Morgunblaðið - 31.01.2008, Qupperneq 32
Ég sat bara með Chim
Chim inni í eldhúsi og
allt í einu greip hann í brjóst-
ið á mér … 35
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG hef aldrei komið til Íslands en ég hlakka mik-
ið til að koma,“ sagði ástralska leikkonan Caroline
Reid þar sem hún var stödd á Heathrow-flugvelli í
Lundúnum í gær, á leið sinni til Íslands. Tilgangur
heimsóknarinnar er að kynna flugfreyjuna Pam
Ann fyrir Íslendingum, en hún er eins konar hlið-
arsjálf leikkonunnar. Um er að ræða tvær sýn-
ingar í Tjarnarbíói, í kvöld og annað kvöld.
„Pam Ann er flugfreyja sem er eins og klippt út
úr sjöunda áratugnum,“ segir Reid um vinkonu
sína. „Hún er kölluð af almenna farrýminu til þess
að vinna á fyrsta farrými, og hefur engan áhuga á
að fara til baka til almúgans. Hún er ansi óhefluð,
og sumum finnst hún meira að segja svolítið
óhugnanleg. Hún stríðir nefnilega fulltrúum mis-
munandi stétta sem koma um borð í flugvélina. En
ég held að hún segi bara það sem alla áhafn-
armeðlimi langar að segja við farþega, en þora
ekki,“ útskýrir Reid sem hefur haft flugfreyjuna
skrautlegu á herðunum í rúmlega tíu ár. Á þeim
tíma hefur Pam Ann notið mikilla vinsælda og hef-
ur Reid kynnt hana fyrir nokkuð stórum hluta
heimsbyggðarinnar. „Ég er til dæmis nýkomin úr
ferðalagi um Bretland og Bandaríkin, þannig að
ég ferðast mikið.“
Aðspurð segir Reid að sýningin sé hvorki fyrir
viðkvæma né óharðnaða einstaklinga. „Nei, guð
minn góður, þú þarft eiginlega að vara fólk við. En
ég hef að vísu heyrt að þið Íslendingar séuð nokk-
uð frjálslyndir, þannig að þetta er kannski allt í
lagi,“ segir leikkonan hlæjandi.
Pam Ann hefur notið svo mikilla vinsælda að
Reid vonast til þess að geta gert sjónvarpsþátt um
hana.
„Það er reyndar ekkert ákveðið en við erum
samt að vinna að einskonar umræðuþætti sem fer
fram um borð í flugvél. Við vonumst til að geta
komið þeim þætti í loftið á næstu árum.“
Pam Ann hefur samt sem áður komið fram í
sjónvarpi nokkrum sinnum, til dæmis í Britain’s
Next Top Model-þáttunum sem sýndir hafa verið
hér á landi.
Þá má einnig geta þess að flugfreyjan góða á
sér aðdáendur úr hópi fræga fólksins. Sem dæmi
má nefna að hún var fengin til þess að skemmta
um borð í einkaþotu Eltons John. „Ég flaug með
honum og vinum hans til Feneyja, ég var fengin til
að skemmta um borð sem var virkilega gaman,“
segir Reid. Þá mun sjálf Madonna vera á meðal
aðdáenda. „Já, mér skilst það, hún sagði víst að
Pam Ann væri fyndin á mjög grimmdarlegan hátt
sem mér finnst nokkuð vel að orði komist. Ég hef
hins vegar ekki hugmynd um hvenær Madonna sá
Pam Ann,“ segir Reid og hlær.
Þess má loks geta að sýningarnar eru í sam-
vinnu við Flugfélag Íslands – nema hvað.
Flugfreyjan furðulega
Pam Ann „Festið sætisólarnar og setjið Gucci og Prada handtöskurnar í farangurshólfið.“
Pam Ann býður
Íslendingum í sérstaka
uppistandsflugferð
í kvöld og annað kvöld
Pam Ann verður með uppistand í Tjarnarbíói í
kvöld og annað kvöld. Báðar sýningar hefjast kl.
20. Miðaverð er 2.500 krónur og miðasala fer
fram á midi.is.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
NÚ styttist óðum í stórtónleika
Hins íslenska þursaflokks og CA-
PUT í Laugardalshöllinni, en tón-
leikarnir fara fram laugardags-
kvöldið 23. febrúar næstkomandi.
Sveitirnar tvær, sem samtals telja
um 30 hljóðfæraleikara, munu
leggjast á eitt á tónleikunum og
flytja öll helstu lög Þursaflokksins
í viðhafnarútsetningum.
Hinn íslenski þursaflokkur var
stofnaður árið 1977 og því munu
tónleikarnir marka 30 ára afmæli
sveitarinnar.
Þeir sem ekki geta beðið eftir
að sjá hvernig samvinna Þursa-
flokksins og CAPUT kemur út
geta stillt á Kastljósið í Sjónvarp-
inu annað kvöld. Þar munu sveit-
irnar flytja lagið „Grafskrift“ í
sameiningu en lagið er af sumum
talið eitt það allra besta í íslenskri
popptónlistarsögu.
Samkvæmt upplýsingum frá
tónleikahaldara gengur miðasala á
tónleikana annars mjög vel og fer
miðum ört fækkandi. Lítið mun
vera eftir af miðum í sal en eitt-
hvað er þó til í stúku. Miðasala er
í fullum gangi og fer hún fram á
midi.is.
Þursar og CAPUT í Kastljósi
Hinn íslenski þursaflokku Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Tómas
Tómasson bassaleikari á æfingu með Þursaflokknum.
Samkvæmt vefsíðu tímaritsins
Monitors verður gestum veitinga-
og skemmtistaðarins Priksins boð-
ið að snæða frítt í dag milli klukk-
an 10 og 15. Tilefnið ku vera nýr
matseðill sem staðurinn hefur sett
saman en hugmyndin er einnig að
bjóða upp á frían mat síðasta
fimmtudag hvers mánaðar.
Á þessum síðustu og verstu tím-
um verður uppátæki Priksins að
teljast aðdáunarvert. Ekki ein-
ungis í markaðslegu samhengi,
heldur þjóðfélagslegu nú þegar
það virðist ætla að harðna á daln-
um á Fróni.
Ókeypis matur
Ein merki-
legasta rokk-
sveit samtím-
ans, The Mars
Volta, sendi á
dögunum frá
sér sína þriðju
plötu, The Bedlam in Goliath. Í til-
efni af útgáfunni tóku þeir Cedric
Bixler-Zavala og Omar Rodriguez-
Lopez upp lagið „Birthday“ með
Sykurmolunum sem nú er hægt að
streyma á Amazon.
Útgáfan er stórgóð og einna
skemmtilegast að heyra að þeir fé-
lagar hafa lagt töluvert í upptök-
urnar á laginu. Það sem stingur
einna helst í stúf er að útgáfan er
furðulega lík upphaflegu útgáfu
Sykurmolanna frá 1987. Áhrifa
Sykurmolanna gætir víða og fjöl-
margar rokksveitir hafa nefnt
sveitina sem eina af sínum helstu
áhrifavöldum. Sykurmolarnir
héldu 20 ára afmælistónleika í Höll-
inni í fyrra sem teknir voru upp.
Vonandi verða þeir gefnir út áður
en langt um líður.
Sykurmola-lag í útgáfu
The Mars Volta
■ Í kvöld kl. 19.30 – Örfá sæti laus
Ættgeng snilligáfa
Natasha Korsakova, ungur rússneskur fiðlusnillingur, flytur hinn
rómaða fiðlukonsert Brahms. Einnig verður fluttur eldfjörugur
brasilískur forleikur og magnþrungin önnur sinfónía Rakmaninoffs.
Stjórnandi: John Neschling.
Einleikari: Natasha Korsakova
■ Fim. 7. febrúar kl. 19.30
Myrkir músíkdagar
Einstakur viðburður, frumflutningur tveggja íslenskra sinfónía, eftir
Atla Heimi Sveinsson og John Speight.
■ Lau. 16. febrúar kl. 17
Kristallinn – kammertónleikaröð Þjóðmenningarhúsinu
Fransk rússneskur kammersirkus. Verk fyrir fjölbreytta hljóðfæra-
skipan eftir Debussy, Ravel og Prokofiev.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is