Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 27 MINNINGAR ✝ Hólmfríður Sig-rún Jóhanna Pálmadóttir fæddist á Reykjavöllum í Skagafirði 11. nóv- ember 1923. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund 5. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Pálmi S. Sveinsson, bóndi á Reykjavöll- um í Skagafirði, f. 13. desember 1883, d. 6. mars 1967, og Guðrún Andrésdóttir Valberg, f. 2. mars 1889, d. 17. mars 1955. Systkini Hómfríðar eru Herdís, f. 5. september 1922, d. 29. mars 2002, Rósa, f. 26. september 1925, Pétur, f. 19. ágúst 1930, og Sveinn, f. 27. júní 1933. Eiginmaður Hólmfríðar var Bjarni Kr. Ólafsson rafvirkja- meistari, f. í Reykjavík 18. októ- ber 1914, d. 7. janúar 1986. Börn þeirra eru: 1) Pálmi Ólafur, f. 10. apríl 1948. 2) Anna Karitas, f. 18. desember 1951, eiginmaður hennar er Þorvaldur Gylfason, f. 18. júlí 1951, börn Önnu og fóst- urbörn Þorvaldar eru a) Jóhanna Andrea Jónsdóttir, f. 23. apríl 1972, eiginmaður hennar er Philip Gavern, f. 6. apríl 1961 og er dóttir þeirra Andrea Elizabeth, f. 2. mars 1999, b) Bjarni Jónsson, f. 8. sept- ember 1976, kona hans er Þórlaug Einarsdóttir, f. 10. júlí 1975, og eru synir þeirra Eiður Snorri, f. 14. mars 2003, og Konráð, f. 15. mars 2006, 3) Kristinn, f. 26. janúar 1957, eig- inkona hans er Kolbrún Eysteins- dóttir, f. 25. júní 1960, börn þeirra eru Arnar Már, f. 19. maí 1977, Eyþór Ingi, f. 1. apríl 1985, og Brynjar 11. september 1990. 4) Sigurður, f. 16. ágúst 1959, sonur hans er Jóhann Birnir, f. 11. júní 1991. 5) Bjarni, f. 24. júlí 1964, eiginkona hans er Ásdís Axelsdóttir, f. 31. maí 1964, börn þeirra eru Aron, f. 9. febrúar 1990, og Margrét, f. 2. mars 1991. 3) Pálmi Ólafur, f. 20. febrúar 1998. Útför Hólmfríðar fer fram frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Tengdamóðir mín, Hólmfríður Pálmadóttir, var sonardóttir Sveins Gunnarssonar, bónda á Mælifellsá. Sveinn gat sér frægð fyrir bók, sem Sigurður Nordal prófessor lýsir svo í höfuðriti sínu, Íslenzkri menningu: „Eg hef alltaf dáðst að gömlum Skagfirðingi, sem tók saman ævi- sögu sína og kallaði hana Verald- arsögu Sveins á Mælifellsá.“ Ver- aldarsaga Sveins var saga hans sjálfs. Hann brá búi um miðjan ald- ur og fór víða, gerðist kaupmaður á Sauðárkróki, fór síðan til Reykja- víkur og rak um tíma verzlun í turninum, sem stóð lengi á Arn- arhóli og Lækjartorgi og stendur nú við Reykjavíkurtjörn. Sveinn hafði búðina á neðri hæðinni og bjó uppi. Pálmi Sveinsson, faðir Hólmfríð- ar, var bóndi á Reykjavöllum í Skagafirði, barngóður, glaðvær og söngvinn svo sem algengt er um Skagfirðinga. Guðrún Valberg, móðir Hólmfríðar, var mikil bú- sýslukona, tamdi hrossin, ræktaði jurtir og hafði myndarlegan blóma- skrúðgarð við bæinn. Þeim Pálma og Guðrúnu varð sex barna auðið, eitt þeirra dó kornungt, hin fimm komust á legg. Af þeim er kominn álitlegur kynbogi. Hólmfríður flutti til Reykjavíkur strax eftir stríð og gerðist engu minni Reykvíkingur en Skagfirðing- ur. Hún gekk að eiga Bjarna Kr. Ólafsson rafvirkjameistara. Þau bjuggu fyrstu tíu hjúskaparár sín í einu herbergi hjá foreldrum Bjarna í verkamannabústöðunum við Hringbraut, eignuðust þrjú börn þar og önnur tvö, eftir að þau stofn- uðu heimili 1957 á Tómasarhaga 19. Þar bjuggu þau til æviloka í fals- lausri sátt og samlyndi, sem aldrei bar skugga á. Aldrei bar heldur skugga á sambúð Hólmfríðar og tengdaforeldra hennar. Þegar Bjarni og Hólmfríður fluttu á Tóm- asarhagann fylgdu gömlu hjónin þeim. Bjarni lærði söng hjá Franz Mixa, þekktum tónlistarkennara, hann hafði bjarta tenórrödd, sem þótti bera keim af Benjamino Gigli eða Tito Schipa. Hugur Bjarna stóð þó ekki til mikils frama á listabraut- inni því að hann var hóglátur að upplagi. Hann lék Ketil skræk á móti Erlendi Ó. Péturssyni í hlut- verki Skugga-Sveins í rómaðri upp- færslu í Bárunni. Þegar ég spilaði fyrsta kaflann í fimmtu sinfóníu Beethovens fyrir fjögurra ára gamlan sonarson minn, varð honum á orði: „Mikið skolli er þetta nú annars gott hjá honum Beethoveni.“ Þágufallshreystina sækir hann til Hólmfríðar, lang- ömmu sinnar, og rímgleðina. Hann lítur á málið sem leikfang líkt og Hólmfríður gerði. Gamalt og gott sveitamál og skáldskapur léku á vörum hennar. Og hún gekk glöð til allra verka og hallaði aldrei orði á nokkurn mann. Hún vaknaði á und- an öllum öðrum og gekk síðust til náða, sagðist hafa nægan tíma til svefns, þegar þar að kæmi. Hún hafði lært saum hjá Dýrleifu Ár- mann, þekktri saumakonu í Reykja- vík, og saumaði alla ævina fín föt handa fjölda fólks úr öllum áttum og einnig handa fyrirtækjum. Hún var léttlynd eins og faðir hennar, skipti aldrei skapi, elskaði ys og þys og hafði yndi af góðum félagsskap. Bjarna bónda sinn missti hún 1986, en hún naut áfram samvista við elzta soninn Pálma í foreldrahúsum. Hennar er sárt saknað. Þorvaldur Gylfason. Það er með söknuði og vænt- umþykju sem við kveðjum ömmu okkar í dag. Hún var einstök, hvort sem það var að baka pönnukökur fyrir hálft hverfið, laga saumsprett- ur, sauma kjóla eða jafnvel heilu jakkafötin. Amma hafði ótrúlega hæfileika hvað varðar saumaskap og hönnun og hefði hún verið ung í dag erum við viss um að hún hefði verið ein af fremstu hönnuðum þessa lands. Ekkert var svo flókið að amma gæti ekki „reddað“ því, og það fyrir kvöldið. Margar okkar bestu bernsku- og uppvaxtarminningar eru frá Tóm- asarhaganum, þar sem við lærðum svo ótalmargt um lífið, þar á meðal kærleika, hlýju og umburðarlyndi gagnvart öðrum. Lífið verður ekki eins án ömmu, en minningarnar gleymast aldrei. Blessuð sé minning þín. Jóhanna Andrea og Bjarni. Það er okkur systkinunum frá Stöðinni á Sauðárkróki kært að minnast Hólmfríðar, frænku okkar, sem lést á áttugasta og fimmta ald- ursári. Hún var móðursystir okkar og reyndist okkur eins og önnur móðir og traustur vinur. Hólmfríður var ein af Reykja- vallasystkinunum, næstelst barna þeirra hjóna Pálma og Guðrúnar. Elst var móðir okkar, Herdís, sem lést 2002. Þær systur voru mjög nánar og svo líkar að þær minntu sterkt hvor á aðra. Þær tóku meira að segja upp á því að eignast börn á sömu árum og af sama kyni, eign- uðust syni 1948, dætur 1951, syni 1957 og þá eignaðist líka þriðja systirin, Rósa, sinn einkason, svo fæddust yngstu synirnir 1964. Börnin urðu reyndar fleiri hjá þeim systrum öllum en þetta sýnir reglu- festuna. Þær systur eignuðust tvo bræður, Pétur og Svein. Hólmfríður minntist oft æskuáranna í Skaga- firði með mikilli gleði og naut þess að segja frá búskapnum, dýrum, verklagi og samferðafólki. Hún var minnug og alltaf stutt í hnyttin orð. Reykjavellir voru mikill gleðistaður, þar var mjög gestkvæmt, sungið, ort og kveðnar stemmur. Þau systk- in eignuðust vænt veganesti í góð- um foreldragarði. Hólmfríður hvarf úr Skagafirð- inum í faðm Bjarna síns á blóma- skeiði lífsins. Þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík, fyrst á Hring- braut og svo á Tómasarhaga 19. Bjarni lést 1985. Heimsóknir okkar suður voru ófáar og þau Hólmfríður komu reglulega norður þegar börnin voru yngri. Við systrabörnin nutum þess að hittast og kynnast upp á nýtt með jöfnu millibili. Þá var nú fjör um tún og stéttar. Það var unun að sitja hjá Hólm- fríði frænku á Tómasarhaganum og spjalla yfir góðgerðum sem hún snaraði svo fumlaust fram. Við átt- um öll okkar gleðistundir þar og viljum við þakka einlæglega fyrir þær að leiðarlokum. Hólmfríður rak sitt heimili af út- sjónarsemi, hún var snör á fæti, gekk að öllu af sérstökum dugnaði, var glaðsinna og hafði styrkjandi viðmót. Samt var hún alltaf svo hógvær, stundum um of þegar hún fékk verðskuldað lof. Þá gaf hún gjarnan út lofsamlegar yfirlýsingar um þann sem reyndi að lofa hana. En Hólmfríður átti stóran hóp sér- stakra aðdáenda, það voru þeir sem hún saumaði föt á. Það var hennar yndi að sauma og vinna í höndum. Það voru ekki bara hversdagsföt, heldur líka dýrindis kjólar, dragtir og dress sem töfruðust fram undan nálinni. Hún vann alltaf hratt, virt- ist aldrei hafa neitt fyrir því að taka mál, sníða, breyta sniðum, láta allt passa og ganga þannig frá að mað- ur trúði varla að þetta væri heima- gert. Og alltaf hógvær. Hún sýndi öllum umhyggju, hafði þann elsku- lega sið að eiga í leyndum hornum nokkra smáhluti sem hún gaukaði að litla fólkinu sínu. Hún fylgdist vel með fjölskyldunni sinni og einn- ig okkur fyrir norðan, þangað leit- aði hugurinn og undir það síðasta, þegar hún vissi að heilsan var að bila, sagðist hún vera á leiðinni norður. Við systkinin og fjölskyldur send- um ástvinum Hólmfríðar frænku einlægar samúðarkveðjur og þökk- um henni samfylgdina. Nú skín hennar sól við Skagafirði. Ragnar, Rósa, Pálmi, Ingvar, Þórunn, Björn, Sigrún og Daníel. Mig langar til að minnast í örfá- um orðum góðrar frænku. Alla mína tíð hefur Hólmfríður frænka búið á Tómasarhaganum. Þegar ég var strákur og kom suður til Reykjavíkur þá var alltaf mikil eftirvænting að koma til Hólmfríð- ar. Það var á Tómasarhaganum sem ég sá í fyrsta skipti sjónvarp. Þegar ég svo sem sautján ára ungur mað- ur ákvað að freista gæfunnar í höf- uðborginni voru það Hólmfríður og maðurinn hennar Bjarni sem tóku á móti stráknum og leyfðu honum að búa hjá sér á meðan hann var að læra að fóta sig í borginni. Það var mjög gott að búa þar og voru Hólm- fríður og Bjarni eins og önnur afi og amma. Eftir að ég svo flutti þá var mér samt alltaf boðið í sunnu- dagssteikina og var það fastur liður allt þar til ég var búinn að stofna mína eigin fjölskyldu. Hin seinni ár hef ég reglulega heimsótt hana frænku mína á Tómasarhagann og alltaf var tekið svo vel á móti mér og minni fjölskyldu, með kaffi og kökum. Ég mun alltaf minnast Hólmfríð- ar frænku með hlýju í hjarta og þakka henni fyrir þann kærleika sem hún hefur sýnt mér. Að lokum vil ég votta samúð mína þeim Pálma, Önnu, Kidda, Sigga, Badda og fjölskyldum þeirra. Snævar Ívarsson og fjölskylda. Hólmfríður Pálmadóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐLAUG INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR frá Kleppjárnsstöðum í Hróarstungu, sem lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 8. febrúar verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 11.00. Jarðsungið verður í Kirkjubæjarkirkjugarði. Birgir Þorsteinn Ágústsson, María Blöndal, Björn Ágústsson, Kristín Aðalsteinsdóttir, Guðríður Ágústsdóttir, Friðrik Aðalbergsson, Sigurður Ágústsson, Guðrún Hjaltadóttir. barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, GUNNAR INGI INGIMUNDARSON, Faxabraut 31 b, Keflavík, lést á Líknardeild Landsspítalans sunnudaginn 10. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 19. febrúar kl: 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast Gunnars er bent á styrktarreikning í Sparisjóði Keflavíkur. 1109-05-412412 kt. 030268-5129. Linda Gústafsdóttir, Sara María Gunnarsdóttir, Egill Ragnar Brynjarsson, Guðjón Ingi Gunnarsson, Unnur Ágústa Gunnarsdóttir, Sverrir Svanhólm Gunnarsson, Ragna Kristín Árnadóttir, Unnur Guðjónsdóttir, Sverrir Jónsson, Gústaf Adólf Ólafsson, systkini og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, JÓHANNA BRYNJÓLFSDÓTTIR WATHNE, lést á Landspítalanum Landakoti laugardaginn 2. febrúar. Útför hennar hefur farið fram. Berglind Wathne, Örn Viggóson, Margrét Ósk Arnarsdóttir, Jóhanna Arnarsdóttir, Örn Viggóson, yngri, Birna Brynjólfsdóttir. ✝ Ástkær bróðir minn, JÓHANNES MARINÓ ÓLAFSSON frá Reykjarfirði, lést á sjúkrahúsinu á Patreksfirði fimmtudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Elín Ólafsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, amma, tengdamóðir og langamma, ELÍSABET JÓHANNSDÓTTIR hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, áður til heimilis að Móaflöt 4, Garðabæ, lést föstudaginn 1. febrúar. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigrún Arnarsdóttir, Jóhann Þór Arnarsson, Elísabet Hovland, Ingi Þór Harðarson, Arnar Þór Jóhannsson, Hilmar Þór Jóhannsson, Lárus Þór Jóhannsson, tengdabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.