Morgunblaðið - 18.03.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 9
FRÉTTIR
Finnskir
sólkjólar
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Vorjakkar
Vorfrakkar
Fallegur spari- og
sumarfatnaður
í úrvali
Jakkar, buxur, pils,
toppar úr hörefni
Str 36-56
Opið mán.-fös. kl. 11-18
lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝJA
VORLÍNAN KOMIN
Opið á laugardag fyrir páska
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
NOKKUR hópur manna kom í gær saman við sendiráð
Kína í Reykjavík til að mótmæla ástandinu í Tíbet. Sagði
Birgitta Jónsdóttir, ein þeirra, sem stóðu fyrir fundinum,
að auk þess að mótmæla framferði Kínverja í Tíbet hefði
þess verið krafist, að fjölmiðlafólki og fulltrúum mann-
réttindasamtaka yrði hleypt inn í landið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmælt vegna Tíbets
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
HÖFUÐSTÓLL erlends láns upp á
20 milljónir sem tekið var fyrir
einu ári hefur hækkað um 4,5 millj-
ónir kr. Ástæðan er sú að gengi
krónunnar hefur lækkað um 25% á
þessu eina ári. Greiðslubyrðin hef-
ur einnig þyngst verulega; farið úr
133 þúsundum á mánuði í 164 þús-
und.
Gengislækkun krónunnar hefur
strax áhrif á greiðslubyrði af er-
lendum lánum en greiðslan miðast
við stöðu gengis á gjalddaga.
Greiðslubyrðin getur því sveiflast
um nokkra tugi þúsunda milli mán-
aða. Erfitt er að spá því hver þróun
gengis verður á næstu vikum en
það er auðvitað hugsanlegt að
lækkunin síðustu daga gangi til
baka á næstu vikum eða mánuðum.
Gengið gæti einnig haldið áfram að
falla.
Gengið hefur einnig áhrif á höf-
uðstólinn. Margir sem tekið hafa
erlend lán hafa séð höfuðstólinn
lækka umtalsvert samhliða styrk-
ingu gengis. Nú er staðan ger-
breytt. Gengisvísitalan hefur aldrei
verið hærri og því er gengisávinn-
ingur þeirra sem tekið hafa erlend
lán horfinn. Skiptir þá engu máli
hvenær lánið var tekið.
Bílalánið orðið hærra
en verðmæti bílsins
Fjármálastofnanir hafa gert
strangari kröfur um veð þegar tek-
in eru erlend lán. Það er því ólík-
legt að mörg dæmi séu um að fólk,
sem er eingöngu með erlent lán. sé
komið í þá stöðu að höfuðstóll láns-
ins sé orðinn hærri en verðmæti
fasteignarinnar. Fullyrða má hins
vegar að mörg dæmi séu um að
höfuðstóll erlendra bílalána sé orð-
inn hærri en verðmæti bílsins. Þar
er hins vegar um mun lægri upp-
hæðir að ræða en í fasteignalán-
unum. Áhætta af erlendum lánum
eykst verulega þegar lánin eru til
skamms tíma. Þótt hér hafi fyrst
og fremst verið horft á sveiflu á
einu ári er nauðsynlegt að hafa í
huga að fasteignalánin eru tekin til
margra ára og þeir sem taka lánin
hljóta að hafa reiknað með að
gengið myndi sveiflast umtalsvert á
lánstímanum.
Þótt staða erlendra lána sé ekki
góð eftir þessa miklu veikingu
krónunnar, þá fer því fjarri að það
sé mjög hagstætt að vera með
verðtryggt innlent húsnæðislán nú
um stundir. 12 mánaða verðbólgan
er núna 6,8% og flest bendir til að
hún eigi eftir að hækka enn frekar
á næstu mánuðum, m.a. vegna
gengislækkunar krónunnar. Höfuð-
stóll verðtryggðra lána er því stöð-
ugt að hækka þó að hann hækki
ekki eins hratt og í gengisbundnum
lánum.
Öll erlendu lánin eru jafnafborg-
unarlán. Það er athyglisvert að
bera verðtryggt lán í íslenskum
krónum saman við sams konar er-
lent lán. Í ljós kemur að mánaðar-
legar afborganir af íslenska láninu
eru hærri en af erlenda láninu þrátt
fyrir 25% gengislækkun á einu ári.
Höfuðstóllinn hækkar
hratt við 25% gengisfall
(
(
(
(
," ! #
#
* #
78 '.
9
:'.
1 +
2 +.
$
99
;<(.
+'
+'
7=$ '(
9
>+ #
9
$ $1+ 9
$ $1+ 9
$ +' 9
$ +' 9
'3
'3
!'(
!'(
!'(
!'(
3 )**
'* *
' '(
' '(
' (
) ) * *')
' '(
* ' '
) *
(* ))
* )
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan