Morgunblaðið - 31.01.2008, Side 40
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 31. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Hætt við yfirtöku
Kaupþing banki og NIBC hafa
ákveðið að falla frá fyrirhugaðri yfir-
töku Kaupþings banka á NIBC.
Allir þrír stóru íslensku bankarnir
eru nú á athugunarlista matsfyrir-
tækisins Moody’s vegna hugsan-
legrar lækkunar á einkunn þeirra.
»Forsíða
Verðlækkanir á Flórída
Húsnæðisverð á Flórída hefur
hríðlækkað undanfarin tvö ár eftir
að hafa stigið hratt árin þar á undan.
Á sumum svæðum hefur verð lækk-
að um allt að 30% frá hámarksverði.
Talið er líklegt að 300-500 Íslend-
ingar eigi hús á Flórída. »2
Möguleikar í Níkaragva
Emilio Rapaccioli, orkumála-
ráðherra Níkaragva, hefur rætt við
Íslendinga um uppbyggingu jarð-
varmavirkjana fyrir á þriðja tug
milljarða íslenskra króna. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Draumasveitarfélagið
og hin sveitarfélögin
Forystugr.: Áfall fyrir Kaupþing,
en … | Leiðtogar í þröngri stöðu
Ljósvaki: Þættir um aflaskipstjóra
UMRÆÐAN»
Hið fagra Austurland
Fólk með hreyfihömlun og
íbúðarhúsnæði
Harðvítug vinnudeila í Hollywood
Fjöldauppsagnir Nyhedsavisen
Úr fatahönnun í framkvæmdastjóra
VIÐSKIPTI»
4 4$
4 4
4$
4
$4 5,6&' / !&+ !,
7!" !!"&&%& !# &
4
4
4 4 4 $4 $4 4 . 8 2 '
4
4
4 4 4 4 $4 $4
9:;;<=>
'?@=;>A7'BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA'8&8=EA<
A:='8&8=EA<
'FA'8&8=EA<
'3>''A%&G=<A8>
H<B<A'8?&H@A
'9=
@3=<
7@A7>'3+'>?<;<
Heitast 0 °C | Kaldast -10 °C
N 15-20 m/s víðast,
18-23 sa-lands fram
eftir degi. Éljagangur
fyrir norðaustan, létt-
skýjað suðvestanlands. » 10
Tyrkneski rithöf-
undurinn Orhan
Pamuk lýsir jarð-
skjálfta sem varð
tugþúsundum að
fjörtjóni. »37
AF LISTUM»
Jarðskjálfta-
ótti Pamuks
GÓÐGERÐARSTARF»
MR-ingar styrkja UNI-
CEF með ýmsu móti. »34
Alþjóðleg stutt-
mynda- og mynd-
bandahátíð verður
haldin í Grundarfirði
helgina 22.-24. febr-
úar. »39
KVIKMYNDIR»
Veisla undir
Snæfellsjökli
DÓMUR»
Charlie Wilson’s War er
heldur slöpp mynd. »37
FÓLK»
500.000 krónur í bætur
til hr. Íslands 2005. »35
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Dr. Phil sagður eiga … fortíð
2. Rassinn hálfgert slys
3. Ekki reynt að ræna barni
4. Ökumaður krefur fjölskyldu …
Íslenska krónan veiktist um 0,1%
GUÐBJÖRG
Gunnarsdóttir,
markvörður Ís-
landsmeistaraliðs
Vals í knatt-
spyrnu, hafnaði í
fyrrakvöld tilboði
bandaríska stór-
liðsins FC Indi-
ana. Guðbjörg
segir að verkefni
íslenska lands-
liðsins og þátttaka Vals í Evr-
ópukeppni hafi ráðið úrslitum um að
hún hafnaði boðinu. „Stærsta málið
var að þetta hefði hentað afar illa
gagnvart íslenska landsliðinu,“ segir
Guðbjörg. Hún fær væntanlega
tækifæri sem aðalmarkvörður lands-
liðsins eftir að Þóra B. Helgadóttir
lýsti því yfir í gær að hún væri
hætt. | Íþróttir
Guðbjörg
er eftirsótt
Guðbjörg
Gunnarsdóttir
Hafnaði tilboði
frá bandarísku liði
AUGLÝSING
með nöfnum yfir
100 kvenna, sem
lýsa sig reiðubún-
ar að setjast í
stjórnir stærstu
fyrirtækja lands-
ins, birtist í helstu
dagblöðum hér-
lendis í dag. Er
þetta gert í tilefni
af því að framundan er tími aðalfunda
og stjórnarkjörs í fyrirtækjunum.
Það eru stjórnir Félags kvenna í at-
vinnurekstri og LeiðtogaAuðar sem
standa fyrir þessu framtaki.
„Það hefur oft heyrst að æðstu
stjórnendur landsins þekki mun
minna til kvenna en karla í íslensku
viðskiptalífi og að konur segi oft nei
þegar til þeirra er leitað um að taka
sæti í stjórnum. Með þessu framtaki
viljum við sýna að það er fullt af kon-
um sem eru tilbúnar að taka að sér
stjórnarstörf,“ segir Vilborg Lofts,
formaður LeiðtogaAuðar. | Viðskipti
100 konur
vilja í stjórnir
Vilborg Lofts
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
EF EKKI verður gert átak í að
fjölga heimilislæknum getur svo
farið að eftir 10-15 ár muni vanta
allt að 80 heimilislækna á höfuð-
borgarsvæðinu. Ástæðan er sú að
75 heimilislæknar munu hætta
störfum fyrir aldurs sakir á þessu
tímabili og ekki gengur nógu hratt
að mennta nýja heimilislækna.
Miðað er við að til þess að heim-
ilislæknir geti veitt þá þjónustu
sem þörf er á sé hann með 1.500
skjólstæðinga, en dæmi þekkjast
um að læknar séu með allt upp í
2.300 manns.
Víða á heilsugæslustöðvum höf-
uðborgarsvæðisins hafði verið lok-
að fyrir skráningu á lækna, en með
bréfi Guðmundar H. Einarssonar,
forstjóra heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, frá 22. janúar sl. var öll-
um heilsugæslustöðvum gert skylt
að skrá þá skjólstæðinga sem þess
óskuðu.
Gert að skrá á sig fleira fólk
„Samt er okkur gert að skrá
þetta fólk á okkur,“ segir Gunnar
Ingi Gunnarsson, yfirlæknir á
heilsugæslustöðinni í Árbæ. „Það
er dálítið sérkennilegt fyrirkomu-
lag við stjórnun á heilbrigðisþjón-
ustu þegar sett eru í lög ákvæði
sem gera það að rétti fólks að
skrá sig á næstu stöð alveg burt-
séð frá því hvort þar sé hægt að fá
þjónustu. Er það réttur í sjálfu
sér?“ | 8
Með allt að 2.300 manns
80 heimilislækna mun vanta á höfuðborgarsvæðinu eftir
10-15 ár ef ekki verður gert átak í að fá nýtt fólk í stéttina
Í HNOTSKURN
»Ekki gengur nógu hratt aðmennta nýja heimilis-
lækna.
»Öllum heilsugæslustöðvumer skylt að skrá skjólstæð-
inga sem þess óska.
»Ekki er þó hægt að tryggjaað fólk fái viðunandi þjón-
ustu þótt það hafi skráð sig á
heilsugæslustöð.
Árvakur/Golli
Mannekla Vöntun er á heimilis-
læknum á höfuðborgarsvæðinu.
Þingeyjarsveit | „Spáin er slæm svo líklega verða ærnar
inni ef veðrið verður vont.“ Þetta segir Ólafur Ingólfs-
son, bóndi á bænum Hlíð í Kinn, en hann hefur kind-
urnar úti flesta daga og gefur þeim hey í grindur. Hann
setur út tvo hópa á dag þannig að hver hópur er úti um
það bil fjóra tíma í senn. Hann segir þetta mikinn
vinnusparnað við heygjöfina auk þess sem ærnar verði
miklu hraustari af útivistinni. Á nóttunni liggja kind-
urnar inni en bíða svo spenntar eftir því að komast út á
morgnana þegar Ólafur kemur og opnar fyrir þeim.
Hann segist vona að það geri ekki mjög vondan veður-
kafla því þá getur orðið innistaða á fénu.
Búast má við vaxandi frosti á landinu. Veðurstofan
gaf út viðvörun um storm norðvestan til á landinu í
gærkvöldi og suðaustan til í nótt. Reikna má með allt
að 10 stiga frosti inn til landsins í dag og á morgun er
svo spáð norðanátt, snjókomu eða éljum á Norður- og
Norðausturlandi, en léttskýjuðu sunnan- og vestan-
lands. Frost verður frá 4 til 16 stig og verður kaldast
inn til landsins suðvestanlands.
Ærnar bíða spenntar eftir því að komast út á morgnana
Heygjöf á bænum Hlíð
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
♦♦♦
♦♦♦
ENGAN sakaði þegar tveir karl-
menn huldir lambhúshettu frömdu
vopnað rán í Select í Hraunbæ seint
á tólfta tímanum í gærkvöldi. Að
sögn lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu komust mennirnir und-
an með peninga úr afgreiðslukassa.
Mennirnir voru ófundnir þegar
blaðið fór í prentun.
Vopnað rán