Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 17
Neskaupstaður | Leikfélag Verk-
menntaskóla Austurlands, Djúpið,
fyrirhugar frumsýningu á leikriti
Andra Snæs Magnasonar, Bláa
hnettinum, 22. febrúar nk. Um
fimmtán nemendur taka þátt í sýn-
ingunni og einn kennari skólans.
Leikstjóri er Snorri Emilsson. Æf-
ingar eru byrjaðar í Egilsbúð og
hafa allar verkgreinar skólans
komið að undirbúningi verksins.
Stefnt er að því að sýningin verði
hin glæsilegasta.
Þá hefur verið leitað til allra leik-
og grunnskóla í Fjarðabyggð um
aðstoð við gerð fiðrilda, en mikið
magn þeirra þarf að nota á hverri
sýningu. Sérstök skólasýning er
fyrirhuguð föstudaginn 29. febrúar
fyrir skólana í Fjarðabyggð. Sýn-
ingin er ætluð öllum aldurshópum
og geta má þess að sagan um Bláa
hnöttinn hefur farið sigurför um
heiminn. Nánari upplýsingar er að
finna hjá leikfélaginu djupid@va.is.
Hársnyrtikennsla VA í tíu ár
Við VA er nú verið að kenna
fjórðu önn hársnyrtibrautar í
fyrsta sinn, en nám í þessum grein-
um tekur fimm annir. Hársnyrt-
inám við skólann er tíu ára um
þessar mundir og hafa nemendur
komið að víðs vegar af landinu.
Kennarar fjórðu annar koma m.a.
frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Deildarstjóri hársnyrtibrautar VA
er Svanlaug Aðalsteinsdóttir og
aðrir kennarar Rósa Dögg Þórs-
dóttir og Elsa Reynisdóttir.
Galsafengnar
vikur hjá VA
Ljósmynd/VA
Leikur Snorri Emilsson leikstjóri fylgist með æfingu á Bláa hnettinum í VA.
Djúpið æfir Bláa hnöttinn og leikskóla-
börn búa til fiðrildafjöld fyrir sýninguna
Skrýft Nemendur hársnyrtibrautar
æfa sig í samkvæmisgreiðslu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 17
AUSTURLAND
Flóinn | Sunnlenskur sælkera-
bjór, Skjálfti, sem er bruggaður í
brugghúsi í Ölvisholti í Flóa kem-
ur á markað 1. mars nk., og verð-
ur þá seldur í tveimur verslunum
ÁTVR á höfuðborgarsvæðinu og í
versluninni á Selfossi.
Framleiddir verða 300 þúsund
lítrar á ári í byrjun, þar af fer um
þriðjungur á markað í Danmörku,
í samstarfi við Gourmetbrygger-
iet sem sér um markaðssetningu
Skjálfta þar í landi.
„Það hafa fjölmargir fengið að
smakka á bjórnum hjá okkur og
gefið honum sína bestu einkunn.
Nú er bara að sjá hvernig mark-
aðurinn tekur við honum eftir 1.
mars, það verður spennandi að
sjá það,“ sagði Bjarni Einarsson,
framkvæmdastjóri brugghússins.
Styrkleiki bjórsins er 5%.
Bruggmeistarinn sem sér um
bruggunina heitir Valgeir Val-
geirsson og hefur starfað sem
bruggari í Skotlandi og er mennt-
aður á þessu sviði í Edinborg.
Eigendur verksmiðjunnar eru
auk Bjarna, Jón Elías Gunn-
laugsson og Jóhann Steinarsson.
Starfsmenn brugghússins eru
fjórir.
Skjálfti Bjarni Einarsson og Jón Elías Gunnlaugsson með nýja bjórinn á
milli sín en hann verður seldur í flöskum og handhægum umbúðum.
Sunnlenskur sælkerabjór
er að koma á markað
LANDIÐ
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Jökuldalur | Mannamál, bók með
greinum, frásögnum og ljóðum í til-
efni sextugsafmælis Páls Pálssonar
frá Aðalbóli, er komin út.
Páll fæddist á Aðalbóli í Hrafn-
kelsdal 11. maí árið 1947 og ólst þar
upp. Hann hefur lengst af starfað við
almenna verkamannavinnu, pípu-
lagnir og landbúnaðarstörf.
„Samhliða því hefur hann vakið
athygli fyrir víðtæka þekkingu á
austfirskri náttúru og sögu. Þeirri
þekkingu hefur hann miðlað af miklu
örlæti um áraraðir. Það hefur nú
orðið til þess að hópur fræðimanna
og rithöfunda hefur ákveðið að end-
urgjalda honum með því að efna í
þessa bók,“ segir á bókarkápu. Páll
hefur gegnum tíðina viðað að sér víð-
tækri þekkingu á örnefnum og
landamerkjum allt frá Jökuldal inn
um öll öræfi og átt ríkan þátt í gagn-
rýnni orðræðu um þjóðlendu- og
virkjanamál norðan Vatnajökuls.
Tuttugu og átta höfundar skrifa
greinar, frásagnir og ljóð í bókina,
margir úr frændgarði Páls og ná-
grannar þar á meðal.
Ritstjórar bókarinnar eru Krist-
ján Jóhann Jónsson og Ragnar Ingi
Aðalsteinsson, báðir frá Vaðbrekku.
Þeir skrifa formála bókarinnar og
Hákon Aðalsteinsson yrkir ljóð helg-
að Páli á titilsíðu.
Útgefandi er bókaútgáfan Hólar.
Bókin er til sölu hjá ritstjórum,
Aðalsteini Aðalsteinssyni og í bóka-
horni KHB á Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Útgáfa Páll Pálsson, fræðimaður frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal, gluggar hér í
bókina Mannamál sem gefin var út honum til heiðurs sextugum.
Vitringur heiðraður
með Mannamáli
Seyðisfjörður | Stofnfundur Holl-
vinasamtaka Sjúkrahúss Seyð-
isfjarðar var haldinn á Seyðisfirði
24. janúar sl. Fjölmenni var á fund-
inum og gerðust allir hollvinir.
Fundurinn sam-
þykkti lög fyrir
samtökin sem
hafa það mark-
mið helst að
styðja við, verja
og styrkja þá öfl-
ugu heilbrigð-
isþjónustu sem
fram fer á
sjúkrahúsinu.
Segir í frétta-
tilkynningu að
efla þurfi m.a. og styrkja sér-
staklega heilabilunardeild sem þar
starfar á fjórðungsvísu. Seyðfirð-
ingar og aðrir velunnarar sjúkra-
hússins séu mjög ánægðir með
þjónustu sem þar er veitt og vilji
viðgang hennar sem allra mestan
og bestan.
Sjúkrahúsið er annar stærsti
vinnustaðurinn í kaupstaðnum.
Fram kom á fundinum að nú þeg-
ar byggðarlagið á í vök að verjast,
viðvarandi fólksfækkun sé og störf
tapist í burt, séu allar hugmyndir
um að veikja starfsemi sjúkrahúss-
ins á staðnum ógn við samfélagið á
Seyðisfirði.
Í stjórn sitja sem aðalmenn Arn-
björg Sveinsdóttir, Óttarr M. Jó-
hannesson, Rúnar Reynisson, Stein-
unn Ásmundsdóttir og Þorvaldur
Jóhannsson. Varamenn eru Adolf
Guðmundsson og Sólborg Sum-
arliðadóttir.
Börn hjónanna Þorvaldar Jó-
hannssonar, fv. bæjarstjóra á Seyð-
isfirði, og eiginkonu hans Dóru Sæ-
mundsdóttur gáfu samtökunum
eina milljón króna til minningar um
móður sína, sem lést á Seyðisfirði
fyrir tæpum áratug.
Velunnarar Seyðfirðinga og
sjúkrahússins geta gerst stofn-
félagar í s. 8945493 eða gegnum
netfangið larus@hsa.is.
Stutt við
Sjúkrahúsið
á Seyðisfirði
Hollvinasamtök
eru á Seyðisfirði.
!" # "$%&'
()*+# ,#',-( . /$*+#0 1'#,,# /(2 ,3 ( $ !(), !)* -)./)%!# (
4!-()2$ '*"$2 ,,# /-(5# 6 67 "5
&),/-(5# 6 67 #',-( .&-( # (),),5# ( 7
,,# /-(5# ( $2#. 8.#/$*+#0 1'!)*9 # $*+#0 1'),( $:-( .! ;55.
"5#'&<'$./!:*/$*+# ),,# 5 ().#/!67=77>-(?!) @#*++#5# -#?!#( $
6 /(%!(20( A"56B /(%!(20( C <'$./!:*D() #0( #.
(,+$ 5 ().#4(),,)5 ()./*$9*"#5@#*++#5#6B /(%!(20( C $.(,,)
'*"/),/9" +)E ?E&#,5( E(*#,+&' (
F"5
677FG
),/-(5# ( $2#. 8.#/$*+#0 1'!)*9 # $*+#0 1'),( $:-( .! ;55.
"5#'&<'$./!:*/$*+# ),,# 5 ().#/!29,#.# -(?!) H0%
9*#5 ; /!)5@#*++#5)-#?!#( 6 +(/(20( F"5-(?!),#0( #.5 ().#
929,#.#' (/!)('!) D#.!)*"52(.6B /(%!(20( C <'$./!:*0(
#.(,+$ 5 ().#4(),,)5 ()./*$9*"#5@#*++#5#6B /(%!(20( C
$.(,,)'*"/),/9" +)E ?E&#,5( E(*#,+&' (
FB"5
6777
" +)E ?E&#,5( E(*#,+&' 2$,!##/$*+#0 1'),!)*-)./)%!#D#,,
67 '(0 3# A
2/@:,# #.)*)/<*$/$*+#0 1'#,,#"5!<$!)*-)./)%!#9" +)E ?E&#,5( E(*#,+&' (
*)!,) 0#,)&' =) @$/#,+)=677 (;@#-4 ( .0 1'#*I/),5# -(5,#!<$/$*+#0 1'#,,#
!)*-)./)%!#-( .#0) !# 4+#5=6B '(0 3# A I/),5# ,# "5<,,$ 5<5,/(2-)!,#.( !)*4
D()2( &85!#.,9*5#/!&@9!" $ "$%&' = *4.# /29 #6=6:%#-"5$ "59&()2#/4.$
!" $ "$%&' JJJ #!" # )/' #2!)**"#+#5//$*+#0 1'#,,#
(;@#-4=6B '(0 3# A