Morgunblaðið - 14.02.2008, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR, ÉG FANN LEIÐ TIL AÐ
HALDA MÉR KÖLDUM...
ÉG SETTI FROSINN KJÚKLING
Í BUXURNAR MÍNAR
HANN ÞIÐNAR EKKI
FYRR EN EFTIR
MARGA KLUKKUTÍMA
ÉG VERÐ
EKKI HÉR
ÞEGAR ÞAÐ
GERIST
BLESS! HAFÐU ÞAÐ GOTT!
TAKK FYRIR ALLT SAMAN!
SJÁUMST Á
NÆSTA ÁRI,
MIKLA
GRASKER!
VIÐ
HVERN ER ÉG
AÐ TALA?
KALVIN,
VILTU EKKI
FARA ÚT MEÐ
RUSLIÐ?
FARA ÚT MEÐ RUSLIÐ?!? ER
ÉG NÝI ÞRÆLLINN ÞINN?!?
AF HVERJU GETUR ÞÚ EKKI
BARA GERT ÞAÐ SJÁLF?!?
ALLT Í LAGI! ÉG SKAL FARA
ÚT MEÐ RUSLIÐ EF ÞÚ TEKUR
TIL Í HERBERGINU ÞÍNU,
ÞVÆRÐ FÖTIN ÞÍN, ELDAR
MATINN ÞINN, TEKUR UPP
DÓTIÐ ÞITT OG HENDIR
DRASLINU SEM
ÞÚ SKILUR
EFTIR ÞIG,
DAG EFTIR DAG
EFTIR DAG!
SUMAR KONUR ÆTTU
ALDREI AÐ VERÐA MÆÐUR
ÞARNA KEMUR SNUÐI LÁVARÐUR.
HANN ER EINN AF ÞESSU FÓLKI
SEM FÆÐIST MEÐ SILFURSKEIÐ
Í MUNNINUM
ÉG
VEIT...
EN ÞAÐ ÆTTI EINHVER AÐ
SEGJA HONUM AÐ TAKA
HANA ÚT ÚR SÉR
VILTU HÆTTA
AÐ RAULA STEFIÐ
ÚR „JAWS“?!?
TÓKSTU
KRAKKANA MEÐ
ÞÉR Í VINNUNA
JÁ, HVORKI ÉG
NÉ ADDA GÁTUM
VERIÐ HEIMA OG
VIÐ FUNDUM ENGA
BARNAPÍU
EKKERT
MÁL. ÞAU
ERU BÚIN
AÐ VERA
RÓLEG
ÉG BAÐ EINN
AF BÍLSTJÓR-
UNUM AÐ HAFA
AUGA MEÐ ÞEIM.
ÞAÐ GENGUR
BARA ÁGÆTLEGA
ERUÐ ÞIÐ BÚIN AÐ LÆRA ÞETTA?
VIÐ SKULUM HENDA ELDSPÝTUNUM
OG SPILA UPP Á ALVÖRU PENING
EFTIR AÐ BÍLSTJÓRI NÖRNU LEMARR
JÁTAÐI... ER KÓNGULÓARMAÐURINN EKKI
LENGUR GRUNAÐUR UM AÐ HAFA REYNT AÐ
DREPA MARY JANE PARKER...
FLOTT!
EN HANN BRAUST ENGU
AÐ SÍÐUR INN Í
MYNDVERIÐ
ÉG VAR AÐ LEITA
AÐ VÍSBENDINGUM!
SVONA,
SVONA
dagbók|velvakandi
Opið bréf til forseta Íslands
og dómsmálaráðherra
Tilefni þess sem hér er um að ræða
er réttur hlutafélaga til eignaupp-
töku á eigum minnihluta án sam-
þykkis þeirra og þrátt fyrir marg-
ítrekuð mótmæli, þar sem það ekki
styðst við styrkari stoð en að vera
talinn réttur löggjörningur. Leitað
var álits nokkurra landskunnra lög-
fræðinga um staðfestingu á heimild
laga til umræddrar eignaupptöku,
m.a. í opnu bréfi til dómsmálaráð-
herra í Morgunblaðinu í maí sl.,
einnig haft tal af lagaprófessor við
háskóla, hæstaréttardómara, hér-
aðsdómslögmann, ásamt nokkrum
fleiri lögmönnum. Svör allra til-
nefndra viðmælenda voru á einn og
sama veg, umbeðin staðfesting
krefðist úrskurðar dómstóla, sem
væri dýrt og tímafrekt, þar sem aug-
ljóst má vera, að umræddur lög-
gjörningur, sem aðeins er talinn
vera réttur án staðfestingar á að svo
sé.
Svo komist verið hjá málaferlum,
ef þess er kostur, er óhjákvæmilegt
að fá svör við eftirfarandi spurning-
um. Því beinum við sem hér eigum
hlut að máli þeim tilmælum til hátt-
virts forseta lands og þjóðar Ólafs
Ragnar Grímssonar, að hann svari
eftirfarandi spurningu;
Er 72 g. stjórnarskrár, þar sem
segir, “eignarréttur er friðhelgur“,
er hún í gildi eða fallin úr gildi?
Háttvirtur dómsmálaráðherra
Björn Bjarnason er beðinn um að
svara eftirfarandi: Viðurkennir
dómsmálaráðherra og ráðuneyti
eignarupptöku lögskráðra smáeig-
endahluta einstaklinga á því, sem
talinn eru lög án sönnunar á því að
svo sé? Ber dómsmálayfirvöldum
ekki skylda til þess að upplýsa að-
spurð hvað séu rétt lög hverju sinni?
Fari svo að neyðst verði til þess að
leita úrskurðar dómstóla hvort held-
ur er innanlands eða utan er hér
með mælst til að þess að undirrit-
aður fái fallist á samþykki fyrir gjaf-
sókn í málinu.
Magnús Ó. Jónsson,
Stykkishólmi.
Er borgin að
spara sand og salt?
Það er búið að vera hróplegt ástand
undanfarið, meira en venjulega.
Ég sem bréfberi er á góðum skóm
og ætla ekki að vera vorkenna sjálfri
mér, en ég vorkenni gamla fólkinu
og mæðrum með börnin sín sem
komast ekki lönd né strönd í þessari
hálku.
Mig langar að lýsa einnig óánægju
minni yfir þessari borgarstjórn sem
er ekki að standa sig. Þeim er ekki
annt um atkvæðin sín, alla veganna
sýnist mér það ekki.
Ásta Lilja Kristjánsdóttir,
bréfberi í hverfi 28.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Í dag er Valentínusardagurinn eða dagur elskenda sem haldinn er hátíð-
legur í henni stóru Ameríku. Presturinn Valentínus var titlaður verndari
elskenda og dagurinn haldinn honum til heiðurs.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Blóm við tækifæri
MÁLÞING með yfirskriftinni
Réttur til menningar – íslenskur
menningararfur í ljósi hnattvæð-
ingar verður haldið í Listaháskóla
Íslands á fimmtudag kl. 10.
Málþingið er hluti málfundarað-
ar sem utanríkisráðuneytið efnir til
í samvinnu við alla háskóla lands-
ins til að hvetja til aukinnar um-
ræðu um alþjóðamál á Íslandi.
Fyrirlesarar ræða út frá sjón-
arhornum fræða og lista um ís-
lenskan menningararf með áherslu
á réttinn til afnota. Álitamál verða
rædd s.s. höfundaréttur á menn-
ingararfi, réttindi og skyldur
þegna til menningararfsins, áhrif
hnattvæðingar og tengsl átaka og
menningar í því sambandi. Segja
má að átakalínur í heiminum í dag
markist að miklu leyti af menningu
og sjálfsmynd, ekki síst fyrir til-
stilli hnattvæðingar og aukinna ná-
inna samskipta milli fólks af ólíkum
uppruna. Listir og menning eru
einn sá brunnur sem leitað er í við
sköpun sjálfsmyndar, en réttur
einstaklinga til að gera tilkall til
menningararfs er ekki alltaf aug-
ljós.
Ræðumenn á málþinginu verða
Hjálmar H. Ragnarsson rektor
Listaháskóla Íslands, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra, Eiríkur Tómasson prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands og
framkvæmdastjóri STEFs, Ólafur
Rastrick sagnfræðingur, dr.
Sveinn Einarsson leikstjóri og
fyrrv. stjórnarmaður UNESCO í
París og Guðmundur Oddur Magn-
ússon, prófessor í grafískri hönnun
við Listaháskóla Íslands.
Í tengslum við málþingið sýna
nemendur í vöruhönnun við
Listaháskólann afrakstur úr nám-
skeiðinu „Íslensk menning er sér-
stakur hljómur“, sem haldið hefur
verið undanfarin ár í samstarfi við
Þjóðminjasafn Íslands. Verður
sýningin í Kubbnum, sýningarsal
myndlistardeildar skólans.
Málþing um íslensk-
an menningararf
Vantaði nöfn
í myndatexta
Á mynd sem fylgdi frétt sem birtist
á blaðsíðu 8 í Morgunblaðinu í gær
um fyrirtækið Aðstoð og öryggi
vantaði nöfn mannanna sem sjást á
myndinni. F.v. Sigurjón Andrésson,
markaðsstjóri Sjóvár, og Ómar Þ.
Pálmason, forstöðumaður Aðstoðar
og öryggis.
LEIÐRÉTT
♦♦♦