Morgunblaðið - 18.03.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 18.03.2008, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR -$    ;  '   ;  # & ' .   ;  '   ;  # & ' /   ;  '   ;  # & ' 0    ;  '   ;  # & ' ?  ?  ?6 6? ? ? ? ?  ? ? 6? ?                            @+                       !"   # $ !"   % &'#() * )"            + + + ++ + + + + ++ + ,$ A$ *  B -$  (  C' 0 ( .  (  C' 0 ( 0$ (  C' 0 ( 1  6      6  2    "3 & ! # 6? ( $ $ 9 $ = ' / 9 #+    C'!' !  @+ 9 4$ ?  @+ 9 5 ? +  @+ 9 $ ;!' !  DE +    -5  2  %  & ! #  6? ( 9 $ ' /  ! 9  * $ !  ? ( $   9  @+ + ? ( $   9  @+ ' '( + + + ++ +  #(   #(    #(    ,(  AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa nam 80 milljörðum króna á árinu 2007 samanborið við 76,2 milljarða á árinu 2006. Aflaverðmæti hefur auk- ist um 3,9 milljarða eða 5,1% milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 5 milljörðum en var 5,6 milljarðar í desember 2006. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks var 60,3 milljarðar árið 2007 og hefur því aukist um 4,8% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 57,5 milljörðum. Verðmæti þorsk- afla var 29,5 milljarðar og jókst um 6,8%. Aflaverðmæti ýsu nam 14,5 milljörðum, sem er 27% aukning frá 2006. Aflaverðmæti karfa dróst saman um 11,3% og var 5,8 millj- arðar í árslok. Verðmæti ufsaaflinn var 4,2 milljarðar árið 2007 og dróst saman um 9,5% frá fyrra ári. Verðmæti flatfiskafla nam 4,3 milljörðum árið 2007 og dróst sam- an um 17,1% frá árinu 2006. Afla- verðmæti uppsjávarafla jókst um 15,5% milli ára og nam 14,5 millj- örðum. Munar þar mest um 94,8% aukningu á verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum í árslok 2007. Aflaverðmæti síldar nam 5,7 millj- örðum á síðasta ári og dróst saman um 10,2% frá 2006. Verðmæti kol- munna dróst saman um 16,2% og nam 3 milljörðum árið 2007. Verð- mæti rækju var 226 millj. kr. sam- anborið við 287 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 21,3%. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu út- gerða til vinnslu, var 32 milljörðum króna sem er aukning um 3,7 millj- arða eða 13,1%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu inn- anlands jókst um 5,5%, var 12,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófryst- ingar var 24,9 milljarðar og dróst saman um 3,9% frá fyrra ári. Verð- mæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8,5 milljörðum sem er 6,8% aukning. Af einstökum landsvæðum komu mest verðmæti að landi á Suður- nesjum og höfuðborgarsvæðinu, eða um 14,5 milljarðar á hvorum stað. 7,7% samdráttur varð í aflaverð- mæti á höfuðborgarsvæðinu, en 9,6% aukning á Suðurnesjunum. Á Norðurlandi eystra varð aflaverð- mætið 11,6 milljarðar króna og jókst það um 22,2%. Á Austurlandi varð aflaverðmætið 10,5 milljarðar króna og jókst um 9,3%. Á Suðurlandi var landað afla að andvirði 7,4 milljarð- ar króna og stendur aflaverðmætið nánast í stað milli ára. Á Vestfjörð- um og Vesturlandi varð aflaverð- mætið rétt rúmir 4 milljarðar króna á hvorum stað. Það er 35,2% aukn- ing á Vesturlandi en 3,5% samdrátt- ur á Vestfjörðum. Aflaverðmætið eykst                    !!"  !!# $   !!" !!# % &   ' (   ( ) *   +,   -      ./#.# 0100 "#00 2# !!  ! 03"## 0!/1 3.#/ 0" !! "# $ 4  ,   !!" !!# /#/202 / 13 2 /" 1 3/./ 1 $!  "! "1. .0003 2./!1. 1 01 2/ %""% !                     ÚR VERINU Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is FJÖLDI fólks verður á faraldsfæti um kom- andi páska, bæði innanlands og einnig til og frá Íslandi. Fólk í ferðaþjónustu telur að það auki á ferðagleði landans hvað páskarnir eru snemma í ár. Bæði hvetur það til skíða- ferðalaga innan lands og utan um páskana og eins nota margir kærkomna frídaga til að bregða sér í hlýrra loftslag. Páskaferðir ferða- skrifstofanna til útlanda eru flestar löngu upp- seldar. Innanlands virðist fólk ætla að streyma til Ísafjarðar og Akureyrar, enda góð skíðasvæði á báðum stöðum og margs konar önnur afþreying í boði. Páskaferðir seldust víða upp „Það er bara allt að fyllast,“ sagði Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Hann sagði að félagið hafi sett inn margar aukaferð- ir í áætlun sína fyrir páskana. Í gær voru flugsæti til Alicante á Spáni og Varsjár í Póllandi uppseld. Þá voru örfá sæti laus til Berlínar og Kraká í Póllandi og orðið lítið um laus sæti til London og Kaup- mannahafnar. Taldi Matthías stefna í að ferðir til útlanda fyrir páska seldust upp á morgun eða fimmtudag. Um síðustu helgi voru nánast allar vélar Iceland Express til útlanda full- setnar. Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri Ice- landair, sagði að flugvélar félagsins væru full- setnar eða því sem næst þessa dagana. Hann sagði að félagið hefði þétt áætlun sína á þess- um tíma eins og gjarnan væri gert um páska. „Við höfum samanburð við páska undanfar- inna ára og þetta er með því allra mesta sem við sjáum,“ sagði Guðjón. Hann taldi það m.a. stafa af því að páskar eru óvenju snemma í ár. Páskafrí sé kærkomið tækifæri til ferðalaga. Töluvert er síðan ferðir til Orlando í Flórida fyrir þessa páska seldust upp. Flug Icelandair á aðra áfangastaði vestan hafs og austan eru einnig mjög þéttbókuð. Ríflega þrjú þúsund manns fara í páska- ferðir á vegum Ferðaskrifstofu Íslands og eru páskaferðirnar löngu uppseldar, að sögn Guð- rúnar Sigurgeirsdóttur markaðsstjóra. Undir Ferðaskrifstofu Íslands heyra Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir. Guðrún sagði að vegna þess hvað páskarnir eru snemma í ár hafi skíðaferðir einnig verið í boði auk sólar- ferða. Nú voru óvenju margar ferðir í boði til Kanaríeyja og Tenerife. Á vegum Ferðaskrif- stofu Íslands fara fyrir páska fjórar flugvélar til Las Palmas á Kanarí, fjórar til Tenerife, ein til Tyrklands, ein til Portúgal, ein til Costa del Sol og þrjár til Alicante á Spáni. Þá fer flugvél með skíðafólk til Austurríkis og önnur til Ítalíu eða alls 16 flugvélar með 189 farþega hver. Allar páskaferðir hjá Heimsferðum seldust upp fyrir nokkru síðan, að sögn Tómasar J. Gestssonar framkvæmdastjóra. Á þeirra veg- um fara rúmlega 1.700 manns í frí um páskana. Þannig fer flugvél til Dóminikanska lýðveldisins, tvær til Tenerife og þrjár til Las Palmas, ein til Alicante, önnur til Costa del Sol og ein flugvél með fólk í golfferð. Þá verður eitt beint flug til Prag frá Akureyri. Tómas sagði þetta örlítið meiri farþega- flutninga en í fyrra og segja mætti að megnið af þessum ferðum hefði selst fyrir löngu. Þá sagði hann einnig vera mikið bókað í borg- arferðir í vor og virtist ekkert lát vera á eft- irspurn eftir utanlandsferðum. Ísafjörður og Akureyri vinsælust Páskaumferðin í innanlandsflugi Flugfélags Íslands hófst þegar síðastliðinn föstudag, að sögn Árna Gunnarssonar framkvæmdastjóra. Þá voru flutt hátt í tvö þúsund manns og einn- ig ferðuðust margir um síðustu helgi. Búist er við öðrum ferðakúf á morgun og á skírdag. Á annan í páskum er einnig mjög mikið bókað af flugferðum. Taldi Árni að 5-6 þúsund manns ferðuðust innanlands með félaginu um páskana. „Það liggur mikill straumur bæði til Ísa- fjarðar og Akureyrar, sagði Árni. Greinilega er mikill áhugi á Skíðavikunni og tónlistarhá- tíðinni Aldrei fór ég suður. Hefur verið bætt við aukaferðum til Ísafjarðar vegna eft- irspurnar. Þá er einnig mikið bókað til og frá Akureyri og settar inn aukaferðir þangað. Frá Akureyri eru t.d. áætlaðar tíu ferðir á annan í páskum. Þann dag eru níu ferðir áætlaðar frá Ísafirði en eru venjulega tvær á mánudögum. Í gær var búið að bóka allt gistirými á Ísa- firði um páskana og mikið búið að bóka í ná- grenninu eins og í Önundarfirði, Súgandafirði, Dýrafirði og Bolungarvík að sögn Heimis G. Hanssonar, forstöðumanns Upplýsinga- miðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði. „Þetta boðar afskaplega gott fyrir ferðaþjónustuna hér á svæðinu,“ sagði Heimir. Hann sagði búist við fleirum vestur nú en um páskana í fyrra, ef veður verður gott. Í fyrra var þar mjög margt um manninn á Ísafirði um páska. Heimir sagði að Skíðavikan hefði höfðað mikið til brottfluttra Ísfirðinga og afkomenda þeirra. Búast má við að margir fari vestur á skíði að þessu sinni, enda ekki verið jafn mikill og góður skíðasnjór þar í áraraðir. Tónlist- arhátíðin Aldrei fór ég suður hefur dregið að algjörlega nýjan hóp gesta og bætt miklu við heildarfjölda ferðafólks sem kemur til Ísa- fjarðar um páska. Heimir sagði erfitt að slá nokkru föstu um hve margir kæmu vestur um næstu páska en þeir mundu væntanlega skipta einhverjum þúsundum. Margir koma á eigin vegum og gista í heimahúsum auk þeirra sem kaupa sér gistingu. „Við væntum mikillar aðsóknar. Það verður mjög mikið um að vera og væntanlega mikið fjölmenni hér,“ sagði María Helena Tryggva- dóttir hjá Akureyrarstofu um komandi páska- helgi á Akureyri. Hún kvaðst hafa heyrt af gististöðum í bænum þar sem þegar búið að bóka allt pláss um páskana. María minnti á að á Akureyri væru margir gistimöguleikar og eins í næsta nágrenni. Þá eiga mörg stétt- arfélög íbúðir á Akureyri og eins einstaklingar sem búsettir eru annars staðar. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli dregur líklega flesta til Akureyrar en þar hefur verið dásam- legt veður undanfarið og var mjög margt í fjallinu um helgina, að sögn Maríu. Hún sagði að mikið yrði einnig um að vera á menning- arsviðinu á Akureyri. Margar sýningar haldn- ar og gallerí opin um páskana. Þá er Skauta- höllin vinsæl og komin keiluhöll auk þess sem útivistarsvæði á borð við Kjarnaskóg njóta mikilla vinsælda. „Það er um margt að velja hér hvernig sem viðrar, þá er bæði hægt að vera úti eða leita sér afþreyingar innanhúss,“ sagði María. Óvenju margir á faralds- fæti um þessa páska Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Páskafrí Margir ætla á skíði um páskana á Ísafirði eða Akureyri þar sem myndin var tekin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.