Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 1
GEYSILEG fagnaðarlæti brutust út í Pristina eftir að þingið í Kosovo samþykkti sjálfstæði og aðskilnað frá Serbíu. Kosovo var hérað í Serb- íu og segjast stjórnvöld í Belgrad aldrei munu viðurkenna sjálfstæðið. Spurð um afstöðu íslenska ríkisins til sjálfstæðisins sagði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir utanríkisráðherra að hún hefði ekki tekið formlega af- stöðu. Á næstunni yrði metið hvað Ísland gerði í þessu tilliti. Hins vegar myndi Ísland ekki skera sig úr al- þjóðasamfélaginu og því sem Evrópa gerði í þessum efnum. | 4 og 14 Mikil gleði í Kosovo AP Fögnuður Ung kona brosir breitt þar sem hún stendur í fánaborginni í Pristina í gær. Á sama tíma efndu hundruð manna til mótmæla í Belgrad. STOFNAÐ 1913 48. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is LÍFSSTÍLLINN VIÐ VILJUM LIFA FLOTT EN SKORTIR FJÁRHAGSLEGA FYRIRHYGGJU >> 17 Ivanov >> 33 Allir í leikhús! Leikhúsin í landinu Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ÞAÐ var létt yfir fólki í Karphúsinu, húsnæði Ríkissáttasemjara, um níu- leytið í gærkvöldi. Þá settust for- svarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands niður ásamt formönnum landssambanda stéttarfélaga til þess að skrifa undir nýja og um margt sérstæða kjara- samninga. Að því loknu féllust menn í faðma og gengu sáttir frá samninga- borðinu. Í þessari viku verður efni samninganna kynnt félagsmönnum stéttarfélaga áður en þeir greiða um þá atkvæði. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í átta liðum, til að greiða fyrir kjarasamn- ingunum, voru kynntar í gær og kosta nálægt 20 milljörðum króna. Lægstu taxtar hækka mikið Við undirskrift hækka almennir launataxtar um 18.000 kr. Þeir hækka svo um 13.500 kr. árið 2009 og 6.500 kr. árið 2010. Þá hækka launa- taxtar iðnaðarmanna og skrifstofu- fólks um 21.000 kr. við undirskrift, 17.500 kr. árið 2009 og 10.500 kr. árið 2010. Taxtar hjá stéttarfélaginu Efl- ingu hækka um 24–32%. Í samning- unum er einnig lenging á orlofi í þrjá- tíu daga, örorku- og dánarbætur hækka og komi til uppsagnar eiga starfsmenn nú rétt á viðtali við at- vinnurekanda um ástæður uppsagn- ar, þar sem þeir geta óskað eftir skriflegum rökstuðningi við uppsögn. Einnig er launþegum tryggður réttur til að fá hluta launa sinna greiddan í erlendum gjaldmiðli, kjósi þeir það. Lægstu launin hækka  Klárað klukkan níu í gærkvöldi  Aðgerðir ríkisins kosta 20 milljarða  24–32% hækkun innan Eflingar Árvakur/Árni Sæberg Búið! Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, skrifa undir lokaákvæði kjarasamninganna.  Kjarasamningar | 6 og 8 GEIR H. Haarde forsætisráð- herra segir nýgerða kjarasamn- inga bæði merkilega og óvenju- lega. Aðilar vinnumarkaðarins, og ekki síst þeir félagsmenn í stéttarfélögum sem fá nánast engar kjarabætur að þessu sinni, eigi heiður skilinn fyrir að hækka laun þeirra lægst launuðu með myndarlegum hætti. Í gær kynnti hann ásamt ut- anríkisráðherra aðgerðir ríkisstjórnarinnar næstu árin til að greiða fyrir kjarasamningum. Eiga heiður skilinn fyrir samningana „MÉR er til efs að það hafi ver- ið samið með þessu yfirbragði í einhverja áratugi. Það er æði sérstakt,“ segir Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, um kjarasamningana sem undirrit- aðir voru í gær. „Auðvitað höf- um við ekki fengið öllum okkar málum framgengt en það hefur tekist ansi vel til,“ segir Grétar sem kveðst einnig sáttur við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í heild. Til efs að svona hafi verið samið í áratugi VILHJÁLMUR Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir gott að taka þátt í að hækka lægstu laun jafnmikið og nú er gert, en merkilegt sé að samningar takist án almennra hækkana. „Stærsta hagsmunamál þeirra sem notið hafa launaskriðs undanfarið er að verðbólga fari niður. Engin launahækkun getur komið í staðinn fyrir það og því eru ekki launahækkanir til þeirra í þessum samningum,“ segir hann og kveðst sáttur. Minni verðbólga í stað launahækkana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.