Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 44

Morgunblaðið - 14.02.2008, Page 44
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Funda um stöðuna  Ríkisstjórnin ræðir við aðila fjár- málamarkaðarins í dag um hvernig draga megi úr neikvæðum afleið- ingum hugsanlegrar lánsfjárkreppu á alþjóðamörkuðum. »Forsíða Selja hlut í Geysi Green  FL Group hefur selt hlut sinn í Geysi Green Energy. Glitnir banki, Atorka Group og fleiri keyptu fyrir um 10,5 milljarða króna. »2 Mesta tap í sögunni  Tap FL Group á síðasta ári nam 67,2 milljörðum króna. Það er mesta tap íslensks fyrirtækis á einu ári. »Viðskipti Skriður í kjaramálum  Forystumenn landssambanda ASÍ hitta fulltrúa SA í dag. Sameiginlegur útgangspunktur náðist í gær og eru aðilar bjartsýnir á framhaldið. »4 Óstöðvandi?  Barack Obama hefur nú sigrað í átta forkosningum í röð. Baráttunni er ekki lokið, en Hillary Clinton þarf að sigra í Texas og Ohio til að halda velli. »Erlent SKOÐANIR» Staksteinar: Deginum ljósara Forystugreinar: Viðbrögð við lánsfjárkreppu | Margt smátt gerir eitt stórt Ljósvaki: Ótrúlegt metnaðarleysi UMRÆÐAN» Vilhjálmur á að segja af sér Raunir í Reykjavík Að gera upp söguna Prestssetrið Laufás í Eyjafirði Sneru Davíð Oddssyni til vinstri Höll fyrir hina ríku og frægu Greindir lesendur Mun lægðin dýpka enn meira? VIÐSKIPTI » 3 3%% 3 3 3  3%  3 3  4 +5#& . #* + 6 ##$#.7 #    3 3 3  3%  3 3%  3   3 - 8 "1 &  3   3 3 3  3%  3  3  9:;;<=> &?@=;>A6&BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA&8#8=EA< A:=&8#8=EA< &FA&8#8=EA< &2>&&A$#G=<A8> H<B<A&8?#H@A &9= @2=< 6@A6>&2*&>?<;< Heitast 7°C | Kaldast 3°C Suðaustan 8-15 metrar á sekúndu og rigning vestanlands. Súld sunnan til en ann- ars úrkomulítið. » 10 Krúttmennið Borko safnar sköpunar- verkum undanfar- inna ára saman á fyrstu breiðskífuna sína. »36 TÓNLIST» Platan loksins klár KVIKMYNDIR» Velgengni Mýrarinnar ryður veginn. »38 Eiturhress og hlát- urmildur hlaupa- gikkur með sleða í eftirdragi mun sjást víða um landið á næstunni. »39 FÓLK» Hress á hlaupunum FÓLK» Ósóma-búðin hættir um óákveðinn tíma. »36 TÓNLIST» Pärt og Palli á tónleikum kammerkórs. »41 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Þyngsti maður heims léttist … 2. Fannst látinn á Jótlandi 3. Heyrði hálsinn brotna 4. Talinn hafa látist af slysförum  Íslenska krónan styrktist um 0,08%% HROSSAHÓPUR var ofan við Varmahlíð í Skagafirði að nasla í heyrúllu í hraglandanum á dögunum. Þau létu hryssingslegt veðrið ekkert á sig fá, enda höfðu þau nóg að éta og eflaust góð vörn í vetrarhárunum. Gunnar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda og ráðunautur í hrossarækt, sagði að ef hestar hefðu nóg að éta og skjól þá væsti ekki um þá úti. Þeir væru ekkert betur settir inni, enda varla nema brúkunarhross tekin á hús. Hann sagði mikilvægt að eigendur hesta fylgdust vel með þeim og að þeir hefðu gott skjól og nóg að éta. Mikilvægt að eigendur hesta fylgist með að þeir hafi skjól og nóg að éta Éta heyið í harðindunum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is VIÐ vorum sjö í úrslitunum í keppni um að fá að spila Bartók-píanókonsert nr. 3 með hljómsveit skólans í Avery Fisher Hall, risastórum sal New York Fílharm- óníunnar. Við spiluðum hvert á eftir öðru og ég vann,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson sem þótti bestur bestu píanónemenda Juilliard-tónlistarskólans í New York í túlkun sinni á verki Bartóks, en skólinn er í metum sem einn besti, ef ekki besti tónlistarskóli sem um getur. Keppnin fór fram fyrir helgi, en tónleikarnir í Avery Fisher Hall verða 31. mars. Stjórnandi á þeim verður Roberto Abbado, sem virðist ekki ætla að gefa föður sínum, Claudio Abbado, neitt eftir í frama á stjórn- andapallinum. „Þetta er geggjað – hann er að stjórna á Metropolitan og ég hef bara heyrt góða hluti um hann.“ Í dómnefnd voru þrír þekktir píanóleikarar; Barry Snyder – hann hélt tónleika í Salnum fyrir þrem árum; Alan Feinberg, sérfræðingur í samtímatónlist, og Phil- lip Kawin, en hann er prófessor við annan víðfrægan skóla, Manhattan School of Music. „Ég fann næstum til með þeim að þurfa að hlusta á sama Bartók-konsertinn sjö sinnum í röð. En það er frábært fyrir mig að fá svona stórt tækifæri rétt áður en ég klára skólann.“ Og hvað sögðu dómararnir við Víking? „Þeir voru hrifnir af tóninum mínum og fjölbreytni í túlkuninni.“ Minnstu munaði að Víkingur Heiðar yrði ekki með í keppninni. „Ég var með kammertónleika hér heima um daginn, og þegar ég kom út var ég ekkert ákveðinn í að fara í keppnina. Það voru allir löngu byrjaðir að æfa og ég var síðastur í gang. En ég tók brjálaða törn og æfði mig óhemju mikið í þrjár vikur – og þetta gekk upp.“ Víkingur kemur heim í dag en á þriðjudagskvöld spilar hann í Salnum með flautuleikaranum Denis Bouriakov. „Ég hef ekki hitt hann en hef heyrt að hann sé frábær.“ Víkingur Heiðar sigraði í einleikarakeppni í Juilliard Árvakur/Eyþór Víkingur Gagnrýnendur völdu tónleika hans með Sin- fóníuhljómsveit Íslands í september þá bestu 2007. Spilar undir stjórn Roberto Abbado í Avery Fisher Hall EINNAR klukkustundar vinna við að snúa Davíð Oddssyni til vinstri. Þannig hljóðaði reikning- urinn sem Auður Hallgrímsdóttir fjármálastjóri sendi Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrra. Kom þetta fram á fundi Samtaka iðnaðarins í vikunni undir yfirskrift- inni Virkjum kraft kvenna í iðnaði en um fjórðungur þeirra sem starfa í iðnaði er konur. | Viðskipti Davíð snúið til vinstri Davíð Oddsson BRÆÐURNIR Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, sem lagt hafa knattspyrnuskóna á hilluna og snúið sér alfarið að viðskiptum, hafa ásamt Birni Steinbekk og fleiri fjárfestum stofnað félag um byggingu umhverf- isvænna einbýlishúsa á South-Beach í Miami á Flórída. Byrjað verður á 1.100 fermetra einbýlishúsi þar sem ásett verð er 18 milljónir dollara, jafnvirði um 1.200 milljóna króna. Húsið er hannað af Tryggva Þor- steinssyni arkitekt og Erlu Ingjalds- dóttur innanhússhönnuði. Á sama svæði hafa auðugir og þekktir ein- staklingar komið sér vel fyrir, sem yfirleitt greiða þessi hús út í hönd og taka ekki húsnæðislán. | Viðskipti Reisa glæsi- villu á Miami ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.