Morgunblaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 25
GREINARHÖFUNDUR býr nú
ásamt eiginkonu sinni í Garðabæ.
Greinarhöfundur er fæddur og upp-
alinn 1 km frá Laufáskirkju og man
því sögu margra
Laufáspresta, emb-
ættisskipti þeirra og
búflutninga frá Lauf-
ási síðustu 52 árin.
Fyrsti endurminn-
ingadagur í lífi grein-
arhöfundar sem þá
var þriggja ára var
þegar hann var stadd-
ur á miðju Laufást-
úninu í Laufási. Það
var kveðjustund.
Faðir greinarhöf-
undar var þar staddur
með séra Þorvarði til
að ganga frá lausum
endum varðandi bújörðina Laufás
þar sem séra Þorvarður vegna
heilsubrests var að láta af störfum í
Laufási og flytja búferlum með fjöl-
skyldu sína til Reykjavíkur.
Greinarhöfundur upplifði síðar
svipaðar tilfinningaþrungnar
kveðjustundir þegar séra Birgir
Snæbjörnsson, séra Jón Bjarman
og fjölskylda, séra Bolli Gústavsson
og fjölskylda brugðu búi og fluttu
búferlum af mismunandi ástæðum
frá prestsetrinu í Laufási.
Séra Jón Bjarman, séra Bolli
Gústavsson og séra Pétur Þór-
arinsson voru allir afleysingakenn-
arar greinarhöfundar á uppvaxt-
arárum hans við grunnskólann á
Grenivík.
Ekki þarf að fjölyrða um það hér
í grein þessari að með öllum of-
antöldum prestum í Laufási og
greinarhöfundi mynduðust mikil og
persónuleg tengsl í gegnum tíðina.
Í Laufássókn á framangreindu 52
ára tímabili sátu í sóknarnefnd Lauf-
ássóknar þar til kjörnir fulltrúar
sem flestir voru bændur.
Ekki þarf að fjölyrða um það í
grein þessari að sóknarnefnd-
arfulltrúar þessir lentu
oft og tíðum í kröppum
dansi við úrlausn mála
þegar upp komu
ágreiningsmál varðandi
störf sitjandi presta í
Laufási og eða þegar
sitjandi sóknarprestar
ákváðu sjálfir að láta af
störfum sem sókn-
arprestar í Laufási. Að
auki þurftu sókn-
arnefndarfulltrúar
þessir að hafa fullt
samráð við sókn-
arnefndarfulltrúa
Grenivíkur- og Sval-
barðssókna þar sem sitjandi sókn-
arprestur í Laufási hafði þessar 3
sóknir til að sinna í störfum sínum.
Að sjálfsögðu hafa myndast í
gegnum tíðina mikil og persónuleg
tengsl með öllum ofannefndum
prestum í Laufási og öllum sókn-
arnefndarfulltrúum Laufás-, Greni-
víkur- og Svalbarðssóknar.
Eins og gengur í mannanna sam-
félagi koma oft upp ágreiningsmál.
Það sama á að sjálfsögðu við um
sóknarpresta í Laufás-, Grenivíkur-
og Svalbarðssóknum. Oft og tíðum
og eðli mála samkvæmt tengdust
sitjandi sóknarprestar oft skóla-
nefnd Grenivíkurskóla.
Í öllu framannefndu söguferli og
án undartekninga leystu sitjandi
forráðamenn, formenn og sókn-
arnefndarmenn allra ofannefndra
sókna öll ágreiningsmál sem upp
komu með viðeigandi og einum
hætti, það er að segja að tryggja
starfandi sóknarprest í sóknum
Laufáss, Grenivíkur og Svalbarðs.
Aldrei í sögunni hafa forráðamenn
og sóknarnefndarfulltrúar Laufás-,
Grenivíkur- og Svalbarðssókna
fjallað sérstaklega um fjöl-
skylduaðstæður fráfarandi prests-
fjölskyldu. Án undantekninga fram-
kvæmdu sitjandi forráðamenn,
formenn og sóknarnefndarmenn
prestaskipti í Laufási á einn eftirfar-
andi veg. Sóknarprestur og fjöl-
skylda hans fer og nýr sókn-
arprestur og fjölskylda hans kemur.
Greinarhöfundur þekkir alla
sóknarnefndarfulltrúa sem setið
hafa í Laufássókn sl. 52 ár. Flestir
voru þeir eða eru bændur. Allir
eiga þeir eitt sameiginlegt! Þeir
fylgdu sinni bestu sannfæringu í
störfum sínum í allri úrlausn mála í
Laufássókn. Þeir létu tilfinn-
ingasemi og persónuleg tengsl sín
við sitjandi sóknarpresta og fjöl-
skyldur þeirra aldrei bera sig of-
urliði við og í ákvarðanatökunni við
að tryggja starfandi sóknarprest í
Laufási. Þetta voru hetjur sem
þorðu að stjórna og taka farsælar
ákvarðanir til lengri tíma litið án
þess að missa dómgreind undir
samfélagspressu og í tímabundinni
skammtíma-tilfinningasemi.
Nú er séra Pétur Þórarinsson all-
ur. Greinarhöfundur vill nota þetta
tækifæri til að þakka honum og þeim
prestum sem setið hafa í Laufási sl.
52 ár fyrir kennslu þeirra, hjálp og
uppbyggingarstörf í gegn um tíðina
fyrir greinarhöfund, fjölskyldur hans
og vini. Nú þegar þarf nýjan sókn-
arprest á jörðina Laufás.
Það eru yfirgnæfandi líkur á því í
nútímasamfélagi að fjölskylduaðili
með maka og börn sé sá sókn-
arprestur sem næst verður kjörinn
til búsetu á jörðina Laufás og til að
þjóna þaðan sóknunum 5 sam-
kvæmt núverandi fyrirkomulagi.
Ekkert getur breytt því nema eft-
irfarandi:
Fjölmiðlasagan að undanförnu
segir núverandi embættisstjórn-
unarhætti við jörðina Laufás of lina.
Seinagangur er einungis til að valda
úlfúð og tefja komandi nýjan prest
til ábúðar á jörðina Laufási. Töfum
þarf tafarlaust að linna! Komið er
að framkvæmd.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps
eða hluti hennar er hugarfarslega
ekki langt frá tilfinningasemi, rang-
hugmyndum og dómgreindarskorti
í fjölmiðlaumfjöllun sinni að und-
anförnu í núverandi málefnastöðu
prestsetursjarðarinnar Laufáss. Að
sjálfsögðu er það ómeðvitaður hluti
sorgarferils nefndra sem ekki má
blinda eða binda viðeigandi kirkj-
unnar embættismenn til tafarlausra
framkvæmda.
Prestsetrið Laufás í Eyjafirði
Freygarður E. Jóhannsson
fjallar um prestsetrið Laufás
í Eyjafirði og þá sem þar
hafa búið
Freygarður E.
Jóhannesson
» Það verða forseta-
skipti á Bessastöð-
um eftir u.þ.b. 4 ár. Á
fjölskylda fráfarandi
forseta þá að sitja þar
áfram til að raska ekki
fjölskylduhögum?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Fashion Group ehf.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.ss.is
Endalausir
möguleikar!
Fáðu þér SS skinku á 20% afslætti
í næstu verslunarferð, leyfðu
hugmyndafluginu að njóta sín ....
brauðterta, samloka, heitur
brauðréttur, salat…
…og nú þú!
20%
afsláttur
14. – 21.
FEBRÚAR Í HAFNARHÚSINU
VATNSMÝRI
102 REYKJAVÍK
NIÐURSTÖÐUR ÚR HUGMYNDA-
SAMKEPPNI UM VATNSMÝRI
Dagskrá yfir sýningardagana
14. febrúar – fimmtudagur
kl 20 Viðburður: Opið „uppboð” á lóðum í Vatns-
mýri með hliðsjón af vinningstillögu úr sam-
keppninni. Umsjón Guja Dögg Hauksdóttir
deildarstjóri byggingarlistardeildar og
sýningarstjóri.
15. febrúar – föstudagur
kl 16 Kynning og pallborð: Verðlaunahafar kynna
tillögur sínar og dómnefnd gerir grein fyrir
niðurstöðum sínum og í kjölfarið verða opnar
pallborðsumræður um framtíðarsýn og skipu-
lag borgar í Vatnsmýrinni.
16. febrúar – laugardagur
kl 14 Leiðsögn: Guja Dögg Hauksdóttir deildar-
stjóri byggingarlistardeildar og sýningar-
stjóri annast leiðsögn um sýninguna.
17. febrúar – sunnudagur
kl 14 Leiðsögn: Steve Christer arkitekt og dóm-
nefndarmaður annast leiðsögn um sýninguna.
21. febrúar – fimmtudagur
kl 17 Fyrirlestur: Massimo Santanicchia arkitekt
fjallar um fagurfræði og tíðaranda í
skipulagi borga.