Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.02.2008, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Ég má ekki vera memm Bjössi minn, Dabbi pabbi vill að ég verði inni meðan mér er svona illt í nebbanum mínum. VEÐUR Ummæli Jóns Ásgeirs Jóhann-essonar, stjórnarformanns Baugs Group í viðtali við Stöð 2, sem sent verður út í dag, en kynning- arbrot voru sýnd úr sl. föstudags- kvöld, hafa valdið nokkrum titringi í fjármálalífinu um helgina.     Í viðtalinu segir Jón Ásgeir orðrétt:„Það þýðir ekkert að blekkja er- lenda aðila, sem sjá skuldaálagið á bönkunum og skuldaálagið sem er á bönkunum í dag tekur mið af því, að þeir séu hreinlega gjald- þrota.“     Í yfirlýsingu,sem Jón Ásgeir sendi frá sér í gær áréttar hann, að það sé ekki hans persónulega skoð- un, að íslenzku bankarnir séu svo illa staddir heldur endurspegli skuldatryggingaálagið slíkt mat al- þjóðlegra fjármálamarkaða.     Í Stöð 2 á föstudagskvöld sagði JónÁsgeir, að það þýddi ekki að stinga hausnum í sandinn og telja að allt mundi reddast.     Það er raunsætt mat hjá stjórn-arformanni Baugs Group, að hið háa skuldatryggingaálag er alvar- legt vandamál fyrir íslenzku bank- ana, þótt að vísu sé ekki hægt að setja þá alla undir sama hatt í þeim efnum.     Þannig bendir Halldór J. Krist-jánsson á í samtali við mbl.is sl. laugardag, að skuldatrygg- ingaálagið á Landsbankanum sé helmingi lægra en á Kaupþingi og Glitni.     Hitt er ljóst, að aðild Íslands aðEvrópusambandinu mundi engu breyta í þessum efnum en að því vék Jón Ásgeir í fyrrnefndum viðtals- brotum. STAKSTEINAR Jón Ásgeir Jóhannesson Raunsætt mat SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                        !  *(!  + ,- .  & / 0    + -    "                      12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    "    #$      #$    :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? %&   & %&" &% "&% &" &%  &% & &" & & & &% &%"   &%  &"                          *$BC ''''                       *! $$ B *! (  )'  ' '!    *  <2 <! <2 <! <2 ()  '+  $ ,'-  .  8- D                  <    ! "#  $ %     &'       !$   %  ( #  ) (      * +  ,  6 2  + ,  #  &  ( ( , +   '- % ' ) (      .-  #      /0 ''11 ' '2! '+  $ Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Kjartan Valgarðsson | 17. feb. 2007 Bækur og verslun Útgangspunktur Páls Gunnars Pálssonar í grein í Fréttablaðinu … er að bækur séu venju- leg vara. Þær eru það að vissu marki, en hafa þó mikla sérstöðu … Að auki er bókaútgáfa meira skyld listrænni starfsemi en iðnaði og versl- un. Eða hvernig á að taka á sam- keppnisforskoti þeirra sem hafa næmi, útsjónarsemi, tilfinningu fyrir góðum handritum og vit á bókum og bókmenntum? Meira: kjarval.blog.is Þrymur Sveinsson | 17. febrúar Stríð í Serbíu? Eru Serbar að vígbúast til að halda stöðu sinni eftir að hafa misst einn fjórða af landinu við eina yfirlýsingu nú klukkan 14:00? Það er ekkert annað en að bíða átekta eftir frekari fréttum af vaxandi óróa á svæðinu. Kveikti einhver í kveikiþræðinum sem lagður er að púðurtunnunni sem svo oft hefur verið sprengd á þessu svæði? … Samt er það versta í þessu að saklaust fólk mun líða fyrir óróann. Meira: thrymursveinsson.blog.is Auður H Ingólfsdóttir | 17. febrúar Dagur í Sarajevó Ég var að reyna að ímynda mér að fyrir að- eins 12-15 árum hafi íbúar þessarar borgar verið í heljargreipum umsáturs. Miðbærinn er í dæld, en allt um kring eru umlykjandi hæðir og hólar. Umhverfið er fallegt, en ég skildi betur þegar ég sá aðstæður, hvernig þetta var hægt, að loka íbúana inni í umsátri um borgina, vegna „hagstæðra“ landfræðilegra aðstæðna. Meira: aingolfs.blog.is Kolbrún Baldursdóttir | 17 feb. Óhagstæð Sundagöng Ef skoðaðar eru mynd- rænt, annars vegar sú tillaga að byggja hábrú yfir Elliðavoginn með stefnu á Hallsveg og hins vegar sú tillaga að Sundabraut verði lögð í göng frá Laugarnesi í Gufunes, kem- ur í ljós að sú síðari hlýtur að vera öllu óhagstæðari þeim sem búa í Grafarvogi og Mosfellsbæ. Báðar til- lögurnar eru vissulega hannaðar með það markmið í huga að létta á gríðarlegum umferðarþunga og þá ekki síst á Vesturlandsvegi og Miklu- braut. Fyrir þessa íbúa skiptir máli hvar leiðin yfir Kleppsvík liggur. Tillagan sem borgarráð hefur nú samþykkt leiðir til þess að margir vegfarendur þurfa að taka á sig krók aftur til norðurs ætli þeir inn í Sunda- göng. Verði þessi tillaga að veruleika eins og nú lítur út fyrir myndi það ekki koma á óvart að þessir öku- menn veldu frekar að halda áfram að aka Vesturlandsveginn og Miklubraut sem þýðir einfaldlega að umferð- arþungi á þeim vegum minnkar lítið. Hugmyndin um brú yfir Elliðavog- inn með stefnu á Hallsveg hlýtur því að hafa hugnast Grafarvogsbúum og íbúum Mosfellsbæjar mun betur en þessi sem nú liggur á borðinu. Þess utan finnst mörgum … að brú hefði vinninginn yfir göng. Eins og fram hefur komið eru margir kost- ir þess að setja Sundabraut í göng og hafa í því sambandi verið nefndir þættir eins og umferðaröryggi, há- vaðamengun og betri stjórnun svif- ryksmengunar. Meira: kolbrunb.blog.is BLOG.IS Vilhjálmur Ö.Vilhjálmsson 17. feb. Verk villimanna Danska sjónvarpið sýndi í gær bókasafn í dönskum skóla. Brotist hafði verið inn í bóka- safnið og bensíni hellt yfir þorra bókanna. Reynt var að kveikja í, en eldurinn var slökktur áður en hann náði að breiðast út. Fjöldi bóka var eyðilagður með bensíni. Þegar bækur eru brenndar, hugsa ég til bókabrenna nasista... Bókabrenn- ur og skólabrennur eru verk villi- manna... Meira: postdoc.blog.is SÚ staðhæfing fulltrúa núverandi borgarstjórnar að ekki sé hægt að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýri á kjörtímabilinu vegna veðurrann- sókna stenst ekki,“ segir Örn Sig- urðsson, stjórnarmaður Samtaka um betri byggð. Ummæli þeirra Gísla Marteins Baldurssonar, Dags B. Eggertssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í Kastljósinu í síð- ustu viku gáfu til kynna að ónóg gögn lægju fyrir um framtíð Reykja- víkurflugvallar, þar sem veðurat- hugunum á Hólmsheiði yrði ekki lok- ið á kjörtímabilinu. Þetta segir Örn ekki rétt. Eftirfarandi kemur fram í minnisblaði frá fundi samtakanna með borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins 8. febrúar sl.: „Haraldur Ólafsson veðurfræð- ingur gerði grein fyrir því að reikna mætti vindafar og kviku yfir hugs- anlegum flugvallarstæðum með tölu- verðri nákvæmni með tölvuhermun, sem byggir á tölvulíkani af landslagi, mælingum á veðurfari á viðkomandi stað og upplýsingum frá nálægum veðurathugunarstöðvum. Tölvu- hermun tæki einungis nokkra mán- uði og kostnaður væri minni en eins dags fórnarkostnaður af flugstarf- semi í Vatnsmýri.“ Fyrri athuganir gæfu til kynna að nýtingarhlutfall flugvallar á Hólms- heiði yrði yfir 95%, en þetta hlutfall er talið ásættanlegt fyrir flugrek- endur. Frekari athuganir væru að- eins til þess fallnar að skera úr um hvort hlutfallið væri e.t.v. 96% eða enn hærra. Örn segir niðurstöðurnar ekki það mismunandi að þær ættu að hindra löngu tímabæra pólitíska ákvörðun, töf á brottflutningi kosti samfélagið a.m.k. tíu milljónir á dag. Mánaðarlegar 300 milljónir Stjórnarmenn samtakanna af- hentu borgarfulltúunum á fundinum tillögu að tímaáætlun þar sem gert er ráð fyrir að öllum athugunum og umhverfismati vegna Hólmsheiðar- flugvallar verði lokið í apríl 2009. Samtök um betri byggð árétta að kostnaður þjóðarbúsins við að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni sé 3,5 milljarðar á ári. Því sé eðlilegt að borgin rukki ríkið 300 milljónir fyrir hvern mánuð sem brottför flugvall- arins drægist fram yfir 1. mars 2010. Þjóðhagslegur ábati af flutningi flugvallarins á Hólmsheiði er í Vatnsmýrarskýrslunni frá apríl 2007 talinn vera 38,3 milljarðar króna en 37,5 milljarðar til Keflavíkur. Vel hægt að ljúka innan árs FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.