Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam-fylkingarinnar, hefur gagnrýnt Morgunblaðið fyrir að benda á þátt Samfylkingarinnar í samruna REI og Geysir Green Energy. Hann held- ur því m.a. fram að kaupréttarsamn- ingar yfirstjórnar og starfsmanna REI hafi einungis verið samþykktir á stjórnarfundi REI, þar sem Samfylk- ingin átti ekki fulltrúa.     En það liggurfyrir að kaup- réttirnir voru lið- ur í samrunaferl- inu og fulltrúi Samfylking- arinnar í stjórn OR vissi um þá, enda hafði minni- hlutinn, þ.á m. Dagur, verið upp- lýstur um þá og efnisatriðum kaup- réttarsamninganna raunar breytt á þeim fundi.     Auðvitað er deginum ljósara aðþegar fulltrúi Samfylking- arinnar greiðir atkvæði með sam- runanum, þá er hann jafnframt að samþykkja forsendur hans. Svandís Svavarsdóttir var meðvituð um þetta þegar hún bókaði að kauprétt- arsamningarnir kynnu að orka tví- mælis og þyrftu að þola dagsljósið og sat hjá. Í Staksteinum í gær kom það ekki fram og er hún beðin velvirð- ingar á því. Samfylkingin tók hins vegar ekki þátt í þeirri bókun.     Samfylkingin hefur einnig vísað frásér ábyrgð á einkaréttarsamn- ingnum til 20 ára. Dagur bendir á að samningurinn hafi verið lagður fyrir á ensku og kynning á honum villandi í dagskrá fundarins. Þetta hefur Morg- unblaðið einmitt gagnrýnt. Engu að síður liggur fyrir að sérstök atkvæða- greiðsla var um samninginn og þar virðist fulltrúi Samfylkingarinnar hafa greitt atkvæði með samningnum án þess að kynna sér efni hans. Eru slík vinnubrögð til fyrirmyndar þegar samningurinn varðar eina mikilvæg- ustu ákvörðun sem tekin hefur verið um framtíð stærsta fyrirtækis Reyk- víkinga? STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Deginum ljósara? SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -             !"   !    !"  !"  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (              # # $# $      !" :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $  $  $ $ %$    $  $ $%% $ $    $    $%  $                           *$BC ###                       *! $$ B *! & '  (   '   " )" <2 <! <2 <! <2 & (   * +, -".  D8- E                   B  F" 2       !  "# $    %!  &   /    F       !  "# $    %!  &   <7    '   (  %!              /0# #"11 "# #2 ""#* + Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Hlynur Hallsson | 13. febrúar 2008 Rugl í álliðinu Hvaða della er að taka skóflustungu að ein- hverri álbræðslu sem aldrei á að rísa? Er ekki orðið löngu ljóst að það er hægt að selja orkuna til fyr- irtækja sem skapa meiri arð, fleiri störf og menga mun minna? Ætti bæjarstjórinn í Reykjanesbæ ekki að fara frekar að rukka fyrir húsin sem hann „seldi“ vinum sínum á Vell- inum í staðinn fyrir að grafa holur? Svör: 1. Íhaldsdella 2. Jú 3. Nákvæmlega. Meira: hlynurh.blog.is Björg F | 13. febrúar 2008 Eigum við ekki að fara að hætta að drulla yfir fólk? Afsakið dónalegt yfirlet- ur á þessum texta... en hvað annað er hægt að segja? Fjölmiðar virðast ekki getað látið liggj- andi menn bara fá að liggja þar smá stund og standa svo upp þegar hnéð er orðið sterkara. Er farið að leiðast þessi hausa- veiðaraleikur.. Allir vilja bara sjá blóð, blóð...! Ef það var ekki Björn Ingi, Ólafur F., þá Villi... æi leyfum hinum vel undnu tuskum nú að fá aðeins að vinda ofan af sér... Meira: sigrunb.blog.is Jenný Anna Baldursdóttir | 13. febrúar Monty Python mínir menn í bransanum Þeir eru í fyrsta lagi svo mikil krútt, að ég gæti étið þá, klipið og knús- að, Hver elskar ekki The life of Brian? Þekki ekki kjaft sem getur ekki horft á hana aftur og aft- ur. Og mér fannst A fish called Wanda líka frábær, þó ég sé ekki viss um að þeir hafi allir verið með þar... Nú er ég stolt af mínum mönnum, þeir hafa skipt Britneyju út fyrir Victor- íu Beckham, í söngleiknum Monty Python Pamelot, vegna þess að þeir vilja ekki hlæja á kostnað fólks sem á undir högg að sækja. Meira: jenfo.blog.is Marta B. Helgadóttir | 13. febrúar 2008 Hver var þessi Valentínus? Víða um heim skiptist fólk á gjöfum og kveðj- um þann 14. febrúar til að sýna ást og um- hyggju – í nafni Valent- ínusar! Hver var eig- inlega þessi Valentínus? Skv. Vísindavefnum er Heilagur Val- entínus nafn yfir tvo eða jafnvel þrjá píslarvotta í sögu kaþólsku kirkj- unnar. Ein þjóðsaga segir að Valentínus hafi verið prestur sem þjónaði þegn- um sínum í Róm á 3. öld. Kládíus keisari mun hafa verið þeirrar skoð- unar að einhleypir menn væru betri hermenn en fjölskyldumenn og bann- aði hann hermönnum sínum að kvænast. Valentínus var ekki á sömu skoðun og gifti hermennina á laun. Þegar Kládíus komst að því skipaði hann hermönnum sínum að finna Val- entínus og drepa hann. Valentínus á sjálfur að hafa sent fyrsta Valentínusarkortið. Á meðan hann sat í fangelsi og beið aftöku sinnar varð hann ástfanginn af ungri stúlku sem var dóttir fangelsisstjór- ans. Áður en hann lést á hann að hafa skrifað henni bréf, þar sem hann segir „Frá þínum Valentínusi“. Bréfið var ritað 14. febrúar. Önnur kenning um Valentínus- arhefðina, er á þá leið að hátíð elsk- endanna sem kennd er við Heilagan Valentínus hafi verið tilraun kaþólsku kirkjunnar til að binda endi á vinsæla helgiathöfn í heiðnum sið, þar sem frjósemi var dýrkuð. Allt frá því á 4. öld f. Krist héldu hinir heiðnu Róm- verjar árlega hátíð í virðingarskyni við guðinn Lupercus sem talinn var vernda sauðfé Rómverja, sem stafaði á þessum tíma veruleg hætta af úlfa- hjörðum sem vokuðu fyrir utan borg- ina einmitt þar sem hjarðsveinar héldu til með hjarðir sínar. Það sem kaþólska kirkjan vildi binda enda á, var hins vegar önnur hátíð sem hélst í hendur við þá sem tileinkuð var Lupercusi, en sú var helguð gyðjunni Juno Februata. Þá voru nöfn ungra kvenna og karla sett í box og síðan barn látið draga af handahófi saman pör sem skyldu eyða saman nýja árinu sem hófst í mars, eða þar til frjósemisathöfninni höfðu verið gerð „bókstafleg“ skil. Ár- ið eftir var svo leikurinn endurtekinn. Meira: martasmarta.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR MENNTASTYRKIR til fjögurra nema í framhaldsnámi á há- skólastigi, í greinum sem tengjast atvinnulífinu með beinum hætti, voru veittir á Viðskiptaþingi á Hilt- on Nordica-hótelinu í gær. Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti styrk- ina. Að þessu sinni voru styrkþegar fjórir talsins, tveir valdir af fram- kvæmdastjórn Viðskiptaráðs og tveir af ráðgjafarnefnd Námssjóðs um upplýsingatækni. 48 styrk- umsóknir bárust og hafa þær aldrei verið fleiri. Undanfarin ár hafa styrkirnir verið þrír. Í ár voru þeir fjórir, 350.000 krónur hver, vegna sterkrar stöðu sjóðanna og mikilla gæða styrkumsókna, eins og fram kom í máli Þorgerðar Katrínar. Styrkina hlutu þau Magnús Þór Torfason, doktorsnemi í við- skiptafræði við Columbia-háskóla í New York, Georg Lúðvíksson, MBA-nemi við Harvard Business School, Bjarney Sonja Ólafsdóttir, meistaranemi í „engineering ma- nagement“ við tækniháskólann í Vínarborg, og Guðmundur Árni Árnason, MBA- og MS-nemi í upp- lýsingatækni við Bentley College í Boston. Styrkir Sonju og Guð- mundar voru á sviði upplýs- ingatækni. Árvakur/Golli Styrkir Menntamálaráðherra ásamt aðstandendum styrkþeganna, sem eru allir við nám erlendis og komust ekki á Viðskiptaþingið að þessu sinni. 1,4 milljóna menntastyrkir veittir á Viðskiptaþingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.