Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 13
ERLENT
John McCain Hillary Clinton
Í HNOTSKURN
» John McCain sigraði MikeHuckabee í forkosningum
repúblikana í Virginíu, Mary-
land og Washington DC. Mun-
urinn var þó aðeins níu pró-
sentustig í Virginíu og mun
minni en spáð hafði verið.
» Úrslitin í Virginíu staðfestuað McCain á í erfiðleikum
með að vinna íhaldssama repú-
blikana á sitt band.
» Ljóst er að Clinton verðurað sigra í forkosningum
demókrata í Texas og Ohio 4.
mars. Clinton vonar að hvítt
verkafólk í Ohio og fólk af suð-
ur-amerískum uppruna í Texas
ráði úrslitum í þessum tveimur
ríkjum, en hún hefur haft mikið
fylgi í þessum tveimur kjós-
endahópum.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama sigraði Hillary
Clinton með yfirburðum í forkosn-
ingum demókrata í Virginíu, Mary-
land og höfuðborginni Washington í
fyrradag með því að vinna marga úr
helstu kjósendahópum Clinton á sitt
band.
Baráttan milli Obama og Clinton
hefur verið mjög jöfn til þessa, m.a.
vegna þess að þau hafa höfðað til
ólíkra kjósendahópa. Clinton hefur
haft mikið fylgi í hefðbundnum
kjarna stuðningsmanna demókrata,
svo sem meðal fólks af suður-
amerískum uppruna og hvítra
verkamanna. Obama hefur haft
mest fylgi meðal ungra kjósenda,
óháðra, efnaðra og háskólamennt-
aðra kjósenda og blökkumanna.
Þetta breyttist í forkosningunum
á þriðjudag og niðurstaða þeirra
hlýtur að vera Clinton og stuðnings-
mönnum hennar mikið áhyggjuefni.
Obama fékk ívið meira fylgi meðal
hvítra kjósenda í Virginíu, 52% at-
kvæðanna og Clinton 47%, og er
þetta í fyrsta skipti sem Obama fær
meira fylgi í þessum hópi í einu af
suðurríkjunum.
Forsetafrúin fyrrverandi fékk að-
eins tíu prósentustiga meira fylgi
meðal hvítra kjósenda í Maryland, ef
marka má skoðanakannanir á veg-
um fréttastofunnar AP fyrir utan
kjörstaði.
Jafnvel hvítar konur eru farnar að
færa sig yfir til Obama. Clinton fékk
aðeins sex prósentustiga meira fylgi
meðal hvítra kvenna í Virginíu og
þótt munurinn hafi verið um helm-
ingi meiri í Maryland var hann mun
minni en í fyrri forkosningum.
Sigurmöguleikar Clinton hafa að
miklu leyti byggst á stuðningi hvítra
kvenna og hún hafði haft um 20 pró-
sentustiga forskot í þessum hópi.
Obama fékk 60% fylgi meðal allra
kvenna í Virginíu og 68% karlanna
kusu hann.
Obama hefur haft mikið fylgi með-
al ungra kjósenda og virðist nú einn-
ig sækja í sig veðrið í baráttunni um
atkvæði þeirra sem eru orðnir 65 ára
eða eldri. Clinton hefur haft mikið
forskot í þeirri baráttu en nú bregð-
ur svo við að þau standa jöfn að vígi í
þessum kjósendahópi.
Obama hefur nú sigrað í átta for-
kosningum í röð eftir „stóra þriðju-
daginn“ í vikunni sem leið þegar
kosið var í meira en 20 sam-
bandsríkjum. Þetta hefur gefið
Obama byr undir báða vængi og
peningarnir streyma í kosningasjóð
hans. Hermt er að hann hafi fengið
rúma milljón dollara á dag frá rúm-
lega 650.000 stuðningsmönnum en á
sama tíma á Clinton í fjárhagslegum
vandræðum. Hún neyddist nýlega til
að lána kosningasjóðnum fimm millj-
ónir dala úr eigin vasa.
Því fer þó fjarri að baráttunni sé
lokið því að lítill munur er á fjölda
kjörmannanna sem keppinautarnir
hafa fengið. Ef marka má talningu
RealClearPolitics.com hefur Obama
fengið 1.259 kjörmenn og Clinton
1.210. Alls þarf atkvæði 2.025 kjör-
manna á flokksþingi demókrata í
ágúst til að verða forsetaefni flokks-
ins í kosningunum í nóvember.
Obama að fá kjósenda-
hópa Clinton á sitt band
Hillary Clinton
þarf nú að sigra í
Texas og Ohio til
að halda velli
Reuters
Fékk góðan byr Obama heilsar stuðningsmönnum sínum í Wisconsin.
Obama fékk 64% fylgi í Virginíu, 75% í Washington DC og 59% í Maryland.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
FLEST bendir til, að UMP, flokkur Nicolas
Sarkozys, forseta Frakklands, muni fá slæma út-
reið í sveitarstjórnarkosningunum í landinu í
næsta mánuði. Þegar hann sigraði í forsetakosn-
ingunum í fyrravor, voru bundnar við hann miklar
vonir en það er ekki aðeins, að hann þyki ekki hafa
staðið við stóru orðin, heldur virðast franskir kjós-
endur, ekki síst borgarastéttin, vera búnir að fá
sig fullsadda af „glaumgosalifnaði“ forsetans,
„Sólkonungsins“ eins og farið er að kalla hann.
Vinsældir Sarkozys hafa hrapað að undanförnu
og vandræði hans og flokks hans, UMP, kristallast
nú í Neuilly-sur-Seine, einu borgarhverfa Parísar
og því ríkasta í Frakklandi að sögn. Þar var hann
sjálfur borgarstjóri í tæp 20 ár og í forsetakosn-
ingunum fékk hann þar 77% greiddra atkvæða.
Var þá farið að kalla borgarhlutann „Sarkoland“
og haft á orði, að þótt kjósendum væri boðið upp á
asna, myndu þeir kjósa hann svo framarlega sem
hann nyti stuðnings Sarkozys.
Sarkozy ákvað sjálfur að stilla upp David Mart-
inon, talsmanni sínum, sem væntanlegu borgar-
stjóraefni en þá sögðu kjósendur nei. „Neuilly er
engin framlenging á forsetahöllinni“ var viðkvæð-
ið og ekki batnaði það þegar sá kvittur komst á
kreik, að Jean, einn sona Sarkozys, myndi leiða
listann. Kannanir benda til, að frambjóðandi ann-
ars borgaraflokks en UMP muni sigra í Neuilly og
staða flokksins er raunar svo slæm, að í sumum
héruðum reyna stjórnmálamenn, sem þó tilheyra
honum, að gæta þess, að flokksmerkið sjáist
hvergi. Þá hafa þeir látið það berast út, að þeir
kæri sig ekki um opinbera stuðning forsetans.
Líklega eru fá dæmi um, að jafnhratt hafi fjarað
undan stuðningi við forseta Frakklands og ástæð-
urnar eru ýmsar. Hann hafði það að kjörorði fyrir
forsetakosningarnar að hrista upp í frönsku þjóð-
lífi og þeirri stöðnun, sem vissulega einkennir það
að nokkru leyti, og hann hafði uppi stór orð um að
bættan hag almennings. Enn sjást þess lítil merki
og það kyndir síðan undir óánægjunni, að fréttir
fjölmiðla af forsetanum snúast ekki um hugmynd-
ir hans eða tillögur í efnahagsmálum eða öðrum
samfélagsmálum, heldur um einkalíf hans sjálfs.
Allt síðasta sumar, fyrstu mánuði Sarkozys í
embætti, var mikill fjölmiðlasirkus í kringum
hjónaband hans og Ceciliu Ciganes-Albeniz en
þau skildu í október sl. Ný hrina hófst síðan er
Sarkozy tók upp samband við ofurfyrirsætuna
Carla Bruni en þau hafa nú gengið í það heilaga.
Fréttir af hinu ljúfa lífi þeirra hjóna eru fyr-
irferðarmiklar í fjölmiðlum og Sarkozy hefur verið
harðlega gagnrýndur fyrir að frílysta sig á snekkj-
um auðmanna, sem hafa mikla hagsmuni af við-
skiptum við franska ríkið. Margir fyrrum kjós-
endur Sarkozys eru augljóslega búnir að fá nóg,
ekki síst borgarastéttin og þeir, sem eldri eru,
burðarásinn í fylginu við Sarkozy.
Frökkum farið að leiðast
„glaumgosalíf“ forsetans
SAUTJÁN dönsk dagblöð end-
urbirtu í gær eina af hinum um-
deildu Múhameðsmyndum, teikn-
ingu Kurt Westergaard, en danska
lögreglan hefur handtekið þrjá
múslíma, sem eru sagðir hafa ætlað
að myrða hann.
Með endurbirtingunni vildu blöð-
in leggja áherslu á, að hryðjuverka-
mönnum yrði ekki leyft að klekkja
á tjáningarfrelsinu. Virðast danskir
múslímar flestir láta sér fátt um
endurbirtinguna finnast en segjast
þó búast við einhverjum mótmælum
í löndum múslíma en ekki miklum.
Teikning af
Múhameð birt
NICOLAS Sarkozy bar sig-
urorð af Segolene Royal,
frambjóðanda sósíalista, í
kosningunum á útmánuðum í
fyrra og lýsti þá sjálfum sér
sem manni nýrra tíma. Hann
hét að rjúfa stöðnunina, sem
hann kenndi hinni „útvöldu
stétt“, og eitt mesta kosninga-
loforð hans og kosningabeita
var að heita auknum, almenn-
um kaupmætti. Ekkert hefur
gerst í því og nýlega viðurkenndi hann op-
inberlega, að það væri raunar alls ekki í hans
valdi að breyta miklu þar um.
Stór orð, litlar efndir
Nicolas Sarkozy,
forseti Frakklands.
VÍSINDAMENN hafa borið saman
tilfelli hjartaáfalla í Róm fyrir og
eftir að reykingabann gekk í gildi á
Ítalíu árið 2005. Samanburður
rannsókna sem gerðar voru fyrir
og eftir að bannið tók gildi leiddi í
ljós að hjartaáföllum hafði fækkað
um rúm 11% í aldurshópnum 35-64
ára.
Reykingabannið á Ítalíu nær til
allra opinberra rýma eins og skrif-
stofa, verslana, veitingastaða, kráa
og skemmtistaða. Af rannsókninni
mátti sjá að reykingar höfðu dreg-
ist saman um rúm 4% hjá karl-
mönnum en um 0,2% hjá konum.
Sala á sígarettum hafði jafnframt
dregist saman um rúm 5%.
Vísindamennirnir leiddu líkur að
því að þáttur óbeinna reykinga
hefði haft mest áhrif á niðurstöð-
urnar, auk þess sem reyklausir
vinnustaðir ýttu undir að starfs-
menn hættu að reykja.
Reykingabannið á
Ítalíu skilar árangri
!"
#
!"
$% &'(
*+"' ", +'
- .
/
0
1
2
!345!67558!
-)6 #
.)6#
/)67+
69
6666
'#
0)6:( 2)6;+
1)6
!" #$%&
' ()**+&#,-
.
)/0***1
!"#$
%#
###&''(##
#
)#$
#
#)*#
)##+###$,# $%-#.
$
#$
,#$##
!",#)#% ,# #)#
$)#%
$-
: 6<6 <6#6' 6:=< 6>(: 6 < 6 6+'666
/2 1066 6 :6:6>< ?6<6
'6
:
+:6@6 6
<
4A66 '
<
B '>"
7 6+'6
/' 01 2 3 .
/' 01 2 ( -
(( && 04 1 .
3' && &0 0( .
!4
!3$
3/5
C$$68
!3D
&05
!3D
4&5
( - ( 2
- 3
3
Útlit fyrir að Sarkozy og flokkur hans fái mikinn skell í sveitarstjórnarkosningum
IMAD Mughniyeh, fyrrverandi yf-
irmaður öryggismála Hizbollah-
hreyfingarinnar, lést í bílspreng-
ingu í Damaskus í Sýrlandi á
þriðjudagskvöld. Mughniyeh hafði
farið huldu höfði um langt skeið, en
hann er m.a. talinn hafa staðið fyrir
mannránum og sprengjutilræðum á
níunda áratugnum. Hann var of-
arlega á listum Bandaríkjanna og
Ísraels yfir eftirlýsta hryðjuverka-
menn og fagnaði talsmaður utan-
ríkisráðuneytis Bandaríkjanna falli
Mughniyehs í gær. Ísraelar hafa
formlega neitað aðild að málinu.
Fagna dauða
Mughniyehs