Morgunblaðið - 25.03.2008, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.03.2008, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FYRSTU lýðræðislegu kosning- arnar í Bhutan fóru fram í gær og var kjörsókn um 80% en rösklega 300 þúsund manns voru á kjörskrá. Tveir flokkar buðu fram og virðist annar óvænt hafa unnið yfirburða- sigur, 44 af alls 47 þingsætum í neðri deildinni. Gert hafði verið ráð fyrir mun jafnari baráttu. Bhutan verður nú þingbundið konungdæmi en ljóst þykir að þjóð- höfðinginn, Jigme Khesar Namgyel Wangchuk konungur, muni áfram hafa nokkur áhrif. Búist er við að leiðtogi Einingarflokks Bhutans (DPT), Jigmi Thinley, sem er 56 ára og hefur tvívegis gegnt emb- ætti forsætisráðherra í stjórnum sem konungur skipaði sjálfur, myndi stjórn. Ráðherrann verðandi er með meistaragráðu í stjórnsýslu frá Pennsylvaníu-háskóla í Banda- ríkjunum. Keppinautur DPT var Lýðræð- isflokkur alþýðunnar (PDP) undir forystu Sangay Ngedup sem er frændi konungsins en náði ekki einu sinni sjálfur kjöri. Stjórn- málaskýrendur segja að Thinlay hafi þótt vera alþýðlegri. Einkum njóti hann hylli bláfátækra Bhut- anmanna en tengsl keppinautarins við konungsættina hafi háð honum í kosningunum þótt konungsættin sé vinsæl. Margir íbúanna voru fullir efasemda um þá nýbreytni að kjósa sér leiðtoga og óttuðust af- leiðingarnar. Konungurinn beitti sér ákaft fyrir helgi til að tryggja að kjörsókn yrði góð og virðist hvatning hans hafa borið árangur. Fólk klæddist sínu fínasta pússi og myndaði skipulagðar biðraðir við kjörstaðina. Bhutan, „Land þrumudrekans“, liggur milli Indlands og Kína, það er á stærð við Sviss, mjög afskekkt og umlukið Himalajafjöllum. Íbú- arnir eru nær allir búddistar. Stefna konungsættarinnar er að „þjóðarhamingja“ sé mikilvægari en „þjóðarframleiðsla“ og vill hún þannig leggja áherslu á að haldið sé fast í gamlar hefðir og óskadd- aða náttúru. Talið er að um fimmt- ungur þjóðarinnar lifi undir fátækt- armörkum og atvinnuleysi hefur aukist hratt á seinni árum. Með kosningunum lauk sögu um 90 ára konungseinveldis en þar áð- ur skiptist Bhutan í fjölmörg smá- ríki. Konungurinn er 28 ára og menntaður í Oxford-háskóla í Bret- landi. Faðir hans ýtti úr vör lýð- ræðisþróun árið 2001. Lýðræðið tekur völdin í Bhutan Reuters Ró og spekt Bhutanmenn í biðröð við kjörstað í borginni Thimpu í gær. Allt fór vel fram en sumum íbúunum leist ekki vel á þessa nýbreytni. Konungsættin vill meiri áherslu á „þjóð- arhamingju“ en „þjóðarframleiðslu“ MÓTMÆLI gegn stefnu kínverskra stjórnvalda í Tíbet geisuðu áfram í gær í þeim héruðum landsins þar sem mik- ið er um Tíbeta. Er vitað með vissu að minnst einn lög- reglumaður lét lífið í Sichuan-héraði og óstaðfestar fréttir frá samtökum sem styðja Tíbeta hermdu að munkur og bóndi í héraðinu hefðu einnig dáið. Einn af leiðtogum út- lægra Tíbeta, Samdhong Rinpoche, sagði að staðfest hefði verið að 130 manns hefðu látið lífið í Tíbet eftir að mótmæl- in hófust fyrir tveim vikum. Þrír menn trufluðu athöfn í hinni fornu Ólympíu í Grikk- landi í gærmorgun þar sem verið var að kveikja ólympíu- eldinn. Mennirnir hlupu inn á svæðið þegar Liu Qi, for- maður framkvæmdanefndar leikanna sem verða í Peking í ágúst, var að flytja ávarp sitt. Mótmælendurnir héldu m.a. á borða þar sem ólympíuhringjunum fimm hafði verið breytt í handjárn, á öðrum stóð: „Sniðgöngum ríkið sem traðkar á mannréttindum“. Einn mannanna reyndi að taka hljóðnemann af Liu og hrópaði „frelsi, frelsi“ í átt að heið- ursstúku þar sem sátu fulltrúar Alþjóðaólympíunefndar- innar, þ.á m. Jacques Rogge, formaður nefndarinnar. Ör- yggisverðir gripu þegar mennina og fluttu þá á brott. Stjórn kommúnista í Peking hefur lagt sig fram um að hindra fréttaflutning af ástandinu í Tíbet og öðrum svæð- um þar sem mótmæli fara fram og sáralítið hefur verið sagt frá þeim í fjölmiðlum landsins. Nokkrar kínverskar sjónvarpsstöðvar sýndu frá athöfninni í Ólympíu í gær, ekki þó beint heldur með nokkurra sekúndna töf. Kín- verska ríkissjónvarpið, CCTV, hætti útsendingu frá at- höfninni þegar mótmælin hófust og sýndi þess í stað gaml- ar myndir frá Ólympíu. Mennirnir sem mótmæltu við athöfnina voru allir Frakkar, liðsmenn samtakanna Fréttamenn án landmæra sem berjast fyrir tjáningarfrelsi um allan heim og var for- maður samtakanna, Robert Menard, í hópnum. „Sé ólymp- íueldurinn heilagur eru mannréttindi enn heilagari,“ sagði í yfirlýsingu sem Fréttamenn án landamæra sendu frá sér. „Við höfum ekkert á móti Ólympíuleikunum eða íþrótta- fólkinu,“ sagði Menard. „Við viljum vekja athygli á þeirri staðreynd að Kína er stærsta fangelsið í heiminum,“ sagði hann í símaviðtali við AP-fréttastofuna er búið var að handtaka hann. Grísk yfirvöld ákærðu mennina fyrir að trufla athöfnina. Eftir að kveikt hafði verið á ólympíukyndlinum hljóp gríski taikwondo-maðurinn Alexandros Nikolaidis fyrsta sprettinn með eldinn en nokkrir stuðningsmenn Tíbeta höfðu komið sér fyrir við götuna og hrópuðu slagorð gegn Kínastjórn. Tíbetsk kona sem slett hafði rauðri málningu á sig lagðist á götuna og drógu lögreglumenn hana burt. Eldurinn verður fluttur 137 þúsund kílómetra vegalengd til Peking. „Kína er stærsta fangelsið í heiminum“ Stuðningsmenn frelsisbaráttu Tíbeta trufluðu athöfnina þegar ólympíueldurinn var tendraður í Grikklandi Reuters Settur í járn? Stuðningsmaður Tíbeta úr samtökunum Fréttamenn án landamæra er handtekinn í hinni fornu Ól- ympíu í Grikklandi í gær, hann er með fána þar sem Ólympíuhringirnir fimm eru sýndir í líki handjárna. Fremst er fulltrúi stjórnvalda í Kína að flytja ávarp sitt við athöfnina þar sem kyndillinn hefðbundni var tendraður. DAVID Petraeus, hershöfðingi og æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í Írak, segist í viðtali við breska út- varpið, BBC, í gær hafa undir hönd- um gögn sem sýni að Íranar hafi staðið á bak við árásir sem voru gerðar á Græna svæðið svokallaða í Bagdad í gærmorgun en þar eru víg- girtar bækistöðvar Bandaríkja- manna í borginni. Al-Quds-sveitir ír- anskra stjórnvalda hefðu séð um að þjálfa, útbúa og fjármagna uppreisn- armenn sem gerðu árásirnar og beitt hefði verið vopnum sem smíðuð hefðu verið í Íran. Fimm manns særðust í árásunum. Fjórir bandarískir hermenn létu í gær lífið af völdum vegasprengju og hafa nú alls 4.000 bandarískir her- menn fallið í Írak frá innrásinni í mars 2003, þar af 108 konur. Mest var mannfallið í nóvember 2004 en þá féllu 137 Bandaríkjamenn. Að jafnaði falla nú tveir Bandaríkja- menn í mánuði. Mörg þúsund liðs- menn hins endurreista hers og lög- reglu Íraks hafa einnig fallið í átökum við hermdarverkamenn og uppreisnarhópa síðustu árin. Afar umdeilt er hve margir óbreyttir borgarar hafa látið lífið enda oft erfitt að greina á milli óbreyttra borgara og liðsmanna uppreisnarhópa. Hafa verið nefndar tölur frá nokkrum tugum þúsunda upp í liðlega milljón manns. Óháð stofnun sem oft er vitnað til, Iraq Body Count, segir á vefsíðu sinni að staðfest sé með vissu að tæplega 90.000 óbreyttir borgarar hafi látið lífið af völdum stríðsins. Reuters Harmur Syrgjendur við útför fórnarlambs árásar í Bagdad. Saka Írana um árás í Bagdad Bandaríkin hafa nú misst alls 4.000 NEÐRI deild pakistanska þingsins kaus í gær hinn 55 ára gamla Yousaf Raza Gilani í embætti forsætisráð- herra landsins en hann var náinn ráðgjafi Benazir Bhutto sem var myrt í desember. Pervez Mus- harraf, forseti Pakistans, rak tugi dómara í nóvember sl. og fyrsta embætt- isverk Gilanis var að fyrirskipa að öllum dóm- urunum yrði sleppt úr haldi. Fyrrverandi forseti hæstaréttar landsins, Iftikhar Chaudhry, var meðal þeirra sem hlutu frelsi eftir ákvörðun Gilanis og veifaði hann til liðsmanna sinna í gær af svölum heimilis síns ásamt eiginkonu og börnum. Áður höfðu ákafir stuðningsmenn dómarans rif- ið niður gaddavírsgirðingu við húsið. „Lýðræðið hefur í dag verið end- urreist fyrir tilstilli hinna miklu fórna Benazir Bhuttos,“ sagði Gilani í gær. Væntanleg stjórn hans nýtur stuðnings tveggja öflugustu flokk- anna sem sneru bökum saman gegn frambjóðanda Musharrafs, Gilani hlaut 264 atkvæði af alls 342 í þing- deildinni. Kosinn forsætis- ráðherra Yousaf Raza Gilani ♦♦♦ BORGARSTJÓRINN í Detroit í Bandaríkjunum, demókratinn Kwame Kilpatrick, var í gær ákærð- ur fyrir meinsæri og fleiri brot. Fundist hafa sms-sendingar sem þykja benda til að hann hafi logið þegar hann neitaði fyrir rétti að hafa átt í ástarsambandi við fyrrverandi skrifstofustjóra sinn, Christine Beatty. Þau eru bæði 37 ára gömul og á sambandið að hafa staðið yfir árin 2002-2003. Tveir lögreglumenn segjast hafa verið reknir þegar þeir rannsökuðu ásakanir um að borgarstjórinn nýtti sér öryggisverði til að leyna framhjáhaldinu. Verði Kilpatrick fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Sjálfur vísar hann allri sekt á bug. Hann er giftur og á þrjú börn. Beatty hefur þegar verið dæmd fyrir meinsæri vegna málsins. Sak- sóknarinn Kym Worthy segir heið- arleika í svörum vera undirstöðu dómskerfisins og sakar Kilpatrick um að hafa reynt að hindra fram- gang réttvísinnar og um brot í starfi. Sekur um meinsæri?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.