ NÚ? EKKERT SÉRSTAKT... ÉG ÆTLA BARA AÐ FLEYGJA YKKUR OFAN AF ÞESSU BJARGI... OG TAKA MYND AF FALLINU NEI! dagbók|velvakandi Bríet Sunna frábær ÉG TEK sannarlega undir aðdáun á Bríeti Sunnu varðandi söng í Kálfa- tjarnarkirkju við jarðarför í desem- ber. Hún söng yndislega án undir- leikara tvö lög, Angel og Söknuð. Ég hef ekki heyrt í henni síðan hún var í Idolinu og hún mætti vissulega koma fram í sjónvarpinu, t.d. í Kast- ljósi. Falleg stúlka með silfurtæra, tilfinningaríka rödd. Bríet Sunna fær stórt faðmlag. Sesselja Guðmundsdóttir, Mosfellsbæ. Níðingsverk gegn dýrum Á HEIMASÍÐU Kattholts mátti ný- lega lesa frásögn af því að 5 litlir kettlingar hefðu fundist í pappa- kassa nálægt Rauðavatni, greinilega bornir út. Það er ótrúlega sorglegt til þess að vita, að til skuli vera fólk sem haldið er slíkri mannvonsku. Hvað gengur svona fólki eiginlega til? Er það alls ekkert að hugsa þeg- ar það framkvæmir slíkt níðingsverk gegn saklausum dýrum? Hvernig eiga litlir kettlingar (af mynd að dæma kannski 6-8 vikna gamlir) að bjarga sér um hávetur úti í auðn- inni? Það hlýtur hverjum vitibornum manni að vera ljóst að svona lítil dýr veiða sér ekki til matar og eru í raun ósjálfbjarga. Þannig að þeir hafa verið bornir þarna út til að veslast upp og deyja úr hungri. Það eru vitanlega til önnur og mannúðlegri ráð. Ef ekki er hægt að útvega litlum kettlingum heimili, er miklu hrein- legra að láta svæfa þá á miskunn- saman hátt hjá dýralækni. Og hvað með læðuna, móðurina? Sú getur ekki átt sjö dagana sæla hjá slíkum eigendum. Svona meðferð á dýrum er til háborinnar skammar. Og varð- ar við dýraverndunarlög. Ef mögu- legt er, þarf að finna þá sem gera svona lagað og draga þá til ábyrgð- ar. Því miður er þessi saga ekki eins- dæmi. Það er sorgleg staðreynd að allt of margir hugsa illa um dýrin sín og henda þeim frá sér þegar þeim hentar og kæra sig kollótta um af- drif þeirra. Sem betur fer var þess- um kettlingum bjargað í Kattholt. Mörg kisan hefur fengið þar skjól, þegar eigendurnir henda þeim út á Guð og gaddinn. Til allrar hamingju er mikið til af hjartahlýju og góðu fólki sem hlúir að vegalausum kis- um. Munum að við fullorðna fólkið eigum að vera börnum góð fyrir- mynd: Kennum þeim að vera góð við dýrin og sýna þeim miskunn og virð- ingu. Þarna úti er fullt af svöngum og köldum kisum, sem eiga sér ekk- ert skjól og lífsbaráttan er þeim hörð og erfið, ekki síst þegar veður eru eins válynd og í vetur. Hugsum líka til smáfuglanna og eins má alveg gauka afgöngum að honum krumma, sem nú á erfitt með æti. Dýravinur. Guðrún Jakobsen skrifaði FYRR í vikunni birtist í Velvakanda áskorun til Ríkisútvarpsins og -sjón- varps þess efnis að að þau íslensku leikverk sem nú á að hætta að sýna í leikhúsum verði sýnd í sjónvarpinu. Rangt var farið með nafn höfundar, en það var Guðrún Jakobsen sem skrifaði. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞESSIR ungu Seltirningar nýttu sér tækifærið þegar starfsdagur var í Valhúsaskóla og skruppu í brekkuna. Núna er sleðafærið alveg prýðlegt og því er um að gera að draga fram allt sem rennur. Árvakur/Frikki Brunað í brekkunni Fréttir í tölvupósti ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali íbúðin skiptist í forstofu með flísum á gólfi, stofu með parketi og góðri verönd útfrá stofu. Baðherbergi með kari og upphengt WC. Óvenju stórt og gott eldhús með borðkrók og geymslu innaf. Á efri hæð er annað bað- herbergi með tenglum fyrir þvottavél og þurrkara. 4 svefnherbergi, þar sem eru upptekin loft, og með ljósu parketi á gólfum. Verð 38.9 milljónir. Vallargerði í Kópavogi Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk. 533 4200 Ársalir ehf - fasteignamiðlun 533 4200 eða 892 0667

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.