Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 19
Í snertingu við tónlist
iPod touch
8 GB (2000 lög)
120 g
3,5” snertiskjár
Spilar myndbönd
Innbyggt þráðlaust netkort
Vafri, YouTube og dagbók
Rafhlaðan endist allt að 22 klst.
8 GB iPod touch á fermingartilboði
Fí
to
n
/
S
ÍA
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
Fireant hátalarar
Verð frá 26.990 kr.
Griffin Road Trip 6.990 kr.
Griffin iTrip 4.990 kr.
Griffin iTrip auto scan
7.990 kr.
USB sjónvarpsmóttakari
12.990 kr.
Bose SoundDock
Portable 44.990 kr.
USB auto adapter fyrir
iPod 3.490 kr.
Áður 42.990 kr.36.990 kr.
TILBOÐ
36.990 kr.
Fermingartilboðið gildir til 31. mars 2008
iPod touch
Raunstærð:
61,5 x 110 x 8 mm
Aðeins 120 g
iPod touch er með snertiskjá, fullkomnasti iPod sem
völ er á. Tækið sameinar eiginleika iPod spilara og
lófatölvu og kemur þér þráðlaust á netið. Með einum
fingri á snertiskjánum vafrar þú að vild á netinu eða
flettir í gegnum tónlistina þína. Þar að auki geturðu
horft á kvikmyndir og þætti á 3,5" breiðtjaldsskjá
þess eða skoðað YouTube.
Einfaldleiki, þægindi og skemmtun með iPod touch.
þegar lið lögðu litla
áherslu á varnarleik en
sóttu af þeim mun
meiri krafti. Þá var
ekki óalgengt að sjá
lokatölur á borð við 7:4
og 6:5 eða þá 4:4 eins
og á White Hart Lane
um daginn.
x x x
Stórleikirnir ápáskadag voru líka
ágætir enda þótt mörk-
in væru færri. Víkverji
sér ekki annað en Man-
chester United verji
titil sinn úr þessu.
Staðan er vænleg fyrir
sjö síðustu umferð-
irnar og liðið ógn-
arsterkt. Samt er
óþarfi að afskrifa hið
ólseiga lið Chelsea fyrr
en í fulla hnefana. Ekki
síst ef Didier Drogba
er vaknaður af værum
blundi. Þá eiga liðin
eftir að glíma á Stam-
ford Bridge, heimavelli
Chelsea.
Tapið á Brúnni er
líklega banabiti Arsen-
al, sem lengi vel hélt
uppi hraðanum í deild-
inni. Arsenal-liðið í vet-
ur er eins og maður sem er fremstur
í röðinni fyrir utan skemmtistað en
er síðan synjað um inngöngu í dyra-
gættinni vegna þess að hann er ekki
með skilríki.
x x x
En enska úrvalsdeildin er ekkibara sú skemmtilegasta heldur
líka sú sterkasta í heimi. Nægir þar
að benda á, að fjögur efstu liðin eru
öll komin í átta liða úrslit í Meist-
aradeild Evrópu. Þar munu tvö
þeirra, Liverpool og Arsenal, kljást
innbyrðis og bíða sparkunnendur
þeirrar viðureignar með óþreyju.
Það má mikið ganga á ef enskt lið
verður ekki Evrópumeistari í ár.
Enska knattspyrnan er engu lík.Í raun er varla hægt að hugsa
sér betri skemmtun í nokkru formi
eða mynd. Máli sínu til stuðnings
vísar Víkverji til leiks Tottenham
Hotspur og Chelsea á White Hart
Lane síðastliðinn miðvikudag. Hrað-
inn, sóknarþunginn og sviptingarnar
voru svo miklar í leiknum að Vík-
verji var löðursveittur þegar hann
stóð upp úr stólnum að honum lokn-
um. Sá sæng sína uppreidda og
staulaðist í steypibað. Fylgir hann
þó hvorugu liðinu að málum. Raunar
eru leikir Tottenham í seinni tíð nær
undantekningarlaust ávísun á taum-
lausa skemmtun, einskonar aft-
urhvarf til áranna fyrir seinna stríð
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
ÞÆR mæður sem hætta að
reykja meðan á meðgöngu stend-
ur eignast glaðlyndari og með-
færilegri börn, samkvæmt rann-
sókn sem vísindamenn við
háskólann í York unnu að og
greint var frá í fagtímaritinu
Journal of Epidemiology and
Community Health. Börn mæðra
sem reyktu á meðgöngu voru
skapstyggari en börn þeirra
mæðra sem hættu og raunar
voru börn þeirra mæðra sem
aldrei hafa reykt einnig mislynd-
ari en mæðranna sem hættu að
reykja. Þetta fær vísindamennina
til að álykta að þær mæður sem
hættu að reykja á meðgöngu sýni
börnum sínum einnig aukna ást-
úð með öðrum hætti.
Rannsóknin náði til 18.000
breska barna sem fæddust á ára-
bilinu 2000 til 2002. Mæður
barnanna voru látnar svara
fjölda spurninga, t.d. hvort börn
þeirra tækju vel eftir nýjungum í
umhverfi sínu, hvort þau óttuðust
ókunnuga og hvort þau væru
glaðlynd eða ekki. Mæðurnar
voru síðan skilgreindar sem stór-
reykingamanneskjur, konur sem
reyktu minna, konur sem hefðu
hætt og konur sem aldrei hefðu
byrjað að reykja. „Sá hópur
kvenna sem hafði hætt að reykja
átti að sögn vísindamannanna,
áberandi meðfærilegustu börnin.
Þetta er mikilvæg tenging og
við getum verið viss um að þetta
er ekki tilviljun,“ hefur vefmiðill-
inn msnbc.msn.com eftir dr. Kate
Pickett, sem fór fyrir rannsókn-
inni. „Það er alltaf mikið mál að
hætta að reykja og við vitum að
flestar þeirra kvenna sem hætta
að reykja á meðgöngu byrja aft-
ur síðar. Þess vegna teljum við
að ákvörðun kvennanna byggi á
því móðureðli að vernda börn
sín. Við lítum á þetta sem tákn
um karakter þeirra kvenna sem
ná að hætta. Það kann líka að
vera til merkis um þægilegt lund-
arfar þeirra,“ segir Pickett.
Börn mæðra
sem hætta
að reykja
ánægðari
Reykingar Konur sem hætta að
reykja á meðgöngu eiga glaðlynd-
ustu börnin.
AP