Morgunblaðið - 14.02.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 44. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Fló á skinni >> 37
Magnaðar stundir
í leikhúsinu
Leikhúsin í landinu
HÚN ER EFTIRSÓTT
DUISBURG VILL FÁ ÞÓRU HELGADÓTTUR EN
ANDERLECHT VILL EKKI SLEPPA HENNI >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÞAÐ hefur aldrei verið sérlega ódýrt að
eiga og reka bíl en líklega er langt síðan það
var eins óhagstætt og einmitt nú.
Verð á eldsneyti er líklega það sem
brennur heitast á bíleigendum um þessar
mundir. Eftir síðustu hækkanir er algengt
verð á bensínlítra á þjónustustöðvum 142,9
krónur og lítri af dísilolíu kostar hvorki
meira né minna en 147,40 krónur. Frá árs-
byrjun 2006 hefur bensínið hækkað um 25%
og þýðir að eldsneytiskostnaður á ári er um
40.000 meiri þegar miðað er við frekar
eyðslugrannan bíl (10 lítrar/100 km) sem
ekið er hóflega (15.000 km á ári). Fyrir mis-
muninn mætti fara í helgarferð til Kaup-
mannahafnar, 44 sinnum í bíó og leysa átta
börn úr skuldaánauð með aðstoð Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, svo nefnd séu dæmi.
Félag íslenskra bifreiðaeiganda hefur
brugðist við þessu og sent erindi til fjár-
málaráðherra og forsætisráðherra þar sem
farið er fram á að álögur ríkisins á eldsneyti
verði lækkaðar en af hálfu FÍB hefur verið
bent á að um helmingur af verði eldsneytis
séu skattar sem renna í ríkissjóð.
Iðgjöldin hafa rokið upp
Fleira er bíleigendum mótdrægt. Sam-
kvæmt vef Hagstofunnar hefur vísitala
ábyrgðartrygginga hækkað um 32% frá
árinu 2006 og vísitala húftrygginga – betur
þekktar sem kaskótryggingar – hefur
hækkað um 37%. Hækkun á kaskótrygg-
ingum verður að skoða í því ljósi að á ár-
unum 2005 og 2006 var samtals 600 milljóna
króna tap á þeim en á hinn bóginn varð
rúmlega eins milljarðs króna hagnaður af
lögbundnum ábyrgðartryggingum, þegar
bótasjóðirnir hafa verið teknir með.
Ráð: Keyra minna, kaupa eyðslugrennri
bíl, fá far, taka strætó. Eða vinna meira.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Eyðir Það er dýrt að fóðra svona fák.
Bíllinn er
byrði þung
Rándýrt bensín og
dísilolía, hærri iðgjöld
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Halldóru Þórsdóttur
RÍKISSTJÓRNIN telur eðlilegt
að vera í viðbragðsstöðu og und-
irbúa ráðstafanir í því skyni að
draga úr neikvæðum afleiðingum
hugsanlegrar lánsfjárkreppu á al-
þjóðamörkuðum,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra í ræðu á
Viðskiptaþingi í gær. Ríkisstjórnin
hefur í því skyni boðað aðila á fjár-
málamarkaði til fundar í dag til að
leggja á ráðin um þessi mál.
Í ræðu sinni á þinginu sagði Geir
ráðherra ríkisstjórnarinnar tilbúna
til að miðla upplýsingum og grein-
ingum um íslenskt viðskipta- og at-
vinnulíf til erlendra greiningar-
aðila, fjárfesta og fjölmiðla til að
leiðrétta þær rangfærslur sem enn
kynnu að vera á kreiki.
Geir sagði einhliða upptöku evru
einfaldlega ekki tækan kost í gjald-
eyrismálum, það væri bæði ótrú-
verðug og kostnaðarsöm leið. Hins
vegar ættu fyrirtæki að gera upp í
þeim gjaldmiðli sem þau kysu, að
uppfylltum lagaskilyrðum. Hann
lagði áherslu á að íslensk fyrirtæki
hefðu höfuðstöðvar sínar á Íslandi.
Geir fjallaði um kjarasamninga-
viðræður sem nú standa sem hæst.
Sagðist hann vonast til að samning-
arnir hefðu jákvæð áhrif á efna-
hagslífið og stuðluðu að auknu
jafnvægi með lægri verðbólgu og
minni viðskiptahalla.
Verðum í viðbragðsstöðu
Ríkisstjórnin undirbýr ráðstafanir gegn neikvæðum afleiðingum hugsanlegr-
ar lánsfjárkreppu Fundar með aðilum á fjármálamarkaði um þessi mál í dag
Árvakur/Golli
Þing Yfirskriftin var „Íslenska
krónan – byrði eða blóraböggull?“
Í HNOTSKURN
»Stjórnarmaður evrópskaseðlabankans sagði að
ESB myndi ekki styðja Ísland
í einhliða upptöku evrunnar.
»Kallað var eftir virkri ogopinni umræðu og stefnu
stjórnvalda um málefni ís-
lensku krónunnar.
»Bakdyrainnleiðing evr-unnar þykir óæskileg, ekki
síst vegna ímyndar Íslands, en
einhliða upptaka yrði dýr og
óhagkvæm framkvæmd.
»Eftir stendur að haldakrónunni eða ganga í
ESB. Miðopna og Viðskipti
„ÉG ER mjög ánægður með þjón-
ustuna, allir sem annast hana eru
orðnir vanir. Það er mikið
ábyrgðarstarf að sinna mér,“ seg-
ir Ragnar Bjarnason brosandi, en
hann er annar tveggja manna sem
fá öndunarvélaþjónustu í heima-
húsi í tilraunaverkefni sem hóf
göngu sína á síðasta ári. Þjón-
ustan felur í sér að sjúkraliði er
heima hjá honum yfir daginn og
aðstoðar hann eftir þörfum.
„Þetta er gríðarlegur munur og
minna stress,“ segir móðir hans,
Ragna Marinósdóttir. Bjarni
Ragnarsson, faðir hans, tekur í
sama streng. „Þetta veitir okkur
öllum aukið val og svigrúm, við
fáum þjónustuna heim, hún er
sveigjanleg, sem gefur okkur for-
eldrunum einnig aukið frelsi.“
Ragnar er með sjaldgæfan
vöðvarýrnunarsjúkdóm og hefur
verið í hjólastól frá níu ára aldri.
Hann hefur þurft á öndunarvél að
halda frá því um tvítugt en lauk
engu að síður stúdentsprófi og fór
í háskólanám. | MiðopnaÁrvakur/Árni Sæberg
Ferðafrelsi
og minna
stress
Ragnar Bjarnason fær öndunarvélaþjónustu heima hjá sér