Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 31

Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 31 Húsnæði í boði Til leigu aðstaða fyrir snyrtifræðing Til leigu aðstaða fyrir snyrtifræðing sem vill starfa sjálfstætt á snyrtistofu á 103 svæðinu í Reykjavík. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 892 6962. Fundir/Mannfagnaðir Fræðslusjóður brunamála Brunamálastofnun Skúlagata 21 101 Reykavík Sími 591 6000 Fax 591 6001 www.brunamal.is Skrifstofan er opin virka daga kl. 8-16 Brunamálastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði brunamála Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu þeirra sem starfa að brunamálum á sviði brunavarna og slökkviliðsstarfa. Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarkostnað, laun á námstíma og styrki vegna námskeiða og endurmenntunar. Brunamálastofnun annast úthlutun styrkja að fenginni umsögn brunamálaráðs. Nánari upplýsingar veita Elísabet Pálmadóttir skólastjóri (elisabet@brunamal.is) og Pétur Valdimarsson (petur@brunamal.is). Umsóknir merktar "Fræðslusjóður brunamála 2008" skal senda til Brunamálastofnunar, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík, fyrir 15. mars 2008 á eyðublöðum sem fást á www.brunamal.is. Athygli er vakin á því að styrkveiting fellur úr gildi ef styrkur er ekki nýttur innan tveggja ára frá veitingu. Allar umsóknir sem falla að markmiði sjóðsins koma til álita. Í samvinnu við IF Sikkerhetssenter í Noregi gengst Brunamálastofnun fyrir 3 daga námskeiði fyrir stjórnendur slökkviliða í aðgerðum við eldsvoða í göngum. Námskeiðið verður haldið haustið 2008. Slökkviliðsstjórar geta sótt um styrk í sjóðinn til að standa straum af hluta kosnaðar við námskeiðið. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Asparfell 6, 205-1862, Reykjavík, þingl. eig. Stefán Helgi Einarsson, gerðarbeiðendur Asparfell 2-12,húsfélag og Sýslumaðurinn á Blönduósi, mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 10:30. Faxafen 10, 222-6335, Reykjavík, þingl. eig. Iðnaðarmenn ehf, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 14:30. Í Elliðakotslandi Brú 125216, 208-4630, Mosfellsbæ, þingl. eig. Ingi- veig Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf og Sjóvá-Almen- nar tryggingar hf, mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 11:30. Laugarnesvegur 77, 201-6830, Reykjavík, þingl. eig. Guðmundur Rag- nar Guðmundsson, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Vátryggingafélag Íslands hf, mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 14:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 13. febrúar 2008. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði Fulltrúaráðsfundur Opinn fundur í fulltrúaráði sjálf- stæðisfélaganna í Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 21. febrúar 2008 kl. 19.30 í Sjálf- stæðishúsinu, Strandgötu 29, Hafnarfirði. Dagskrá: 1. Landsmálin - Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. 2. Bæjarmálin - Haraldur Þór Ólason, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. 3. Önnur mál. Fundarstjóri Kristinn Andersen. Stjórn fulltrúaráðsins. Aðalfundur Germaníu verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2008 kl. 20.00. Fundurinn fer fram á skrifstofu Þýsk íslenska verslunarráðsins, Kringlunni 7, 7. hæð. Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Uppboð Frímerkjasala, mynt/seðla og listaverkauppboð. Austurströnd 1, 2. hæð, Seltjarnarnesi. Sími 551-0550. Netfang: aa-auctions@simnet.is Uppboð 17. febrúar í Iðnó við tjörnina Uppboðsdagskrá: 1. hluti kl. 12:00 Frímerki. 2. hluti kl. 13:30 Póstkort og mynt. 3. hluti kl. 14:30 Póstkortasafn Sigurðar Örlygssonar. 4. hluti kl. 17:00 Bækur, málverk og aðrir listmunir. Allir velkomnir! Arnason & Andonov ehf, Austurströnd 1, 170 Seltjarnarnes s.551-05 50, aa-auctions@simnet.is, www.aa-auctions.is Félagslíf Samkoma í Háborg Félagsmiðstöð Samhjálpar Stangarhyl 3 kl. 20.00 Vitnisburður og söngur Predikun Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson Allir eru hjartanlega velkomnir www.samhjalp.is Landsst. 6008021419 Vll Kl. 11 Brauðsbrotning Ræðum.: Hafliði Kristinsson 12:30 Bible studies in English in the main hall. Kl. 16:30 Almenn samkoma Ræðum.: Jón Þór Eyjólfsson Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, öll börn 1-13 ára velkomin. I.O.O.F. 5  1881428  I.O.O.F. 11  1882148  Bk.FI. HELGAFELL 6008021419 IV/V Gleðilega páskahátíð! Samkoma í kvöld kl. 20. Umsjón: Björn Tómas Kjaran. Hugvekja: Harold Reinholdtsen. Opið hús kl. 16-17.30 daglega nema mánudaga. Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6, opið alla virka daga kl. 13-18. Raðauglýsingar 569 1100 ✝ Þórir SigurðurJónsson fæddist á Nýlendugötu í Reykjavík 17. mars 1947. Hann lést á Landspítalanum miðvikudaginn 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Ottó Rögnvalds- son blikksmiður, f. 17. október 1906, d. 29. apríl 1980, og Stefanía Ástrós Sig- urðardóttir, f. 8. september 1909, d. 22. september 1986. Systkini Þóris eru Sigurður, f. 4. desember 1930, d. 20. maí 1988, Kristín, f. 30. júní 1933, d. 20. september 2005, og Rögnvaldur, f. 19. desember 1937. Þórir kvæntist Þóru Kristínu Vilhjálmsdóttur, f. 1. nóvember Landhelgisgæslunni. Að því loknu hóf hann störf hjá Menning- arstofnun Bandaríkjanna og starf- aði þar um árabil. Síðan réð hann sig til starfa hjá Sigurplasti í nokkur ár áður en hann flutt vest- ur í Ólafsvík og gerðist þar um- sjónarmaður kjötborðs í Kaup- félagi Ólafsvíkur og sá þá meðal annars um að afgreiða kost í skip- in. Því næst flutti Þórir aftur til Reykjavíkur og hóf störf sem verslunarstjóri í SS-versluninni á Skólavörðustíg og starfaði þar í um tvö ár. Þá flutti hann búsetu í Borgarnes og gegndi þar stöðu að- stoðarverslunarstjóra í Kaup- félagi Borgfirðinga um tíma. Að því loknu flutti Þórir aftur til Reykjavíkur þar sem hann gegndi ýmsum störfum; var bílstjóri hjá bandaríska sendiráðinu, við vöru- móttöku í Hagkaupum á Eiðs- granda, kjötmaður í Þinni verslun í Breiðholti, hjá Gámaþjónustunni og að síðustu starfaði hann við plastiðnað hjá Reykjalundi. Útför Þóris fer fram frá Lang- holtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. 1945. Þau eiga þrjú börn: Hildi Borg, f. 24. apríl 1972, og tví- burana Arnar Má og Borgar Þór, f. 23. október 1973. Fyrir átti Þóra Kristín dótturina Borghildi Ísfeld Magnúsdóttur, f. 9. janúar 1968. Þórir og Þóra Kristín skildu. Árið 1980 kvæntist Þórir Jónu Guðna- dóttur, f. 27. desem- ber 1955. Þau eiga tvö börn: Þóri Reyni Þórisson, f. 23. júní 1978, og Karólínu Stefaníu Þórisdóttur, f. 15. maí 1992. Þórir fæddist á Nýlendugötu 4 og ólst upp í Vesturbænum. Þórir fór snemma til sjós og sigldi þá með Skógafossi og seinna með Elsku pabbi, nú kveðjum við þig í hinsta sinn. Við eigum margar góð- ar minningar. Þú sast aldrei auðum höndum, alltaf að gera eitthvað. Oft var farið upp í búðstað og grillað, svo þurfti að saga við í eldavélina og kynda húsið. Eða labbitúrarnir með gamla hundinn okkar Colla, eða Justinn, sem eru báðir farnir. Síðasta ferðin sem við fórum var núna um jólin til Kanarí, sem gaf okkur öllum mikið. Að geta verið með bróður þínum og fjölskyldu þeirra, við munum alltaf geyma þær minningar í hjarta okkar. Ekki grunaði okkur að þú færir frá okkur svona fljótt en þú varst með al- varlegan sjúkdóm sem tók þig svo frá okkur. Elsku pabbi, Guð geymi þig. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Karólína og Þórir Reynir. Ég ætla að minnast með nokkrum orðum mágs míns sem andaðist langt um aldur fram aðeins 60 ára að aldri. Þórir var mikill náttúruunnandi. Hans bestu stundir voru uppi í sum- arbústað við Elliðavatn. Þar eyddi hann ófáum stundum með hamar eða sög í hendi. Ekki var leiðinlegt að fá sér göngutúr við Elliðavatn og enda í kaffi hjá hjónunum í Birkihlíð, þeim Þóri og Jónu. Alltaf var tekið á móti öllum með ljúfmennsku, kynt upp í kabyssunni, kaffi hitað og mikið rætt og spjallað. Ekki var Þórir mikið fyrir að safna að sér veraldlegum auð, hafði ekki áhyggjur af því að verðbólgan væri að éta upp spariféð eða hlutabréfin væru að falla. En hann kunni að meta þann auð sem lífið færir okkur á degi hverj- um, sjá sólina koma upp á morgnana, gróðurinn lifna við á vorin, Elliða- vatnið glitra í sólinni og vera í sam- vistum við fjölskyldu sína sem hann var svo stoltur af. Síðastliðin jól og áramót vorum við saman á Kanarí með fjölskyldum okk- ar. Ánægjuleg ferð sem tengdi fjöl- skyldur okkar betur saman. Áttum þar góðar stundir í sólskini og góðu yfirlæti þó einnig hafi verið erfiðar stundir vegna veikinda Þóris. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Færi Jónu og börnum og öðrum að- standendum innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Þóris Sigurð- ar Jónssonar. Ásdís mágkona. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er, segjum við oft og er það sennilega okkur fyrir bestu. Að ljúka sinni jarð- vist rétt rúmlega sextugur er eitthvað sem ég held að Þóri mínum hafi ekki dottið í hug hvað þá okkur hinum. Líf- ið er hverfult, það eitt er víst. Þórir greindist með krabbamein seint á síð- asta ári og við tók hefðbundin með- ferð. Er hlé varð á meðferðinni fóru þau hjónin til Kanaríeyja yfir jólin. Kannski var það fyrirboði en erfið- lega gekk að lenda flugvélinni er heim kom, þurfti tvær tilraunir og mikil skelfing greip um sig um borð. Er heim kom tóku við ferðir inn og út af spítala. Þórir er í minningunni ljúfur drengur og hjartans maður og dag- farsprúður. Hafðu þökk, kæri vinur, fyrir allar okkar samverustundir, minning þín lifir. Jónu systur og börnum þeirra og fjölskyldu votta ég alla mína samúð. Guð varðveiti ykkur öll á örlaga- stundu. Ég kveð þig að sinni, kæri mágur. Halldór Guðnason. Þórir Sigurður Jónsson Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.