Morgunblaðið - 14.02.2008, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
Lr- kúrinn er tær snilld
Viltu vita hvernig ég léttist um 22 kg
á aðeins 6 mánuðum? Aukin orka,
vellíðan og betri svefn.
www.dietkur.is - Dóra, 869 2024.
Lr-kúrinn er fyrir allar konur og
karla. Langar þig að vita hvernig ég
léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuð-
um? www.dietkur.is - Dóra 869 2024.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu
Björt og falleg 2 herbergja íbúð til
leigu í Njarðvík. Verð 75 þús. Íbúðin
er laus strax. Upplýsingar gefur
Berglind í síma 868 8376.
2 herb. íbúð með e. án húsgagna
120.000. 68 fm íbúð á Skeljagranda.
Forstofa, bað og eldhús með dúk á
gólfum. Stofa og hol nýmálað og með
parketi. Sérinngangur á jarðhæð, sér
lítill garður og bílskýli. Laus 29. febr.
Upplýsingar í síma 845 9747 eða
kollasolla@yahoo.com
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Vefinn í verklagið:
Spennandi námskeið
"Láttu netið vinna fyrir þig" 21. feb.
fyrir fagfólk á ýmsum sviðum,
háskólanema o.fl.
"Konur - með á nótunum" 28. feb.
Nánari uppl. á á www.infopro.is.
Microsoft-kerfisstjóranám
MCSA-kerfisstjóranámið hefst 25.
febr. Nýr Windows Vista áfangi.
Nokkur sæti enn laus. Upplýsingar á
www.raf.is og í síma 863 2186 (Jón).
Rafiðnaðarskólinn.
Til sölu
Stórir skór.is hætta
50-70% afsláttur af öllum dömuskóm
í stærðum 42-44 og herraskóm í
stærðum 47-50.
Opið í dag kl. 16-18.30.
Síðasti dagur á föstudag.
Ásta skósali,
Súðarvogi 7,
sími 553 60 60.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
580 7820
Bæklinga-
Prentun
BOÐSKORT
tækifæri
Við öll
580 7820
Vefhýsing og heimasíðugerð
Svissnesk gæði á ótrúlegu verði.
50GB á 115 evrur. Við erum að tala
um ársverð .... lestu meira hér á
netsíðu: www.icedesign.ch
Sandblásnar filmur í
alla glugga!
Kíktu á: www.kortaland.is
Mjög flottur og alveg nýr í BC
skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr.
1.250,-
Saumlaus í BC skálum á kr. 2.350,-
buxur í stíl á kr 1.250,-
Nýr litur í CD skálum á kr. 2.350,-
buxur í stíl á kr. 1.250,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Febrúartilboð Lín design
Fífan með 15% afslætti
Sængurver+ koddaver, íslensk
hönnun, áður 6.020 nú 5.120.
Íslensku dýrin með 15% afslætti
Sængurver 100x140 + koddaver
35x50 áður 5.650 nú 4.802
Rúmteppi 100x160 áður 7.200 nú
6.120
Gæða sængurfatnaður með 15%
afslætti.
Hvít sængurver + koddaver, 300
þráða bómull áður 5.440. Nú kr. 4.624
Lín Design – einstakt heimili
Laugavegi 176, gamla
sjónvarpshúsið.
Sími 533 2220,
www.lindesign.is
Bílar
Yaris, árg. '05, EKKERT ÚT
Yaris´05, ekinn 67 þús., beinsk., 5
dyra, nýskoðaður ´09, ný nagladekk,
óslitin sumardekk. Ekkert út, Yfirtaka
á láni 980 þús. 19 þús. á mán. Uppl. í
síma 865 0713.
Til sölu ´91 Honda Civic GL
Ekinn 217.000 km., beinskiptur. wide
body kit, 15" álfelgur, sport-
fjöðrun o.fl. aukahlutir fylgja.
Björn s: 876 0102.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Smáauglýsingar • augl@mbl.is
Miskunnarlaus var
meinvaldurinn sem
lagði Erling að velli á
svo dapurlega skömm-
um tíma, þennan ann-
ars hressa og lífsglaða mann og ekki
annað að gera nú en kveðja og þakka.
Við leiðarlok bregður fyrir leiftrum
frá löngu liðinni tíð. Í gegnum móðu
áranna mörgu koma þær fram úr
hugarfylgsnum ein af annarri og
verða huganum kærar á kveðjustund.
Tveir unglingar, nær jafnaldra á
sundnámskeiði á Eiðum, þeim leiðist
sundiðkunin, þá langar heim, labba
löngum stundum fram og til baka á
þjóðveginum, skrafa margt og skegg-
ræða. Hafa áður gengið í skólann
heima, ekki kynnst mikið, sveita-
drengurinn löngum út af fyrir sig, sit-
ur aftarlega í bekknum, þorpsdreng-
urinn Erlingur situr einna fremst.
Sveitadrengnum líður einkar vel í ná-
vist Erlings í gönguferðunum, við-
mótið hlýtt með kankvíslegri kímni og
það hvernig hann sér hinar spaugi-
legu hliðar mannlífsins, glettnislegar
sögurnar hans, þetta lífgar upp á
þessa sunddaga og gefur þeim lit og
líf í minningunni. Kynnin síðan ekki
mikil, enda skiljast leiðir þeirra eins
og gengur. Svo eignast báðir lífsföru-
nauta og þá eru eiginkonurnar skóla-
systur frá Varmalandi, herbergis-
félagar þar og miklar og traustar
vinkonur. Halda góðu sambandi, nú
til fleiri ára í samheldnum sauma-
klúbb. Kynni takast á ný og söm er
hlýjan í viðmótinu og glettnin góð til
Erlingur Sigurðsson
✝ Erlingur Sig-urðsson fæddist
að Brautarholti á
Reyðarfirði 15. júlí
1933. Hann lést í
Reykjavík 29. des-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fossvogs-
kapellu 7. janúar.
staðar. Síðast vorum
við í dagsferð með
þeim hjónum í septem-
ber þegar ekkert sýni-
legt virtist vera að, þá
spjallað enn á ný um
gamla daga, góð kynni.
Aðrir munu ævigöng-
una hans Erlings
rekja, en Erlingur átti
farsæla ævitíð, völund-
ur í höndunum, sívinn-
andi, sífellt skapandi
listaverk í högum
höndum með hug-
myndaauðgi að baki,
mikill fjölskyldumaður, enda þau hjón
samheldin með afbrigðum, gegnheill
og góður drengur í hvívetna.
Við Hanna sendum Vilborgu, en
hennar er missirinn mestur, innileg-
ustu samúðarkveðjur, svo og börnum
hans og fjölskyldum.
Blessuð sé hin hugþekka minning
Erlings Sigurðarsonar.
Helgi Seljan.
Það verður óneitanlega svipminni
og litlausari hópur sem fer undir
merkjum Garðabakka í ferðalög inn-
anlands sem utan á næstu árum, þeg-
ar Erling hennar Vilborgar vantar í
hópinn. Þau ágætu hjón hafa ferðast
með okkur síðustu 20 árin. Það eru
sennilega fáir sem hafa sýnt hópnum
jafnmikla tryggð. Árlega fóru þau
með okkur í einhverjar ferðir, og þá
helst í stóru ferðirnar til fjarlægra
heimshluta.
Erlingur var hár maður vexti og
spengilegur. Á seinni árum var hann
enn myndarmaður. Eftir að hár hans
tók að grána og hann fór að safna
gráu yfirvararskeggi hafði hann virki-
legt yfirbragð heldrimanna. Konurn-
ar í hópnum töluðu oft um skeggið
hans gráa. Þær fengu aldrei leiða á að
ljósmynda hann, frá öllum hliðum og
mismikið klæddan, sumar myndanna
eru listavel gerðar. Hann var kjörin
fyrirsæta hjá kvenþjóðinni í hópnum.
Erlingur var jafnan hæglátur og
rólegur í fasi, en þó gat stundum fokið
í hann svo eftir var tekið. En allt slíkt
var jafnharðan úr sögunni. Þegar vel
lá á honum ljómaði hann allur og
leyndi ekki tilfinningum sínum. Þegar
heyrn hans tók að dofna, eftir vé-
lagnýinn hjá Gamla kompaníinu
gegnum áratuga starf, þá átti hann
erfiðara með að fylgjast með glaumi
og glensi félaganna, en féll samt
ágætlega inn í hópinn. Í þrengri hópi
gat hann haldið uppi samræðum á
skemmtilegan hátt og sagt sögur og
skrítlur. Í utanlandsferðum okkar
kom oft vel fram að hann hafði lesið
sér eitthvað til fyrir ferðina. Í göngu-
ferðum okkar um götur og garða og
ekki síður í söfnum ýmiss konar og
gömlum byggingum var það helst tré-
verk og smíðagripir sem hann vildi
skoða rækilega. Og alltaf hafði hann
eitthvað áhugavert að segja okkur um
handverkið sem átti hug hans allan.
Oft lét hann í ljós mikla aðdáun á hlut-
um sem við ella hefðum varla tekið
eftir. Margir í hópunum hafa þegið af
honum smágjafir sem hann hafði
dundað sér við að tálga og skera út í
skammdeginu hér heima, helst bréfa-
hníf og pennastæði, sem við lítum á
sem tryggðapant jafnt sem dýrgrip.
Þau ágætishjón, Erlingur og Vil-
borg, voru jafnan reiðubúin að taka
þátt í undirbúningi fyrir ferðirnar
okkar og skemmtanir og töldu ekkert
eftir sér. Þau hafa sennilega verið
virkustu félagarnir í þeim stóra hópi
dugmikilla félaga. Fáir hafa sýnt okk-
ur svo mikinn trúnað og traust sem
Erlingur heitinn. Því eigum við þeim
hjónum báðum mikið að þakka. Þau
eignuðust stóran vinahóp innan fé-
lagsskaparins, sem sakna mun Er-
lings mikið. Og Vilborg mun áfram
falla vel inn í hópinn þótt Erlingur
verði ekki með nema í andanum.
Það er alltaf mikill missir í hverjum
félagsskap þegar þungavigtarmenn
heltast úr lestinni. Þá myndast stórt
skarð fyrir skildi.
Ferðafélagar í Garðabakka.
Elsku afi minn, ég
skrifa þennan pistil til
að minnast þín þar
sem ég gat ekki komið að kveðja þig í
Dómkirkjunni. En ég hugsaði til þín
og var með ykkur í anda.
Nú þegar þú ert farinn stendur
það helst upp úr hvað þú ert alltaf
nálægur og ljóslifandi í mínum huga.
Líf þitt var mér innblástur til að lifa
lífinu samkvæmt eigin sannfæringu
og láta ekkert rugla hjá mér áttavit-
ann. Heimilið ykkar ömmu var alltaf,
og heldur áfram að vera, friðsæl höfn
sem ég gat leitað í til að endurnýja
kraftana og eiga góðar stundir. Sem
lítil stelpa kom ég til ykkar á Ak-
ureyri í sumarfríunum. Ég man eftir
lyktinni af gróðrinum sem þú rækt-
aðir í garðinum og ferðunum út í
Úlfur Ragnarsson
✝ Úlfur Ragn-arsson læknir
fæddist í Reykjavík
29. september 1923.
Hann andaðist á
Landspítalanum í
Fossvogi 10. janúar
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í
Reykjavík 18. jan-
úar.
náttúruna í kringum
bæinn. Þá varst þú
alltaf einhvers staðar
álengdar með vatnslit-
ina þína. Fullorðin
kom ég til ykkar
ömmu og við spjölluð-
um saman yfir tebolla
um sameiginlegt
áhugamál okkar, sál-
ina. Ég var ung og hélt
að ég vissi allt – þú
alltaf jafnþolinmóður
við hrokafullan byrj-
andann. Smátt og
smátt gaukaðir þú að
mér visku þinni í gegnum vel valdar
bækur og lágt stemmdar athuga-
semdir.
Afi minn, þú dóst eins og þú lifðir,
með reisn og sálarró. Bráðum kemur
nýr drengur og ég mun reyna að
kenna honum það sem þú kenndir
mér. Myndirnar þínar og ljóðin þín
verða hluti af lífi hans, svo þú munt
halda áfram að lifa í huga þessa lang-
afadrengs eins og þú gerir nú þegar í
huga okkar allra. Elsku amma og all-
ir hinir í fjölskyldunni, ég samhrygg-
ist ykkur öllum, en samgleðst ykkur
um leið, að hafa verið svo heppin að
þekkja afa minn, Úlf Ragnarsson.
Ásta Sólveig Georgsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar