Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 2

Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FL GROUP hefur selt 43,1% eignarhlut sinn í Geysir Green Energy til Glitnis banka, Atorku Group, og fleiri aðila. Söluverðið er um 10,5 millj- arðar króna og nemur áður bókfærður gengis- hagnaður FL Group um 3 milljörðum króna. Um er að ræða 43,1% hlut í Geysi Green og fer lunginn af þeim hlut til Glitnis. Var eignarhlutur bankans eftir viðskiptin 42,4%, en var 16% áður en þau voru gerð. Eignarhlutur Atorku eykst um 11,8% og er eftir viðskiptin 43,8%. Þá eykst hlutur VGK Invest um 4,8% og er nú 10,8%. Bar Holding á eftir sem áður 2% hlut í Geysi og Reykjanesbær á enn 1% hlut í félaginu. Starfslokasamningur upp á 90 milljónir Hlutur Glitnis verður í höndum Glacier Renew- able Energy Fund, sjóðs í eigu Glitnis, og hlutur Atorku í höndum dótturfélags þess, Renewable Energy Resources. Glacier Renewable Energy Fund er grænn fjárfestingasjóður sem rekinn er af Glitni sjóðum hf. og hefur að markmiði að fjár- festa í verkefnum sem tengjast sjálfbærum orku- verkefnum. Með sölunni nú er ljóst að ekki verður af áform- um Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, um að kaupa 23% hlut í Geysi Green af FL Group, en greint var frá þeim á hluthafafundi FL Group í fyrra. Þá var ætlunin sú að FL Group myndi halda eftir þeim 20% sem eftir stæðu af hlut félagsins í Geysi. Í ársreikningum FL Group, sem gefnir voru út í gær, kemur fram að laun Hannesar á síðasta ári hafi numið einum 139,5 milljónum króna. Þá mun hafa verið gengið frá starfslokasamningi við Hannes í desember og mun sá samningur hafa numið um 90 milljónum króna. Ekki mun verða af frekari gjaldfærslum til Hannesar vegna starfs- lokanna og mun Hannes ekki vera með kauprétt í FL Group. FL Group selur allan sinn hlut í Geysi Green Energy Ekkert verður af kaupum Hannesar Smárasonar á 23% hlutafjár í félaginu JÓN Sigurðsson, forstjóri FL Group, segir sölu hlutar fé- lagsins í Geysi Green Energy í samræmi við endurskipulagn- ingu á eignasafni FL Group hvað varði fjárfestingar sem falli utan kjarnafjárfestinga. FL Group hafi verið leiðandi í uppbyggingu Geysis sem náð hafi miklum árangri á skömm- um tíma. „Framtíð Geysis er björt og við treyst- um Glitni banka, Atorku og VGK Invest, sem búa að sérhæfðri þekkingu á sviði umhverfisvænnar orku, fyllilega fyrir framtíð félagsins. FL Group mun áfram hafa hagsmuni af Geysi Green Energy sem kjölfestufjárfestir í Glitni banka,“ segir Jón. Endurskipulagning RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært þrjá Litháa fyrir brot gegn vald- stjórninni með því að ráðast á lög- reglumenn úr fíkniefnadeild LRH hinn 11. janúar sl. Lögreglumenn- irnir voru í götuhópi fíkniefnadeild- ar að sinna máli á Laugaveginum sem var óviðkomandi Litháunum og kom til átaka milli hópanna tveggja. Lögreglumenn hlutu áverka og voru fimm Litháar handteknir og hnepptir í gæsluvarðhald, en þrír þeirra sæta ákæru í málinu. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og neita ákærðu sök samkvæmt ákæru. Málið verður næst tekið fyrir þegar aðalmeðferð í því hefst, fimmtudaginn 28. febrúar, og verð- ur nokkur fjöldi vitna leiddur fyrir dóminn. Ákært er fyrir brot gegn 106. gr. almennra hegningarlaga þar sem kveðið er á um allt að sex ára fang- elsi fyrir að ráðast á opinbera starfsmenn við skyldustörf. Ákærðir fyrir árás á lögregluna VINNUSLYS varð á Rifi í gær þeg- ar viðgerðarmaður datt aftur fyrir sig ofan úr hjólaskóflu með þeim af- leiðingum að hann féll á bakið og tognaði. Hann var að skipta um glugga í vélinni þegar hann datt. Að sögn lögreglunnar á Snæfells- nesi mun ekki hafa verið um alvar- legt slys að ræða, en maðurinn var samt fluttur á slysadeild á Ólafsvík með sjúkrabifreið. Datt aftur fyrir sig MIKIÐ er um að vera í geitahús- inu á Rauðá í Þingeyjarsýslu, en nú eru kiðlingarnir farnir að fæðast hver af öðrum og eru töluvert fyrr á ferðinni en vana- lega. Sá fyrsti fæddist 25. janúar sl. og síðan komu nokkrir aðrir í kjölfarið. Þeir eru nú orðnir sprækir og spígspora um stalla og stíur, hoppa og leika listir sín- ar. Löng hefð er fyrir geitabú- skapnum á Rauðá og segist Vil- hjálmur Grímsson bóndi þar vera með nær tvo tugi geita í vetur svo það færist heldur betur fjör í leikinn þegar allar eru bornar. Kiðlingarnir eru sannir vor- boðar sem iða af fjöri og snið- ugum uppátækjum. Þeir gleðja ekki bara ungviðið í sveitinni heldur læðist brosið fram á varir allra sem þá sjá. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Kátir kiðlingar á Rauðá Sannir vorboðar sem iða af fjöri og sniðugum uppátækjum ♦♦♦ SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur- borgar ítrekaði í bókun á fundi sín- um í gær þá afstöðu ráðsins að um- sækjendur skoði leiðir til að tryggja að hinn sögufrægi salur í gamla Sjálfstæðishúsinu, sem nú tilheyrir Nasa, fái að standa í sem uppruna- legastri mynd. Tónlistarmenn og tónleikahaldar- ar, með Kára Sturluson fremstan í flokki, höfðu á síðustu dögum harð- lega mótmælt hugmyndum eigenda um að salur Nasa yrði rifinn í tengslum við umfangsmiklar breyt- ingar við Ingólfstorg og uppbygg- ingu þar. Fram hafði komið hug- mynd um að endurreisa salinn í núverandi mynd neðanjarðar, en slíkt hugnaðist ekki tónlistarfólki. Á fundi skipulagsráðs í gær var kynnt tillaga Björns Ólafs arkitekts um breytingu á deiliskipulagi suður- hluta Ingólfstorgs, Vallarstrætis og lóðunum Thorvaldsenstræti 2, Vall- arstræti 4 og Aðalstræti 7. Í bókun skipulagsráðs um málið lýsir ráðið ánægju sinni með fyrirliggjandi til- lögu þar sem vel hafi tekist til, sér- staklega varðandi samspil uppbygg- ingar og verndun þess sem fyrir er. „Tillagan er vel unnin í góðu sam- starfi margra aðila og sýnir t.d. að öll eldri húsin á reitnum, eins og gamla Sjálfstæðishúsið, Hótel Vík og Að- alstræti 7 fá að standa en þau áttu að fara samkvæmt fyrra skipulagi. Skipulagsráð er sammála um nauð- syn þess að nýta tillöguna til end- urbóta á umræddu svæði, sérstak- lega Vallarstræti.“ Frekari umræðu og afgreiðslu málsins var síðan frestað. Að sögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur for- manns skipulagsráðs mun ráðið fá málið inn á borð til sín í kringum næstu mánaðamót eða jafnvel fyrr og í millitíðinni verður rætt við húsa- friðunarnefnd og umsækjendur. „Tillagan gerir ráð fyrir því að sal- urinn í Nasa verði fluttur og gerður upp í upprunalegri mynd annars- staðar í húsinu, en það var alger ein- hugur í skipulagsráði um að um- sækjendur reyni að tryggja að salurinn fái að vera á sínum stað,“ segir Hanna Birna. Segist hún vænta þess að umsækj- endur muni laga tillögu sína að þeirri sýn sem endurspeglast í bókun skipulagsráðs. Salurinn sögufrægi í Nasa fái að halda sér Skipulagsráð einhuga í afstöðu til breytinga við Ingólfstorg flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is BÍLL lenti út í Elliðaá í gærkvöldi eftir umferðaróhapp á mótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Ökumaður var fluttur til aðhlynning- ar á slysadeild eftir útafaksturinn. Kom hann austur eftir Bústaðavegi en náði ekki beygjunni inn á Reykja- nesbraut með þeim afleiðingum að hann lenti utan vegar. Hann er grun- aður um ölvun við akstur. Lenti út í Elliðaá ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.