Morgunblaðið - 28.03.2008, Side 22
22|Morgunblaðið
Rinaldo Piaggio stofnaði Piaggio árið 1884, þá tví-tugur. Fyrirtækið framleiddi varahluti í skip,lestarvagna, lestarvélar, vörubíla og margt fleiraað lokinni seinni heimsstyrjöldinni. Efnahagur
Ítalíu var í molum eftir styrjöldina og Enrico Piaggio, sonur
Rinaldo, og félagar hans ákváðu þá að framleiða farartæki
sem fjöldinn hefði efni á að kaupa og reka. Eftir margar
misheppnaðar tilraunir fékk hann Vorradino D‘Ascanio til
þess að taka við stjórn hönnunar. D‘Ascanio var lærður
hönnuður og hafði fram að því starfað sem flugvélasmiður.
Hann hafði ekki mikinn áhuga á mótorhjólum og sú hönnun
sem hann sýndi Enrico Piaggio var ólík öllum öðrum mót-
orhjólum. Ýmislegt í hönnuninni minnti á flugvélar þess
tíma, til dæmis framhjólið og hönnun ,,skeljarinnar“ sem
faldi vélina. Ökumaðurinn sat með fætur saman, með
,,skjöld“ sér til varnar og gírskiptingin var í öðru handfang-
inu. Hjólið átti að vera einfalt og þægilegt. Þegar Enrico
Piaggio skoðaði mynd af hjólinu í fyrsta skipti sagði hann:
Hvað eiga John Waine, Audrey Hepburn, Sting og Jude Lowe
sameiginlegt? Jú, Þórunn Stefánsdóttir komst að því að þau
hafa öll verið einlægir aðdáendur vespunnar og það sama má
segja um fleiri ríka og fræga sem hafa keppst um að aka um og
láta mynda sig á þessu fagra fyrirbæri. Þá hefur vespan líka
komið fram í ýmsum kvikmyndum.
Saga vespunnar
,,Það er eins og vespa!“ vegna breiða ,,skjaldarins“ að fram-
an og granna ,,mittisins“. Í apríl 1946 var fyrsta vespan
framleidd.
Vespan sló nánast strax í gegn og á komandi árum átti
Piaggio fullt í fangi með að anna eftirspurn. Árið 1946 voru
framleiddar 2.484 vespur, árið 1953 var ársframleiðslan
komin upp í 171.200. Árið 1956 hafði verið framleidd um ein
milljón slíkra hjóla, en í dag hafa verið framleiddar nálægt
sautján milljónir vespna.
„Vespuna hafa hann og eiginkonan átt í þrjú
ár en við gáfum hana hvort öðru í morgungjöf
er við gengum í hjónaband. Hana höfum við
keyrt hér á landi síðustu 2 ár við góðan orðstír
og hlökkum við ávallt til þegar snjóa leysir og
hægt er að taka vespuna út úr bílskúrnum á
nýjan leik.“
– Keyptir þú hana hér heima eða í útlönd-
um?
„Vespan var keypt á Ítalíu er við bjuggum
þar. Hún var óspart nýtt í skemmtilegar ferðir
með vinum um Emilia-Romagna-héraðið á
Ítalíu og var bráðnauðsynlegur ferðamáti þar
í landi. Þó svo að ítalska umferðarmenningin
geti verið ansi fjörug á köflum taka ítalskir
ökumenn mun meira tillit til vespunnar en ís-
lenskir kollegar þeirra. Hérna geta stóru
jeppakarlarnir sko ekki farið að taka tillit til
einhvers vespukrílis. Vespuna fluttum við svo
með okkur í gámnum þegar við komum heim
eftir ævintýrið og greiddum að sjálfsögðu
undarlega há gjöld til íslenska ríkisins við inn-
flutninginn.“
– Hvers vegna vespa?
„Þetta er bara svo skemmtilegt farartæki
og virkilega gaman að ferðast um á því. Þó að
vespan sé ekki hraðskreið, nær að hámarki 80
kílómetra hraða í halla, dugar hún vel í höf-
uðborginni. Ég þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af bílastæðum. Það spillir svo ekki
hversu sparneytin vespan er þar sem það er
ekki lengur fyrir venjulegan mann að standa
straum af bensínkostnaði bifreiðar.“
– Vekur þú athygli á götunum?
„Að sjálfsögðu geri ég það enda ein flottasta
vespa landsins á ferðinni. Ég lærði það hins
vegar fljótt að eina hugsunin sem gildir á
vespunni er að hugsa líkt og um bíl væri að
ræða. Það þýðir ekkert að keyra endalaust úti
í kanti þó að umferðin sé hröð. Þar sem ég
keyri iðulega á mörkum löglegs hámarks-
hraða innanbæjar hef ég tekið vel eftir því að
umferðin er svo langt yfir þeim mörkum. Síð-
an er mjög greinilegt að íslenska þjóðarstoltið
kemur í veg fyrir að nokkur maður geti keyrt
fyrir aftan vespu, það bruna allir fram hjá,
óháð því hvort þeir skapa sjálfum sér eða mót-
umferð hættu við framúraksturinn.“
– Hvernig finnst þér vespan henta íslenskri
veðráttu?
„Það var óneitanlega þægilegra að keyra
um á henni í ítalskri veðráttu, klæddur stutt-
buxum og hlýrabol. Hins vegar hef ég náð að
nýta hana lygilega mikið hér á landi, það gildir
bara að búa sig vel og klæðast hlífðarfatnaði
öryggisins vegna.“
Engar áhyggjur
af bílastæðum
Morgunblaðið/Ómar
Stoltur Trausti Hafsteinsson keyrir stoltur
um á vespu í íslensku umferðinni.
Trausti Hafsteinsson blaða-
maður er einn þeirra Ís-
lendinga sem bruna um
götur borgarinnar á glæsi-
legri vespu.
,,Í grunninn má segja að vespan sé minn gamli
draumur. Ég fékk ferð til Ítalíu í ferming-
argjöf og við mamma fórum þangað saman. Á
Ítalíu varð ég strax ástfanginn af vespunni. Ég
leigði mér eina slíka og féll þá endanlega kylli-
flatur,“ segir Gunnar.
Löngunin í eigin vespu hefur blundað með
Gunnari síðan og síðustu tíu árin hefur hann
skoðað vespur á netinu með það í huga að
finna vespu fyrir sjálfan sig.
,,Í fyrra fór ég ásamt fjölskyldunni í aðra
Ítalíuferð og þá vildi svo til að húsið sem við
leigðum var rétt hjá höfuðstöðvum Piaggio.
Ég fór þangað ásamt konunni minni sem ég
kynnti sem viðskiptafélaga minn. Mér var tek-
ið mjög vel og ég endaði á fundi með topp-
unum í fyrirtækinu. Það kom í ljós að þeir eru
mjög hrifnir af Íslandi, sögðu að vespan hefði
selst mjög vel í Norður-Evrópu og þeim fannst
upplagt að kanna markaðinn á Íslandi. Í jan-
úar sendu þeir hingað fimm vespur sem prufu-
eintök, ein þeirra er mín eign, og nú er að
koma til landsins þokkalega stór pöntun. Nú
er að koma vor og boltinn fer að rúlla. Und-
anfarnar tvær vikur hefur síminn ekki stoppað
og það er greinilegt að það hafa margir verið á
svipuðum nótum og ég. Fólk sem hefur ferðast
um Evrópu þekkir Piaggio-merkið vel og af
hinu góða.“
Vespan er góður kostur í dag þegar bens-
ínverð hækkar upp úr öllu valdi og ekki spillir
að hún stenst ýtrustu umhverfisstaðla. Því má
með sanni segja að vespan sé umhverfisvænt
farartæki.
,,Það kostar um þúsundkall að fylla hana,“
segir Gunnar og bætir við að það megi komast
langt áður en það þurfi að fylla tankinn aftur.
,,Vespan er sjálfskipt og einföld í notkun og
þetta eru alls engar saumavélar. Til eru þrjár
mismunandi vélarstærðir og sú stærsta er
mjög kraftmikil. Þær sem hafa minnstu vélina
kosta um 340 þúsund krónur og kröftugasta
vespan kostar 6-700 þúsund. Í ár er framleidd
sérstök afmælisútgáfa, í tilefni 60 ára afmælis
fyrirtækisins, og er hún með ekta leðursætum
og fleira flotteríi. Við höfum fengið frábæran
þjónustuaðila, Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur,
í lið með okkur til þess að sjá um viðgerðir og
aðra þjónustu.“
Gunnar leggur áherslu á það að vespan
henti báðum kynjum og þær séu ekki síður
hannaðar með konur í huga.
Ást við fyrstu sýn
Ást Gunnar Karlson leikari fyrir framan
vespu sem hann féll fyrir.
Gunnar Hansson leikari
féll kylliflatur fyrir vesp-
unni þegar hann fór ný-
fermdur með mömmu sinni
til Ítalíu og hefur nú einka-
umboð fyrir Piaggio-vesp-
ur hér á landi.