Morgunblaðið - 28.03.2008, Síða 8
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Dæling ehf. á Fljótsdalshér-aði sérhæfir sig í hreinsunog ástandsgreininguveitukerfa og hreinsun
gatna og gangstétta. Dæling keypti
nýverið til landsins sérhæfð tæki,
þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi.
„Fyrst er að nefna stóran götusóp
af gerðinni Schmith SK700 með 7
rúmmetra safnkassa og 2.200 lítra
vatnstank,“ segir Agnar Sverrisson,
framkvæmdastjóri Dælingar. „Hann
er búinn þeim nýjungum að í honum
er bara einn mótor. Yfirleitt eru tveir
mótorar, einn sem knýr sópbúnað og
annar sem keyrir sópinn áfram. Að
hafa einn mótor gerir að verkum að
mun minni hávaðamengun er frá
honum og að sjálfsögðu helmingi
minni umhverfismengun og mun
betri nýting á orkugjafa, sem er dísil-
olía. Það eykur afköstin að kominn er
stafrænn álestur á burstana, maður
sér það allt inni í ökumannshúsinu
hvort maður er að pressa þá of mikið
niður eða ekki að koma við. Svo er
hann útbúinn öllum þægindum sem
hugsast getur fyrir ökumanninn, loft-
fjaðrandi sæti og loftkælingu. Það
skiptir öllu máli í rekstri og viðhaldi á
tæki að manninum líði vel, fyrir utan
nú að halda starfsmanninum líka, því
fyrirtækið er jú ekkert nema starfs-
mennirnir sem vinna í því.“
Verulega knáir en þó smáir
Dæling keypti einnig tvo nýja
gangstéttasópa frá Schmith, sem
heita Svingo, annar 2000 árgerð og
hinn 2007. Agnar segir þá útbúna
vatnsendurvinnslu, þeir endurnýti
vatnið sem notað er við að rykbinda,
þannig að menn séu ekki alltaf hang-
andi á brunahananum að taka vatn.
Gangstéttarsóparnir eru með 1,8
rúmmetra safnkassa, fjórhjólastýri
sem gerir þá einkar lipra, þeir eru
130 cm á breidd og geta breikkað
burstana alveg út í 250 cm. Þeir eru
því fjölhæf tæki og mjög afkastamikil
miðað við stærð.
Agnar segir þessi tæki byltingu
miðað við það sem menn hafi verið að
nota hérlendis. Dæling sé fyrsta ís-
lenska fyrirtækið til að flytja inn tæki
af þessari gerð og nú séu fleiri á leið
til landsins að sögn Aflvéla, sem er
umboðsaðili þessara tækja.
Dæling hefur einnig keypt nýjan
lítinn dælubíl, Toyotu Dina, og var
smíðað á hann hjá JHL í Danmörku.
„Hann er þannig til kominn að við
erum oft að keyra langt fyrir litla
vinnu. Það er dýrt að keyra 26 tonna
bíl til að losa eina litla stíflu og þessi
bíll gerir allt sem stór dælubíll gerir,
en bara minna af því og hægar. Hann
er sendur í minni verkefni. Hann er
þó það stór að við náum að tæma með
honum rotþró, t.d. við sumarbústaði
þar sem oft er erfitt að komast að;
mjóir vegir og þröng hlið. Hann
kemst t.d. inn í öll venjuleg bíla-
stæðahús. Dælubíllinn er klæð-
skerasaumaður fyrir okkur á þann
hátt að hann er mjög vel frostvarinn.
Það eru tvær olíumiðstöðvar í hon-
um. Önnur heldur dæluskápnum
heitum og svo er hringkeyrt í honum
vatnið og hitað þegar menn keyra á
milli. Hann er útbúinn þannig að við
getum tengt hann við næstu raf-
magnsinnstungu. Hann getur því
staðið úti á nóttunni, sem dælubílar
geta yfirleitt ekki í frosti.“
Agnar segir litla dælubílinn gera
að verkum að menn verði ekki eins
bundnir af veðri við að þjónusta
byggðirnar sem lengra séu frá. Ekki
þurfi lengur að miða við að ná frost-
frírri nótt ef fara eigi lengra en sem
nemur einum degi.
Tækjafloti Dælingar er tveir stórir
götusóparar, tveir litlir gangstétt-
arsópar og sjö misstórir og mismun-
andi útbúnir dælubílar. Einn er sér-
staklega útbúinn til tæmingar á
rotþróm og skilur í sundur þurrefni
og vatnið. Tveir dælubílanna eru með
ADR vottun til eiturefnaflutninga
þannig að flytja má í þeim olíu-
úrgang. Nýr, vel útbúinn dælubíll
leggur sig í dag á 40 til 50 milljónir
króna að sögn Agnars og því miklar
fjárfestingar hjá Dælingu í tækjum.
Frá Kópaskeri til Skaftafells
Dæling var stofnuð árið 2005 þeg-
ar nokkrir lykilstarfsmenn Bólholts
ehf. ásamt eigendum, keyptu rekstur
dælubíla og götusópa út úr Bólholti,
sem í dag rekur skólphreinsistöðvar
og selur, en Dæling sér um bílaút-
gerðina.
„Okkar helsta starfssvæði er frá
Þórshöfn og suður í Skaftafell,“ segir
Agnar. „Starfsmenn eru níu og hafa
verið upp í 15 þegar mest er. Rekst-
urinn er orðinn umfangsmikill og er
vaxandi. Við erum einnig með starf-
semi á suðvesturhorninu, erum þar
með dælubíla og myndum mikið
lagnir fyrir stærstu verktakana þar.
Aðstaða okkar hefur verið á Hafn-
arbraut í Kópavogi en nú erum við að
flytja í eigið húsnæði við Völuteig í
Mosfellsbæ. Þar vinna þrír núna en
hafa verið fimm og upp í sjö yfir sum-
artímann.“ Þess má geta að Dæling
hefur þjónustað verktaka Kára-
hnjúkavirkjunar, Bechtel sem byggði
álverið á Reyðarfirði og er nú með
þjónustusamning við Alcoa Fjarðaál.
Verkefni Dælingar er sem fyrr
segir hreinsun fráveitukerfa og
myndun og ástandsgreiningu á þeim.
Einnig að kanna hvort kerfin eru rétt
tengd. Agnar segir að fyrir komi að
hús hafi verið tengd vitlaust inn á
kerfi, tvöfalt kerfi sé yfirleitt í göt-
unum og fyrir komi að skólp sé tengt
inn á regnvatnskerfi og þá komi
skólplykt upp úr þakrennunum.
Agnar segir t.d. nýbúið að vinna
ástandsgreiningu á öllu kerfinu á
Þórshöfn og kortlagningu á því sem
ekki liggi ljóst fyrir hvernig er. „Þá
setjum við sendi niður í lagnirnar og
eltum hann svo ofanjarðar til að finna
hvernig þær liggja og hvert.“
Umhverfisvæn vinnubrögð
Agnar segir mjög hraða þróun í
geiranum. „Við notum orðið engin
efni. Starfsemin er mjög umhverf-
isvæn og við vinnum allt með vatni.
Tækin sem við höfum verið að end-
urnýja eru öll með Euro-4 mótorum;
umhverfisvænustu mótorum sem
hægt er að fá í dag. Við erum með
mjög skýrt mótaða umhverfisstefnu í
fyrirtækinu. Erum til dæmis búnir að
taka í gegn aðstöðuna okkar í Fella-
bæ, endurnýja allt lagnakerfi í hús-
inu og tengja í olíu- og sandgildrur.
Hér flokkum við síur, olíumengaða
klúta, pappír, kaffistofusorp og gróf-
úrgang af verkstæði.“
Á Austurlandi er Dæling mikið í
gatna- og gangstéttasópun og hreins-
un á bæjarfélögunum og aðstöðu fyr-
irtækja og einstaklinga. Hreinsun
gatna og gangstétta er umfangsmikil
vinna og vaxandi. Agnar segir menn
farna að sópa oftar til að losna við
svifryk. Dæling hefur sópað frá
Kópaskeri í Skaftafell. Hreinsun af
gangstéttum og götum er yfirleitt
möl og ryk og fer á næsta efnistipp
og nýtist þar. Efni úr rotþróm og
fitugildrum er urðað við Egilsstaði, í
Vopnafirði og í Lóni. Olíuúrgangur
fer í safntanka. „Þegar við hreinsum
upp olíu eftir óhöpp t.d., sem er
drulla í, eigum við alltaf möguleika á
að fleyta olíunni ofan af úr bílunum til
að skilja þetta í sundur.“
Dót getur dottið ofan í hella
Fyrirtækið vinnur því eftir mjög
ströngum umhverfis- og gæðakröf-
um. „Við fylgjumst mjög grannt með
öllum nýjungum og munum að sjálf-
sögðu bera okkur eftir þeim eins
fljótt og við getum. Þróunin í lagna-
myndunarbúnaði er t.a.m. ör. Um er
að ræða dýran hátæknibúnað. Við
höfum lent í að missa búnað, t.d. und-
ir þjóðvegi 1 í Borgarnesi milli Olís
og Hyrnunnar. Þar misstum við
myndavél ofan í helli sem hafði
myndast undir veginum. Það var
ekkert um annað að ræða en að loka
þjóðveginum og fara að grafa. Í
lagnamyndunarbúnaði er staðsetn-
ingartæki svo við getum alltaf elt
hann uppi. Stærsti traktorinn sem
flytur myndavélina með öllum auka-
búnaði kostar eins og nýr Nissan
Patrol jeppi. Þessu hendir maður inn
í næstu skólplögn!“
Að sögn Agnars er útlit fyrir vax-
andi markað fyrir þjónustu fyrirtæk-
isins. „Meiri kröfur eru orðnar um
alla losun á úrgangi, sem þýðir að
meiri möguleikar eru í þessu. Al-
menn vakning hjá fólki í umhverf-
ismálum, hertar reglur hins opinbera
og meira eftirlit kallar allt á aukin
verkefni.“
Dælubíll Einn af dælubílum í eigum Dælingar Knár Þessi er knár þótt hann sé smár. Stór Götusópur af gerðinni Schmith SK7000.
Betri og umhverfisvænni vinnubrögð
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Eigendur: Þrír af fjórum eigendum Dælingar. F.v. Agnar Sverrisson, Víðir Gunnarsson og Sigurbjörn Egilson en
auk þess á Bólholt efh. hlut í félaginu.
Umhverfisvæn Stefna fyrirtækisins er umhverfisvæn, hvort sem kemur að bílunum sjálfum eða flokkun rusl á
starfsstöð fyrirtækisins í Fellabæ.
Dæling ehf. fyrst
til að flytja inn há-
þróaða dælubíla
og götusópa sem
lágmarka um-
hverfisáhrif og há-
marka afköst
» Tækin sem við höf-
um verið að end-
urnýja eru öll með
Euro-4 mótorum; um-
hverfisvænustu mót-
orum sem hægt er að
fá í dag. Við erum
með mjög skýrt mót-
aða umhverfisstefnu í
fyrirtækinu.
8|Morgunblaðið