Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 20
Sivia
Um Taekwondo: Henni finnst skemmtilegast að gera Taekwondo-
formin eða stellingarnar.
Um Ísland: Snjórinn er skrítinn.
Um æfingarbúðirnar: Finnst hún nánast vera heima í Mexíkó að
æfa. Vill endilega fá félaga sína héðan frá Íslandi í heimsókn til
Mexíkó.
Daniel
Um Taekwondo: Daniel finnst gaman að reyna við allt sem hann
kann ekki. Endurtekningar eru ekki skemmtilegar.
Um Ísland: Snjórinn er skrýtinn en svo eru þau ekki vön að loka dyr-
unum heima. Á heimilinu í Mexíkó eru oft engar hurðir og ef þær eru
þá standa dyrnar yfirleitt opnar.
Um æfingabúðirnar: Honum líður eins og nýja stráknum í hópnum.
Valeria
Um Taekwondo: Valeria hefur mest gaman af því að æfa í stórum
hópum.
Um Ísland: Maturinn er sérstakur, bæði góður og vondur.
Um æfingarbúðirnar: Finnst gaman hér á Íslandi og vill halda sam-
bandi við einhverja af íslensku krökkunum í gegnum síma eftir að
heim er komið á ný.
V
aleria Ramierz Wences, 11 ára,
og systkinin Sivia Narai, 13 ára,
og Daniel Sanchez Luna, 11
ára, eru búin að ferðast langa
leið frá bænum Miacatlán í
Mexíkó hingað til Íslands. Tilgangur ferð-
arinnar er að taka þátt í Taekwondo-
æfingabúðum með félögum sínum í vina-
samtökum Taekwondo, SsangYongTaeKwon
og fylgjast með Jóni Levy taka próf í
svarta belti íþróttarinnar. Einnig fengu þau
tækifæri til að taka þátt í Íslandsmeistara-
móti Taekwondo um síðustu helgi þar sem
þau unnu alla sína bardaga, fengu öll gull
fyrir þátttöku og bikar fyrir góða frammi-
stöðu.
Krakkarnir hafa frá unga aldri búið á
heimili samtaka sem kallast Nuestros Pe-
queños Hermanos (Litlu bræður okkar og
systur) og hefur verið stafrækt í nær 54 ár.
Samtökin taka á móti munaðarlausum og
yfirgefnum börnum í níu löndum í Suður-
Ameríku og Karíbahafinu og veita þeim
heimili og menntun. Á heimilunum starfa
sjálfboðaliðar sem koma alls staðar að úr
heiminum og dvelja yfirleitt 12 mánuði við
sjálfboðastörfin.
Taekwondo varð fljótlega vinsælt
Árið 2004 ákvað Jón Levy að ferðast til
útlanda á vegum samtakana til að starfa á
stærsta heimili þeirra í Mexíkó. Hann hafði
þá nýlokið framhaldsskólaprófi og langaði
til að ferðast til útlanda og prófa eitthvað
nýtt. „Ég vann í deild þar sem 25 6-8 ára
gamlir strákar búa, en alls búa um 700 börn
á heimilinu.“ Starf Jóns Levys var að hugsa
um drengina að öllu leyti. Koma þeim á
fætur, í skólann, aðstoða með heimavinnu
og tómstundir, elda og annað það sem fylgir
daglegu lífi.
Hér heima hafði Jón Levy æft Tae-
kwondo með hléum í nokkur ár og var í
góðri þjálfun þegar hann fór til Mexíkó. Þar
hélt hann áfram að æfa upp á eigin spýtur
og frá byrjun fylgdust krakkarnir í deild-
inni hans með honum af miklum áhuga.
„Þau öpuðu bara eftir mér í fyrstu en báðu
mig svo að gera eitthvað meira með þeim,“
segir Jón Levy, sem ákvað að hefja kennslu
í eina klukkustund á viku fyrir krakkana.
Íþróttin varð vinsæl og fljótlega fór hann að
kenna þrisvar í viku.
Hugurinn enn í Mexíkó
Þegar árið var liðið fluttist Jón Levy aft-
ur til Íslands en hugurinn var þó enn í
Mexíkó. Það varð úr að hann ákvað að fara
aftur þangað í janúar 2006 til að halda
kennslunni áfram og þar er hann enn. Í dag
kennir hann í kringum 150 börnum Tae-
kwondo sex daga vikunnar. Allt frá því að
Jón Levy hélt fyrst til Mexíkó hefur hann
verið í sambandi við Sigurstein Snorrason,
einn af upphafsmönnum vinasamtakanna
SsangYongTaeKwon en Sigursteinn, sem
hefur meistaragráðu og kennsluréttindi í
íþróttinni, hefur ferðast fjórum sinnum til
Mexíkó til að halda beltapróf fyrir krakk-
ana. „Fyrsta prófið var mikil vítamín-
sprauta fyrir verkefnið,“ segir Jón Levy því
hópur nemenda stækkaði ört í kjölfarið.
Skólastyrkir fyrir íþróttafólk
Taekwondo er mjög vinsæl íþrótt í
Mexíkó og hefur landið átt marga Tae-
kwondo-íþróttamenn á Ólympíuleikunum.
Þeir sem eru mjög góðir í íþróttinni geta
náð langt og jafnvel stundað atvinnu-
mennsku í Mexíkó. Framhalds- og háskólar
landsins veita þeim nemendum sem eru
framúrskarandi í iðkuninni skólastyrki og
segir Jón Levy að þeir sem séu mjög góðir
eigi kost á að stunda nám í góðum einka-
reknum skólum á íþróttastyrkjum.
Rafael Bermudez Gutierrez, yfirmaður
NPH-heimilisins í Mexíkó, segir Taekwondo
hafa gert mikið fyrir börnin á heimilinu.
„Við verðum að hafa í huga að þessir
krakkar eiga ekki foreldra og hafa þurft að
líða mikinn sársauka,“ segir Gutierrez. „Í
Taekwondo fá þau útrás fyrir reiði sína og
vonbrigði og öðlast meiri ró. Þetta þýðir að
þeim líður betur, þau eru agaðri og eiga
betri samskipti við félaga sína, kennara og
umsjónarmenn.“
Stóðu öðrum framar
Það voru SsangYongTaeKwon-samtökin,
sem samanstanda af tíu Taekwondo-félögum
á Íslandi, sem ákváðu svo seint á síðasta ári
að bjóða þremur krökkum af NPH-heimilinu
í Mexíkó hingað til lands. Ferð þeirra er
eingöngu fjármögnuð af styrkjum og söfn-
uðu krakkar úr Taekwondo-félögum hér á
landi heilmiklum peningum með dósasöfnun.
Þegar Jón Levy valdi hvaða krakkar
fengju að koma hingað í heimsókn tók hann
margt með í reikninginn. „Litið var til þess
hvernig þeim gengur í skóla, í samskiptum
við aðra krakka og umsjónarmanna, hvernig
þau standa sig innan heimilisins og hvaða
áhuga þau hafa sýnt frá því þau byrjuðu að
æfa,“ útskýrir Jón Levy, „og þessi þrjú
stóðu öðrum framar“.
Eins og stendur kennir Jón Levy nú
krökkunum sex daga vikunnar. Þar fyrir ut-
an skipuleggur hann mót, beltapróf, fyrir-
lestra og annað. Starfið er algjörlega fjár-
magnað með styrkjum því eins og Jón Levy
segir getur hann einungis gefið sinn tíma í
verkefnið. Hversu lengi til viðbótar hann
kemur til með að vera í Mexíkó veit enginn.
„Ég tek einn dag í einu, en það er margt á
prjónunum. Svo lengi sem mér líður vel og
ég er sáttur þá held ég áfram.“
Taekwondo sameinar íslenska
og mexíkóska krakka
Sigursælir krakkar Frá vinstri: Sigursteinn Snorrason frá SsangYonTaeKwon-félaginu, Jón Levy Guðmundsson og Rafael Bermudez Gutier-
raz, yfirmaður NPH í Mexíkó, ásamt sigursælu krökkunum þeim Valeriu, Daniel og Siviu.
Einbeitni Valeria sýnir mikla einbeitni.
Á munaðarleysingjaheimili í
Mexíkó stunda í kringum 150
börn Taekwondo undir hand-
leiðslu sjálfboðaliðans Jóns
Levys Guðmundssonar. Hann
er nú staddur hér á landi
ásamt þremur nemendum sín-
um og yfirmanni heimilisins.
Vala Ósk Bergsveinsdóttir
forvitnaðist um málið.
Frekari upplýsingar er að finna á vefslóð-
unum:
www.nphiceland.org
www.ssangyongtaekwon.com
Morgunblaðið/Ómar
Á æfingu Systkinin Daniel og Sivia í Taekwondo-tíma í Mexíkó.
tómstundir
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ