Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 43

Morgunblaðið - 14.02.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008 43 GOTT ef Ástríkur á Ól- ympíuleikunum var ekki fyrsta bókin sem ég las um Gaulverjana knáu og eilífar útistöður þeirra við Rómverja og fleiri óprúttin yfirvöld. Bókin er eins og þær flestar, ferlega fyndin og ég fer ekki ofan af því að kemp- urnar taka sig best út á pappírnum, skiptir ekki máli þó að sjálfur Spiel- berg sé með áætlanir á prjónunum um Hollywood–útgáfu. Ástríkur á Ólympíuleikunum er þriðja kvikmyndagerðin um þá fé- laga Ástrík (Cornillac) og Steinrík (Depardieu), á undanförnum árum. Að þessu sinni gerast þeir fóstbræð- urnir styrktaraðilar og töfralyfs- byrlarar piltsins Alafolix (Stéphane Rousseau), sem skráir sig í keppni á Ólympíuleikunum í Grikklandi. Í og með til að vinna hjarta Irinu prins- essu, í og með til að sigra hinn slæg- vitra ódám, Brútus, son Sesars keis- ara. Það er ánægjulegt að sjá gömlu stórstjörnunum Delon og Cassel bregða fyrir en þriðja myndin er nokkuð síðri en sú fyrsta (Ástríkur og Kleópatra), en mun hressari en Ástríkur og víkingarnir, sem var frumsýnd fyrir tveimur árum. Eld- steikt villisvín og töfraseyðið góða kemur mikið við sögu (þó að vafa- samir orkudrykkir séu vitaskuld bannaðir á tímum Gaulverja líkt og í dag), og Brútus er ágætur skemmti- kraftur. Laddi afgreiðir titil- persónuna eins og honum er einum lagið og raddsetningin yfir höfuð góð. Nokkuð langdregin mynd sem virkar best á yngri börnin sem eiga góða stund yfir þessum sjarmerandi félagsskap. Styrktaraðilar: Steinríkur og félagar KVIKMYND Laugarásbíó, Smára- bíó, Háskólabíó, Borg- arbíó Akureyri og Sam- bíóin Keflavík. Leikstjóri: Frédéric Forestier. Með íslenskri talsetningu. Aðalraddir: Þórhallur Sigurðs- son, Pálmi Gestsson, Pétur Einarsson, Hjálmar Hjálm- arsson, Víðir Guðmundsson ofl. Aðalleikarar Clovis Cornillac, Gerard Depardieu, Alain Delon, Jean–Pierre Cas- sel. 115 mín. Frakkland o.fl. 2008. Ástríkur á Ólympíuleikunum / Astérix aux jeux olympiques bbmnn Gamlar stórstjörnur „Ástríkur á Ólympíu- leikunum er þriðja kvikmyndagerðin um þá fé- laga (Ástrík og Steinrík, á undanförnum árum.“ Sæbjörn Valdimarsson Grímsey Hofsjökull Húnaflói Blöndulón F í t o n / S Í A Hofsjökull Stærsta GSM þjónustusvæðið Stórtíðindi úr Skagafirðinum Gríptu augnablikið og lifðu núna Ung kona staðhæfir að hún hafi náð GSM sambandi á bóndabýli foreldra sinna í Skagafirðinum. Það þykir ótrúlegt, enda hefur ekki náðst slíkt samband þar áður – svo lengi sem elstu menn muna. Eina tiltæka skýringin er sú að stúlkan hefur yfir að ráða farsíma frá Vodafone. – Sönn saga frá 1414. Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður Vodafone nú stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi. Skiptu yfir til Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu símtali í 1414 – strax í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.