Morgunblaðið - 25.03.2008, Page 26

Morgunblaðið - 25.03.2008, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásta Ingv-arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 4. nóvember 1955. Hún andaðist á heimili sínu, Leið- hömrum 44 í Reykjavík, 13. mars síðastliðinn. For- eldrar hennar eru hjónin Ingvar Þor- steinsson, hús- gagnasmíðameist- ari í Reykjavík, f. 28. maí 1929, og Steinunn Guðrún Geirsdóttir, húsfreyja, f. 31. jan. 1930. Ásta var þriðja elst fimm 1927. Börn þeirra Ástu og Brynj- ólfs eru Auður, f. 16. september 1976, unnusti Haraldur Ágúst Sigurðsson, f. 23. júní 1974, Inga Lillý, f. 8. desember 1979, eig- inmaður Þorsteinn Gunnarsson, f. 27. nóvember 1978, og Bjarni, f. 9. apríl 1985, unnusta Sigrún Ív- arsdóttir, f. 10. desember 1988. Ásta ólst upp í Reykjavík. Hún stundaði nám í tækniteiknun við Iðnskólann í Reykjavík og lauk náminu árið 1975. Hún hóf störf hjá Verkfræðistofu Stefáns Ólafs- sonar hf., nú VSÓ Ráðgjöf ehf., árið 1972 og starfaði þar til ævi- loka, síðustu árin sem skrif- stofustjóri. Ásta verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. systkina. Hin eru Re- bekka, f. 24. mars 1951, d. 12. febrúar 2008, Bergljót, f. 8. feb. 1954, Þorsteinn, f. 19. mars 1960 og Geir Örn, f. 9. apríl 1967. Ásta giftist 7. júní 1975 Brynjólfi Ey- vindssyni, lögmanni, f. 1953 í Reykjavík 8. desember. Foreldrar hans eru Eyvindur Ólafsson, járn- smiður, f. 1. apríl 1926, d. 25. apríl 1996 og Bjarndís Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 16. júlí Nú er stríðinu lokið eftir langa baráttu við krabbameinið. Ásta hef- ur fengið frið en það er sárt að sjá á eftir góðum konum, fyrst Rebekku og nú Ástu. Fjölskyldan situr eftir harmi slegin og það skarð sem þær systur skilja eftir er erfitt að fylla. Ásta var besta manneskja sem við höfum þekkt, ávallt brosandi, lífs- glöð, sterk og umhyggjusöm. Hún háði hetjulega baráttu við sjúkdóm- inn og sýndi ótrúlegt þrek og æðru- leysi í veikindum sínum. Það er svo margt sem kemur upp í hugann núna. Svo margar góðar minningar sem við áttum saman. Þakklæti er okkur efst í huga fyrir að hafa kynnst Ástu. Þakklæti fyrir að hafa haft hana í lífi okkar. Ásta hugsaði vel um alla og var alltaf tilbúin að hjálpa, hún átti alltaf stund til að hlusta og það var mikil ánægja að umgangast hana og Binna. Ásta átti því láni að fagna að eiga góðan eiginmann og lífsförunaut, Binni stóð traustur við hlið hennar alla tíð. Þau voru samhent hjón og miklir vinir. Samband þeirra ein- kenndist af væntumþykju og virð- ingu. Þau voru góð heim að sækja og gestkvæmt var á heimilinu. Það var svo gaman að koma í heimsókn til Ástu og Binna. Heimilið var eins og félagsheimili fyrir vini og vanda- menn. Börn Ástu og Binna, Auður, Inga Lillý og Bjarni, hlutu gott og ástríkt uppeldi og eru yndisleg börn. Ást og umhyggja fjölskyldunnar kom vel í ljós í veikindum Ástu. Þau reyndu að hjálpa henni á allan hátt og voru henni stoð og stytta í öllu sem á þurfti að halda. Systurnar Ásta og Rebekka voru hetjur sem háðu mikla baráttu og skilaboð þeirra til okkar eru skýr. Lífið er yndislegt og það heldur áfram. Að leiðarlokum Ástu er margs að minnast og fyrir margt að þakka. Fjölskyldan á sér sterkt bakland og munum við sem endranær hugsa vel hvert um annað og heiðra minningu um systurnar sem sárt er saknað. Elsku Binni, Auður, Halli, Inga Lillý, Steini, Bjarni, Sigrún, Ingvar og Lillý við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Okkar missir er mik- ill en minningin um góða konu mun lifa. Minning hennar mun ávallt lifa. Hvíl í friði, elsku Ásta og góða ferð. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þorsteinn, Ragna, Ingvar og Sigríður Alexandra. Þegar ég nú kveð dásamlega mág- konu mína rifjast upp öll þau góðu ár sem við Rebekka áttum saman með Ástu og Binna, þá sérstaklega öll ferðalögin og allir veiðitúrarnir. Það er mér sérstaklega minnisstætt hvað Ásta hafði alltaf gott skap, enda ávallt kát og hress. Ef upp komu einhver vandamál þá bara leysti hún þau í hvelli. Eins og þegar þeim systrum datt í hug að baka smákökur fyrir jólin inn á Hjalla- vegi, þar sem við Rebekka hófum okkar búskap saman. Það var stór- kostleg sjón sem mætti mér þegar ég kom heim úr vinnunni og kom inn í eldhús. Þar stóðu systurnar þrjár, Rebekka, Ásta og Begga, í bakstri og hafði komið upp það vandamál að það var ekki rétt kló á hrærivélinni. Ásta leysti það vandamál í hvelli og- sat hún flötum beinum á gólfinu með hrærivélaskálina í kjöltunni og hrærði deigið með miklum krafti. Þessi bakstur þeirra systra varð til þess að ég fann krukkur og dollur fullar af smákökum inni í skápum fram eftir öllu árinu. Ég gæti skrifa heila bók um Ástu og allt það sem hefur gerst á þessum 38 árum sem nú eru liðin, eða síðan ég kom inn í þessa dásamlegu fjöl- skyldu þeirra systra. Við fórum öll eitt sinn í ferðalag til Spánar og vor- um þar í heilan mánuð á hóteli. Þetta var á dögum fyrir kreditkortin svo við vorum orðin frekar peninga- lítil og áttum við varla fyrir þjór- fénu. Þá datt Ástu og systrunum í hug að safna saman öllum flöskun- um og dósunum inni á herbergjun- um okkar og selja svo niðri í búðinni. Í staðinn fengu þær á annað hundr- að sleikjóa sem var gengið með um hótelið og starfsfólkið spurt hversu mörg börn þau áttu og fengu svo sleikjó fyrir hvert og eitt þeirra. Þetta mæltist svo vel fyrir að þeir sem voru á frívakt þennan dag komu upp á herbergi daginn eftir til að fá sleikjóa fyrir sig og sína. Ég held að það hafi enginn áður glatt eins stór- an hóp með eins litlu og þær systur gerðu þarna. Svo árið 2004 veiktist Rebekka og veikindin tóku sig einn- ig upp hjá Ástu. Þá var ákveðið að fara ferðast og nýta tímann okkar vel. Það gerðum við með því að fara í tvær siglingar og tvisvar síðan til Kaupmannahafnar, en einnig fóru Ásta og Inga Lillý saman til Ítalíu að hitta Auði og Halla. Alltaf þegar ég spurði Ástu hvernig hún hefði það var svar hennar alltaf að hún hefði það fínt og svo brosti hún út að eyrum. Þegar þær Rebekka lágu saman uppi á Landspítala sagði Re- bekka við mig: „Ég skil ekki í henni Ástu, hérna er hún fárveik og liggur bara og prjónar!“ En þetta einmitt lýsir henni Ástu best, þessari dásamlegu manneskju sem ég kveð hér og bið að skila kveðju frá mér og börnunum til systur sinnar. Binni minn, þú hefur misst góða konu og Auður, Inga Lilly og Bjarni elskulega móður. Missir tengdafor- eldra minna, Ingvars og Lillýjar, er mikill en að missa tvær dætur með mánaðar millibili er meira en leggj- andi er á eldri hjón, en Ásta og Re- bekka skilja eftir sig dásamleg börn sem munu hugsa vel um ömmu sína og afa. Ég vil votta Binna, Auði, Ingu Lilly og Bjarna og Ingvari og Lillý og fjölskyldu samúð mína. Þinn mágur Einar. Ég vil minnast Ástu mágkonu minnar til 36 ára með þessu fallega ljóði sem heitir Ásta. Þótt hún horfðist í augu við fjandafjöld henni féllust ei hendur, vék ekki um spönn. Jafnvel er ævinnar komið var kvöld og kraftarnir þurru var óslitin önn allt hennar líf. Hún var öðrum hlíf, einstök, heilsteypt og sönn. Sá er hugsar án afláts um annarra hag, hvert andartak, hann er bestur. Sá er ann sér ei hvíldar einn einasta dag sem er hann á jörðinni gestur en skilyrðislaust með skipandi raust heimtar skerf þeirra smæstu – er mestur. Því var ekki öllum svo auðvelt að tjá sinn einlæga harm er hún lést, þessi einstaka kona er allir þeir dá sem örlögin léku verst, þeirra sorg er svo sár. Þeirra saknaðartár sýna að þeir þekktu hana best. (Ásgeir Árnason) Elsku Binni bróðir, Auður og Halli, Inga Lillý og Steini, Bjarni og Sigrún, Ingvar og Lillý, systkini og aðrir ættingjar. Harmur okkar er með eindæmum mikill, en minningin um bros Ástu og glæsileika mun ylja okkur um ókomin ár. Í mínum huga varst þú ekki að- eins mágkona heldur frábær vinur og félagi. Þú varst besta kona í heimi. Þín mágkona Camilla. Sterk og ljúf kona eru orð sem koma upp í huga minn er ég minnist Ástu frænku minnar. Hún var alltaf svo jákvæð og eins var stutt í brosið og hláturinn. Hún vildi allt fyrir alla gera og sá alltaf það besta í öllum. Allar veislurnar og veiðiferðirnar, sem þau Binni buðu til gleymast ekki. Við fjölskyldurnar, foreldrar mínir og þau borðuðum alltaf saman á jóladag og á gamlárskvöld og var borin fram dýrindismatur. Ásta var ung er hún veiktist fyrst, en hún barðist eins og hetja í veik- indum sínum og aldrei heyrði ég hana kvarta undan neinu. Sem barn var ég svo hrifin af rauða varalitnum og rauðu nöglunum hennar, hún var alltaf svo fín. Ég var svo montin af því að vera skírð í höfuðið á henni, og fannst ég eiga stóran hlut í henni. Hún var engill í mannsmynd og sagðist vera varamamma mín. Við mæðgurnar ásamt Ástu og Inga Lillý fórum í ógleymanleg ferð til London fyrir bráðum fimm árum sem ég á aldrei eftir að gleyma. Allt sem hún gerði fyrir okkur Jasmín verður seint fullþakkað. Ég veit að þær Rebekka hugsa um vel Emilíu Líf og að nú er hún í góðum hönd- um. Ég gæti skrifað endalaust um Ástu og aðáun mína á henni, ég mun alltaf minnast hláturs hennar og brossins. Nú kveð ég elsku Ástu með mikilli sorg í hjarta. En ég veit að tíminn læknar öll sár og ég mun hitta hana aftur. Elsku Binni, Auð- ur, Inga Lillý, Bjarni, amma og afi, guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Nokkur orð frá Jasmín Ósk í lok- in: Elsku Ásta, ég sakna þín svo mik- ið. En nú ertu farin til Guðs, Ásta mín. Þú ert svo rosa, rosa góð. Þú varst alltaf svo góð við mig. Bless Ásta. Ásta Bjarndís Bjarnadóttir og Jasmín Ósk Sigurðardóttir. Elsku Ásta mín. Ég sakna þín svo sárt. Mér finnst svo skrítið og óraunverulegt að þú sért farin frá okkur. Það verður erfitt að hugsa um að þú sért ekki með okkur leng- ur. En ég veit að þú ert á góðum stað og ég veit að þú þarft ekki að þjást lengur. Þú hvílir loks í friði. Þú barðist svo hetjulega við erfið veik- indi í mörg ár. Ég mun alltaf minn- ast þín sem góðhjörtuðustu mann- eskju í heimi. Ég man svo vel þegar ég var lítil að ég kom svo oft í heim- sókn til ykkar Binna, Auðar, Bjarna og Ingu Lillýar. Gisti svo oft hjá ykkur. Ég á ekki orð yfir þær stund- ir sem við áttum saman, en þessar frábæru stundir munu alltaf varð- veitast í hjarta mínu. Mér þykir vænt um þig, elsku Ásta mín. Ég nefni nafnið þitt, og nætur myrkrið flýr, því ljóma á loftið slær hið liðna ævintýr. Ég nefni nafnið þitt og nýja heima sé; þar grær hið villta vín, þar vagga pálmatré. Ég nefni nafnið þitt og nóttin verður hlý. Ég heyri klukknaklið frá kirkju í Assisi. Þú kemur móti mér í minninganna dýrð. Í sólskini og söng er sál mín endurskírð. (Davíð Stefánsson.) Þín, Ásta Camilla. Að gefast upp eru orð sem ekki voru til í lífsbók elsku Ástu, móð- ursystur minnar. Baráttugleði henn- ar við illvígan sjúkdóm var með ein- dæmum og okkur öðrum til eftirbreytni. Hún hafði ótrúlegt jafnargeð og setti sjálfa sig aldrei í fyrsta sætið. Vol og væll voru henni ekki að skapi og minnist ég orða hennar síð- ustu dagana fyrir andlátið. Þá gekk ég inn í eldhúsið á Leiðhömrunum og spurði fólkið hvað það segði, heyrist þá strax í Ástu „bara allt gott“. Þessarar setningar mun ég ávallt minnast. Sárlasin en fegin fyr- ir hverja stund. Ég á svo margar minningar um Ástu að ég gæti hreinlega skrifað heila bók. Fjölskyldur okkar bjuggu hlið við hlið, fyrst í Kvistalandi í kjallaranum hjá ömmu og afa, síðan í Réttarselinu og svo að lokum í Grafarvoginum, þar sem stórfjöl- skyldan öll býr. Ég á eina minningu frá æsku sem að mun aldrei hverfa úr huga mér. Það var þegar foreldrar mínir fóru til Srí Lanka 1985 til þess að sækja systur mína og nöfnu hennar Ástu. Þá skrapp ég yfir í næsta hús í 1 mánuð og Ásta frænka tók mig að sér á meðan. Fyrsta alvöruskólaballið mitt í Ölduselsskóla átti sér stað á þessum tíma en þá var ég tólf ára gömul. Diskótímabilið var í hámarki og Ma- donna í miklu uppáhaldi hjá gelgj- unni. Ásta tók hlutverk sitt sem varamamma mjög alvarlega og ætl- aði sko að sjá til að fyrsta ballið yrði eftirminnilegt. Hún dressaði mig upp í langflottasta „outfittið“ á ball- inu, bleika peysu með herðapúðum, grifflur og hlóð á mig allskonar skartgripum. Við skulum ekki einu sinni fara út í hárgreiðsluna. Ásta Ingvarsdóttir ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, HELGA ÞURÍÐUR MARSELLÍUSDÓTTIR, Austurvegi 7, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Ísafirði, fimmtudaginn 20. mars. Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 29. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélagið Sigurvon á Ísafirði. Þórður Pétursson, Áslaug Jóhanna Jensdóttir, Magnús Helgi Alfreðsson, Finnur Guðni Þórðarson, Aðalheiður María Þráinsdóttir, Hilmar F. Þórðarson, Guðmunda Brynjólfsdóttir, Pétur S. Þórðarson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Níels Jón Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir minn og bróðir okkar, STEINDÓR ZÓPHÓNÍASSON, fyrrum bóndi, Ásbrekku í Gnúpverjahreppi, andaðist á hjúkrunar - og dvalarheimilinu Kumbaravogi mánudaginn 17. mars. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju 27. mars kl.13.30. Jarðsett verður í Stóra- Núpskirkjugarði þann sama dag. Ingveldur Sigrún Steindórsdóttir og systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN SVERRIR SIGURÐSSON, áður Grímshaga 7, síðast til heimilis hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, andaðist laugardaginn 22. mars. Útförin verður auglýst síðar. Valdís S. Daníelsdóttir, Bragi Guðjónsson, Ingibjörg Júlíusdóttir, Herdís Guðjónsdóttir, Bjarni M. Jóhannesson, Sigríður B. Guðjónsdóttir, Guðmundur Gíslason, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.