Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 28

Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÓSK ÁGÚSTSDÓTTIR frá Reykjum í Hrútafirði, andaðist á Sjúkrahúsinu Hvammstanga föstu- daginn 8. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 14.00. Jarðsett verður í Staðarkirkjugarði. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahúsið á Hvammstanga. Guðrún Einarsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Þóra Jóna Einarsdóttir, Karl Emil Ólafsson, Helga Einarsdóttir, Ásbjörn Björnsson, Jóhanna G. Einarsdóttir, Halldór Ari Brynjólfsson, Þórhildur Rut Einarsdóttir, Hallgrímur Bogason, Hulda Einarsdóttir, Ólafur H. Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og sambýlismaður, HARALDUR GUÐMUNDSSON skipstjóri, Grundarbraut 5, Ólafsvík, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 16. febrúar kl. 14.00. Sætaferðir verða frá umferðarmiðstöðinni (BSÍ) kl. 10:30. Fyrir hönd aðstandenda, Pétur Haraldsson. ✝ Eiginmaður minn, HJÁLMAR S. HJÁLMARSSON frá Bjargi, Bakkafirði, lést 3. febrúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju, Kópavogi, föstudaginn 15. febrúar kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigríður Laufey Einarsdóttir. ✝ GuðmundurÞorgeirsson fæddist á Lamb- astöðum í Garði 3. mars 1921. Hann lést á Landspít- alnum 6. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Þorgeir Magnússon, útvegs- bóndi á Lamb- astöðum í Garði, f. 17. nóvember 1875, d. 9. september 1956 og Helga Jón- ína Þorsteinsdóttir, f. 21. nóv- ember 1891, d. 9. desember 1957. Þeim hjónum varð 12 barna auðið og var Guðmundur 5. í aldursröð- inni. Systkinin eru: Helga Stein- unn, f. 27. mars 1911, d. 5. sept- ember 1975, Þorsteinn, f. 4. desember 1913, d. 6. mars 2001, Magnea Rannveig, f. 10. nóv- hèt Kári og átti Sveinbjörn í Kot- húsum í Garði þann bát, tvö sum- ur var Guðmundur á mb Ægir frá Gerðum og mb Muninn frá Sand- gerði og þar næst var hann á mb Björninn frá Keflavík sem Ragnar Björnsson var skipstjóri á og átti ásamt öðrum. Guðmundi líkað matreiðslan svo vel að nú var kominn tími til að fara í skóla. Guðmundur lærði matreiðslu hjá Margréti og Steinunni Valdimars- dætrum, systrum sem ráku hótel Skjaldbreið til margra ára og seinna sáu um kaffi fyrir alþing- ismenn í Alþingishúsinu. Mestan hluta ævinnar var Guðmundur matsveinn og bryti hjá Eimskipa- félagi Íslands, í samtals 43 ár. Hann hóf störf hjá Eimskipafèlag- inu 1. janúar 1944 sem búrmaður á ms Brúarfossi. Hann var í áhöfn sem sótti Tröllafoss til San Franscisco hinn 28. janúar 1948, seinna var hann á Gullfossi og Goðafossi en lengst var Guð- mundur á Selfossi eða 22 ár. Útför Guðmundar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Útskála- kirkjugarði. ember 1916, Guðrún, f. 28. júní 1918, d. 15. janúar 1997, Guð- mundur, sem hér er minnst, Símon, f. 3. mars 1922, d. 22. apríl 1983, Gróa Sig- ríður, f. 13. sept- ember 1923, d. 14. júlí 2004, Þorgeir, f. 6. janúar 1925, d. 30. mars 1970, Rann- veig, f. 9. mai 1926, Guðmunda Krist- björg, f. 11. sept- ember 1929, Val- gerður, f. 20. janúar 1931, og Einar, f. 14. desember 1934, d. 6.april 1986. Sambýliskona Guðmundar var Alda Kristjánsdóttir. Guðmundur fékk snemma áhuga á eldamennsku og innan við tvítugt var hann orðinn kokk- ur á fiskibátum. Fyrsti báturinn Guðmundur Þorgeirsson mat- sveinn lést 6. febrúar á áttugasta og sjöunda aldursári. Okkur hjónin lang- ar að minnast Guðmundar með fáein- um fátæklegum orðum. Guðmundur lærði matreiðslu hjá systrum sem höfðu lært í Danmörku, hétu Steinunn og Margrét Valdi- marsdætur frá Eskifirði sem ráku Hótel Skjaldbreið og um leið mat- reiðsluskóla sem þótti mjög góður. Guðmundur greiddi 50 krónur mán- aðarlega fyrir námið. Lokaprófið var svo tekið á Hótel Valhöll á Þingvöll- um. Guðmundur hóf svo störf hjá Eimskipafélagi Íslands 1. janúar 1944, og starfaði til ársins 1987 eða í 43 ár samfleytt. Lengst var Guð- mundur á ms Selfoss eða í rúm 22 ár. Magnea systir hans var einnig þerna á Selfoss um sama leyti í nokkur ár. Í janúar 1988 fór Guðmundur í hjarta- aðgerð sem gerð var á Brompton sjúkrahúsinu í London, sem tókst mjög vel og lifði í rúm 20 ár eftir þá aðgerð, og naut lífsins með sambýlis- konu sinni Öldu Kristjánsdóttur. Ég kynntist Guðmundi er ég var að gera hosur mínar grænar fyrir Helgu systurdóttur hans. Mér var vel tekið af honum og af allri fjölskyldunni sem enn bjó á Lambastöðum en þar voru fyrir utan Guðmund, Rannveig sem seinna varð tengdamóðir mín og Axel G. Jónsson, sambýlismaður hennar, bræðurnir Þorsteinn og Einar, og Lessi bróðir Helgu var þá að vaxa úr grasi. Guðmundur var fæddur blind- ur á öðru auga, það virðist ekki hafa háð honum að neinu leyti, heldur hitt, hann keyrði bíl alveg fram á það síð- asta 86 ára gamall, og sá stundum það sem við hin sáum ekki en mér fannst stundum eins og hann væri skyggn. Á þessum tíma var enn mjólkurbú á Lambastöðum með fáeinum kúm, og mjólk á brúsum send daglega til Reykjavíkur. Guðmundur var í sigl- ingum eins og sagt var og í burtu í 2-3 vikur en við heimkomu voru ávallt fagnaðarfundir, matarveislur sem hann hafði lítið fyrir að framkvæma og oft var margt um manninn á Lambastöðum. Þeir bræður voru mjög samhentir og samrýndir í öllu sem þurfti að gera og framkvæma. Til marks um snyrtimennsku fengu þeir viðurkenningu Gerðarhrepps 1983 fyrir snyrtimennsku á jörðinni, þetta var eftir að Lambastaðahúsið var klætt að utan, bílskúrar, fjósið og hlaðan máluð og garðurinn kringum húsin lagfærður. Eftir að Rannveig og Axel fluttu til Keflavíkur þá héldu bræðurnir þrír og Lessi búsetu en mjólkurbúskap- urinn lagðist niður. Þorsteinn og Ein- ar verkuðu fisk sem aukabúgrein, reru til fiskjar þegar frí var frá vinnu og verkuðu þeir saltfisk sem var sól- þurkaður og lostæti einsog það gerist best. Einar lést um aldur fram eða 6. apríl 1986, 52 ára gamall. Þorsteinn lést 6. mars 2001, 88 ára gamall. Til eru heimildarmyndir á minjasafninu í Garði frá þessum tímum. Guðmundur kom nokkrum sinnum til okkar í Lúxemborg, ferðaðist um landið og til nærliggjandi landa og naut þess. Matur og matargerð var hans hjartans mál, allt lék í höndun- um á honum, hvort sem hann var með lambasmásteik eða að laga fiskiboll- ur, búa til kæfu eða rúllupylsu, allt varð þetta lostæti. Matargerð var hans hjartans mál. Við fjölskyldan frá Lúxemborg nutum gestristni þeirra bræðra er við komum í sumarfrí til Íslands, höfðum neðri hæðina á Lambastöðum fyrir okkur og er þakklæti okkur efst í huga, sem seint gleymist. Guðmundur er farinn í sína síðustu siglingu á vit feðranna. Við vottum Öldu Kristjánsdóttur, systkinum hans og ættingjum samúð okkar, minning um góðan dreng mun lifa. Hvíl í friði. Helga og Agnar Sigurvinsson. Nú er komið að kveðjustund og viljum við minnast vinar okkar og frænda með nokkrum orðum. Guð- mundur, sem við kölluðum alltaf Gvend, var góður vinur og reyndist okkur alltaf vel. Um hugann fara ljúf- ar minningar um liðnar stundir sem við áttum saman á Lambastöðum, alltaf var gott að koma þangað og var gestrisnin í hávegum höfð. Gvendur var mikill kokkur og hafði einstak- lega gaman af að gefa fólki að borða alls konar góðgæti og fór enginn það- an án þess að fá veitingar hjá honum. Við hjónin byrjuðum okkar búskap á neðri hæðinni á Lambastöðum og vildi hann allt fyrir okkur gera svo við gætum látið okkur líða vel, þar bjuggum við í 4 ár. Alltaf var mikill gestagangur og mikið um að vera og minnist ég þess þegar var farið á sjó á trillunni hans Steina, þótti öllum gaman að fara með, og mikill var spenningurinn þegar trillan sást koma í land, þá var farið niður að sjó og allir tóku þátt í aðgerð, bæði konur og karlar. Svo eru mér minnisstæðar helgarnar þegar öll fjölskyldan kom til að taka upp kartöflur og hver ham- aðist í kapp við annan því allt voru þetta dugnaðarforkar og var Gvend- ur þar fremstur í flokki og stjórnaði þessu með mikilli prýði, síðan áttu allir notalega stund þar því alltaf var nóg pláss og allir nutu helgarinnar saman. Gvendur var mikið snyrtimenni og vildi alltaf hafa allt hreint og fínt í kringum sig. Hann hugsaði vel um Lambastaði og var þar mikill sómi að. Seinni árin vorum við tíðir gestir þar og reyndist hann börnum okkar alltaf sem hann væri afi þeirra. Við þökk- um honum allar góðar stundir og megi góður Guð varðveita minningu hans. Walter Leslie og Esther. Elsku Guðmundur, okkur langar að þakka þær góðu stundir er við átt- um með þér og þá sérstaklega hve gaman var að fá ykkur Öldu í heim- sókn til okkar. Það var svo gott að heyra er þú sagðir okkur að það væri svo góður andi á heimilinu okkar og að þér liði svo vel að koma til okkar. Mikið þótti okkur vænt um það. Og þær góðu stundir er við áttum hjá þér að Lambastöðum er þú færðir okkur heimsins bestu kjötsúpu og ýmsar góðar kræsingar á þínu fallega heim- ili. Þú varst alltaf svo ötull og ósér- hlífinn … já, elsku Alda okkar finnur hve tómlegt allt er án þín. Þið voruð svo náin og góðir vinir. Megi Guð gefa henni styrk og stoð, því mikið hefur hún misst. En elsku Guðmund- ur, við vitum að nú ert þú vel geymd- ur og englarnir búnir að taka við þinni góðu, ljúfu sál. Hvíl mig rótt, það hallar degi, hvíl mig ljúfa þögla nótt. Vef mig þínum vinarörmum. Vagga mér í draumi rótt. Hvíldu mig er höfði þreyttur, hinsta sinn ég drúpi rótt. Ber mig þá til bjartra sala, blíða kyrra stirnda nótt. (B.Þ. Gröndal.) Elín Jóhanna, Sverrir og Arnar Orri. Guðmundur Þorgeirsson Er ég frétti lát Ólaf- ar var mér brugðið. Lóló eins og hún var ætíð kölluð vann stærstan hluta starfsævi sinnar hjá Stjórnarráðinu. Saman unnum við hjá menntamála- ráðuneytinu í fjölda ára. Þó nær tveir áratugir væru á milli okkar í aldri var Lóló alltaf síung, hún féll vel inn í hópinn, Ólöf Þórarinsdóttir ✝ Ólöf Þórarins-dóttir fæddist í Reykjavík 20. mars 1933. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. febr- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá kirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík 8. febr- úar. alltaf glöð og hress, Lóló var yndisleg manneskja. Lóló hugs- aði vel um fjölskyld- una sína, samband hennar og Haddó eig- inmanns hennar var bæði traust og fallegt. Elsku Lóló, ég kveð þig með söknuði. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náð- arkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Guð gefi ástvinum þínum styrk. Kveðja, þín samstarfskona Soffía Árnadóttir. Elsku Erla okkar er látin. Eftir sitjum við þrjár með sorg í hjarta. Vinátta okkar öll þessi ár var alveg sérstök, 15 ára gamlar stofnum við saumaklúbb en hann leystist upp þegar við giftum okkur og stofnuð- um heimili. Fyrir rúmum 45 árum stofnuðum við svo aftur saumaklúbb sem við kölluðum fimmurnar og átti Erla okkar hugmyndina að við kom- um svo saman aftur og hittumst hálfsmánaðarlega með handavinnu. Mikið var skrafað og hlegið, fylgst með fjölskyldum okkar bæði í gleði og sorg. Hverju nýju ömmubarni og langömmubarni var fagnað. Við greiddum í sjóð fyrir fimmurnar sem við notuðum í ferðalög innanlands og erlendis og ríkti mikil gleði og sam- heldni hjá okkur í ferðum okkar. Erla Sigurjónsdóttir ✝ Erla Sigurjóns-dóttir fæddist á Þingeyri við Dýra- fjörð 16. maí 1928. Hún lést á Landspít- alanum 10. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Laugarnes- kirkju 22. janúar. Erla var hugmyndarík og traust vinkona og gott að hafa hana í ferðum okkar, því hún var svo skipulögð og fékk svo góðar hug- myndir. En síðustu árin höf- um við hist á kaffihúsi og alltaf fórum við glaðar og endurnærð- ar af þeim fundum. Það eru aðeins tveir og hálfur mánuður síðan við misstum Boggu vinkonu okkar en hún lést 23. október síðastliðinn. Við trúum því að þær Erla og Bogga séu með okkur þegar við kom- um saman, því að nú erum við aðeins eftir þrjár. Við eigum yndislegar minningar um okkar ástkæru vin- konu sem er okkur dýrmætur sjóður. Erla var yndisleg kona og okkar síð- ustu samverustundir voru þegar við komum saman á jólahlaðborði á Loftleiðum 6. desember síðastliðinn. Guð styrki Egil okkar, Ásdísi, Hrefnu, Dagnýju og fjölskyldur þeirra. Guð blessi minningu Erlu okkar. Fjóla, Sigurbjörg og Henný (Saumaklúbburinn.) Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.