Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Aldrei fór ég suður var haldin fimmta
sinni föstudaginn langa og laugardag fyrir páska og telur fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Hálfdán Bjarki Hálfdánarson, að hún
sé sú best sótta til þessa. Hugmyndina að hátíðinni fengu feðg-
arnir Guðmundur M. Kristjánsson og Elías Örn Guðmundsson,
betur þekktir sem Muggi og Mugison, yfir ölkrús í London á sjóð-
heitum sumardegi árið 2003 og hefur henni heldur betur vaxið
fiskur um hrygg.
Að öðrum hljómsveitum og tónlistarmönnum ólöstuðum telur
Hálfdán að hápunktinn hafi veirð frumflutningur Óttars Proppé
og Karlakórsins Arna á þremur lögum eftir Mugison á laug-
ardagskvöldi. Allir klæddir í gula hanska að hætti Dr. Spock, að
sjálfsgöðu. Tónleikastaðurinn var troðfullur, þ.e. skemma út-
gerðarfyrirtækisins AÓÁ-útgerðar á Ásgeirsbakka, og líklega
hægt að fylla mun stærri t́ónleikastað.
Þá steig Ísfirðingurinn Helgi Björnsson á svið um helgina með
sveitinni SSSól og tryllti lýðinn eins og honum einum er lagið.
Hátíðin er orðin rótgróin og ljóst að enginn er á leið suður þessa
helgi á næstu árum.
Enginn á leið suður
Halló, ég elska þig! Ísfirðingurinn Helgi Björns með SSSól. Mugison trommar.
Engin lognmolla Hljómsveitin Sign á fullu stími í níðþröngum rokkbuxum.
Eitursvalir og rauðskeggjaðir Hjálmar fluttu suðrænt og seiðandi reggí
með fúlskeggjaðan og sólglerjaðan Davíð Þór Jónsson á hljómborði.
Stór og lítill Svavar Knútur, söngvari og gítarleikari Hrauns, lék á stór og lítil hljóðfæri.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
XXX Rottweilerhundar „Mamma þín, mamma þín, mamma þín er… beygla!“
Hiti og sviti Gott að láta bera sig beran.