Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KJARASAMNINGAR aðildarsamtaka Alþýðu- sambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnulífs- ins (SA) voru undirritaðir í gærkvöldi. Í þeim er kveðið á um miklar hækkanir lægstu launa með töluverðri hækkun kauptaxta og launabreytingar fyrir þá sem setið hafa eftir „í launaskriði und- anfarinna missera,“ eins og segir í kynningu ASÍ á efnisatriðum samninganna. Samningarnir fela m.a. í sér hækkun almennra launataxta um 18 þúsund kr. við undirskrift, 13.500 kr. árið 2009 og 6.500 kr. árið 2010. Launa- taxtar iðnaðarmanna og skrifstofufólks hækka um 21 þúsund kr. við undirskrift, 17.500 kr. árið 2009 og 10.500 kr. árið 2010. Þeir sem hafa verið í starfi hjá sama atvinnurekanda og hafa ekki fengið að lágmarki 5,5% launahækkun frá 2. janúar 2007 til undirritunar samninga fá það sem á vantar. Örorku- og dánarbætur hækka Forsendur kjarasamninganna eru að kaupmátt- ur launa haldist eða aukist og að verðbólga lækki. Standist þær forsendur framlengjast samningarn- ir til loka nóvembermánaðar árið 2010. Allir kjarasamningarnir fela í sér lengingu or- lofs. Starfsmönnum er heimilt að fá launað frí til að sækja starfsmenntanámskeið og komi til upp- sagnar eiga þeir rétt á viðtali við atvinnurekanda um ástæður uppsagnarinnar. Þá er heimilt með samkomulagi að fá hluta fastra mánaðarlauna greiddan í erlendum gjaldmiðli. Töluverðar breytingar voru gerðar á trygging- um vegna vinnuslysa. Tryggingarnar verða víð- tækari og munu flestar tryggingafjárhæðir hækka umtalsvert. T.d. hækkar grunnfjárhæð örorku- bóta í 11,4 millj. og geta þær hæst orðið 31,35 millj. Dánarbætur munu hækka í flestum tilfellum. Þá verður unnið að þróun vottunarferlis sem felur í sér vottun á framkvæmd stefnu um launa- jafnrétti og jafna möguleika kynjanna til starfa. Kauptaxtar og trygg- ingafjárhæðir hækka Árvakur/Árni Sæberg Klappað og klárt Brúnin léttist á samningamönnum í gærkvöldi þegar skrifað var undir kjarasamninga í Karphúsinu, enda langri samningalotu lokið. Vilhjálmur Egilsson, Samtökum atvinnu- lífsins, Ingimundur Sigurpálsson, SA, Grétar Þorsteinsson, ASÍ, og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir vörpuðu öndinni léttar. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari brosti líka.  Almennir launataxtar hækka um 18 þúsund  Orlof lengist í 30 daga  Slysa- tryggingar aukast  Heimilt að fá hluta launa greiddan í erlendum gjaldmiðli „ÞAÐ hefur reynt á sam- skiptin inn á við hjá okkur, ekki síst þegar svona mismunandi er hvað hópar innan okkar vébanda fá í sinn hlut. Einnig hefur verið æði mikið af sérkröfum á sameiginlegu borði ASÍ. Ekki hefur verið fallist á allt, en þetta hefur tekist ansi vel,“ segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. „Maður metur heildina í lokin, hún er ásættanleg. Auðvitað á þetta aðdraganda, við tökum ekki bara við yfirlýsingu í stjórnarráðinu og för- um svo að lesa hana. Þarna hafa ver- ið samskipti á milli,“ segir hann um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Grétar Þorsteinsson Þetta hefur tekist ansi vel VILHJÁLMUR Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir yfirlýs- ingu ríkisstjórn- arinnar frá í gær skýr skilaboð. „Ég álít að með sinni yfirlýsingu gefi ríkisstjórnin Seðlabankanum mjög skýr boð um hvernig haga eigi stefnunni. Hún segir samningana fallna til að auka stöðugleika, og nú skuli lækka vexti,“ segir hann. Einnig er hann sérstaklega ánægður með lækkun tekjuskatts á fyrirtæki, eins og SA hafi haft frumkvæði um. „Við vild- um hækka lægstu laun. Það er gott að taka þátt í því. Ég held að það sé merkilegt í sögu kjarasamninga á Íslandi að tekist hafi að semja án þess að það væru almennar hækk- anir yfir línuna óháð launum fólks,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur Egilsson Skýr boð um vaxtalækkun „ÞETTA er það sem er hægt að fá út úr samningum án átaka á þess- um tímapunkti,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Sam- iðnar. Við erum að telja í okkur að vera ánægðir með þessa samninga og mæla með þeim við okkar fé- lagsmenn,“ segir hann. Um þátttöku ríkisstjórnarinnar segir hann að stór hluti hennar sé ekki nýr, heldur sé verið að tímasetja áður ákveðna hluti. „Þó eru þarna hlutir sem við metum mikils, eins og átak til að minnka hlutfall þeirra sem hafa litla menntun á vinnumarkaði, sem er að okkar frumkvæði.“ Hann hefði einn- ig viljað sjá meiri breytingar á vaxtabótum, þar sem hátt hlutfall fé- lagsmanna er millitekjufólk, sem komið er upp úr skerðingarmörkum fyrir löngu. „Meiri hækkun hefði komið okkur til góða.“ Finnbjörn Hermannsson Átak í menntamálum „ÉG tel að þetta séu um margt ágætir samn- ingar. Þeir skila rúmlega 30% hækkun á lægstu töxtum hjá okk- ur,“ segir Sig- urður Bessason, formaður samn- inganefndar Eflingar og Flóafélag- anna. „Einnig eru fjölmargir aðrir þættir í samningunum sem eru verð- mæti í fyrir okkur,“ segir hann og á þar m.a. við viðbótarorlofsdaga og tryggingamál. „Heildaráferðin á samningnum gengur út á að laga sérstaklega til í umhverfi þeirra sem setið hafa eftir í launaskriði und- anfarinna ára og ég held að þau markmið séu að stærstum hluta að nást.“ En hvað um þátttöku ríkisins? „Helstu vonbrigðin eru hvað aðgerð- irnar í skattamálum koma seint og að breytingar í vaxtabótum séu ekki meiri. En þarna er ýmislegt gott svo sem umbætur í fræðslustarfi og lagfæringar á barnabótum sem eru verulega góðar.“ Sigurður Bessason 30% hækkun hjá Eflingu og Flóafélögum „MEGINMARK- MIÐ okkar var að fá þeim sem hafa lægst laun sérstakar hækk- anir og tryggja þeim sem höfðu setið eftir í launaþróun ein- hverja úrlausn, ásamt því að fjölga orlofsdögum og bæta slysaréttinn. Við erum að ná þessum meginmarkmiðum og erum því bara þokkalega sátt,“ segir Gunnar Páll Pálsson, formaður VR. Um aðgerðir ríkisstjórnarinnar segir hann þær vera í samræmi við óskir sínar, þó í annarri útfærslu sé. „Samningarnir kveða ekki á um almennar kauphækkanir til allra heldur svokallaða kaupmátt- arþróunartryggingu. Þetta útspil með hækkun á skattleysismörkum tryggir öllum vissa skattalækkun og auðveldar okkur að fara þessa leið,“ segir Gunnar Páll. Gunnar Páll Pálsson Hækkanir, orlofsdagar og slysaréttindi GUÐMUNDUR Gunnarsson, for- maður Rafiðn- aðarsambands Ís- lands, segist þokkalega sáttur, þrátt fyrir að sumir félags- manna hans fái litlar hækkanir í samningunum. „Það er verið að framkvæma það að spýta vel í lófana hvað lægstu laun varðar. Fyrir okkur iðn- aðarmenn skiptir það miklu máli, því hér hefur verið mikið af erlendu vinnuafli sem alltaf er sett á lægstu taxta. Því skiptir það máli fyrir okk- ur að færa taxtana upp. Í launa- hækkunum erum við ekki að bera mikið úr býtum, en það mun samt sem áður skila sér til okkar. Eftir samningana standa mínir fé- lagsmenn betur að vígi í samkeppn- inni við erlent vinnuafl en áður.“ Hann segir hækkun ríkisstjórn- arinnar á skerðingarmörkum barna- bóta sérlega jákvæða en sambæri- lega hækkun í vaxtabótakerfinu langt undir væntingum. „Ég hefði viljað sjá þau fara miklu hærra,“ segir Guðmundur. Guðmundur Gunnarsson Stöndum bet- ur að vígi í samkeppninni „HEILT yfir tek- ið fer ég sáttur héðan úr Karp- húsinu og hlakka til að kynna þetta félagsmönnum okkar, sú vinna er að hefjast núna,“ segir Kristján G. Gunn- arsson, formaður Starfsgreina- sambandsins. „Það er verulega góð- ur láglaunafókus á samningnum. Einnig er þar sanngirni gætt og fáir fara óbættir frá borði. Ég er fullviss um að hann fær góðar móttökur hjá félagsmönnum.“ Hann kveður margt jákvætt í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar. „Skatt- leysismörk gætu þokast upp í 120.000 á samningstímanum ef fram heldur sem horfir varðandi verð- bólgu. Við höfðum meiri væntingar hvað þennan lið varðar, en þetta er niðurstaðan og hana verðum við að vinna með.“ Honum líst vel á hækk- un skerðingarmarka í barnabótum en hefur vissar áhyggjur af því að fleiri lánsvilyrði um félagslegt hús- næði skili sér ekki í fleiri íbúðum. „Síðasti punkturinn í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um breytingu á skaðabótalögum er afar mikilvæg réttarbót fyrir þá sem lenda í slys- um. Ég er einna kátastur með það ákvæði,“ sagði Kristján. Kristján G. Gunnarsson Hlakkar til að leggja fyrir félagsmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.