Morgunblaðið - 14.02.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 11
FRÉTTIR
RÉGIS Savioz, yfirmaður almanna-
tengsladeildar alþjóðaráðs Rauða
krossins í Genf, segir að neyð-
araðstoð á átakasvæðum sé mjög
mikilvæg og öll aðstoð skipti miklu
máli. Því sé framlag Íslendinga
eins og annarra vel metið. ,,Allt
framlag skiptir máli,“ segir hann
og leggur áherslu á mikilvægi
neyðaraðstoðar Alþjóða Rauði
krossins á átakasvæðum.
Savioz kynnti í síðustu viku
starfsmönnum utanríkisráðuneyt-
isins neyðarstarfsemi Alþjóða
Rauða krossins á átakasvæðum
með sérstaka áherslu á staði sem
íslensk stjórnvöld hafa áhuga á að
styðja. Hann hélt einnig erindi um
forgangsverkefni alþjóðaráðsins á
landsskrifstofu Rauða krossins.
Savioz hefur starfað fyrir Alþjóða
Rauða krossinn í um áratug, meðal
annars á Indlandi, í Nepal, Súdan,
Ísrael og hernumdu svæðunum,
Afganistan og á Fílabeinsströnd-
inni. Áður en hann tók við núver-
andi starfi var hann ábyrgur fyrir
neyðaraðgerðum Rauða krossins í
Suður-Asíu.
Um 300-400 milljónir á ári
Að jafnaði starfa um 6-12 sendi-
fulltrúar Rauða kross Íslands á
vettvangi Alþjóða Rauða krossins.
Störf þeirra hafa einkum snúið að
neyðaraðstoð og uppbygging-
arverkefnum vegna náttúruham-
fara og stríðsátaka. Alþjóða Rauði
krossinn skiptist í alþjóðaráð
Rauða krossins, sem vinnur einkum
á átakasvæðum og Alþjóða-
sambandið, sem einbeitir sér að
náttúruhamförum og aðstoð við
landsfélög. Auk starfa fyrir al-
þjóðaráðið og Alþjóðasambandið er
Rauði kross Íslands líka í tvíhliða
verkefnum með nokkrum lands-
félögum í Afríku. Fyrir utan
mannafla hefur Rauði kross Íslands
lagt til um 300 til 400 milljónir
króna til Alþjóða Rauða krossins á
ári.
Alþjóða Rauði krossinn á gott
samstarf við Rauða kross Íslands
og Savioz segir mikilvægt að gera
félögum sínum og utanríkisráðu-
neytinu grein fyrir stöðunni. Ann-
ars vegar til að styrkja tengslin og
hins vegar til að vekja athygli á
starfinu og þörfinni á fjárstuðningi
til að halda því gangandi. Árlega
óski Rauði krossinn eftir alþjóð-
legum stuðningi við starfsemi sína
og því sé mikilvægt að kynna
reglulega í hverju hún sé fólgin.
Verkefni í 80 löndum
Savioz vekur athygli á því að Al-
þjóða Rauði krossinn sé með verk-
efni í um 80 löndum, þar sem
áhersla sé lögð á að vernda og að-
stoða fórnarlömb átaka. Mikill
áhugi sé á að starfa fyrir hann og
ekki sé vandamál að fylla í stöður
enda komist færri að en vilja. Þetta
séu krefjandi störf á mörgum svið-
um. Fólk sé fjarri fjölskyldum sín-
um við mjög erfiðar aðstæður. Ís-
lendingar hafi til dæmis lagt sitt af
mörkum á heilbrigðissviðinu en
víða þurfi að taka til hendi. Í því
sambandi nefnir hann sérstaklega
fjölskylduhjálp og heimsóknir í
fangelsi. Fjölskyldur sundrist
vegna átaka, börn missi foreldra
sína og svo framvegis. Börnum,
einstæðingum, einstæðum mæðrum
og föngum þurfi að hjálpa að fóta
sig í samfélaginu og þar gegni Al-
þjóða Rauði krossinn mikilvægu
hlutverki. Íslendingar hafi marg-
víslega sérfræðikunnáttu og hún
geti komið sér vel víða og ekki síst
í ýmsum mannúðarstörfum.
Savioz bendir á að fjölmiðlar
fjalli mikið um ástandið í Afganist-
an, Írak, Ísrael og hernumdu svæð-
in og Súdan, en vandamálið sé mun
víðar og jafnvel enn alvarlegra en á
stöðum sem mesta athygli fá. Í því
sambandi nefnir hann til dæmis
Nepal, Fílabeinsströndina og ýmis
lönd í Afríku. Ríkisstjórnir vilji
gjarnan styrkja svæði sem séu í
umræðunni og vera þannig líka í
sviðsljósinu en ekki megi gleyma
öðrum svæðum.
Á þessu ári gerir Alþjóða Rauði
krossinn ráð fyrir að verja meira
en einum milljarði svissneskra
franka í aðstoð á átakasvæðum.
Savioz leggur áherslu á að margt
lítið geri eitt stórt og öllum stuðn-
ingi sé tekið með þökkum. Enginn
stuðningur sé of lítill og það eigi
ekki aðeins við um fjárhagslega að-
stoð heldur einnig pólitískan stuðn-
ing stjórnvalda. Hafa beri í huga
að Alþjóða Rauði krossinn sé óháð-
ur og geti því rætt við stríðandi
fylkingar. Mikilvægi þess hafi sýnt
sig margoft, því ef Alþjóða Rauði
krossinn starfaði fyrir ákveðin öfl
eins og til dæmis stjórnvöld, fengju
andstæðingarnir ekki nauðsynlega
aðstoð.
Allt framlag
skiptir máli
Árvakur/Frikki
Hjálparstarf Régis Savioz, yfirmaður almannatengsladeildar alþjóðaráðs Rauða krossins í Genf, ásamt Sólveigu
Ólafsdóttur hjá Rauða krossi Íslands. Alþjóða Rauði krossinn er með verkefni í um 80 löndum.
Yfirmaður almannatengsladeildar
alþjóðaráðs Rauða krossins kynnir
neyðarstarfsemina á átakasvæðum
NordicTrack
TM
NAUTILUS TM