Morgunblaðið - 25.03.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 39
var og heldur ómarkviss. Ómögu-
legt var að klúðra næsta lagi,
„When I‘m Sixty Four“, KK rúllaði
því upp, þótt lítillega hafi hann
ruglast á textanum. „Lovely Rita“
söng Stefán svo af áðurnefndu ör-
yggi og ídentiteti, þar sem síðasta
orði í setningum er gjarnan sleppt
snöggt og með mikilli áherslu.
Brink bætti svo engu við fyrri
frammistöðu í „reprise“ útgáfunni
af titillaginu, þótt hann hafi verið
líflegur. Lokalagið á Sgt. Pepper’s
er „A Day in the Life.“ Það hefði
og með réttu átt að verða hápunkt-
ur tónleikanna. Svo fór hins vegar
ekki. Byrjunin var heldur stirð og
spilamennskan framan af ekki
nógu afslöppuð. Þetta lagaðist þeg-
ar líða tók á lagið, sem Daníel söng
annars nokkuð vel. KK skilaði svo
millikaflanum einfalda með ágæt-
um. Síðustu taktar lagsins urðu
góðu heilli magnaðir í flutningi
hljómsveitarinnar, enda um eitt-
hvert stórkostlegasta „finale“
hljómplötusögunnar að ræða.
Ekki var annað hægt en að
klappa hljómsveit og söngvara upp
eftir um margt frábæra frammi-
stöðu. Þá var talið í nokkur frábær
Bítlalög til viðbótar, þar sem hæst
bara hinn stórkostlegi lokahluti síð-
ustu hljóðversplötu Bítlanna, Ab-
bey Road. Flutningurinn á því var
afbragð, þar sem Björgvin Hall-
dórsson fór fyrir fríðum flokki.
Aðstandendum tónleikanna skal
hér þakkað fyrir frábæra skemmt-
un, þótt sitthvað hafi verið að-
finnsluvert. Hljómsveitin stóð sig
með mikilli prýði og útsetningarnar
sem hún lék voru flestar ágætar,
þótt stöku sinnum hafi borið of
mikið á óþarfa skrauti.
En þrátt fyrir mikið flúr var bítl-
ið aldrei alveg kæft og ánægjulegt
var að hlýða á frábærar bakraddir
Péturs Arnar og Haraldar Vignis. Í
bakröddunum lá bítlið ekki síst.
Hin hefðbundna hrynsveit sá líka
til þess að halda uppi hefðbundnu
bítli, þar sem Guðmundur Pét-
ursson fór ítrekað á kostum.
Megi tónlist Bítlanna lifa um alla
framtíð.
Orri Harðarson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞETTA hefur verið frábært,“ sagði
Agnes Johansen í gær, um 20 mín-
útum eftir að tökum lauk í Rotterdam
fyrir kvikmynd Óskars Jónassonar,
Reykjavík-Rotterdam. Agnes starfar
hjá fyrirtækinu Sögn/Blueeyes Pro-
ductions sem framleiðir myndina.
Þrír íslenskir leikarar voru við tökur í
Rotterdam frá skírdegi til annars í
páskum en hollenskir leikarar léku
einnig í myndinni. Íslensku leik-
ararnir sem staddir voru úti fara með
helstu hlutverk í myndinni, þeir Balt-
asar Kormákur, Þröstur Leó Gunn-
arsson og Jörundur Ragnarsson.
Myndin segir af manni í fjárhags-
legum vandræðum sem hyggst leysa
úr þeim með smygli. „Þetta er mið-
hlutinn í myndinni,“ segir Agnes um
þann hluta sögunnar sem gerist í
Rotterdam. „Það er farinn smygltúr
til Rotterdam og þar verða ófyr-
irséðir atburðir sem hafa ákveðnar
afleiðingar í för með sér, snúa sög-
unni dálítið við.“
Áhöfnin á Dettifossi frá Eim-
skipum lék stórt hlutverk í tökunum
sem fóru fram í fyrrinótt og gærdag,
en tökuliðið var lóðsað um borð í skip-
ið í Rotterdam-höfn og vann um borð
í tvo tíma þar til lagt var að bryggju.
Þekktur hollenskur leikari
Tökur á stórum hluta myndarinnar
fóru fram í Reykjavík í október og
nóvember í fyrra og hefur sá hluti
þegar verið klipptur. Enn á eftir að
taka hluta myndarinnar á Íslandi og
stendur til að frumsýna myndina í
haust. Agnes segir mikinn hasar hafa
verið við tökur. „Já, fullt af skemmti-
legu stöffi og hasar hérna, að
sprengja upp bíla og svona,“ segir
Agnes og hlær.
Spurð að því hvort einhver þekktur
hollenskur leikari leiki í myndinni
svarar Agnes því að einn leikari í
myndinni, Victor Löw, sé nokkuð
virtur og vinsæll í Hollandi. Reykja-
vík-Rotterdam hafi fyrir vikið vakið
áhuga hollenskra fjölmiðla.
Hasar
og læti
í Rotter-
dam
Búmm! Bíll springur í loft upp, Baltasar og Þröstur horfa á. Leikarinn Victor Löw grimmur að sjá með byssu í
hendi og Óskar leiðbeinir einum af aukaleikurum myndarinnar sem fer með hlutverk sérsveitarlögreglumanns.
Ljósmyndir/Dirk Rijneke