Morgunblaðið - 14.02.2008, Qupperneq 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 19
Samherji hf. veitti á dögunum 14 starfsmönn-
um fyrirtækisins sérstök hvatningarverðlaun
fyrir fullkomna mætingu til vinnu á árinu
2007. Starfsmennirnir fengu hver um sig
ferðaávísun að upphæð 100 þúsund krónur en
afhending hvatningarverðlaunanna markar
lok fyrsta starfsársins í gagngerri heilsuefl-
ingu innan fyrirtækisins.
Áhugamenn um stjórnmál geta valið um tvo
opna fundi á Akureyri í kvöld; annars vegar
verður VG með fund á Bláu könnunni og hins
vegar sjálfstæðismenn á Hótel KEA. Báðir
fundir hefjast kl. 20. Á KEA hefur Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra framsögu
og situr fyrir svörum um heilbrigðismál en á
Græna hattinum verða Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, Þuríður Backman þing-
maður og bæjarfulltrúar VG á Akureyri, þar
sem til umræðu verður staðan í landsmálum
auk ástandsins í höfuðborginni og stöðu bæj-
armála á Akureyri.
Samkomur eru á fimmtudögum í Leikhúsinu
á Möðruvöllum. Dagskrá kvöldsins ber yfir-
skriftina Vasast í öllu, Sveinn í Kálfskinni og
það er Sveinn Jónsson sjálfur sem flytur er-
indi.
Sorg og sorgarviðbrögð ungmenna verða til
umfjöllunar í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju í kvöld kl. 20. Sr. Birgir Ásgeirsson,
prestur í Hallgrímskirkju og sjúkra-
húsprestur til margra ára, heldur fyrirlestur.
Meðal þess sem sr. Birgir mun taka fyrir er
hvernig ýmis áföll og önnur tilefni valda dep-
urð og sorgarviðbrögðum hjá ungmennum og
hvernig ástvinir og aðrir nákomnir geta
brugðist við og orðið til hjálpar. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn.
Ungversk ljóðlist verður í brennidepli í Akur-
eyrarAkademíunni í dag frá kl. 17. Þórarinn
Torfason bókmenntafræðingur flytur þá
fyrirlestur. Aðgangur er ókeypis.
Héðinn Ingimarsson úr Lundarskóla og Sig-
rún R. Brynjólfsdóttir úr Glerárskóla eru
vinningahafar þessa svæðis í eldvarnarget-
raun Landssambands slökkviliðs og sjúkra-
flutningamanna. Getraunin var lögð fyrir alla
þriðju bekki í landinu í framhaldi af heimsókn
slökkviliðsmanna í skólana í lok nóvember og
byrjun desember sl. Verðlaunin voru afhent
við hátíðlega athöfn á slökkvistöðinni á Ak-
ureyri í vikunni.
Í sjúkrabílnum Héðinn Ingimarsson og Sig-
rún R. Brynjólfsdóttir fengu að prófa hlust-
unarpípuna og heyra hjartsláttinn í Magnúsi
Smára Smárasyni slökkviliðsmanni.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Árvakur/Skapti
VÍSNAHORNIÐ
Af Villa og
glerhúsi
pebl@mbl.is
Sigurði Jónssyni tannlækni flaugþessi litla vísa í hug á göngu
sinni í gærmorgun:
Æ, mér finnst það svona og svona,
samt er rétt að geta þess,
að sjálfur hef ég verið að vona
að Villi myndi segja bless.
Bryndís H. Bjartmarsdóttir yrkir
af sama tilefni:
Úr glerhúsi er ei gott að kasta
grjóti á aðra menn.
Því ætla ég Villa ekki að lasta
en óska hann vitkist senn.
Og Bryndís yrkir um tíðarfarið:
Napur geisar norðanvindur,
nú er hvítur sérhver tindur,
sólin föla birtu ber.
Á hugann sækir leiði og leti,
langar mest að kúra í fleti
þar til röðull rísa fer.
Sigurður Atlason yrkir:
Varlega ég geng um grund
gái þar að fé um stund
til minnar jarðar yrki óð
öll hún fær mín bestu ljóð.
Barselóna í vorblóma
Express-ferðir
bjóða upp á ferð
til Barselóna
dagana 11.-14.
apríl undir far-
arstjórn Halldórs
Stefánssonar gít-
arleikara sem
hefur búið í borg-
inni í mörg ár. Halldór mun fara fyr-
ir skoðunarferðum um borgina og
m.a. kynna Eixample-hverfið, verk
meistara Gaudí, ólympíusvæðið og
Montjuic-hæðina. Hann mun auk
þess fara með farþegum út að borða
á valinn veitingastað og jafnvel grípa
í gítarinn á góðum stundum.
Provence í sælkeratakti
Gönguklúbbur ferðaskrifstof-
unnar Úrvals-Útsýnar, Gönguhrólf-
ur, býður upp á sælkeragönguferð
til Province í Frakklandi dagana 25.
apríl-2. maí. Héraðið, sem er syðst í
Frakklandi, er rómað fyrir náttúru-
fegurð, frjósemi og matargerð og
þar er líka fjöldi þekktra gönguleiða.
Gist verður í Aix en Provence og far-
ið þaðan í gönguferðir og könnunar-
leiðangra á vínbúgarða, á markaði, í
olíumyllu og fleira. Fararstjóri er
Isabelle de Bisschop.
vítt og breitt
Íþróttadeild Úrvals-Útsýnar
Sími: 585 4000
Netfang: tonsport@uu.is.
Vefsíða: www.uu.is/ithrottir/
gonguferdir/provence-saelkera-
taktur/
www.expressferdir.is
Stórhöfði 31 • 110 Reykjavík
www.stafir.is
Í þúsundum króna 31.12.2007 Br. milli ára
Verðbréf m. breytilegum tekjum 37.590.294 13%
Verðbréf m. föstum tekjum 30.731.651 -1%
Veðlán 11.257.337 19%
Kröfur 423.909 20%
Sjóður og bankainnistæður 2.274.852 170%
Fasteignir og aðrar eignir 266.132 103%
Skuldir -392.635 16%
Hrein eign sameignardeild 78.664.225 10%
Hrein eign séreignardeild 3.487.315 10%
Samtals hrein eign 82.151.541 10%
Stafir 2007– ár hagræðingar
Ársfundur 2008
Ársfundur Stafa verður haldinn
fimmtudaginn 22. maí 2008 kl. 14:00
á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá fundarins auglýst síðar.
Í þúsundum króna 31.12.2007 Br. milli ára
Iðgjöld 4.012.304 19%
Lífeyrir -1.735.170 19%
Fjárfestingartekjur 5.317.614 -50%
Fjárfestingagjöld -68.885 -30%
Rekstrarkostnaður -84.534 -30%
Hækkun á hreinni eign á árinu 7.441.327 -40%
Hrein eign frá fyrra ári 74.710.233 20%
Hrein eign til greiðslu lífeyris 82.151.541 10%
Efnahagsreikningur í árslok
Yfirlit um breytingar á hreinni eign
Í þúsundum króna 2007
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 3.743
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 4,9%
Eignir umfram heildarskuldbindingar 3.945
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum 2,9%
Lífeyrisskuldbindingar
2007
Nafnávöxtun 6,8%
Hrein raunávöxtun 0,9%
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ár 9,1%
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 10 ár 6,1%
Nafnávöxtun séreignarleiðar 1 12,6%
Nafnávöxtun séreignarleiðar 2 11,7%
Nafnávöxtun séreignarleiðar 3 7,1%
Nafnávöxtun séreignarleiðar 4 2,3%
Nafnávöxtun séreignarleiðar 5 6,8%
Eignir í íslenskum krónum 76,8%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum 23,2%
Fjöldi greiðandi sjóðfélaga 10.041
Fjöldi lífeyrisþega 3.593
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,1%
Lífeyrir í % af iðgjöldum 43,2%
Kennitölur
Vel heppnaðri sameiningu lokið
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
Haraldur H. Jónsson, formaður
Guðsteinn Einarsson, varaformaður
Arnbjörn Óskarsson
Erna Hauksdóttir
Níels S. Olgeirsson
Sigurður Sigfússon
Framkvæmdastjóri
Ólafur Sigurðsson
Árið 2007 einkenndist af hagræðingu hjá Stöfum lífeyrissjóði. Við sameiningu
tveggja sjóða er í mörg horn að líta en óhætt er að segja að vel hafi tekist til.
Kostnaður lækkar um 30% á milli ára
Rekstrarkostnaður í hlutfalli af eignum var 0,10%.
Rekstrarkostnaður í hlutfalli af iðgjöldum var 2,11%.
Tryggingafræðileg staða sterk
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar voru 3.743 milljónir eða 4,9%.
Eignir umfram heildar skuldbindingar voru 3.945 milljónir eða 2,9%.
Réttindaávinnsla sjóðsins er á meðal þess besta sem býðst.
Sterk staða þrátt fyrir mótbyr á mörkuðum
Nafnávöxtun var 6,8% sem jafngildir 0,9% raunávöxtun.
Meðaltal nafnávöxtunar síðastliðin 5 ár var 13,8%.
Meðaltal raunávöxtunar síðastliðin 5 ár var 9,1%.
0,30%
0,25%
0,20%
0,15%
0,10%
0,05%
0,00%
0,35%
0,40%
Kostnaður sem hlutfall af eignum
FjárfestingagjöldRekstur og
skrifstofukostnaður
2003 2004 2005 20072006
0,38%
0,30%
0,31%
0,24%
0,18%
0,10%
0,08%
N
æ
st