Morgunblaðið - 25.03.2008, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AFLÞYNNUVERKSMIÐJAN sem
tekur til starfa á Akureyri síðar á
árinu er ekki líkleg til þess að hafa í
för með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif, að mati Skipulagsstofnunar.
Hún er því ekki háð mati á umhverf-
isáhrifum. Alls verða til um 90 störf í
verksmiðjunni.
Verksmiðjan verður reist í
Krossanesi, þar sem iðnaður hefur
verið starfræktur í áraraðir en fiski-
mjölsverksmiðju Ísfélagsins var lok-
að fyrir nokkrum misserum.
Ferlið í nýju verksmiðjunni felst í
rafgreiningu eða rafhúðun á völs-
uðum álþynnum með lífrænni sýru.
Um er að ræða röð baða þar sem
bæði rafhúðun með efnum og hreins-
un á yfirborði álþynna fer fram. Þess
á milli er yfirborð álþynnanna
hreinsað með fosfórsýru. Þegar ferl-
inu lýkur hefur myndast örþunn
filma á yfirborði þynnanna og þá er
orðin til fullgerð aflþynna, sem svo
er kölluð, sem er til þess að geyma
orku í rafmagnsþéttum.
Skipulagsstofnun telur að þar sem
aflþynnuverksmiðjan kemur til með
að nota talsvert magn hættulegra
efna sé afar brýnt að við leyfisveit-
ingar verði hugað sérstaklega að
flutningi, geymslu, meðhöndlun og
förgun þeirra og telur brýnt að unn-
ið verði áhættumat fyrir starfsemina
með tilliti til þeirra efna sem notuð
eru.
Verksmiðjan í Krossanesi mun
þurfa mjög mikla orku – alls 640
gígavattsstundir á ári sem er fimm
sinnum meira heldur en notað hefur
verið á öllu Eyjafjarðarsvæðinu ár-
lega að undanförnu. Á heimasíðu
Landsvirkjunar kemur fram að raf-
orkukerfi fyrirtækisins hafi verið
undir miklu álagi í vetur og verði
áfram nánast fullnýtt, og þar kemur
verksmiðjan í Krossanesi við sögu.
„Undanfarin misseri hefur Lands-
virkjun framleitt raforku til gang-
setningar á stækkun álvers Norður-
áls á Grundartanga sem gerði
Norðuráli kleift að flýta gangsetn-
ingu en virkjanir Orkuveitu Reykja-
víkur og Hitaveitu Suðurnesja eiga
að framleiða raforku í þágu stækk-
unarinnar til frambúðar. Sú raf-
orkuframleiðsla Landsvirkjunar
nýtist rafþynnuverksmiðju Becro-
mal á Akureyri framvegis …“
Í skýrslu Skipulagsstofnunar
kemur fram, í kafla um áhrif á at-
vinnulífið, að áætlað sé að verk-
smiðjan skapi allt að 90 framtíð-
arstörf. Það hefur áður komið fram,
en í skýrslunni segir að það séu um
„60 störf fyrir verksmiðjufólk, 22
fyrir iðnmenntaða, 4 verkfræðistörf
og 4 við skrifstofuhald og stjórnun“.
60 störf fyrir verksmiðjufólk
Aflþynnuverk-
smiðjan þarf ekki í
umhverfismat
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Krossanes Aflþynnuverksmiðjan verður á hafnarsvæðinu í Krossanesi, á
svipuðum stað og fiskimjölsverksmiðjan var um áratuga skeið.
HUNDURINN Pjakkur var á ferð með eiganda sínum í miðbænum á dög-
unum og var staldrað við á Bæjarins bestu. Hann Pjakkur litli fékk að sjálf-
sögðu bita af góðgætinu enda alkunna að hundaeigendur koma engum vörn-
um við þegar vinalegum augum og dillandi skotti er beitt við sníkjurnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bæjarins bestu fyrir besta vininn
VERKTAKAR á vegum fram-
kvæmda- og eignasviðs Reykjavík-
urborgar hófu í síðustu viku vor-
hreinsun á gatnakerfinu í
Reykjavík. Alls eru um 20 stórvirk
hreinsitæki notuð við hreinsun í
borginni; götusópar, gang-
stéttasópar, sugur og vatnsbílar.
Í tilkynningu frá borginni segir
að tækjunum verði öllum beitt
þegar aðstæður leyfa, en verði
kuldakast næstu daga, eins og
spáð er, geti orðið tafir á hreinsun
enda ekki hægt að þvo og sópa
götur í frosti.
Þá eru starfsmenn Fram-
kvæmda- og eignasviðs stöðugt á
ferðinni við að hreinsa upp erfiða
staði þar sem rusli hættir sér-
staklega til að safnast, sem eink-
um vill verða í nágrenni greiða-
sölustaða.
Í vorhreinsuninni verður í byrj-
un lögð áhersla á hreinsun stofn-
brauta og stofnstíga. Áætlað er að
vorhreinsun ljúki fyrir 15. apríl
vestan Kringlumýrarbrautar og
fyrir 1. maí austan hennar, en
veltur framvinda verksins þó mjög
á veðri.
Vorhreinsun
hafin í
Reykjavík
Morgunblaðið/Jim Smart
TVEIR menn voru handteknir í
íbúð við Leifsgötu á páskadags-
morgun vegna slagsmála, en átökin
reyndust ekki eins alvarleg og ótt-
ast var.
Skömmu fyrir klukkan 11 á
páskadagsmorgun var lögreglu til-
kynnt um slagsmál í íbúð við Leifs-
götu og var þess getið að maður
ógnaði öðrum með hnífi. Því var
fjölmennt lið lögreglu og sérsveitar
sent á staðinn og götunni lokað.
Þegar lögreglu bar að garði sveif
mun meiri ró yfir vötnum en búist
hafði verið við og enginn með hníf í
hendi.
Mennirnir voru samt báðir hand-
teknir án mótspyrnu og síðan
sleppt að yfirheyrslum loknum.
Ógnaði öðr-
um með hnífi
ÍSLENDINGUR hefur tekið sæti í
stjórn Samtaka evrópskra þýðenda.
Bogi Örn Emilsson, framkvæmda-
stjóri þýðingastofunnar Skjals ehf.,
settist í stjórn ELIA, European
Language Industry, á árlegum
fundi samtakanna sem haldinn var í
París fyrir skömmu.
Samtökin hafa starfað í þrjú ár,
en evrópsk þýðingarfyrirtæki hafa
um árabil átt sér samráðsvettvang.
Það þykir mikil viðurkenning
fyrir íslenska þýðingarstarfsemi,
að fulltrúi Íslands eigi þar sæti.
Skjal hefur starfað frá árinu 2000.
Meginþorri verkefna fyrirtæk-
isins er helgaður þýðingum úr og á
13 Evróputungumál. Liggja þau
ýmist á sviði þýðinga viðskipta-
gagna fyrirtækja, löggiltra skjala-
þýðinga eða efnis tæknilegs eða al-
menns eðlis.
Í stjórn
Samtaka
evrópskra
þýðenda
GUÐJÓN Sverrir Sig-
urðsson, rannsóknar-
maður, fyrrverandi for-
maður Iðju og
borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins lést á
Hrafnistu 22. mars sl.
Guðjón Sverrir fædd-
ist 17. október 1925 í
Keflavík. Hann var son-
ur Sigurðar Ingjalds-
sonar Pétursson, út-
gerðarmanns í
Keflavík, og Birnu Hafliðadóttur
húsmóður.
Guðjón Sverrir lauk stúdentsprófi
frá MR 1946 og stundaði nám í efna-
fræði við Háskóla Íslands og lærði
þar verkfræðiteikningar. Hann lauk
námi í forspjallsvísindum frá HÍ
1977. Hann stundaði auk þess nám í
efna- og eðlisfræði við háskólann í
Dublin 1947-51, nám í guðfræði við
HÍ 1953-56 og nám í hagræðingar-
tækni hjá Iðnmálastofnun Íslands
árið 1962.
Guðjón Sverrir var gæðaeftirlits-
sjóri og verkstjóri í málningaverk-
smiðjunni Hörpu 1955-67, fram-
kvæmdastjóri Iðju
1957-70, starfsmaður
Rannsóknarstofnunar
iðnaðarins um árabil
og starfaði hjá Tækni-
stofnun Íslands 1977-
95 þegar hann lét af
störfum sökum aldurs.
Guðjón Sverrir var
alla tíð virkur í fé-
lagsstörfum. Hann sat
í fjölda nefnda og ráða
á vegum Reykjavíkur-
borgar, ríkisins og íþróttahreyfing-
arinnar. Hann var formaður Iðju
1957-70 og ritari 1970-71, sat stjórn
Óðins 1965-69 og var formaður þess
1968-69, var borgarfulltrúi í Reykja-
vík fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1962-66
og á sat sama tíma í flokksráði
flokksins. Hann sat í miðstjórn ASÍ
1968-72. Guðjón Sverrir var formað-
ur knattspyrnufélagsins Þróttar
1965-71. Guðjón Sverrir var sæmdur
gullmerki Iðju og gullmerki Þróttar.
Eftirlifandi eiginkona Guðjóns
Sverris er Valdís Sigurlaug Daníels-
dóttir. Þau eignuðust þrjú börn,
Braga, Herdísi og Sigríði Birnu.
ÁRNI Stefánsson,
fyrrverandi hótelstjóri
á Höfn í Hornafirði,
lést að morgni páska-
dags, rúmlega áttræð-
ur að aldri, en hann var
fæddur 10. júlí 1927 á
Felli í Breiðdal.
Árið 1951 lauk Árni
kennaraprófi og var
hann kennari á Höfn
og í Breiðdal 1951-
1959. Hann var skóla-
stjóri Hafnarskóla á
Höfn 1962-1975.
Ásamt svila sínum,
Þórhalli Dan Kristjánssyni, byggði
Árni og rak Hótel Höfn 1966-1996.
Hann var frumkvöðull í uppbygg-
ingu ferðaþjónustu í Austur-Skafta-
fellssýslu og í forystusveit í þeirri at-
vinnugrein um árabil.
Árni vann mikið að félagsmálum.
Var m.a. formaður í ungmennafélög-
unum Hrafnkatli Freysgoða í Breið-
dal og Sindra á Höfn, einnig í Ung-
mennasambandinu Úlfljóti í
Austur-Skaftafellssýslu og var
dyggur stuðningsmaður íþrótta-
starfs alla tíð. Hann var hrepps-
nefndarmaður á Höfn, sat einnig þar
í skattanefnd, skólanefnd, bygging-
arnefnd, skipulags-
nefnd, stjórn heilsu-
gæslustöðvar og
kjörstjórn til alþingis-
kosninga.
Árni var á meðal
stofnenda Karlakórsins
Jökuls og lengi formað-
ur hans. Hann vann og
að stofnun á vikuritinu
Eystra-Horni. Sat í
frœðsluráði Austur-
lands, var stjórnarmað-
ur í Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga, Jökla-
ferðum hf. og í
Sambandi veitinga- og gistihúsaeig-
enda. Hann var formaður í sóknar-
nefnd Hafnarsóknar í mörg ár, starf-
aði í Bridsfélagi, Lionsklúbbi og
Golfklúbbi Hornafjarðar og tók þátt
í leiksýningum á Höfn um árabil.
Hann helgaði sig síðar félagsstarfi
eldri borgara og var í nokkur ár for-
maður Félags aldraðra á Höfn.
Árni hlaut m.a. heiðursmerki KSÍ,
SVG, Úlfljóts og Karlakórsins Jök-
uls.
Eftirlifandi eiginkona Árna er
Svava Sverrisdóttir. Börn þeirra eru
Hjördís, Sigurbjörg, Árni Stefán,
Gísli Sverrir, Guðlaug og Gauti.
Andlát
Árni Stefánsson Guðjón Sverrir
Sigurðsson