Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 8

Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BÆJARSTJÓRN Akraness sam- þykkti á fundi sínum í fyrradag að lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af því ástandi sem Akurnesingar hafa þurft að búa við vegna heitavatns- skorts á veitusvæði HAB og Orku- veitu Reykjavíkur á nýliðnum tveim vikum. Óskar bæjarstjórnin eftir stuðningi við að gera þær úrbætur sem þarf vegna þessa. „Tvívegis hefur verið lokað fyrir heitt vatn til sundlauga á Akranesi og hefur ekki fyrr þurft að grípa til slíkra ráðstafana. Einnig hefur ver- ið lokað fyrir heitt vatn til fyrirtæk- isins Laugafisks. Afkastageta nú- verandi búnaðar á svæðinu er fullnýtt. Grípa verður nú þegar til aðgerða til að mæta þeirri þörf sem er á svæðinu fyrir heitt vatn. Bæj- arstjórn Akraness treystir því að eignarhlutur ríkisins í HAB hamli ekki uppbyggingu veitukerfisins á svæðinu.“ Morgunblaðið/ÞÖK Vatnsskortur Á MORGUN, föstudag, munu Ís- lensk málnefnd og Vísindafélag Ís- lendinga halda málþing um stöðu og framtíð íslenskrar tungu kl. 14- 17 í stofu 101 á Háskólatorgi. Verð- ur sérstaklega rætt um stöðu og framtíð íslenskrar tungu í vís- indasamfélaginu á Íslandi en þar eru blikur á lofti að margra mati. Frummælendur verða Ástráður Eysteinsson, prófessor í bók- menntafræði við Háskóla Íslands; Haraldur Bernharðsson, málfræð- ingur í Íslenskri málnefnd; Sig- urður J. Grétarsson, prófessor í sál- fræði við Háskóla Íslands; Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vísindasögu og eðlisfræði við Há- skóla Íslands; og Örnólfur Thorla- cius, fv. rektor. Fundarstjóri verð- ur Einar Sigurbjörnsson, prófessor og forseti Vísindafélags Íslendinga. Málþing um íslenska tungu SLÖKKVILIÐ Vestmannaeyja var kallað út í gærmorgun að versl- uninni Póley við Strandveg vegna eldsvoða. Þegar að var komið var ekki mikill eldur og var hann slökktur með handslökkvitæki. Hins vegar var reykur mikill og skemmdir á búðinni aðallega sök- um reyks. Slökkviliðið reykræsti því búðina en lögreglan hefur upptök eldsins til rannsóknar. Talið er að kviknað hafi í út frá kerti. Kviknaði í Póley Í KVÖLD, fimmtudag, verð- ur annað mótið í Meistaradeild VÍS í hestaíþrótt- um haldið. Að þessu sinni verður keppt í svokölluðum smala. Í smal- anum snýst allt um hraða og tækni, hestur og knapi skulu ríða í gegnum braut með þrautum þar sem gildir að vera á sem bestum tíma án þess að gera villur. Einnig munu heyja einvígi fjalla- kóngurinn Kristinn Guðnason og fyrrum heimsmeistarinn í tölti, Hafliði Halldórsson. Leikar hefjast í Ölfushöllinni klukkan 19.30. Hestaíþróttir á dagskrá STUTT Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞETTA er stærsta matarhátíð á Norðurlöndum í dag og markmiðið er að gera þetta að stærstu mat- arhátíð í Evrópu, sem við teljum okkur geta náð á næsta ári,“ segir Baldvin Jónsson, einn skipuleggj- enda Food&Fun, um hátíðina sem haldin verður í sjöunda sinn dag- ana 20.-25. febr- úar nk. Að sögn Bald- vins vex hátíðin ár frá ári og því var ákveðið að bæta við þremur veitingastöðum til þess að geta annað eftirspurninni. Þetta árið koma því fimmtán afbragðs matreiðslumenn frá Evrópu og Am- eríku að til að etja kappi hver við annan um það hver geti eldað besta matinn úr íslensku hráefni í Lista- safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu laugardaginn 23. febrúar, auk þess sem þeir leggja undir sig eldhús fimmtán valinna veitingahúsa í borginni. Meðan hátíðin stendur yfir bjóða veitingahúsin fimmtán upp á fjögurra rétta máltíð fyrir 6.400 krónur. Maturinn góður allt árið Að sögn Baldvins tóku 18-20 þús- und manns þátt í hátíðinni í fyrra og segist hann búast við að fjöldi gesta þetta árið verði um 25 þúsund, þar af sé von á 200-300 erlendum gest- um sem komi gagngert til Íslands í þeim tilgangi að taka þátt í mat- arveislunni. „Aðaltilgangurinn er auðvitað sá að sýna útlendingum sem heimsækja Ísland fram á að ef ein fínasta matreiðslukeppni í heimi er haldin á Íslandi hlýtur maturinn að vera góður allt árið um kring. Því við bjóðum upp á einhvern allra besta mat sem völ er á á veit- ingastöðum í veröldinni í dag,“ segir Baldvin. Aðspurður segir hann orðspor há- tíðarinnar hafa borist víða enda hafa yfir 70 matreiðslumenn tekið þátt í Food&Fun frá því hátíðin hóf göngu sína. Mikill fjöldi blaðamanna hefur komið til landsins í tengslum við hátíðina og að mati Baldvins er ekki óvarlegt að áætla að 20-30 milljónir manna víðs vegar um heiminn lesi umfjallanir um hátíðina þetta árið í virtum blöðum og mat- artímaritum á borð við Boston Globe, New York Times, Chicago Sun, Gourmet Magazine, Food and Wine og Observer. Að sögn Baldvins eru stórstjörnur í veitingabransanum meðal dómara þetta árið. Nefnir hann í því sam- hengi m.a. Gray Kunz, sem þykir reka einn af fimm fremstu veit- ingastöðum í veröldinni, og John Besh, sem vann Food&Fun- keppnina fyrir þremur árum og val- inn var einn af fimm bestu kokkum Bandaríkjanna árið 2007. Kynna nýja norræna eldhúsið Að sögn Baldvins verður nýja nor- ræna eldhúsið áberandi á hátíðinni þetta árið. Norrænir matreiðslu- menn munu þannig leggja veitinga- staðinn VOX undir sig auk þess sem sérstök matarkynning verður í Nor- ræna húsinu. „Á blaðamannafundi fyrir erlendu pressuna verður hinn nýi norræni matur kynntur í fyrsta skiptið,“ segir Baldvin og útskýrir að nýja norræna eldhúsið byggist fyrst og fremst á úrvals hráefni. „Einfaldleiki matreiðslunnar á Ís- landi og Norðurlöndunum almennt felst í því að hér er svo gott hráefni. Við Íslendingar erum þannig að framleiða eins náttúruleg matvæli og þau voru framleidd fyrir þúsund árum enn þann dag í dag,“ segir Baldvin og tekur fram að það felist ákveðin kúnst í því að matreiða gott hráefni þannig að það fái að njóta sín sem best. „Norrænir kokkar hafa slegið í gegn út um allan heim einmitt með þessari matreiðslu, því þessi einfaldleiki getur verið mjög vandasamur.“ Allar nánari upplýsingar um há- tíðina má nálgast á: foodandfun.is. Þar má m.a. finna dagskrá hátíð- arinnar í heild sinni, nöfn á þeim 15 veitingastöðum sem þátt taka, ásamt upplýsingum um bæði dóm- ara og matreiðslumenn. Matar- og skemmtihátíðin Food&Fun haldin í sjöunda sinn í Reykjavík Árvakur/Valdís Thor Listakokkar Matreiðslumennirnir á Food&Fun-hátíðinni munu að vanda sýna listir sínar í keppni sem haldin verður í Hafnarhúsinu. Í HNOTSKURN »Food & fun-hátíðin er núhaldin í sjöunda sinn. »Hátíðin er ein af stærstu ár-legu matarhátíðunum sem haldnar eru í Evrópu. »Skipuleggjendur búast viðum 25 þúsund gestum á þeim 15 veitingastöðum sem þátt taka í hátíðinni. »Von er á 70 blaðamönnumfrá virtum blöðum bæði aust- an hafs og vestan hingað til landsins í tengslum við hátíðina. Baldvin Jónsson „Stærsta mat- arhátíðin á Norðurlöndum“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.