Morgunblaðið - 18.02.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Hinn frábæri og kraftmikli pallbíll L200 skilar þér 163 hestöflum og frábærum
aksturseiginleikum. Þessi vel búni bíll heldur því áfram að setja ný viðmið í
þessum flokki bíla. Hann fékk til dæmis hæstu einkunn í flokki pallbíla í nýlegu
elgsprófi í Svíþjóð. Komdu og prófaðu kraftmeiri L200.
STÖÐUGLEIKASTÝRING SPÓLVÖRN - SUPER SELECT® 4X4 DRIFBÚNAÐUR
LOFTKÆLING - HITI Í SÆTUM - FULLKOMIN AKSTURSTÖLVA
KLÁRLEGA BETRI KAUP
L200 163 HESTHÖFL OG 2.700 KG DRÁTTARGETA
Verð frá
3.150.000 kr.
BEINskIPTUR
HEITKLÆÐNING Á PALLI
32 TOMMU DEKK
DRÁTTARBEISLI
220.000 KR.
AUKAHLUTA-
PAKKI FYLGIR
Námskeið fimmtudaginn 28. febrúar
fyrir þá sem vilja læra að gera innri gæðaúttektir
samkvæmt staðli eða þurfa að þekkja
hvernig innri úttektir ganga fyrir sig.
Farið yfir grundvallaratriði og skipulag gæðaúttekta
samkvæmt ISO 19011. Hópverkefni um gæðaúttektir
Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands,
Laugavegi 178, kl. 12.30-16.40. Þátttökugjald kr. 22.500.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is eða í síma 520 7150
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir
Innri gæðaúttektir
samkvæmt ISO 19011
Mb
l.
9
72
25
3
ÞETTA HELST ...
● ALISTAIR Darling, fjármálaráð-
herra Bretlands, tilkynnti í gær að
Northern Rock bankann yrði þjóð-
nýttur. Taldi ríkisstjórnin að þau til-
boð sem hefðu borist í bankann
hefðu ekki verið í þágu viðskiptavina
bankans og breskra skattgreiðenda
en tilboðin snerust einkum um end-
urgreiðslur á neyðarlánum breska
seðlabankans, alls upp 25-30 millj-
arða punda. Sagði Darling að þjóð-
nýtingin væri tímabundin og henni
ætlað að koma í veg fyrir að vandi
bankans smitaðist út í bankakerfið.
Northern þjóðnýttur
● AFGANGUR í
vöruskiptum Kín-
verja við útlönd
jókst í janúar sl.
miðað við sama
tíma í fyrra og
nam 19,5 millj-
örðum dollara. Er
þetta meiri af-
gangur en sér-
fræðingar á markaði höfðu spáð. Út-
flutningur nam nærri 110 milljörðum
dollara, jafnvirði um 7.500 milljarða
króna. Mest fór til Bandaríkjanna.
Aukinn afgangur í
vöruskiptum Kínverja
● VIÐSKIPTI á fasteignamarkaði
tóku aðeins við sér í síðustu viku,
þegar heildarveltan nam 3,5 millj-
örðum króna. Í vikunni var 104 kaup-
samningum þinglýst en í Hálffimm-
fréttum Kaupþings er bent á að
75-85 samningum hafi að jafnaði
verið þinglýst síðustu vikurnar. Þrátt
fyrir þessa aukningu í liðinni viku
telja sérfæðingar Kaupþings að
kólnun sé klárlega komin fram.
Fasteignaviðskipti
tóku aðeins við sér
Segir ummælin
hafa misskilist
Árvakur/Ómar
Ummæli Jón Ásgeir Jóhannesson
hefur verið áberandi í fjölmiðlum.
JÓN Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-
formaður Baugs og FL Group, sendi
áréttingu frá sér síðdegis í gær þar
sem hann taldi að ummæli sín í
Markaðnum á Stöð 2 á föstudag um
skuldaálag bankanna hefðu verið
misskilin. Það væri ekki rétt að hann
persónulega teldi íslensku bankana
vera í slæmum málum.
Hið rétta væri að miðað við það
skuldaálag sem krafist væri af ís-
lenskum bönkum virtist endurspegl-
ast sú skoðun erlendra fjármála-
stofnana að staða þeirra væri slæm.
„Það mat er fjarri lagi og skuldaá-
lagið er alltof hátt miðað við raun-
verulega stöðu þeirra og ósann-
gjarnt. Ég er þeirrar skoðunar að
nauðsynlegt sé að horfa á það sem
ógn við stöðugleika á Íslandi að
skuldaálag banka haldist hátt til
lengri tíma og því nauðsynlegt að
stjórnvöld og atvinnulífið taki hönd-
um saman til að breyta viðhorfi til Ís-
lands erlendis,“ segir Jón Ásgeir.
Lækkun í kauphöll?
Ummæli hans í fjölmiðlum um
helgina höfðu vakið nokkur við-
brögð. Þannig sagðist Þórólfur
Matthíasson, hagfræðiprófessor við
HÍ, telja í samtali við RÚV í gær að
gengi bréfa fjármálafyrirtækjanna
myndi lækka við opnun kauphallar í
dag vegna ummæla Jóns Ásgeirs.
Hafði Jón þá látið hafa eftir sér að
hátt skuldaálag bankanna endur-
speglaði það álit manna að þeir ættu
í stórkostlegum vandræðum og væru
jafnvel að verða gjaldþrota.
Á fréttavef Morgunblaðsins var
um helgina rætt við bankastjóra ís-
lensku viðskiptabankanna þriggja í
tilefni af ummælum Jóns. Allir töldu
þeir stöðu bankanna sterka og ljóst
að skuldaálagið væri of hátt.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, benti á að tölu-
verður munur væri á bönkunum og
þeir metnir mjög misjafnlega er-
lendis. Ekki væri hægt að setja þá
alla undir sama hatt, þannig væri
álag Landsbankanns innan við 50%
af því sem það væri hjá hinum.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri
Kaupþings, sagði á mbl.is að staða
bankans væri betri en markaðsaðilar
almennt gerðu sér grein fyrir. Jón
Ásgeir yrði að tjá sig um þau fyr-
irtæki sem hann tengdist og Kaup-
þing væri ekki eitt af þeim.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis,
sagði ástandið fyrst og fremst end-
urspegla stöðuna á erlendum mörk-
uðum. Skuldaálagið væri óviðunandi
í dag og hefði íþyngjandi áhrif á
starfsemi íslensku bankanna.
var yfir tilboðinu í verkið. Síðan
hafi komið í ljós að upphæðin var
mjög nálægt því sem sérfræðingar
reiknuðu út. „Við ákváðum að láta
slag standa og leyfa smágríni að
fljóta með þótt tilboð í verk sem
þetta séu ekkert grín í sjálfu sér,“
segir Sigþór Ari. Tilboð Klæðn-
ingar var 20 milljónum króna lægra
en það næstlægsta og nemur 85,5%
af kostnaðaráætlun OR. Verkið
tryggir Klæðningu næg verkefni
allt þetta ár og næsta og atvinnu
fyrir 200 manns þegar mest lætur.
TILBOÐI Klæðningar ehf. upp á
nákvæmlega 1.111.111.111 krónur,
eða rúman milljarð króna, var ný-
lega tekið í lagningu svonefndrar
Hellisheiðar- og Engidalsæðar fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur. Í tilkynn-
ingu frá Klæðningu er vakin at-
hygli á að ekki sé um innsláttarvillu
að ræða, tilboðið hafi verið þetta
upp á nákvæmlega krónu.
Að sögn Sigþórs Ara Sigþórs-
sonar, framkvæmdastjóra Klæðn-
ingar, var þessi tala í upphafi
brandari á vinnufundi þegar legið
Tilboði tekið upp á
1.111.111.111 krónur