Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VEIÐITÍMABILIÐ hefst senn í
mörgum ám og vötnum, einkum þó
sunnan- og vestanlands, hinn 1.
apríl. Egna veiðimenn þá fyrir
bleikju og sjóbirting.
Ein vinsælasta vorveiðiáin verð-
ur lokuð, en það er Varmá í Hvera-
gerði. Hefur stór hópur veiði-
manna veitt þar á hverju vori,
jafnvel í marga áratugi. Sem kunn-
ugt er olli klórleki frá sundlauginni
í Hveragerði umtalsverðum skaða
á lífríki árinnar í haust.
„Stofnar árinnar verða rannsak-
aðir frekar í vor af sérfræðingum
Veiðimálastofnunar, í samstarfi við
veiðifélagið og Hveragerðisbæ.
Afla þarf ítarlegra upplýsinga um
stöðu þeirra,“ segir Páll Þór Ár-
mann, framkvæmdastjóri Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur sem leigir
Varmá. Veitt hefur verið með sex
stöngum í ánni.
Hann segir félagið hafa áhuga á
að fá leyfi til að veiða með tveimur
til þremur dagsstöngum í haust,
gegn því að veiða og sleppa, ef
Veiðimálastofnun gefur grænt ljós
á það.
Fyrstu veiðidagarnir í vinsæl-
ustu vorveiðiánum eru löngu seld-
ir, eins og Tungufljóti í Skaft-
ártungu og Geirlandsá, sem og
flestir apríldagar á svæðum á borð
við Hítará og Ásgarðssvæðið í
Sogi. Enn er þó hægt að nálgast
apríldaga víða, en veiðimenn halda
þó oft að sér höndum og sjá til
hvernig veðrið verður.
Fundað um stórlaxa
Á fimmtudaginn kemur klukkan
14.00 verður ársfundur Veiði-
málastofnunar haldinn á Hótel
Loftleiðum. Að vanda mun heyrast
spá um laxveiði sumarsins, auk
uppgjörs síðasta sumars, en í kjöl-
farið verður málþing um stöðu
stórlaxa á Íslandi, sem vissulega er
grafalvarleg. Fiskifræðingarnir
Sigurður Guðjónsson og Guðni
Guðbergsson fjalla um stöðu stór-
laxins í íslenskum ám og þá flytur
Árni Ísaksson veiðimálastjóri er-
indi um stjórnun laxveiða. Óðinn
Sigþórsson, Orri Vigfússon og
Hilmar Hansson munu þá tjá skoð-
anir sínar á því hvað þurfi að gera
til að viðhalda stórlaxastofnum á
Íslandi.
Allir eru velkomnir á fundinn og
aðgangur er ókeypis.
Engin vorveiði í Varmá
Morgunblaðið/Einar Falur
Vorveiðin Ólafur Þór Hauksson með stóran regnbogasilung sem veidd-
ist í Varmá 1. apríl fyrir nokkrum árum.
UNG kona liggur alvarlega slösuð
á gjörgæslu Landspítalans í Foss-
vogi eftir umferðarslys á Reykja-
nesbraut í fyrrinótt.
Tildrög málsins eru þau að öku-
maður með fjóra farþega missti
stjórn á bíl sínum á Reykjanes-
braut, rétt vestan við afleggjarann
að Vogum um klukkan 01 í fyrri-
nótt með þeim afleiðingum að bíl-
inn fór nokkrar veltur á brautinni.
Allir í bílnum voru fluttir á slysa-
deild og var gerð aðgerð á einum í
gær, en þar fyrir utan var fyrr-
nefnd kona á gjörgæslu.
Hættulegur kafli
Að sögn lögreglu var bíllinn á
vinstri akrein á leið til Reykjavík-
ur og lítur út fyrir að ökumaður
hafi talið báðar akreinarnar vera
fyrir umferð til norðurs. Skyndi-
lega hafi komið bíll á móti og þá
hafi ökumaðurinn beygt snöggt yf-
ir á hina akreinina með fyrr-
greindum afleiðingum.
Slysið átti sér stað á þrengingu á
nýjum kafla en við hlið hans liggur
gamla brautin, sem er lokuð á
þessu svæði. Loka varð kaflanum
um stund eða þar til tókst að opna
hjáleið fram hjá slysstaðnum, en
ekki er langt síðan árekstur varð á
svæðinu.
Á gjörgæslu eftir umferðarslys
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Slys Alvarlegt umferðarslys varð á þrengingu á Reykjanesbraut í fyrrinótt.
Eftir Silju Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
SÍÐUSTU forvöð
eru nú að skoða
Náttúrugripasafn
Íslands, sýning-
arsafn Náttúru-
fræðistofnunar
Íslands (NÍ), því
safninu verður
lokað um nk.
mánaðamót.
Samkvæmt lög-
um sem tóku gildi
fyrir tæpu ári er nýju Náttúru-
minjasafn Íslands, þegar það rís,
ætlað að taka við hlutverki sýning-
arsafns NÍ.
„Ástæða þess að við erum að loka
safninu núna er að við erum að und-
irbúa flutning NÍ í nýtt húsnæði eft-
vísindasöfnum NÍ fara þangað.
„Gengið verður frá öðrum gripum
og þeir afhentir hinu nýja Náttúru-
minjasafni Íslands þegar það tekur
til starfa en ég veit ekki, frekar en
aðrir, hvenær það rís,“ segir Jón
Gunnar. Tekur hann fram að æski-
legt sé þó að það verði í nálægð við
NÍ, því NÍ er ætlað er vera vísinda-
legur og faglegur bakhjarl Náttúru-
minjasafnsins.
Náttúrugripasafnið var stofnað
árið 1889 af Hinu íslenska náttúru-
fræðafélagi. Það hefur verið til húsa
í húsnæði NÍ við Hlemmtorg síðan
1967, en að sögn Jóns Gunnars var
það húsnæði aðeins ætlað til bráða-
birgða. Fram til 1. apríl verður
Náttúrugripasafnið opið í dag, á
fimmtudaginn kemur sem og nk.
helgi milli kl. 13.30 og 16 og er að-
gangur ókeypis.
ir ár,“ segir Jón Gunnar Ottósson,
forstöðumaður Náttúrufræðistofn-
unar Íslands.
Nýtt húsnæði rís í Garðabæ
Að sögn Jóns Gunnars á nýja hús-
næðið að rísa í Urriðaholti í Garða-
bæ, en fyrsta skóflustungan verður
væntanlega tekin í næsta mánuði og
standa vonir til að hægt verði að
flytja inn í húsnæðið haustið 2009.
Segir hann NÍ flytja þangað ásamt
hinum margvíslegu náttúrugripa- og
heimildasöfnum sínum, en ekki er
gert ráð fyrir sýningarsölum í hús-
næðinu. Vísindasöfn NÍ verða þann-
ig ekki aðgengileg almenningi held-
ur einvörðungu þeim fræðimönnum
sem nýta þau til rannsókna.
Spurður hvað verði um safngripi
Náttúrugripasafnsins segir Jón
Gunnar þá gripi sem heima eigi í
Lokun safnsins er liður í flutningi Náttúrufræðistofnunar Íslands í nýtt húsnæði í Garðabæ á næsta ári
Síðustu forvöð að skoða Náttúru-
gripasafnið sem senn verður lokað
Morgunblaðið/ÞÖK
Hreinsað Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hreinsuðu upp vatn
sem flæddi um sýningarsali Náttúrugripasafns Íslands í desember 2006.
Jón Gunnar
Ottósson
STJÓRN Suðurlinda mun á næstunni eiga
fund með stjórnendum Landsnets um
lagningu háspennulínu á Reykjanesskaga
en línunni er m.a. ætlað að flytja rafmagn
til álvers í Helguvík. Stjórnin átt fund fyr-
ir páska með Landsneti, en hann var fyrsti
formlegi fundur aðila um málið. Ólafur
Örn Ólafsson, formaður Suðurlinda og
bæjarstjóri í Grindavík, sagði að þetta
hefði verið ágætur vinnufundur. Hann
sagði ekki hægt að svara því hvort sam-
komulag tækist um þá tillögu sem Lands-
net hefði lagt fram. Menn ættu eftir að
fara betur yfir málið.
Sveitarfélögin Grindavík, Hafn-
arfjörður og Vogar stofnuðu Suðurlindir
til að standa vörð um sameiginlega hags-
muni í orkumálum.
Funda með
Suðurlindum
ÞRÍR bílar á höfuðborgarsvæðinu eru
taldir ónýtir eftir bruna en talið er að
kveikt hafi verið í bílunum.
Rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun var
tilkynnt um eld í tveimur fólksbílum við
Meistaravelli í Reykjavík. Rétt eftir mið-
nætti barst tilkynning um að kveikt hefði
verið í rusli við Mýrargötu og um þremur
tímum síðar var greint frá að eldur logaði
í jeppa við Norðurbraut í Hafnarfirði.
Tengsl könnuð
Öll málin eru í rannsókn lögreglu og með-
al annars er verið að kanna hvort þau
tengjast á einhvern hátt.
Grunar íkveikju
í þremur bílum
JEPPA var ekið inn í hliðina á lítilli fólks-
bifreið við ljósin á brúnni á Bústaðavegi
fyrir ofan Kringlumýrarbraut um klukkan
7 í gærmorgun og er ökumaður jeppans
grunaður um ölvun við akstur.
Betur fór en á horfðist en beita þurfti
klippum til að losa fólk úr bílunum. Öku-
maður fólksbílsins slasaðist en þó ekki al-
varlega, að sögn lögreglu. Hann var einn í
bílnum en tveir voru í jeppanum.
Grunaður um
ölvun við akstur
UMFERÐ á Suður- og Vesturlandsvegi til
höfuðborgarsvæðisins var minni í gær en
gert var ráð fyrir, að sögn lögreglu.
Hvergi urðu tafir á umferðinni og
dreifðist hún vel yfir daginn. Minniháttar
umferðaróhapp varð um fimmleytið þegar
bifreið ók utan í víragirðinguna sem skilur
að akreinarnar í Svínahrauninu en engan
sakaði.
Minni umferð
en áætlað var