Morgunblaðið - 18.02.2008, Side 34
34 MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000
SÝND Í REGNBOGANUM
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
eee
- S.V, MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
- S.V. MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÞAÐ ÁTTI
ENGINN AÐ
MEIÐAST
SÝND Í REGNBOGANUM
NJÓTTU MEÐAN Á NEFINU STENDUR
LEIKSTÝRT AF
SIDNEY LUMET
LEIKSTJÓRA SERPICO
OG DOG DAY AFTERNOON
TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA
STÓRKOSTLEG MYND
Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM
ATBURÐUM.
HAMINGJAN FELST EKKI
Í EFNISLEGUM GÆÐUM.
Jumper kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Before the devil knows you’re dead kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Meet the Spartans kl. 6 - 8 - 10
Walk hard kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
Aliens vs. Predator kl. 10:10 B.i. 16 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Meet the Spartans kl. 4 - 6 - 8 - 10
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
eee
DÓRI DNA, DV
Cloverfield kl. 8 - 10 B.i.14 ára
Ástríkur á Ól... ísl. tal kl. 3:30 - 5:40
Nú mætast þau aftur!
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Jumper kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Rambo kl. 10 B.i. 16 ára
Ástríkur á Ól... kl. 5:50
Brúðguminn kl. 8 B.i. 12 ára
MYNDDISKAR»
TÍMARITIÐ Myndir mánaðarins
hefur á annan áratug verið hand-
hægt hjálpargagn þeirra sem stytta
sér stundir við að horfa á mynd-
bönd og nú síðari árin á mynddiska.
Það liggur frammi á öllum þeim 60-
70 myndbandaleigum sem eru fé-
lagar í Myndmark, samtökum út-
gefenda og leigna. Leigurnar kaupa
blaðið, sem er jafnan litríkt og
smekklega útlítandi á góðum papp-
ír, og dreifa því ókeypis til við-
skiptavinanna.
Hlutverk MM er að kynna útgáfu
mynddiska hérlendis, sem er nán-
ast alfarið í höndum Senu, Mynd-
forms og Sam-mynda, sömu aðila
og reka kvikmyndahúsin á Reykja-
víkursvæðinu, Akureyri og víðar.
Ekki alls fyrir löngu var nafni
blaðsins breytt úr Myndböndum
mánaðarins og var það að sögn
ábyrgðarmannsins, Stefáns Unn-
arssonar, framkvæmdastjóra
Myndmarks, bæði vegna DVD-
mynddiskatækninnar sem hefur
rutt gömlu myndböndunum gjör-
samlega úr vegi og fyrsta skrefið í
umtalsverðum stakkaskiptum sem
verið er að gera á efni þess og
koma í ljós í næsta tölublaði, 1.
mars.
Helstu breytingarnar eru þær að
í framtíðinni mun MM fjalla bæði
um myndirnar sem eru í bíóunum
og þær sem koma út á DVD, og
stækkar af því tilefni í 89 síður.
Sem fyrr mun blaðið birta fjöl-
breytt efni tengt mynddiskaútgáf-
unni og kvikmyndageiranum, bæði
fréttir, slúður og fróðleiksmola í
bland við upplýsingarnar um efni
og úrgáfudag þeirra 30-40 mynd-
diska sem gefnir eru út mán-
aðarlega og frumsýningardag og
fróðleik um bíómyndir mánaðarins.
MM er eina blaðið sinnar tegundar
á landinu og er dreift í um 24.000
eintökum.
Stærra og fjölbreyttara
Sæbjörn Valdimarsson
FRUMRAUN handritshöfundarins Franks (Minority
Report, Get Shorty) í leikstjórastólnum, heldur manni
lengst af límdum við skjáinn. Aðalpersónan, Chris
(Gordon-Levitt), er efnispiltur sem framtíðin brosir við
þegar augnabliks kæruleysi hans verður vinum hans að
fjörtjóni og setur ævilangt mark sitt á líf unga mannsins.
Þegar atburðarásin fer í gang er Chris að reyna að fóta
sig í tilverunni á ný. Hann býr hjá blindum vini sínum
(Daniels), stundar nám og endurhæfingu og vinnur sem
næturvörður í litlum banka í heimaborg sinni. Eitt
kvöldið kynnist hann Gary (Matthew Goode), geðugum
náunga sem vill púrra hann upp og Chris veitir sann-
arlega ekki af uppörvun. Gary kynnir hann fyrir Janet
(Isla Fisher) og allt gengur vel um sinn, en það reynist
ekki góðmennska sem býr að baki vináttu Garys.
Óvenjuleg og grípandi með undiröldu sem verður nán-
ast óbærileg þegar líða tekur á, því persóna Chris er
bæði vel upp byggð af Frank og leikin af hinum upprenn-
andi Gordon-Levitt. Þeir fara með okkur fram á ystu nöf
en blálokin eru í litlu samræmi við ískalt raunsæið sem
hefur ráðið ferðinni lengst af. Magnaðir aukaleikarar
bæta forvitnilega mynd sem hefði gjarnan mátt sýna í
kvikmyndahúsi.
Nytsamur
sakleysingi
MYNDDISKUR
Glæpir/Spenna
Bandaríkin 2007. Sena. 95 mín. Ekki við hæfi yngri en 14 ára.
Ísl. texti. Leikstjóri: Scott Frank. Aðalleikarar: Joseph Gordon-
Levitt, Jeff Daniels.
The Lookout
m
Sæbjörn Valdimarsson
UM helgina hófust sýningar á Before
the Devil Knows You are Dead, nýj-
ustu mynd hins gamalfræga Sydneys
Lumets og því ekki úr vegi að taka fyr-
ir eitt af gömlu meistarastykkjunum
hans. Lumet og Coppola eru menn-
irnir sem gerðu Pacino að stórstjörnu
og Dog Day Afternoon er tvímæla-
laust eitt lykilverka leikstjórans og
leikarans. Gráthlægileg mynd um þrjá
ólánsama homma (Pacino, Sarandon,
Cazale), sem eiga ekki fyrir kynleið-
réttingaraðgerð á einum þeirra og
grípa til örþrifaráða. Ræna banka, en
er sjálfsagt flest betur gefið því áætluð
fimm mínútna skyndigripdeild verður
að fjölmiðlafári og sirkussýningu sem
styttir New York-búum stundir lang-
an heitan eftirmiðdag. Tímamóta-
mynd í umræðunni um samkynhneigð,
sem hún höndlar af samúð og virðingu
þótt andrúmsloftið sé eftirminnilega
tragikómískt. Pacino og Cazale óborg-
anlegir, svo broslegir og umkomulaus-
ir í senn. Mögnuð mynd byggð á þéttu
handriti um broslega en brjóst-
umkennanlega minnipokamenn sem
missa gjörsamlega stjórn á atburða-
rásinni.
Bankarán
verður
fjölmiðlafár
MYNDDISKUR
Glæpadrama
Bandaríkin 1975. Sam-myndir 2007.
120 mín. Ísl. texti. Öllum leyfð. Leik-
stjóri: Sydney Lumet. Aðalleikarar: Al
Pacino, John Cazale, Chris Sarandon,
Charles Durning.
Dog Day Afternoon
Sæbjörn Valdimarsson
BARNSLEG gleði einkennir Bollí-
vúdd-myndir, enda er efnisþráðurinn
undantekningarlítið í ævintýrastíl.
Fátækir og mæddir verða ríkir og
sælir, niðurlægt fólk fær uppreisn
æru og yndisfagrar söguhetjurnar
eru með eindæmum hamingjusamar.
Þ.e.a.s. undir lokin, gjarnan eftir til-
finningabarning á hafdjúpum ást-
arinnar. Sviðin eru skrautleg, fólkið
fallegt og klætt litríkum búningum,
tónlistin fjörug eins og dansarnir, en
tvennt það síðasttalda vil ég hafa í
temmilegum mæli fyrir mínum
frónsku skilningarvitum.
Marigold er samsuða Bollívúdd-
mynda og Hollívúdd- og dregur nafn
sitt af aðalpersónunni sem er leikin af
Larter (Heroes). Marigold er hroka-
fullt smástirni sem vegna óþolandi
framkomu sinnar er brottræk í Hollí-
vúdd og kemst fyrir slembilukku í
Bollívúdd-mynd Í Bombay. Því miður
er myndin viðrinisleg, hvorki vestræn
né austurlensk en lendir í hálfgerðu
tómarúmi þar á milli. Hún reynir að
vera barnaleg en er það ekki að inn-
ræti. Larter er fín leikkona á skján-
um og er lífleg sem truntan Marigold.
Hollívúdd mætir Bollívúdd
MYNDDISKUR
Gaman/Söngleikur
Bandaríkin 2006. Myndform. 111 mín.
Ekki við hæfi yngri en 12 ára. Íslenskur
texti. Leikstjóri: Williard Carroll. Aðal-
leikarar: Ali Larter, Salman Khan,
Nandana Sen.
Marigold
Sæbjörn Valdimarsson