Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 6

Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MARÍA Ólafsdóttir, yfirlæknir Heilsuvernarstöðvarinnar ehf. og Guðlaugur Þór Þórðarson heil- brigðisráðherra undirrituðu í gær samning um rekstur 20 skamm- tíma-hvíldarrýma fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dag- vistarrými þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu. Meðal nýjunga í þeirri þjónustu sem boðin verður er sveigjanlegur vistunarmöguleiki í hvíldarrýmum með vistun frá einum sólarhring og í allt að fjórar vikur. Tilraunaverkefni til 6 mánaða Um er að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða og er gert ráð fyrir því að starfsemin hefjist í húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg í marsbyrjun. Á samn- ingstímanum verður unnið að út- boði á grundvelli þeirra upplýsinga sem fást af verkefninu. Þjónustan sem Heilsuverndar- stöðin ehf. veitir skv. samningnum er ætluð skjólstæðingum heima- hjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. Rétt til vistunar eiga aldraðir ein- staklingar sem að mati heima- hjúkrunar þurfa á tímabundinni vistun að halda, til að hvíla umönn- unaraðila, vegna skyndilegra veik- inda eða ef sá sem annast viðkom- andi forfallast skyndilega. Stuðningur við einstaklinginn skal samkvæmt samningnum mið- ast við að viðhalda getu viðkom- andi og virkni eins og kostur er. Áhersla er lögð á að veita þjónustu á forsendum einstaklingsins með hans eigin þátttöku, og að veita hjúkrun, aðhlynningu, þjálfun, læknishjálp og hjálpartæki á hans eigin forsendum til þess að auð- velda viðkomandi að takast á við breyttar aðstæður dagslegs lífs. „Þjónusta dagdvalar er einstak- lingsmiðuð og er gengið út frá að einstaklingar fái að vera í dagdvöl með endurhæfingu í tiltekinn tíma og að hámarki 8 vikur. Þjónusta fyrir dagdvöl með endurhæfingu verður opin frá kl. 8.00 – kl. 19.00. Þannig verður einstaklingum boðið upp á að hefja dagdvöl árla morg- uns og fram undir hádegi. Þeim sem fara heim um kl. 19.00 verður boðið upp á að snæða kvöldverð og að taka lyf sín áður en dagdvöl lýk- ur. Heimilt verður að hafa opið um helgar. Um nýmæli er að ræða í opnunartíma dagdvalar,“ segir í fréttatilkynningu. Skv. upplýsingum heilbrigðis- ráðuneytisins er hugsunin sú að með því að leggja áherslu á end- urhæfinguna sérstaklega verði komið til móts við þá eindregnu ósk aldraðra að eiga þess kost að búa heima hjá sér eins lengi og kostur er á. Allir taki þátt María Ólafsdóttir segir ljóst að töluvert mikil þörf sé á þessari þjónustu. „Við höfum fengið öflugt fagfólk í lið með okkur,“ segir hún. „Fagfólk vill gjarnan prófa nýj- ungar og það sem við viljum gera er að allir taki þátt í að efla ein- staklinginn,“ segir hún. „Ég lít svo á að þetta sé eitt af skrefunum í langri vegferð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heil- brigðisráðherra. „Ríkisstjórnin hefur lagt á það áherslu að bæta sérstaklega þjónustu við bæði þá sem eldri eru og þá sem yngri eru,“ segir. „Þetta snertir mjög mitt ráðuneyti. Heilbrigðisþjónustan er að sjálfsögðu fyrir alla aldurshópa en eftir því sem fólk verður eldra þarf það meira á þeirri þjónustu að halda. Ríkisstjórnin leggur sömu- leiðis áherslu á fjölbreyttar leiðir, einfaldlega vegna þess að það eru ekki allir eins og þarfirnar eru mis- munandi. Þetta er liður í að koma með fjölbreytt og ný úrræði sem öll miða að því að fólk geti verið sem lengst heima hjá sér og það þýðir m.a. að við þurfum að hjálpa að- standendum sem þurfa oft á tíðum mikið að sinna sínum nánustu,“ segir ráðherrann. Spurður hvernig muni ganga að veita þessa þjónustu þegar litið er til erfiðleika sem verið hafa við mönnum hjúkrunar- og umönnun- arstofnana segist hann vona að það gangi vel. ,,Það liggur alveg fyrir að mönnunarmál eru eitt af stóru verkefnunum í nútíð og framtíð. Við erum ung þjóð en erum að eld- ast eins þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þeir sem eldri eru þurfa á mun meiri heilbrigð- isþjónustu að halda og hún verður ekki veitt öðru vísi en að vera með vel mannaðar stofnanir. Þetta er því mjög brýnt verkefni.“ Sveigjanlegir möguleikar á vistun í hvíldarrýmum Samningur undir- ritaður um þjón- ustu við aldraða Árvakur/Kristinn Ingvarsson Ánægð Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og María Ólafsdóttir yfirlæknir undirrituðu þjónustu- samning um rekstur dagdeildar og skammtímalegudeildar fyrir skjólstæðinga heimahjúkrunar. Í HNOTSKURN »Rekin verða 20 skammtíma-hvíldarrými fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dag- vistarrými. »Þjónusta fyrir dagdvöl meðendurhæfingu verður opin frá kl. 8.00 – kl. 19.00. »Gengið út frá að ein-staklingar fái að vera í dag- dvöl með endurhæfingu í tiltek- inn tíma og að hámarki 8 vikur „ÞAÐ er óhjákvæmilegt að hlutfall matvöruinn- kaupa af útgjöldum heimilanna, sem hefur farið úr 20% niður í 11% á sl. fimmtán árum, muni aukast aftur á næstunni.“ Þetta segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra stórkaup- manna (FÍS), og byggir þessa spá sína á því að verð á öllu lyk- ilhráefni til matvælaframleiðslu hafi hækkað um tugi prósenta á umliðnum misserum og sé enn á uppleið. Að sögn Andrésar fylgist félagið mjög nákvæmlega með hrávörumörkuðum er- lendis sem gefi góða vísbendingu um hvernig verð á hráefni til matvörufram- leiðslu muni þróast næstu mánuði. „Það er ekkert sem bendir til annars en áfram- haldandi hækkunar á öllu lykilhráefni til matvælaframleiðslu,“ segir Andrés og á þar við hráefni á borð við korn, maís, soja, sykur, kakó, te og kaffi. Segir Andrés sök- um þessa ljóst að matvælaverð muni hækka í fyrirsjáanlegri framtíð, bæði verð á innfluttri vöru sem og innlendri fram- leiðslu sem noti innflutt hráefni. Aðspurður segir Andrés þrjár meg- inástæður fyrir hækkununum. Þær eru aukin notkun á maís til eldsneytisfram- leiðslu, síaukin velmegun í Asíu og upp- skerubrestur vegna afbrigðilegs veðurs. Matarútgjöld munu hækka Andrés Magnússon FERMINGARNAR eru óvenjusnemma í ár. Þrátt fyrir að enn sé febrúar er aðeins rúm- ur mánuður í fyrstu fermingar. Þetta árið eru 4.738 börn í ferming- arárgangnum sam- kvæmt Hagstofunni. Að sögn Maríu Ágústsdóttur, héraðs- prests í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, má gera ráð fyrir að stærstur hluti þeirra staðfesti trú sína í kirkjum landsins á næstunni. María segir þá hefð hafa skapast að tengja fermingar páskum. Algengast sé að þær hefjist á pálmasunnudegi, sem nú lendir á 16. mars. Pálmasunnudagur er, að sögn Maríu, vinsælasti fermingardagurinn ásamt skír- degi og öðrum í páskum. Á þriðja sunnu- degi eftir páska hafa flest fermingarbörn ársins fermst en síðustu fermingar eru yf- irleitt um hvítasunnuna. Stutt í fyrstu fermingar ársins Játa trú Ferm- ingar byrja í mars. Þ að er að bera í bakkafullan lækinn að tala um stöðu borgarstjórnar Reykjavík- ur. Á þeim tæpum tveimur árum sem liðin eru frá kosningum hafa þrír borgarstjórar setið. Og þá skulum við ekki gleyma fyrra kjörtímabili, síðasta kjörtímabili R- listans svokallaða, sem ekki var laust við vandræðagang, að því kjörtímabili meðtöldu hafa 6 borgarstjórar setið í Reykjavík á jafnmörgum árum. Þar af var einn borgarstjóri sóttur út í bæ vegna þess að flokkarnir sem stóðu að bandalaginu gátu ekki komið sér sam- an um fulltrúa úr sínum röðum. Það er enginn flokkur í borgarstjórn Reykjavíkur afsakaður þegar kemur að ákvörðunum og samstöðu um emb- ætti borgarstjórans. Undanfarnir dagar og vikur hafa verið tíðindamiklir af vettvangi borg- armála. Eftir að hið svokallaða REI- mál kom upp birtist í fyrsta sinn í langan tíma raunverulegur pólitískur ágreiningur um hvernig haga skuli eigum borgarbúa. Það kom í ljós hug- myndafræðilegur ágreiningur, þar sem 6 fulltrúar sjálfstæðismanna gátu ekki sætt sig við stefnu Orkuveitu Reykjavíkur í væntanlegri útrás, ekki síst vegna þess að Orkuveitan ber ábyrgð á einkaleyfisstarfsemi, dreif- ingu heita vatnsins til Reykvíkinga sem hvergi er hægt að kaupa annars staðar en hjá þeim. Menn höfðu áhyggjur af því að fjármunum Reyk- víkinga í Orkuveitunni væri stefnt í hættu. Það er rétt að halda til haga að það var aðeins fulltrúi Vinstri grænna og þessir sex borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins sem höfðu þessar alvarlegu efasemdir. Samfylkingin hafði þær ekki þótt skoðanir manna hafi breyst á þeim bæ. Þessi saga, sem ekki verð- ur rakin hér, kostaði Sjálfstæðisflokk- inn í Reykjavík meirihlutann. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að ef umræðan um orkumál í borginni hefði verið þroskaðri og meira rædd þetta afdrifaríka haust hefði vel verið hægt að leysa REI- málið án þess að til stjórnarslita hefði komið. En eins og við vitum öll kaus fulltrúi Framsóknarflokksins að nota fyrsta tækifærið til að hlaupa í burtu og mynda nýjan meirihluta sem sat í heila hundrað daga, málefnalaus, án þess að geta tekið á málum tveggja húsa við Laugaveg og vildi að ríkið borgaði brúsann af vandræðagangi borgarstjórnar. Hver borgarfulltrúinn eftir annan lýsti því yfir að með því að kaupa þessi hús hefði borgarstjórnin borgað reikning sem allt útlit var fyr- ir að ríkið myndi borga. Og það var auðvitað allt í lagi! Eftir að núverandi meirihluti tók við linnir ekki hneykslunarröddunum: Borgarstjórastóllinn var settur á upp- boð, Ólafur F Magnússon var keypt- ur, og það sem er kannski einkenni- legast: Meirihlutinn hangir á einum manni. Bíðum við, hefur það ekki oft verið þannig? Voru ekki tveir síðustu meiri- hlutar þannig? Og svo farið sé aftar í tímann líka? Hékk ekki REI- meirihlutinn á einum manni sem reyndar hafði verið aðalsprautan í Orkuveitumálinu? En það var allt í lagi að vinna með honum af því hann baðst afsökunar. Einmitt. Það er ekki sama hver bið- ur afsökunar. Sennilega var klókt hjá Birni Inga Hrafnssyni að hverfa á braut úr pólitík, hann sleppur alveg við umræðuna um REI-skýrsluna og á sennilega afturkvæmt í pólitík kæri hann sig um það. Nú er hver kjaftaþátturinn á eftir öðrum undirlagður af vandræðagangi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar – sem ekki skal undra. Samt sýnist mér að allir aðrir flokkar en Sjálfstæðisflokk- urinn hafi vit á því hvernig málum er PISTILL » Sennilega var klókt hjá Birni Inga Hrafnssyni að hverfa á braut úr póli- tík, hann sleppur alveg við umræðuna um REI- skýrsluna og á sennilega afturkvæmt í pólitík kæri hann sig um það. Ólöf Nordal „Við tökum við!“ háttað þar innandyra. Látum það vera. En það sem er dálítið hjákátlegt er að heyra endalausar yfirlýsingar Tjarnarkvartettsins um að hann sé tilbúinn að taka við. Ég kann kannski ekki að telja, en samkvæmt mínum útreikningum eru sjö borgarfulltrúar í þessum kvartett. Og svo auðvitað Margrét Sverrisdóttir sem er ekki kjörin fulltrúi og hefur aldrei verið það. Hvernig ætla þau að fara að því að taka við stjórn- artaumum í Reykjavík án þess að hafa meirihluta? Það er kominn tími til að borg- arstjórn Reykjavíkur, eins og hún leggur sig, fari að vinna saman að því að skapa ró og frið um borgarmálin og hjálpist að við að byggja upp virð- ingu fyrir kjörnum fulltrúum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.