Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 11
FRÉTTIR
Vildarklúbbur
WWW.VILDARKLUBBUR
.IS
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.IS
IC
E
41526
03
/08
HJÁ VILDARFYRIRTÆKJUM
VISA OG ICELANDAIR
Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair safna
Vildarpunktum hraðar með því að beina viðskiptum
sínum til Vildarfyrirtækja Vildarklúbbsins.
Frá 17. mars til 1. apríl fá þeir tvöfaldan afslátt í formi
Vildarpunkta þegar þeir greiða
með kortinu sínu.
Meðal Vildarfyrirtækjanna eru:
OLÍS, um allt land
ÓB, um allt land
SÓLNING, Smiðjuvegi 32—34
SÓLNING, Fitjabraut 12, Njarðvík
SÓLNING, Austurvegi 58, Selfossi
BARÐINN, Skútuvogi 2
TVÖFALDIR
VILDAR-
PUNKTAR
TIL 1. APRÍL
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖG á höf-
uðborgarsvæðinu efndu til páska-
eggjaleitar á laugardag.
Leyndust egg bæði við Ægisíð-
una og í Elliðaárdal og var líf í
tuskunum þegar litlir eggja-
veiðimenn hlupu um í leit að eggi
bak við stein eða þúfu.
Það er ævaforn siður að skraut-
lita egg á þessum árstíma og rekur
alfræðivefurinn Wikipedia þessa
iðju allt til nýársfagnaðar Persa um
jafndægur á vori.
Í mörgum kristnum löndum varð
það siður hjá yfirstétt á 17. öld að
gefa skreytt páskaegg, og breiddist
siðurinn fljótlega til alþýðunnar.
Hafa alls kyns leikir orðið til kring-
um eggin, eins og eggjaleitin.
Leita að
litríkum
eggjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leit Eggjaleitendur við Ægisíðu rýndu gaumgæfilega í hverja þúfu og runna í leit að skreyttum eggjum.
UM sex af hverjum tíu íbúum Afr-
íkuálfu eru án viðunandi salernisað-
stöðu og ógnar lélegt hreinlæti
heilsu fólks.
Þannig hefst sameiginleg tilkynn-
ing sem Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna og Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin sendu frá sér í tilefni af
degi vatnsins 22. mars.
Í tilkynningunni segir jafnframt
að til að vera viðunandi þurfi salern-
isaðstaða að halda skólpi frá snert-
ingu við umhverfi fólks. Um allan
heim hafa um 2,6 milljarðar manna
ekki aðgang að klósetti á heimilum
sínum og eru sökum bágrar salern-
isaðstöðu berskjaldaðir fyrir fjölda
sjúkdóma.
Niðurgangur er næstalgengasta
dánarorsök barna í þróunarlöndun-
um, en það eru einkum vatnsból
spillt af úrgangi, sem eru orsök slíks
smits. Þá má rekja aðra alvarlega
sjúkdóma á borð við kóleru, blóð-
ögðuveiki og alvarlegar augnsýking-
ar til lélegrar salernisaðstöðu og
skólpfrágangs.
Í tilkynningunni er bent á að
hreinlæti er hornsteinn góðrar lýð-
heilsu, og með einföldum og ódýrum
lausnum mætti draga úr tíðni nið-
urgangssjúkdóma um þriðjung. Þá
hefur greiður aðgangur að salerni
áhrif á öryggi fólks, einkum kvenna
og stúlkna sem eiga á hættu að verða
fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis
þegar þær þurfa að fara út úr húsi að
nóttu til til að gera þarfir sínar.
Einnig er bætt salernisaðstaða í
skólum til þess fallin að auka skóla-
sókn og draga úr líkum á að börn
hætti í námi, sérstaklega stúlkur.
Léleg salern-
isaðstaða
ógnar heilsu
MIKILL fjöldi fólks lagði leið sína á skíðasvæðin tvö á Austur-
landi, Stafdal og Oddsskarð, um páskahelgina. Forsvarsmenn
skíðasvæðanna höfðu skipulagt uppákomur alla helgina sem
líklegt má telja að hafi dregið að skíðaiðkendur alls staðar að
af landinu. Voru skíðaiðkendur á öllum aldri og nutu þess að
renna sér á fannhvítum snjónum í blíðskaparveðri.
Í Stafdal er búið að setja upp leikjabraut þar sem gestir
gátu spreytt sig og fyrir neðan skíðasvæðið var vélsleðabraut
þar sem vélsleðamenn geta látið gamminn geisa. Á páskadag
var farið í páskaeggjaleit auk þess sem haldið var sérstakt
brettamót.
Í Oddsskarði var haldin svokölluð Alpahátíð. Þar var
tírólastemning í algleymingi um helgina auk þess sem sérstök
áhersla var lögð á brettaíþróttina. Til Austfjarða var komið
tríó alla leið frá Týról sem lék fyrir skíðaiðkendur og á sér-
stöku Týrólakvöldi sem og á Týrólahátíð í Valhöll. Í skíða-
brekkunum tróð Magni Ásgeirsson upp með hljómsveit sinni
Á móti sól föstudaginn langa og mæltist það afar vel fyrir
meðal viðstaddra.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Sól, sól skín á mig