Morgunblaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 25
MIKIL umræða á síðasta ári um
málefni Múlavirkjunar á Snæfells-
nesi og Fjarðarárvirkjunar eystra
varð til þess að þrjú ráðuneyti lögðu
saman í starfshóp til að
gera úttekt á verkferl-
um tengdum leyfisveit-
ingum og eftirliti
vegna virkjunarfram-
kvæmda. Starfshóp-
urinn skilaði áliti til
iðnaðarráðherra, sam-
gönguráðherra og um-
hverfisráðherra 31.
janúar sl. og er skýrsla
hans mikill áfell-
isdómur yfir stjórn-
sýslu sem tengist máls-
meðferð ríkis og
sveitarfélaga á þessu
sviði. Samkvæmt greiningu starfs-
hópsins eru lög og reglur varðandi
leyfisveitingar, byggingu og eftirlit
með smávirkjunum eins og gatasigti
þar sem eitt rekur sig á annars horn
og mikil mildi að ekki hefur hlotist af
stórtjón og mannskaðar. Ekki færri
en 11 smávirkjanir sem nýlega hafa
verið tengdar dreifikerfinu starfa án
rekstrarleyfis sem tilskilin eru í raf-
orkulögum. Í engu tilviki náði bygg-
ingarleyfi viðkomandi sveitarfélaga
til allra þátta virkjunarfram-
kvæmdar og eftirlit með hönn-
unargögnum og úttektir vegna
framkvæmda fóru að-
eins fram vegna hluta
af hverri framkvæmd.
Eftirlit sveitarstjórna
með þáttum sem falla
undir framkvæmda-
leyfi hefur ekki tekið til
hönnunar mannvirkja.
Aðeins í undantekning-
artilvikum hefur Orku-
stofnun sinnt fram-
kvæmdaeftirliti en talið
það vera á verksviði
viðkomandi bygging-
arfulltrúa. Þeir ásamt
Skipulagsstofnun hafa
hins vegar túlkað eftirlitshlutverkið
þröngt sem leitt hefur til þess að
stór hluti virkjunarframkvæmda, í
sumum tilvikum stíflugerð og lagn-
ing þrýstivatnspípna, hafa í raun
ekki verið háð neinu reglubundnu
framkvæmdaeftirliti. – Þetta eru
þættir sem blöstu við í tilviki Fjarð-
arárvirkjunar og undirritaður vakti
athygli á í fyrrasumar, fyrir utan
það reginhneyksli að sú virkjun var
undanþegin mati á umhverfisáhrif-
um.
Hver stíflan á fætur annarri
hefur brostið
Fyrir utan eftirlitslausa umhverf-
isröskun hefur hvert stíflurofið rekið
annað síðustu 3-4 ár auk annarra
skemmda á mannvirkjum.
Haustið 2004 brast fullgerð stífla í
Kerahnjúkavirkjun í Ólafsfirði og
fylgdi mikið flóð í Burstabrekkuá
sem rauf veg og aðra vatnslögn bæj-
arins.
Í júní 2005 brast í þurrkatíð efri
stífla Sandárvirkjunar í Eyvind-
artungu í Laugardal og hlaust af
milljónatjón einnig á stíflu neðar í
Sandá. Var mesta mildi að ekki urðu
slys á fólki og búfénaði.
Þann 20. desember 2006 brast
stífla í Djúpadalsvirkjun í Eyjafirði
og olli vatnsflaumur tugmilljónatjóni
á stíflu og virkjanabúnaði. Mildi var
að ekki hlaust af manntjón en búfén-
aður fórst.
Í apríl í fyrra sprakk gamall
þrýstivatnsstokkur í Gönguskarðs-
árvirkjun í Skagafirði og hlaust af
eignatjón á lóðum og landi.
Litið til áratugarins fyrir aldamót
bætast við fleiri slík hrakföll eins og
1992 við stíflubrest í Gerðubergslæk
í Eyjahreppi á Snæfellsnesi en
minnstu munaði að rúta lenti í því
flóði.
Ekki rekur starfshópur ráðuneyt-
anna þessa sögu í áliti sínu og er
mönnum kannski vorkunn þar sem
viðkomandi stofnanir og ráðuneyti
eiga auk sveitarstjórna hlut að máli.
Þarfar ábendingar og krafa um
lagabætur
Það er vonum seinna að opinbera
kerfið hefur vaknað af dvala sínum
áður enn meiri ófarnaður hlýst af
handahófinu kringum virkj-
anaframkvæmdir einkaaðila. Starfs-
hópurinn hefur varpað allskýru ljósi
yfir sviðið og sett fram tillögur um
hert lagaákvæði og samræmd mál-
stök sem mjög hefur skort á. Telur
hópurinn að löggjafinn þurfi að taka
af öll tvímæli um að virkjunarfram-
kvæmdir í heild falli undir bygging-
arleyfi og í byggingarreglugerð
verði settar reglur um hönnun
mannvirkja, skil á gögnum og hæfn-
iskröfur til þeirra sem koma að slík-
um framkvæmdum. Einnig þurfi
stjórnsýslan að taka sig á til að
tryggja samráð og samvinnu iðn-
aðarráðuneytis, Orkustofnunar og
byggingaryfirvalda í aðdraganda
leyfisveitinga og við eftirlit. Reynir
nú á löggjafann að taka þessi mál
föstum tökum.
Umhverfisáhrifin í þagnargildi
Það skortir á umfjöllum starfs-
hópsins að litið sé gagnrýnið á und-
irbúning smávirkjana með tilliti til
umhverfisáhrifa. Lagaheimildin til
að undanskilja virkjanir undir 10
MW afli mati á umhverfisáhrifum er
alltof rúm og Skipulagsstofnun og
lögboðnir umsagnaraðilar hafa í
mörgum tilvikum ekki unnið heima-
vinnuna og hleypt framkvæmdum
framhjá mati. Aðdragandi Fjarð-
arárvirkjunar er t.d. lýsandi dæmi
um slík axarsköft. Reynslan sýnir að
heimaaðilum er oft ekki treystandi
til að leggja mat á nærumhverfi þeg-
ar meintir fjárhagslegir og atvinnu-
legir hagsmunir eru annars vegar. –
Vonandi læra menn þó af þeirri
döpru reynslu sem við blasir af
framkvæmdum í stíl Bakkabræðra
við smávirkjanir í öllum landsfjórð-
ungum þessi árin.
Undirbúningur smávirkj-
ana í megnasta ólestri
Álit starfshóps um virkj-
analeyfi er áfellisdómur segir
Hjörleifur Guttormsson
» Lög og reglur varð-
andi byggingu og
eftirlit með smávirkj-
unum eru eins og gata-
sigti og mildi að ekki
hefur hlotist af stórtjón
og mannskaðar.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
HEILBRIGÐ-
ISRÁÐHERRA hefur
lagt fram frumvarp til
lyfjalaga þar sem gert
er ráð fyrir að ríkið
hirði til sín afslátt sjúk-
linga af lyfjum sem
Tryggingastofnun rík-
isins tekur þátt í að
greiða. Í frumvarpinu
er einnig gert ráð fyrir að póst-
verslun með lyf verði heimiluð hér á
landi.
Afsláttur til TR í stað sjúklinga
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
þau apótek sem vilja gefa afslátt af
lyfjum tilkynni afsláttinn fyrirfram
til Lyfjaverðsnefndar sem birtir síð-
an afsláttarverðið í næstu Lyfja-
verðskrá.
Greiðslufyrirkomulag sjúklinga á
lyfjum er þannig að þetta ákvæði
mun leiða til þess að af-
sláttur sem veittur er
af lyfjum sem Trygg-
ingastofnun ríkisins
tekur þátt í að greiða
mun að mestu eða öllu
leyti fara til TR en ekki
til sjúklinganna eins og
nú er raunin.
Póstverslun með lyf
Í frumvarpinu er
gert ráð fyrir að póst-
verslun með lyf verði
heimiluð, en slík versl-
un hefur verið óheimil
hingað til, þó svo að póstsendingar á
lyfjum hafi verið heimilar.
Sjúklingar sem búa fjarri apótek-
um sem selja lyf með miklum af-
slætti hugsa því eflaust gott til glóð-
arinnar, en því miður hefur
framangreint ákvæði varðandi af-
sláttinn til TR þau áhrif að sjúkling-
ar koma til með að hafa lítinn hag af
væntanlegri póstverslun.
Gildistaka væntanleg 1. okt.
Framangreint frumvarp til laga á
að taka gildi 1. október nk. Fram að
þeim tíma geta sjúklingar notið fulls
afsláttar af öllum lyfjum hjá þeim
apótekum sem hann bjóða, hvort
sem sjúklingar eða umboðsmenn
þeirra fara í viðkomandi apótek með
lyfseðla eða láta lækna senda lyf-
seðla í viðkomandi apótek og hvort
sem lyfin eru sótt eða send með
heimsendingarþjónustu eða póst-
sendingum.
Ríkið ætlar að hirða til sín
afslátt sjúklinga af lyfjum
Haukur Ingason
fjallar
um fram komið
frumvarp til lyfja-
laga
Haukur
Ingason
»… afsláttur sem
veittur er af lyfjum
sem Tryggingastofnun
ríkisins tekur þátt í að
greiða mun að mestu
eða öllu leyti fara til TR
en ekki til sjúklinganna
eins og nú er raunin.
Höfundur er apótekari og eigandi
Garðs Apóteks í Reykjavík.
STEFÁN Thorstensen tekur sér
það fyrir hendur í Morgunblaðs-
grein að gefa í skyn að
ég hafi þjónað Lands-
virkjun með því að
segja að aðrar hug-
myndir en hugmyndir
hennar um virkjun ár-
innar séu svo slæmar
að ekki taki því að
skoða þær. Í tilvitnun í
grein mína sleppir
hann að geta þess að
áður en ég rökstyð það
í grein minni hvers
vegna aðrar hug-
myndir séu verri, segi
ég berum orðum, eins
og hver maður getur séð sem les þá
grein, að „nógu slæm“ sé sú hug-
mynd Landsvirkjunar fyrir þótt
ekki sé nú farið út í enn verri út-
færslu. Nú spyr ég Stefán: Síðan
hvenær varð „nógu slæmt“ gott? Í
meira en áratug fjallaði ég oft um
hugmyndir um virkjun Skaftár í
sjónvarpsfréttum og sjónvarpsþátt-
um með meiri og ýt-
arlegri myndbirtingum
en annars staðar hefur
verið að fá. Eftir að ég
hætti sem fréttamaður
hjá Sjónvarpinu hefur
eindregin andstaða mín
við þessi áform legið
ljós fyrir. Það er ómál-
efnalegt hjá Stefáni
þegar hann vitnar í
grein mína að sleppa úr
tilvitnuninni þeirri
setningu sem lýsir af-
stöðu minni og reyna
síðan með útúrsnúningi
að gera mér upp aðra skoðun.
Spurning Stefáns í upphafi greinar
hans er fráleit og til að taka af allan
vafa skal ég nálgast þetta svona:
Jafnvel Landsvirkjun, sem farið hef-
ur fremst allra við að koma Skaft-
árvirkjun til leiðar með einhverjum
verstu umhverfisspjöllum sem
möguleg eru hér á landi, hefur þó
ekki látið sér detta í hug hugmyndir
í ætt við þær sem Stefán Thor-
stensen boðar.
Fráleit spurning, Stefán
Ómar Ragnarsson
svarar Stefáni Thorstensen
Ómar Ragnarsson
» Stefán sleppir að
geta þess að í grein
minni sagði ég að „nógu
slæm“ væri hugmynd
Landsvirkjunar um
Skaftárveitu. Hvenær
varð „nógu slæmt“
gott?
Höfundur er formaður Íslandshreyf-
ingarinnar – lifandi lands.
Í LEIÐARA Morgunblaðsins
16. mars 2008 segir að Guð-
laugur Þór Þórðarson hafi nú
tekið tvær lykilákvarðanir; í
fyrsta lagi með því að ráða nýj-
an ráðuneytisstjóra heilbrigð-
ismála og í öðru lagi með því að
gera samkomulag við tvo af
æðstu stjórnendum Landspítala
um starfslok þeirra. En það
furðar leiðarahöfund að ekki
hafi samtímis verið ráðinn nýr
framtíðarstjórnandi sjúkrahúss-
ins, þótt höfundurinn álykti
réttilega að fyrir því hljóti að
vera rökstuddar ástæður sem
ráðherrann eigi eftir að skýra.
Landspítali er flóknasta
lækningastofnun Íslands. Á
spítala eiga fagmenn og lækn-
isfræðileg sjónarmið að ráða
för. Fráfarandi forstjóri Land-
spítala og samverkamenn hans
komu á stjórnkerfi á Landspít-
ala sem var hvorki faglegt né
löglegt. Hann réð um 30 af 35
æðstu stjórnendum, m.a. svo-
nefnda sviðsstjóra, án auglýs-
ingar. Hann framseldi ákvörð-
unarvald lögbundinna
læknisfræðilegra stjórnenda
(yfirlækna sérgreina, t.d. yf-
irmanna heilaskurðlækninga,
hjartalækninga, blóðbankans
o.s.frv.) til sviðsstjóranna.
Hann takmarkaði því áhrif
réttra faglegra yfirmanna
lækninga á sjúkrahúsinu. For-
stjórinn og ráðuneytisstjórinn
skelltu skollaeyrum við mál-
efnalegum kvörtunum einstakra
yfirlækna, hóps yfirlækna og
læknaráðsins um úrbætur. Þeir
stungu kvörtunum undir stól.
Jafnvel eftir að umboðsmaður
Alþingis hafði úrskurðað þær
réttmætar í öllum aðalatriðum
og Alþingi hafði tekið undir álit
umboðsmanns við setningu
nýrra heilbrigðislaga. Ráð-
herrar Framsóknarflokksins
studdu embættismennina í at-
höfnum sínum og því var
sjúkrahúsinu stjórnað af ólög-
legri og ófaglegri klíkustjórn
frá sameiningu allt til dagsins í
dag. Um sovéskt kerfi gat ekki
orðið sátt.
Guðlaugur Þór Þórðarson er
röskur maður, sem hóf vor-
hreingerningar strax sumarið
2007. Allar ástæður eru til þess
að vænta, að undir stjórn hans
komist á lögleg, fagleg og dreif-
stýrð stjórn á sjúkrahúsinu þar
sem réttir faglegir yfirmenn fá
þau áhrif og ákvörðunarvald,
sem þeim ber. Það þjónar hags-
munum sjúklinga og lands-
manna best. Liður í því er
vandasöm fagleg leit að góðum
leiðtogum fyrir stofnunina.
Menn þurfa að vita að starfið
sé laust til umsóknar. Enginn
vissi að störf 30 æðstu yf-
irmanna væru laus til umsókn-
ar á stjórnartíma fráfarandi
forstjóra, sem handpikkaði í
störfin, en slíkt er óheimilt á
opinberum stofnunum til lengri
tíma en tveggja ára. Lögum
samkvæmt krefst ráðning
stjórnenda auglýsingar svo ráð-
herra geti valið úr hópi hæfra
umsækjenda. En eftir vetur
kemur vor og nú er undir
stjórn heilbrigðisráðherra kom-
ið að vorleysingum og bjartari
dögum á Landspítala.
Páll Torfi Önundarson:
Vor á Landspítala
Höfundur er yfirlæknir blóð-
meinafræðideildar, varaformaður
læknaráðs Landspítala og dósent
við læknadeild Háskóla Íslands.
Nöfn
fermingarbarna á
mbl.is
FERMINGAR
2008
NÝTT Á
mbl.is